Dagblaðið - 13.09.1980, Blaðsíða 24
Sfjórnarþátttaka Alþýðubandalagsins og efnahagsmálin þrætuepli á fundi
miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins:
Geir og Jónas Haralz /
orðasennu við Gunnar
staða bankanna gagnvart Seðlabanka hagstæð um 5 milljarða um sl.
áramót, en er nú óhagstæð um 24 milljarða, sagði forsætisráðherra
Harðar umræður urðu um efna-
hagsmálin á miðstjórnarfundi Sjálf-
stæðisflokksins á fimmtudagskvöld-
ið. Jónas H. Haralz bankastjóri
hafði verið fenginn til að halda fram-
söguræðu um efnahagsmál á fundin-
um. Þegar ljóst varð að dr. Gunnar
Thoroddsen myndi sitja fundinn, í
fyrsta sinn síðan ríkisstjórn hans var
mynduð, þótti einhverjum sem þar
voru eðlilegra að forsætisráðherra
hefði framsögu um efnahagsmál.
Varð það úr og hélt dr. Gunnar 20
mínútna óundirbúna framsöguræðu.
Jónas H. Haralz talaði á eftir forsæt-
isráðherra, sömuleiðis Ellert Eiríks-
son, Matthías Bjarnason og Geir
Hallgrimsson. Jónas og Geir gagn-
rýndu ríkisstjórnina harðlega fyrir að
hafa haldið illa á stjórn efnahagsmál-
anna, en einnig að Alþýðubandalagið
hafi komizt í ríkisstjórn með stuðn-
ingi sjálfstæðismanna. Varð af orða-
senna Geirs og Jónasar annars vegar
og dr. Gunnars hins vegar. Forsæds-
ráðherra sagði I svari við gagnrýni
formanns Sjálfstæðisflokksins á
stjórnarþátttöku „kommúnista”
(Alþýðubandalags) að formaðurinn
hafi sjálfur staðið í stjórnarmyndun-
artilraunum m.a. við Alþýðubanda-
lagið á síðasta vetri. Hafi það vafa-
laust greitt fyrir því að stjórnarsam-
vinna tókstsiðar!
Þá sagði forsædsráðherra í svari
við innleggi Jónasar H. Haralz í um-
ræðuna, að fjármálastefna bankanna
væri dragbítur á baráttuna gegn verð-
bólgu. Á sama tíma og staða ríkis-
stjóðs væri batnandi stefndu bank-
arnir í öfuga átt. Um áramótin hafi
staða bankanna gagnvart Seðlabank-
anum verið hagstæð um 5 milljarða
króna en um sl. mánaðamót hafi
staðan hins vegar verið óhagstæð um
24 milljarða, þ.e. versnað um 29
milljarða á 8 mánuðum. Forsætisráð-
herra sagði stöðu Landsbankans
versta, skuld hans við Seðlabankann
næmi tæplega 14 milljörðum króna.
-ARH.
EFTIRLITSMENNIRNIR RÆÐA MÁLIN
Margumræddir efdrlitsmenn rikisins
með Flugleiðum, Birgir Guðjónsson
deildarstjóri i samgönguráðuneytinu og
efdrlitsmaður samgönguráðherra og
Baldur Óskarsson efdrlitsmaður fjár-
málaráöherra (t.h.) afhentu Erni Ó.
Johnson stjórnarformanni Flugleiða í
gær 50 spurningar og athugasemdir
vegna efnahagsskýrslu fyrirtækisins og
áætlunar um rekstur þess á næsta ári.
Er gerð krafa um að skrifleg svör við
athugasemdum efdrlitsmannanna ber-
ist stjórnvöldum strax eftir helgi.
—ARH/DB-mynd: RagnarTh.
„Tel starfsmenn jákvæða
gagnvart fyrírtækinu”
en skipting flugmanna í tvö stéttarfélög hefur valdiö miklum deilum,
segir Sigurður Helgason forstjóri
,,Við höfum valið þessa leiö til að~_
skýra starfsmönnum Flugleiða frá’
stöðu fyrirtækisins og þær aðgerðir
sem verið er að gera,” sagði Sigurður
Helgason forstjóri Flugleiða í viðtali
við DB í gær. Forstjórinn var
spurður um tilganginn með þeim
fundum sem hann og aðrir stjórnend-
ur fyrirtækisins halda um þessar
mundir með starfsmönnum Flug-
leiða. '
„Starfsmönnum eru kynntar þær
áætlanir, sem gerðar hafa verið um
framtíðarrekstur Flugleiða. Ég hef þá
trú að þessir fundir muni verða til
þess að treysta samvinnuna á meðal
starfsmanna,” sagði Sigurður enn-
fremur.
„Viðbrögð fólks eru góð að mínu
mati. Að sjálfsögðu spyr fólk mikið
um hin ýmsu mál sem félagið varða
en það er eðlilegt í þeirri skæðadrífu
fregna, sem nú dynja yfir, af mál-
efnum Flugleiða.”
Sigurður Helgason sagði að for-
ráðamenn Flugleiða hefðu ekki langt
fram neinar opinberar spár um hve
lengi hið harða verðstríð, sem nú
geisar á flugleiðinni yfir Atlantshaf-
ið, mundi standa. „Við höfum ein-
'ungis sagt að sú styrjöld gæti staðið i
eitt eða jafnvel tvö ár í viðbót,” sagði
forstjórinn.
Hann var ennfremur spurður um
hvort fram hefðu komið kröfur um
að höfuðstöðvar Atlantshafsflugsins
yrðu fluttar til Luxemborg vegna
óróa og vinnustöðvana á Islandi.
„Nei, það get ég ekki sagt,” sagði
hann. „Yfirleitt tel ég hug
starfsmanna fyrirtækisins jákvæðan
gagnvart Flugleiðum. Því er hins veg-
ar ekki að leyna að tvískipting flug-
manna í tvö stéttarfélög hefur valdið
miklum deilum og ég tel að það hafi
litað út frá sér meðal annars starfs-
fólks.”
Lausn þess máls er hins vegar al-
farið í höndum sáttasemjara ríkisins
að sögn Sigurðar Helgasonar.
-ÓG.
frfálst, úháð dagblað
LAUGARDAGUR 13. SEPT. 1980.
Hæfileikakeppnin:
Lokariðillinn
fyrir úrslit
annað kvöld
Siðasti riðill Hæfileikakeppninnar
fyrir úrslit fer fram á Hótel Sögu annað
kvöld. Þá keppa tveir menn, Valur
Óskarsson vísnasöngvari og Agnar Ás-
grímsson, sem syngur og leikur sjálfur
undir á gítar.
Að venju verður ýmislegt annað til
skemmtunar á hæfileikakvöldinu. Fé-
lagarnir EgiII Egilsson og Skúli Ingi-
mundarson, sem báru sigur úr býtum í
keppninni 24. ágúst koma og sýna
kvikmynd sína Land og túristi. Þá
verður einnig lokasýning á poppóper-
unni Evitu í Reykjavík.
Evita hefur þó ekki runnið sitt skeið
á enda ennþá. Fyrstu helgina í október
fer listafólkið norður á land og sýnir
verkið á Akureyri, Húsavík eg Raufar-
höfn. Helgina þar á eftir verður Evita
síðan sýnd í Grindavík og á Hvolsvelli.
Lokakeppni Hæfileikakeppninnar
fer fram á Hótel Sögu sunnudagskvöld-
ið 28. september. Sigurvegararnir í
sumar, fimmtán talsins, reyna þá með
sér. Undirbúningur að lokakvöldinu er
kominn vel af stað.
Nánar verður greint frá því í Dag-
blaðinu í næstu viku. -ÁT.
Minningarmót Grigorins
í Sovétríkjunum:
Jón L. með
2 biðskákir
í 6. umferð minningarmóts Grigor-
ich i Sochin í Sovétrikjunum tefldi Jón
L. Árnason við stórmeistarann Spassov
frá Búlgaríu. Fór skák þeirra i bið. Jón
hefur þvi 2 vinninga og 2 biðskákir.
Siðan á mótinu er mjög óljós vegna
fjölda biðskáka. Efstur sem stendur er
sovézki stórmeistarinn Panchevkov
með 4 vinninga. Jón hefur eingöngu
teflt við stórmeistara fram að þessu. í
1. umferð vann hann Ungverjann Far-
ago. í 2. umferð gerði hann jafntefli
við Rússann Sveshnikov, tapaði síðan
fyrir Suetin, Sovétríkjunum í 3. um-
ferð, gerði jafntefli við Ivkov, Júgó-
slavíu í 4. umferð og skákir Jóns í 5. og
6. umferð gegn Knaak, A-Þýzkalandi
og Spassov, Búlgaríu fóru báðar í bið.
Eins og DB greindi frá í gær er hér
um mjög sterkt skákmót að ræða.
Þrettán keppendanna eru stórmeistar-
ar, hinir þrír alþjóðlegir. Til að ná stór-
meistaratitli þarf 10 vinninga. Af
þekktum stórmeisturum sem Jón á eftir
að tefla við má nefna Sovétmennina
Vaganjan og Baiashov og góðkunn-
ingja íslendinga, Torre frá Filippseyj-
um.
Jón lét vel af sér að öðru leyti en því
að hann hefði verið hálfslappur af hita-
vellu, sem hann skilgreindi sem rúss-
neska inflúensu. -GAJ.
Hawaii-
stúlkan í Dag-
blaðsbíói
í Dagblaðsbiói á morgun verður
sýnd gamanmyndin Hawaii-stúlkan.
Myndin er í litum og með íslenzkum
texta. Sýningin hefst klukkan þrjú í
Hafnarbíói að vanda.
12. SEPTEMBER 4522
TESAI fcröaútvarp.
13. SEPTEMBER 10766
SHARP vasatölva CL 8145.
Vinningshafar hringi |
fslma 33822.
V
4
4
\