Dagblaðið - 13.09.1980, Side 14
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1980.
14
NÆSTUM FULLKOMINN:
HELGITÓMASSON
Eitt virtasta danstímarit veraldar er
Ballet News sem gefið er út i Banda-
ríkjunum mánaðarlega. Helgi
Tómasson ballettdansari er greinilega
maður júlí-mánaðar því þá helgar
tímaritið honum forsíðu sína, plakat,
auk þess sem um hann er skrifuð
vönduð grein í timaritið. Höfundur
hennar er ballettgagnrýnandinn Eric
Taub og nefnist greinin ,,Just about.
perfect” eða Næstum fullkominn.
Ekki ónýtur vitnisburður það.
Greinin fer hérá eftir:
„Það eru smáatriðin í dansi Helga
Tómassonar sem heilla mann mest:
hvernig hann þenur út brjóstkassann
þegar hann kcmur inn á sviðið i
Cortége Hongrois við hlið mótdans-
ara síns, spennan og stillingin í
úllimum hans í Danssvitunni (úr
„Dybbuk útsetningunum”) sem gefa
til kynna mikla, en niðurbælda orku,
fjaðurmögnuð en snögg hrynjandin
i tvídansi hans úr Kermesse in Bruges
og kyrrlátur þokki hans i látbragðs-
leik Coppelíueða Harlequinade.
Til eru margir frábærir dansarar
sem eru eftirminnilegri en Helgi,
séðir tvisvar eða þrisvar, en fáir
dansarar gefa manni eins mikið, ár
eftir ár. Núna i júlí heidur þessi 37
ára gamli dansari frá íslandi upp á
það í listamiðstöðinni i Saratoga, að
tiu ár eru liðin síðan hann dansaði
l'yrst opinberlega með New York City
ballettinum. Þau ár sem hann var
með City ballettinum og síðan
.loffrey og Harkness dansflokkun-
urn, hefur hann kennt áhorfendum
ýmislegt um tækni og dansstil, um
það hvernig lækni verður að sannri
list.
Miðill fyrir tónlistina
Dansmáti Helga er hreinlegur og
án óþarfa hreyfinga og er ætið í
samræmi við undirstöður hins
klassiska dans og vilja danshöfunda.
Hann sýnir ntanni hve mikilvægt það
er að hvert einasta smáatriði sé rétl
hugsað og hvernig öll smáatriðin
verða að lúta heildinni á sem ein-
faldastan hátt. Þannig vcrður til ægi-
fagur, háklassískur dans. Helgi notar
aldrei tækniþekkingu sína til að láta á
sér bera sem persónu. Þegar ntaður
sér hann að verki, virðist hann oft
algjör andstæða nútímadansarans,
þess sem virðist ævinlega dansa hlut-
verk hetjunnar i örvæntingarfullri
barátlu við riáttúruöfl. Þess i slað
virðist hann sem miðill sem listin
talar í gegnum, — andi sem borinn er
ttppi af tóniist eða þyngdaraflinu
sjálfu. Lýtalausar hreyfingar hans
virðast taka mið af rúminu i kringum
hann, eins og rúmið væri leir í
mótun. Helgi virðist fullkomin
ímynd hins háklassíska stils, hinnar
klassísku línu í limaburði.
„Þessi klassíski limaburður er
honum meðfæddur. Það er ekki
hægt að kenna hann.” segir David
Howard sem var ballettmeistari
Harkness flokksins forðum.
Hófstillt
fullkomnun
Framkoma Helga og hin hófstillta
fullkomnun í dansi hans virðist hafa
góð áhrif, bæði á áhorfendur og
meðdansara hans. „Hann róar mig
alltaf,” segir Patricia McBride sem
oftast hefur dansað á móti honum.
„Stundum þegar ég er taugaóstyrk
áður en dansinn hefst, þá brosir hann
Plakat úr timaritinu.
til mín og þá veit ég að allt verður í
lagi.”
Sú innri ró sem umlykur Helga á
sviði, fylgir honum að dansi loknum
eins og mér varð ljóst þegar við
ræddum saman í búningsherbergi því
sem hann hefur ásamt Jacques
d’Amboise í New York Stake Theat-
er. Honum liggur lágt rómur og hann
talar af hreinskilni, með syngjandi
hreim Norðurlandabúa, um feril sinn
og dansmáta.
Hversdagsföt Helga eru eins og
dans hans — í fínlegum blæbrigðum
mildra lita: Ijósbrún og brúnleit.
Mest áberandi við hann eru stór,
dökk augun og sterklegar hendurnar
sem minna á að hann er ekki bara tal-
inn afburða meðdansari, heldur vann
hann á unglingsárum sínum á íslandi
hörðum höndum upp lil sveita á
sumrin. Hann er tæplega 1.68 metrar
á stærð og er því i styttra lagi þegar
um dansara er að ræða, en líkams-
bygging hans er hins vegar i hárrétt-
um hlutföllum. Samanborið við
marga aðra karldansara er Helgi
smágerður, bak hans og fætur eru
óvenju beinir og fótaburðurinn
næstum fullkominn.
Þess vegna er líkami hans sem
gerður fyrir hreinlegan, skýrt
hannaðan dans, því hann dregur ekki
athyglina frá þeim hreyfingum sem
hann vill koma til skila.
Að láta dans
sýnast auðveldan
„Ætli ég hafi ekki verið þjálfaður i
því að láta dansinn sýnast auðveldan
og hreinlegan, þannig að bygging
dansverksins (kóreógrafían) væri
öllum ljós,” segir Helgi. „Hann sóar
ekki kröftum sínum. Og hann sóar
ekki tíma áhorfandans, því hann
kemur sér beint að efninu,” segir
Howard, fyrrverandi ballettmeistari
Helga. Fótfimin er undirstaða þeirra
tæknilegu atriða sem Helgi fram-
kvæmir manna best: snúning og fóta-
slátt (batterie). Það eru engin frávik
og ekkert hik að finna í hinum marg-
földu pírúettum hans, — hann snýr
sér á hæl eins og ekkert væri eðli-
legra. Fótaburður annarra dansara er
kannski kraftmeiri, hraðari og skref
þeirra ákveðnari eða kvikari. Fóta-
burður Helga er fínlegur, en samt
gæddur meiri fullkomnun. Beinir
fætur hans og skarpar hnébeygjur
gera úr hverri hreyfingu læsilega
Alþjóðlegt
danstímarit
hyllir Helga
danseiningu. Vegna gamalla meiðsla í
baki getur Helgi nú ekki stokkið eins
hátt og áður, sem gerir ekkert til, því
slík heljarstökk eru ekki hluti af stíl
hans. Hringstökk hans minna mann
ekki á hringekju á ofsahraða. Þess i
stað virðist hann svífa rétt fyrir ofan
sviðsgólfið þar sem hann markar sér
rúm, — knúinn áfram af ósýnilegum
hvirfilbyl. Hann drekkur I sig rýmið,
yfirtekur það betur en nokkur annar
dansari.
Eg verðaðláta
sviðið sýnast lítið
„Hér höfum við stórt og rúmgott
svið. Maður gæti dansað á því miðju,
— og horfið sjónum. En vegna þess
hve ég er lágvaxinn verð ég stöðugt
að hreyfa mig. Ef ég þarf að dansa á
ská yfir sviðið, þá fer ég alla leið út í
horn og dansa skáhallt yfir sviðið, út
í hornið á móti. Ég læt líta svo út sem
sviðið sé oflítið fyrir mig.”
En Helgi dansar ekki eins og eldi-
brandur, því hann mótar tiibrigði
dansins af meðfæddu öryggi, meðvit-
aður um staðsetningu sína hverju
sinni.
í Donizetti Variations dansar hann
sikk-sakk fram eftir sviðinu í stökk-
um, jéte-coupés, og færir sig i sífellu
til á meðan. Aðrir dansarar snúa
þessu atriði gjarnan yfir í óregluleg
hliðarstökk. Þegar Helgi á i hlut, má
sjá nákvæmlega hvernig stökkin
verða til. „Svona er ég,” segir Helgi
þegar hann er spurður um framvindu
þessa dans, „ég vil hafa hlutina
nákvæma, hreina og klára. Það á að
vera hægt að sjá greinilega hvernig
atriði er samansett”.
Kjarni dansstíls Helga er ekki
tæknileg snilld hans, heldur djúp-
stæð tilfinning hans fyrir tónlist og
hljóðfalli hennar.
Að dansa sig
inn í tónlistina
Hann dansar „innan í” tónlistinni,
ekki sem limdur við hvern tón og
forðast að snúa dansinum upp í löng
atriði. „Ég hlusta á tónlistina og
hugsa með mér, hvað er hún að reyna
að segja mér. Þannig held ég að
Balanchine semji dansa sína. Fólk
segist „sjá” tónlistina þegar það
horfir á dansa hans. Þannig vildi ég
geta dansað,” segir Helgi.
c ÞÍÓnUSta Þjónusta Þjónusta j
c
Viðtækjaþjónusta
Sjónvarpsviðgerðir
Heima eda á Verkstæði.
Allar tegundir.
3ja mánaða ábyrgö.
Skjárinn, Bergstaðastrati 38.
Dag-, ksöld- og helgarsími
21940.
Sjónvarpsloftnet.
Loftnetsviðgerðir.
Skipaloftnet,
íslanzk framleiðsla.
Uppsetningar á sjónvarps- og
útvarpsloftnetum.
öll vinna unnin af fagmönnum.
Árs ábyrgð á efni og vinnu.
SJÓNVARPSMIÐSTÖÐIIM HF
Siöumúla 2,105 Reykjavik.
Simar: 91-3?090 verzlun — 91-39091 verkstæði.
/Jk
c
Jarðvinna-vélaleiga
)
Véla- og tækjaleiga Ragnars
Guðjónssonar, Skemmuvegi 34,
símar 77620, heimasími 44508
Loftpressur
Hrærivélar
Hitablásarar
Vatnsdælur
Slípirokkar
Stingsagir
Heftibyssur
Höggborvélar
Beltavélar
Hjólsagir
Steinskuröarvél
Múrhamrar
Traktorsgrafa
til leigu
Traktorsgrafa til leigu i stærri sem minni verk. Auðbert,
Högnason, simi 44752 og 42167.
Kjarnaborun!
Tökum úr steyptum veggium fyrir hurðir, glugga, loftræstingu og
: ýmiss konar lagnir. 2". 3". 4". 5". 6". 7" borar. Hljóðlátt og
ryklaust. Fjarlægum múrbroiið, önnumst ísetningar hurða og glugga
ef óskaðer. hvar sem er á landinu. Skjót og góð þjónusta.
KJARNBORUNSF.
Símar: 28204 — 33882.
L OFTPRESSU-
LEIGA
Vélaleiga HÞF. Sími52422.
TEK AÐ MÉR MÚRBROT,
FLEYGANIR OG BORANIR.
MARGRA ÁRA REYNSLA.
Traktorsgrafa til leigu
Traktorsgrafa til leigu í stærri sem minni verk.
Sími 72540.