Dagblaðið - 13.09.1980, Blaðsíða 2
2
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1980.
Chevy Van árg. 74
plussklæddur með 5 háum stól-
um, aflstýri og -bremsur, sjálf-
skiptur, góð dekk. Mikið
endurnýjaður. Verð tilboð. Til
sýnis að Sogavegi 218 í dag og
næstu daga.
Sútun
Tek skinn til sútunar, mót-
taka skinna föstudaga frá
kl. 4—8 e.h. að Ránargötu
11 Rv Uppl. í síma 17278
eftir kl. ^ á kvöldin.
Geymið auglýsinguna -
AUGLÝSING
um starfslaun til listamanns
Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um starfslaun
til listamanns í allt að 12 mánuði.
Þeir einir listamenn koma til greina við úthlutun starfs-
launa, sem búsettir eru í Reykjavík, og að öðru jöfnu skulu
þeir ganga fyrir við úthlutun, sem ekki geta stundað list-
grein sína sem fullt starf. Það skilyrði er sett, að lista-
maðurinn gegni ekki fastlaunuðu starfi meðan hann nýtur
starfslauna.
Fjárhæð starfslauna fylgir mánaðarlaunum samkv. 4.
þrepi 105. ifl. í kjarasamningi Bandalags háskólamanna og
fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Starfslaun eru greidd án
orlofsgreiðslu eða annarra launatengdra greiðslna.
Að loknu starfsári skal listamaðurinn gera grein fyrir starfi
sínu með greinargerð til stjórnaf Kjarvalsstaða, framlagn-
ingu; flutningi eða upplestri á verki í frumflutningi eða
frumbirtingu, allt eftir nánara samkomulagi við stjórn
Kjarvalsstaða hverju sinni og í tengslum við Listahátíð eða
Reykjavíkurviku. Ekki er gert ráð fyrir sérstakri greiðslu
samkv. þessari grein, en listamaðurinn heldur höfundar-
rétti sínum óskertum.
í umsókn skal gerð grein fyrir viðfangsefni því, sem
umsækjandi hyggst vinna að og veittar aðrar nauðsynlegar
upplýsingar.
Umsóknum skal komið til listráðunauts Kjarvalsstaða fyrir
l.okt. 1980.
12. september 1980.
Stjórn Kjarvalsstaða
Myndlista-
'handídaskóli
dands
Námskeið
fri 1. október 1980 tí/20. janúar 1981:
1. Teiknun og miíun fyrir börn og unglinga
2. Teiknun og milun fyrir fullorðna
3. Bókband
4. Almennur vefnaður.
Innritun fer fram daglega frá 15. september a skrifstofu
skólans, Skipholti 1.
Námskeiðsgjöld ber að greiða við innritun.
Skólastfóri
Skipholti 1 Reykjovík sími: 19821
Ekki er innanlandsflugið liklegt til að skila hagnaði.
DB-m.vnd R.Th.
Á hverju á að græða?
— Evrópuflugið er líka rekið með tapi
Spurull spyr:
í fréttatilkynningu frá Flugleiðum
nýlega kom fram að tap væri á
Evrópuflugi félagsins. Þetta hefur
ekki komið fram áður, því einungis
hefur verið um það rætt að Atlants-
hafsreksturinn í fluginu væri sá sem
væri að kollsigla flugreksturinn.
Gaman væri þvi að vita hvaða leiðir
Evrópuflugsins eru reknar með tapi.
í framhaldi af þessari frétt Flug-
leiða um tapið á Evrópuleiðum má
það furðulegt teljast að hagdeild fé-
lagsins spáir engu að síður 900 millj-
óna króna hagnaði fyrir næsta ár.
Hvernig getur þetta tvennt farið
saman? Það er kannski ekki furða
þótt almenningur trúi varla hinum
ýmsu fréttatilkynningum félags sem
lætur slíkar mótsagnir frá sér fara.
Pólska söngvakeppnin:
Verður sýnt frá henni
í sjónvarpinu?
Tónlistarunnandi hringdi:
Mig langar að vita hvort sjónvarp-
ið ætli að sýna myndina frá söngva-
keppninni í Póllandi þar sem þau
Helga Möller og Jóhann Helgason
komust í úrslit fyrir hönd íslands. Ef
sjónvarpið hyggst ekki sýna frá þess-
ari keppni vil ég lýsa frati á íslenzka
sjónvarpið I heild.
Hinrik Bjarnason, forstöðumaður
l.ista- og skemmtideildar sjónvarps-
ins svaraði: „Ég held að ég geti sagt
það með nokkurri vissu að þátturinn
verði sýndur hér bráðlega.”
Söngflokkurinn „Þú og ég” tekur vid
gullplötum.
HVER ER MENNT-
UN BALDURS Ó.?
Kristján Grétar hringdi:
Athugasemdir Baldurs Óskarsson-
ar, eftirlitsmanns með Flugleiðum, á
opinberum vettvangi um málefni fé-
lagsins leiða hugann að menntun
slíkra manna sem ráðherra skipar til
að fylgjast með rekstri fyrirtækis.
Hver er menntun Baldurs Óskarsson-
ar? Er mann menntaður í bókhaldi,
endurskoðun, viðskiptafræði? Eða er
það ekki talið nauðsynlegt að þekkja
til slíkra fræða? Er „eftirlit” Baldurs
aðeins liður í tilraunum Alþýðu-
bandalagsmanna til að ná sér I góðar
stöður i ríkisreknu flugfélagi sem þeir
hafa svo mikinn áhuga á?
Svar: Baldur Óskarsson er eins og al-
kunna er menntaður úr Samvinnu-
skólanum og lauk þaðan brottfarar-
prófi árið 1961 — með einkunnina 10
í tvöföldu bókhaldi. Starfsreynsla
hans er fjölbreytt og spannar frá
sjósókn á Halamiðum til upp-
fræðslustarfa á vegum S.Þ. í Tanz-
aníu — m.a. í bókhaldi! Hann var
um árabil þingkjörinn endurskoð-
andi Landsbankans og gegnir nú
starfi yfirskoðunarmanns rikisreikn-
inga.
Baldur Óskarsson við ritvélina inni á
Loftleiðahóteli.
DB-m.vnd: Ragnar Th.
MEIRA ABBA
ABBA-aðdáandi skrifar:
Mér finnst að Sjónvarpið ætti að
endursýna ABBA-þáttinn sem var
Þessi mynd af ABBA fylgdi bréfinu
með ósk um birtingu.
sýndur um hvítasunnuna. Vona að
fleiri ABBA-aðdáendur taki undir.
Ég vil þakka fyrir þáttinn „Dýrin
mín stór og smá” sem er mjög góður.
Einnig mætti lengja dagskrána á
laugardagskvöldum og ég vil endilega
fá framhald af M.A.S.H. Verður
framhald á „Húsinu á sléttunni”?
Shelley ætti að taka sem fyrst út af
dagskránni.