Dagblaðið - 13.09.1980, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1980.
Sjónvarp
Þrír af fjórum umsjónarmönnum útvarpsþáttarins t vikulokin. Á myndina vantar Guðjón Friðriksson.
DB-mynd Rapnar Th.
ÍVIKULOKIN — útvarp í dag kl. 14,00:
ÞATTURINN HEFUR
ÖDLAZT FASTAN SESS
Þrtturinn í vikulokin hefur unnið
sér fastan sess í útvarpsdagskránni á
laugardögum. Þátturinn hefur frá
byrjun notið mikilla vinsælda og þó
nýir umsjónarmenn hafi komið í stað
þeirra sem byrjuðu með þáttinn þá
virðist hann ekki líða fyrir það.
Margir liðir hafa öðlazt fastan sess í
þættinum eins og til dæmis uppgjör
vikunnar, spurningaleikurinn og
fréttapistill Hermanns Gunnarssonar
íþróttafréttamanns.
Þátturinn verður á sínum stað í
dag i umsjá þeirra sem séð hafa um
þáttinn undanfarna mánuði. Það
eru Guðjón Friðriksson, Guðmundur
Árni Stefánsson, Óskar Magnússon
og ÞórunnGestsdóttir. -GAJ.
Á EVEREST ÁN SÚREFNISTÆKJA
— sjónvarp í kvöld kl. 21,00:
23
í)
Skorið úr sex-
tíu ára gömlu
ágreiningsmáli
Hæsta fjall heims, Mount Everest,
var klifið í fyrsta sinn 29. mai 1953.
Þeir sem klifu fiallið voru Edmund P.
Hillary t'. á Nvja Sjálandi og Tensing
Norkay, ,'palmaður sem var búsetlur í
Indlanu. '■ hesti ,..idur fjallsins er í um
8.800 metra hæð yfir sjávarmáli eða
meira en fjórfalt hærri en Hvannadals-
hnúkur á Öræfajokli, hæsti tindur
íslands 2.119 m.
Vmsir hal'a orðið til að feta i fótspor
Hillarys upp þetta hæsta fjall
heimsins. Sjónvarpsmyndin í kvöld
greinir frá tilraun, sem var gerð til að
klífa fjallið án súrefnistækja. Það voru
tveir kunnir fjallagarpar, Reinhold
Messner og Peter Habeler, sem ákváðu
að gera þessa tilraun og skera þar með
úr sextíu ára gömlu ágreiningsmáli: Er
unnc að klífa hæsta fjall heims án þess
að nota súrefnisgrímu? Við þeirri
spurningu fá sjónvarpsáhorfendur lik-
lega svar í kvöld.
-GAJ.
Margir hafa verið þeirrar skoðunar, að óhugsandi sé að sigrast á Mount Everest án
súrefnistækja. Í kvöld sjáum við mynd af tilraun sem gerð var til að sanna hið gagn-
stæða.
DÝRIN MÍN STÓR 0G SMÁ - sjónvarp
sunnudag kl. 21,00:
Tristan verður
ástfanginn
Það gerist markverðast i þættinum
,,Dýrin mín stór og smá” að þessu
sinni, að Tristan verður yfir sig ást-
fanginn af dóttur milljónamærings.
Sigfried þekkir föður stúlkunnar og lízt
ekki alls kostar á ráðahaginn. Ástar-
umleitanir Tristans ganga nokkuð
skrykkjótt þangað til hann segir stúlk-
unni sannleikann: að hann sé fátækur
námsmaður. Eftir það færist talsvert
fjör i leikinn og er ekki rétt að greina
nákvæmlega frá því. -GAJ.
ÍÞRÓTTIR — sjónvarp í dag kl. 16,30:
Snillingurinn Dun-
bar aftur á íslandi
— Leifar af efni frá ólympíuleikunum
í Moskvu
Meðal efnis í íþróttaþætti sjónvarps-
ins í dag verða kaflar úr leik íþróttafé-
lags stúdenta og Vals, sem leikinn var í
fyrrakvöld.
í leiknum beinist athygli manna fyrst
og fremst að Bandaríkjamanninum
Dirk Dunbar, sem lék með liði ÍS fyrir
tveimur árum. Vegna meiðsla varð
hann að halda til síns heima og læknar
ráðlögðu honum að hætta iðkun körfu-
knattleiks ef ekki ætti illa að fara.
Síðan hefur hann haft hægt um sig en
þó stolizt i boltaleik við og við. í sumar
fór hann i keppnisferð til Mexíkó með
liði frá heimafylki sínu. Liðið lék átta
leiki á jafnmörgum dögum og kappinn
Dunbar lét sig ekki muna um að skora
35 stig að meðaltali í leik. Dunbar er
einn skemmtilegasti körfuknattleiks-
maður, sem leikið hefur hér á landi og
verður gaman að sjá hann að nýju í leik
hér á landi. Hér hefur Dunbar þó
skamma viðdvöl því hann er á förum til
Þýzkalands þarsem hann mun þjálfa 1.
deildarliðið Darmstadt. Dunbar verður
ekki eini útlendingurinn í leik Vals og
ÍS því með stúdentum leikur auk hans
Mark Coleman, eldsnöggur og skæður
framherji og með Val leikur mjög harð-
skeyttur miðherji, Roy Johns.
í íþróttaþættinum i dag verður
einnig sýnt talsvert af efni frá ólymp-
íuleikunum i Moskvu. Sýnt verður frá
keppni í hnefaleikum, blaki, sund-
knattleik, frjálsum iþróttum og hand-
knattleik þannig að fiestir iþróttaunn-
endur ættu að finna eitthvað við sitt
hæfi í þættinum í dag.
BORGARBÍÓIÐ
hé'&Hi
KOPAVOGI
F-L-Ó-T-T-l-N-N FRÁ \8LtN»«RTtXT'
F-O-L-S-O-M FANGELSINU
Ný amerísk geysispennandi mynd um líf forhertra glæpamanna í hinu illræmda FOLSOM fang-
elsi i Kaliforniu og það samféiag sem þeir mynda innan múranna.
Byrjað var að sýna myndina víðs vegar um heim eftir Cannes kvikmyndahátíðina nú i sumar
og hefur hún alls staðar hlotið geysiaðsókn.
Blaðaummæli:
„Þetta er raunveruleiki”.
—New York Post —
„Stórkostleg1’.
— Boston Globe —
„Sterkur leikur” ... „hefur mögnuð áhrif á áhorfand-
íann”.
— The Hollywood Reporter —
„Grákaldur raunveruleiki”... „Frábær leikur”
— New York Daily News —
Leikstjóri: Michael Mann
Leikaran
Rain Murphy ......................... Peter Strauss
(ÍJr „Soldier Biue” + „Gæfa eða gjörvileiki”)
R.C. Stiles ........................ Richard Lawson
Cotton Crown....................... Roger E. Mosley
Sýnd kl. 5-7.10-9.20 og 11.30
Munið miðnætursýningu kl. 1:30 á föstudagskvöld og
laugardagskvöld. BÖNNUÐ BÚRNUM INNAN 16 ÁRA
-GAJ.