Dagblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1980. 7 HUNDRAÐ MILUÓNIR TAPAST Á DAG Frá Sigurjóni Jóhannssyni, fréttarit- ara DB i Osló: Verkfall 2000 norskra olíuverka- manna í Norðursjó, sem skall á fyrr í vikunni, er nú kailað dýrasta verkfall í sögu Noregs. Ástæðan er sú að með þessu verkfalli hættir olia og gas að streyma frá nær öllum olíuvinnslu- stöðvum á norska svæðinu í Norður- sjó. Ennþá fer fram borun á pöllun- um en þeir sem eru (verkfalli hóta nú að loka fyrir rafmagn og vatn á bor- pöllunum ef ekki verður gengið til samninga hið bráðasta. Talið er að ríkið tapi hundrað milljónum norskra króna á sólarhring í formi skatta frá viðkomandi olíuféiagi. En oliuvinnslan er gífurlega hátt skött- uð. Rfkisstjórnin hefur ákveðið að .grípa ekki til kjaradóms i þessu máii og eru margir undrandi yfir því þar sem strax var ákveðið að vísa launa- deilu kennara, hjúkrunarkvenna og fleiri samtaka til kjaradóms sem þýðir að viðkomandi aðilar geta ekki gripið til verkfalla nema þá á ólögleg- an máta. Talsmaður olíuverka- manna, Kjell Sellevold, segir i viðtali við Dagblaðið norska að verkfallið sé fyrst og fremst tilkomið vegna óánægju með vinnuaðbúnaðinn en ekki til að krefjast hærri launa. „Eftir að við höfum átt í samninga- viðræðum við olíufélögin Elf, Mobil og Philips í 5—6 mánuði er þolin- mæði okkar á þrotum.” Tíu ár án samnings Verkamenn kr-fjast nú að viðkom- andi olíufélög gangi til samninga um aðalkjarasamning þar sem unnið hafi verið á olíuborpöUum í nærri 10 ár með meira eða minna óljósa samn- inga. „Það er stöðugt verið að brjóta atvinnulöggjöfma á borpöllunum í Norðursjónum. Verkamennirnir verða að fara á öryggisnámskeið í frí- tíma sínum og þeir eiga bágt með að kyngja þvi að allar kröfur um um- bætur skuU sendar til skrifstofu í Bandaríkjunum þar sem flestar loka- ákvarðanir um vinnutíma og vinnu- aðbúnað eru teknar,” segir Kjell Sellevold. Aðalkröfur verkfallsmanna eru þrjár: 1. Olíuverkamenn í Norðursjó komist á eftirlaun frá 60 ára aldri. 2. Þrír menn skipti með sér stöðu (í stað 2,5 nú) og þá séu öryggis- námskeið haldin í vinnutíma. 3. Verkamenn'eignist fulltrúa i þeim ráðum olíufélaganna sem fjalla um laun og vinnuaðbúnað. Hver er svo skoðun viðkomandi olíufélaga á þessu verkfalli? Talsmaður þeirra segir að olíu- verkamennirnir fari fram á 33% launahækkun en þieim hafi verið boðin 15,3% launahækkun. Verka- menn vilja stytta vikulegan vinnu- tíma úr 36 klst. í 28 klst. með nýrri vaktaskipan. Verði gengiö að þeirri kröfu jafngildi hún ein um 18,5% launahækkun. Talsmaðurinn neitar því að olíu- félögin hafi eitthvað á móti aðal- kjarasamningum, hann segir að meðallaun olíuverkamanna úti á bor- pöllunum séu nú um 150þús. norskra króna á ári eða sem svarar 15 milljón- um íslenzkra króna. - BH / SJ, Osló. Verkfallá norsku olíubor- pöllunum: Hjarðarholtsprestakall: Friðrik J. Hjartar kjör inn sóknarprestur Prestskosning fór fram í Hjarðar- hoitsprestakalli í Snæfellsnes, og Dalaprófastsdæmi jafnhliða forseta- kosningunum sl. sunnudag. Atkvæði voru talin á skrifstofu biskups í gær. Á kjörskrá voru 423 en þar af greiddu 282 atkvæði. Umsækjandi var Friðrik J. Hjartar cand. theol. og hlaut hann 265 atkvæði. 17 seðlar voru auðir. Kosningin var lögmæt og mun þvi Friðrik taka við prestakall- inu þegar hann hefur hlotið vigslu til þess. -ÓV Yf irlýsing f rá SKULD vegna auglýsingar Blaðinu hefur borizt eftirfarandi yfirlýsing frá SKULD vegna auglýs- ingar sem birtist í blaðinu 30. júni. Við viljum biðjast velvirðingar á mishermi í auglýsingu þeirri sem birt- ist 30. júni. Þar cr sagt að hrefnuskut- utl sé um hálfur metri á lengd en hann er í raun vel á annan metra. Nú orðið er dýrið yfirleitt ekki dregið að bátnum á þann hátt sem lýst er heldur er reynt að skjóta dýrið með öflugum riffli. drepist þaðekkistrax. Til viðbótar má geta þess að tveir félagar úr SKULD eru nýkomnir úr ferð þar sem þeir urðu vitni að drápi á þremur hrefnum. Tvær dóu nær sam- stundis en sú þriðja dó af riffilskoti. um það bil 15 mínúfum eftir að skutull hæfði hana. Virðingarfyllst, Jón Baldur Hliðberg, Edda Bjarnadóttir. Árbók Samvinnuskólans komin út Út er komin Árbók Nemendasam- bands Samvinnuskólans, sjötta bindi. í þessu bindi erh nöfn, æviat- riði og myndir af þeim nemendum sem útskrifuðust úr Samvinnuskólan- um árin 1925, 1935, 1945, 1955, 1965 og 1975. Er það rúmlega 200 manns. Jafnframt eru í bókinni valdir kaflar úr fundargerðum skólafélagsins á hverjum tima. Eysteinn Jónsson fyrrv. ráðherra skrifar í bókina grein sem heitir Hvers vegna Samvinnu- skóli? Ásamt þessu eru i bókinni ýmsar myndir sem tengjast Sam- vinnuskólanum fyrr og nú. Bókin er afgreidd til áskrifenda og félagsmanna Nemendasambands Samvinnuskóians gegn greiðslu gíró- seðils sem sendur var út til viðkom- andi fyrir nokkru. Einnig fæsl bókin að Hamragörðum, Hávallagötu 24 i Reykjavik, og þar geta menn gerzt áskrifcndur. Ritstjóri Árbókar Nem- endasambands Samvinnuskólans er Guðmundur R. Jóhannsson. íþróttakappinn í Dagblaðsbíói f Dagblaðsbfói á morgun verður i svarthvítu og ekki með texta. Sýn- sýnd kvikmyndin íþróttakappinn ingin hefst klukkan þrjú i Hafnar- sem fjallar um fræga hornabolta- bíói. stjörnu í Bandaríkjunum. Myndin er • \ Hugmynd FÍB um mótmæli gegn síðustu bensínhækkun: Stöðvið bflana! „Hugmyndin er sú að hvetja fólk til þess að hreyfa bílana sem allra minnst í svo sem eins og tvær vikur,” sagði Hafsteinn Vilhelmsson framkvæmda- stjóri Félags íslenzkra bifreiðaeigenda um væntanlegar aðgerðir félagsins til þess að mótmæla síðustu bensínhækk- un. „Aðgerðirnar myndu að öllum líkindum hefjast núna eftir helgina. En það fer eftir fjármagni okkar hversu vel við getum staðið í þessu. Til dæmis kostar orðið mjög mikið að auglýsa í útvarpi og á ég eftir að athuga betur með kostnaðarhliðina. En þetta er sem sé hugmyndin,” sagði Hafsteinn. -DS. 1000 lundar á tveim dögum Lundaveiðin er hafin i Vestmanna- fugla á tveim dögum. Að sögn kunn- eyjum og hefur veiðzt vel það sem af ugra eru horfur á góðu veiðisumri. er. Einn veiðimanna fékk eitt þúsund -FÓV/óg Finnbogi Pétursson og Guðgeir Gunnarsson urðu I öðru sæti i hæfileikakeppninni siðastliðið sumar. komi fram á Sögu annað kvöld. Hæfileikakeppnin á Sögu hefst íkvöld: Vonir standa til að þeir ' DB-mynd. Tíu manns koma f ram f keppnisatriðunum þremur Keppendur á fyrsta eiginlega hæfi- leikakvöldinu á Hótel Sögu verða hvorki meira né minna en tíu talsins þó að keppnisatriðin séu að sjálfsögðu ekki nema þrjú. f einu þeirra kemur nefrtilega fram átta manna flokkur fiðluleikara frá Akranesi sem kalla sig Brotna boga. Aðrir keppendur verða Helgi Sigurðsson frá Reykjavík, sem syngur við eigin undirleik, og Jóhannes Hilmisson frá Sauðárkróki. Hann gat sér gott orð með Vísnavinum í sjón- varpinu á kosninganóttina á dögunum. Skemmtunin annað kvöld hefst klukkan hálftíu er hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar og dansarar flytja rokkóperuna Evitu. Meðan á sýning- unni stendur verður Súlnasalnum lokað þannig að gestum er bent á að koma tímanlega. Að flutningi Evitu loknum tekur hæfileikakeppnin sjálf við. Þá ,um kvöldið koma einnig fram ein- .hverjir keppendur frá síðasta sumri^ 'væntanlega Finnbogi Pétursson og' 'Guðgeir Gunnarsson, sem urðu í öðru sæti á jokakeppninni í fyrra. Ef aðsókn á hæfíleikakvöldin verður í líkingu við það sem hún var í fyrra- sumar þá er fólki ráðlagt að tryggja sér borð i Súlnasal Hótel Sögu í tíma. Ráðamenn á Sögu eru að íhuga að selja mat í salnum á sunnudagskvöldum en ákvörðun um þaðverður tekin síðar. Alls hafa átján atriði verið skrásett í keppni sumarsins. Samtals eru í þeim 48 manns. Nokkur atriði vantar enn svo að fullbókað sé. Tekið er við þátt- tökutilkynningum í síma 45665 á kvöldin. Allár upplýsingar um keppn- ina eru veittar þar og sömuleiðis á rit- stjórn Dagblaðsins. Síminn þar er 27022. -ÁT Ályktun f lugafgreiðslumanna: Takið á vandamálunum með gagnkvæmum skilningi n árabil þannig að starfsfólk megi la viö meira atvinnuöryggi en verið hefur.” ■ EVI 31 f lugf reyju sagt upp „Boðuð vinnustöðvun flugmanna á mestu annatímum Flugleiöa eykur aðeins á þá erfiðleika félagsins sem ærnir eru fyrir,” segir m.a. í yfirlýs- ingu flugafgreiðslumanna á Kefla- víkurflugvelli. „Við tökum hvorki afstöðu með Flugleiðum né flugmönnum en skorum á báða aðila að taka á þessu mikla vandamáli með gagnkvæmum skilningi og meiri festu og leiða til, lykta þann ágreining sem verið hefur Flugfreyjur lýstu í gær fullum stuðningi við þá kröfu flugmanna hjá Flugleiðnm að áhafnir Flugleiða hafi skilyrðislausan forgang að öllum þeim verkefnum sem til falla á vegum félagsins. Stjórn og trúnaðarmannaráð þeirra minnti á að samhliða uppsögn- um 89 skrifstofumanna hjá Flug- leiðum var sagt upp 31 flugfreyju með 5—7 ára starfsaldur. - EVI

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.