Dagblaðið - 13.09.1980, Page 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 13.SEPTEMBER 1980.
3
Símtalið slitið fyrirvaralaust
Spurning
dagsins
,,Kona i Breiðholti” hringdi:
Ég var að tala mjög áríðandi símtal
þegar þvi var skyndilega slitið og sím-
anum lokað. Eg hringdi því úr næstu
íbúð í simstöðina og bað um skýr-
ingu. Var mér þá sagt að ég skuldaði
símareikning upp á 70 þúsund.
Þennan sama reikning hafði ég þó
borgað viku áður og var ég með kvitt-
unina í höndunum.
Svona háttalag hjá Pósti og síma er
fyrir neðan allar hellur. Starfsfólkið
virðist vera heilaþvegið af þessari vit-
leysu. Ég hef alltaf greitt mína sím-
reikninga á réttum tima og aldrei
hefur símanum hjá mér verið lokað.
Síðan biðjast þeir ekki einu sinni af-
sökunar heldur búa bara til einhverja
sögu sem síðan er hent í mann.
Ágúst Geirsson, skrifstofustjóri sím-
stöðvarinnar svaraði: í umræddu til-
felli var símanum ekki lokað heldur '
mun samtalið hafa rofnað vegna bil-
unar í símstöðinni. Um var að ræða
simtal út á land.
Ég vil taka það fram að við höfum
að sjálfsögðu enga löngun til að loka
símanum hjá fólki sem greiðir sína
reikninga.
KVEDJA TIL
ÚTVARPSÞULA
Ásdís Kvaran skrifar:
Hér með bið ég þuli ríkisútvarpsins
heils hugar afsökunar á ögn hvat-
skeytslegu og villandi orðalagi ntinu i
þeirra garð i Dagblaðinu 8. septem-
ber 1980, og vænti þess, að ég
hafi ekki sært þularstéttina holund,
beinund eða mergund.
Um málsmekk má að eilífu deila en
þar getur greinilega öllum skjátlazt.
Því ber að hafa i liuga, að „smekkur-
inn, senr að kemst i ker, keiminn
lengi eftir ber.”
Með vinsemd og virðingu.
SA ALLTI
EINU
ALVOPNAÐAN
HERMANN
„Argur Breiðhyltingur" hringdi:
Ég upplifði nokkuð óþægilegt í
morgun er ég var að fara í vinnuna.
Þegar ég var að beygja upp á Elliða-
vogsbrúna sá ég skyndilega alvopn-
aðan hermann. Brá mér þá svo
hrottalega að ég var næstum þvi
kominn aftan á næsta bíl. Vil ég
beina því til lögreglunnar að hún sjái
til þess að óbreyttir borgarar verði
ekki fyrir svona uppákomum sem
gætu valdið stórslysum.
í>
llermennirnir umtöluðu revndust vera
herstöðvaandstæðingar i hermanna-
leik. DB-mynd: Einar.
/
Vettlingasaumurinn:
Tilvalin heimilisvinna
— Æfingin skapar meistarann
Móeiður Jónsdóttir hringdi:
Mig langar að skýra frá minni
reynslu í sambandi við vettlinga-
sauminn fyrir 66° norður. Ég hef
saumað vettlinga fyrir þá í 6 ár. Mín
afköst eru um 20 pör á klukkustund
þannig að tímakaup mitt er 2400 kr.
Ég fæ verkefnið sent á hálfsmánaðar-
fresti og ef ég klára yfir 400 gallalaus
pör á tímabilinu fæ ég 10% bónus.
Einnig útvegar fyrirtækið manni þá
sérstakt áhald sem sparar 17% í
vinnu. Mér finnt þetta alveg tilvalin
heimilisvinna, hraðinn kemur með
æfingunni og hægt er að nota flestar
venjulegar saumavélar. Það tók mig
um mánuð að ná upp góðum vinnu-
hraða. Ég hef komizt upp í 240 pör á
dag en nú orðið læt ég mér nægja 600
pör á hálfum mánuði. 120 kr. eru
borgaðar fyrir parið þannig að hver
og einn getur nú reiknað út hvað
hægt er að hafa upp úr þessu.
Auðvitað hefði ég ekkert á móti því
að fá meira en það er önnur saga.
MIKLATORGI
Opið 9-21 - Sími 22822
Helgartilboð
Afsláttur af öllum hvítum kera-
mikhlómapottum.
CASfO FX-ioo
• Algobro og 44 visindalegir mögu-
leikar.
• Tvær venjulegar rafhiöður sem
endast i 7.500 kkikkustundir.
• Slekkur af sjálfu s6r og minniö
þurrkast ekki út
• Almenn brot og brotabrot
• 1 árs ábyrgö og viðgerðarþjón-
usta.
EINKAUMBOÐ
Á ÍSLANDI
Bankastræti 8 — Simi 27510
Ef þór byðist vikuferð
til einhverrar stórborg-
ar, hvert myndir þú
fara?
Erla Árnadóltir húsmóðir: Til Parísar.
Hulda Gústafsdótlir nemi: Til London,
þar er svo margt að skoða.
Margrét Jóhannesdóttir húsmóðir: Eg
myndi kjósa London. Ég hef búið þar.
Guðrún Óskarsdóllir kennari: Ætli ég
myndi ekki vilja fara eitthvað langt,
t.d. til Kína.
Þórhallur Sigurjónsson vörubilstjóri:
Ég færi beint til Los Angeles. Þar hef
ég verið og kunni mjög vel við mig þar.
Karl Sævar Jónsson tölvari: Eg færi
sennilega til Hong Kong.