Dagblaðið - 13.09.1980, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1980.
Laus staða
hjúkrunarforstjóra
Umsóknarfrestur um stöðu hjúkrunarforstjóra
við Heilsugæslustöðina í Vestmannaeyjum fram-
lengist hér með til 20. september nk.
Staðan veitist frá 1. október 1980.
Umsóknir sendist ráðuneytinu ásamt upplýs-
ingum um menntun og fyrri störf.
12. september 1980
HEILBRIGÐIS- OG
TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Til sölu eða leigu
götuhæð og önnur hæð að Skúlatúni 6
Reykjavík ca 950 m2, mjög góð bílastæði.
Einnig kemur til greina að selja eða leigja
eignina í pörtum.
Upplýsingar í síma 30303.
Reykjavík - Atvinna
Óskum eftir góðum iðnverkamanni til að
annast byggingasvæði í stóru verki í Breið-
holti. Góð laun fyrir góðan mann. Upplýs-
ingar í síma 92-3966 milli kl. 10 og 12 alla
virka daga og síma 92-1670 á kvöldin og
um helgar.
Óskum eftir
að taka á leigu lítið einbýlishús eða 4 herbergja
íbúð helst í Hafnarfirði eða Stór-Reykjavíkur-
svæðinu. Fyrirframgreiðsla ef óskað er. Sími
52945.
S.Í.B.S.
22. þing S.Í.B.S. verður sett laugardaginn
20. september að Hótel Esju kl. 10 f.h.
Samband ísl. berkla-
og brjóstbolssjúklinga.
Maður sem lánað getur litlu fyrirtæki peninga
gegn veði, getur fengið þægilega vinnu nú þegar.
Þarf að vera handlaginn og vandvirkur. Uppl.
hjá auglþj. DB í síma 27022 eftir kl. 13.
H—820
Fjölbrautaskólinn
ð Akranesi
Lausstaða
Við Fjölbrautaskólann á Akranesi er laus til umsóknar
staða skrifstofumanns. Góð vélritunarkunnátta nauðsyn-
leg. Laun skv. samningum starfsmanna Akraneskaup-
staðar. Umsóknir berist skólanefnd Fjöíbrautaskólans á
Akranesi fyrir 22. september.
Skólameistari
Sviptingar í forystu Sjálfstæðisflokksins um ráðningu
framkvæmdastjóra:
„Kaus hvorki
Gunnar né Geir”
— á landsfundi flokksins, segir Ragnar Kjartansson,
„kandidat” SUS og Gunnars Thoroddsens í starfið
,,Fá verkefni eru verðugri fyrir
sjálfstæðismenn en þau að starfa
fyrir flokkinn og reyna að hrista af
honum ræfildóminn sem hann er í.
Það er rétt að mitt nafn kom upp í
júlibyrjun þegar farið var að svipast
um eftir manni í starf framkvæmda-
stjóra i stað Sigurðar Hafstein. Ég
lýsti mig reiðubúinn til viðræðna um
málið að tilteknum skilyrðum upp-
fylltum. Þeir sem höfðu ráðningar-
málin á sinni könnu fyrir flokkinn
höfðu hins vegar ekki áhuga á að
ræða við mig og þar með var málið úr
sögunni.”
Ragnar Kjartansson, fram-
kvæmdastjóri Hafskips, hafði þetta
að segja í samtali við Dagblaðið um
ráðningu nýs framkvæmdastjóra
Sjálfstæðisflokksins.
Framkvæmdastjórn Sambands
ungra sjálfstæðismanna, SUS, mælti
eindregið með því á fundi 17. júlí í
sumar að Ragnar Kjartansson yrði
ráðinn framkvæmdastjóri flokksins.
Naut sú hugmynd stuðnings dr.
Gunnars Thoroddsens forsætisráð-
herra og margra annarra áhrifa-
manna úr „Gunnarsarminum”.
Ragnar er ekki sagður hafa tekið
opinbera afstöðu til deilna forystu-
manna Sjálfstæðisflokksins. í sam-
tali við Dagblaðið sagði hann:
„Á síðasta landsfundi greiddi ég
hvorki Gunnari né Geir atkvæði mitt
og lýsti þar með vissu vantrausti á þá
Kjartan Gunnarsson: Nokkuð var
um hjásetur.
báða. Slík afstaða eykur aldrei á vin-
sældir manna og áhrif í stjórnmála-
flokkum!”
„Kjartan ekki
heppilegur í starfið"
Á fundi miðstjórnar Sjálfstæðis-
flokksins á fimmtudaginn var lögð
fram tillaga Geirs Hallgrímssonar um
ráðningu Kjartans Gunnarssonar lög-
fræðings í starf framkvæmdastjóra.
Jón Magnússon formaður SUS gerði
athugasemdir um hvernig formaður
hefði staðið að málinu og i samtali
við DB sagði Jón að „ræða Geirs
hafi staðfest að ekki haft verið leitað
til margra manna um að taka starfið
að sér.” Minnti Jón á ályktun fram-
kvæmdastjórnar SUS 8. september,
þar sem framkvæmdastjórnin
„harmar að ekki haft tekist að ganga
frá ráðningu Ragnars. Jafnframt,
lýsir framkvæmdastjórn SUS ein-
dregið þeirri skoðun sinni að Kjartan
Gunnarsson lögfræðingur, sem talið
er að formaður Sjálfstæðisflokksins
muni mæla með sem næsta fram-
kvæmdastjóra flokksins sé ekki
heppilegur í þetta vandasama starf á
þeim erfiðleikatímum, sem flokkur-
inn á nú við aðstríða.”
Við atkvæðagreiðslu um ráðningu
Kjartans á miðstjórnarfundinum var
hún samþykkt, en „nokkuð var um
hjásetur,” sagði einn af fundar-
mönnum við DB.
Ragnar Kjartansson: „Þeir sem
höfðu ráðningarmálin á sinni könnu
fyrir flokkinn höfðu ekki áhuga á að
ræða við mig.”
Meðal þeirra sem sátu hjá við at-
kvæðagreiðsluna, samkvæmt heim-
ildum blaðsins, voru dr. Gunnar
Thoroddsen, Jón Magnússon, Albert
Guðmundsson, Ellert B. Schram og
nokkrir fulltrúar af landsbyggðinni,
alls allt að þriðjungur þeirra sem sátu
fundinn. Albert vildi í samtali við DB
ekki staðfesta að hann hefði kosið að
sitja hjá við atkvæðagreiðsluna en
svaraði spurningunni á þessa leið:
„Ég er alveg hlutlaus í málinu og
skipti mér ekki af ráðningu starfs-
manna flokksins. Það er formaður
hans sem alfarið ber ábyrgð á því,”
sagði Albert.
ítrekuð gagnrýni
á Geir Hallgrímsson
Áður hefur komið fram í DB að
miðstjórn Sjálfstæðisflokksins hafi í
sumar samþykkt að leita eftir því við
Vilhjálm Þ. .Vilhjálmsson fram-
kvæmdastjóra SÁÁ að taka að sér
framkvæmdastjórn flokksins. Var
Geir Hallgrímssyni formanni falið að
tala við Vilhjálm. Geir sagði í sam-
tali við blaðið í gær að hann hafi
leitað til Vilhjálms, en Vilhjálmur
talið sig bundinn af starfi sínu hjá
SÁÁ og gæfi því ekki kost á sér í
starfið fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Framkvæmdastjórn SUS gagn-
rýndi Geir Hallgrímsson fyrir máls-
meðferðina í ályktun 8. september,
eins og fyrr er sagt. Á fimmtudags-
kvöldið kom svo stjórn SUS saman
á fund að loknum miðstjórnarfundi
flokksins. Bar Bessí Jóhannsdóttir
upp tillögu um fordæmingu á álykt-
un framkvæmdastjórnarfundar SUS.
Tillagan var felld með 12 atkvæðum
gegn 1. Síðan kom fram önnur tillaga
þar sem gagnrýni framkvæmda-
stjórnar á formann Sjálfstæðis-
flokksins var itrekuð. Var hún sam-
þykkt. Tillagan er svohljóðandi:
„Um leið og stjórn SUS lýsir yfir
réttmæti ályktunar síðasta fram-
kvæmdastjórnarfundar varðandi
ráðningu framkvæmdastjóra flokks-
ins, lýsir stjórnin þvi yfir, að hún
mun vinna af einhug með nýráðnum
framkvæmdastjóra flokksins. Jafn-
framt skorar stjórn SUS á forystu-
menn Sjálfstæðisflokksins að reyna
sem fyrst af öllum mætti að ná sátt-
um í þeim deilum sem nú ráða innan
Sjálfstæðisflokksins.”
-ARH.
Skipulagsbreytingarnar í midborginni:
AUGLÝSA VERÐUR AFTUR OG
NÝIR FRESTIR VEITTIR
— „öðruvísi er lögum ekki fullnægt”, segir borgarlögmaður
„Það er ákveðið að auglýsa á ný
fresti til skoðunar uppdrátta að breyt-
ingum að skipulagi í Grjótaþorpi og að
baki Hótel Borgar. Eins koma til nýir
frestir til athugasemda við þessar
skipulagsbreytingar, sem samþykktar
voru i júni,” sagði Tón Tómasson
borgarlögmaður í samtali við blaða-
mannDB.
Eins og skýrt var frá í DB í síðustu
viku voru sýningarfrestir og athuga-
semdafrestir varðandi þessar breyting-
ar auglýstir 23. júlí. Áttu uppdrættirnir
að vera hverjum sem vildi til sýnis á
skrifstofum Borgarskipulagsins. En
frestirnir liðu án þess að jafnvel lóðar-
eigendur á umræddum stöðum gætu
fengið að sjá uppdrættina.
Lögmaður lóðareigenda í og við ná-
læg breytingasvæði skipulags í mið-
bænum gerði athugasemdir við þetta
og afrit bréfs hans var sent borgarráði.
Að dómi borgarlögmanns er ekki um
annað að ræða en að auglýst verði
aftur og jafnlangir frestir veittir til
skoðunar og athugasemda. Á annan
hátt væri lögum um skipulagsbreyting-
arekki fullnægt.
-A.St.
Sjálfstæðisflokkuríim fær nýja starfsmenn:
2 framkvæmdastjórar ráðnir
„Kjartan Gunnarsson var ráðinn
framkvæmdastjóri flokksins með sam-
hljóða atkvæðum og Inga Jóna Þórð-
ardóttir ráðin framkvæmdastjóri
fræðslu- og útbreiðslumála,” sagði
Geir Hallgrímsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, í samtali við Dagblað-
ið um miðstjórnarfund flokksins í
fyrrakvöld.
Á fundinum var kjörin fram-
kvæmdastjórn flokksins. Hana skipa
Birgir ísleifur Gunnarsson formaður,
Albert Guðmundsson, Bessí Jóhanns-
dóttir, Guðmundur Hallvarðsson og
Jakob Havsteen frá Selfossi. Formaður
fræðslunefndar var kjörinn Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson, formaður útbreiðslu-
nefndar Guðmundur H. Garðarson.
Auk þess var kjörið i 14 málefna-
nefndir flokksins.
-ARH.