Dagblaðið - 22.09.1980, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 22.09.1980, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1980. 3 „Ekki sama að fram- kvæma og að sýna” — segir Ómar Ragnarsson. „Annars væru Tommi og Jenni ólöglegir” Ómar Ragnarsson fréllamaður hringdi: Mig langar að koma með athuga- semd vegna lesendabréfsum að box væri ólöglegt í sjónvarpinu. Þegar ég var með íþróttaþáltinn sýndi ég stundum box, og það brást aldrei að fólk hringdi næstu vikurnar og sagði að bannað væri að sýna hnefaleika í sjónvarpinu. Og ennþá er þessi skoðun uppi þannig að fólk hringir víst áratug eftir áratug með þessa skoðun sína. En svarið er einfalt. Ef ætti að banna sýningar á öllum ólöglegum athæfum yrði vist lítið eftir af dag- skrá sjónvarps. Allar glæpamyndir hyrfu, myndaflokknum um Stalín yrði kippt út, ég myndi sakna Tomma og Jenna og þeirra slags- mála og jafnvel fréttirnar yrðu niður- skornar. Ekki má rugla saman hvað sé ólöglegt að framkvæma og hvað sé ólöglegt að sýna. Sigri fagnað. leikur, meðhöndlaður þar af mestu varfærni. Ég leyfi mér einnig að benda Helga Geirssyni á það, að hann fer með rangt mál, þegar hann segir að öllum Gyðingum í Evrópu hafi verið útrýmt af Þjóðverjum. Að meðhöndla þessa þjáningasögu og þann hroðalega blett, sem stríðs- glæpir eru, á svo léttúðgan hátt, sem raun ber vitni, getur varla talizt við hæfi. Fullyrðingin um að ,, . . . menntaðasta, stoltasta og jafnvel gáfaðasta þjóð Evrópu . . .” geti ekki hafa framið þá glæpi sem á hana eru bornir er jafnfráleit og að halda þvi fram að „annarlegir menn” séu með þessu að ,, . . . endurvekja hatrið á þýzku þjóðinni.” Jafnvel Gyðingar hata ekki Þjóðverja, heldur ekki frændur okkar,. Danir og Norðmenn, sem sannarlega fengu að kenna á járnhæl hins hroðalega nasisma á sínum tíma. En hver hatar ekki slikar aðgerðir, af hverjum sem þær eru framdar. Og sannarlega eru þær framkvæmdar daglega i einhverri mynd jafnvel í okkar nánasta samfélagi ef verkast vill. Menntun, stolt eða greind fyrir- byggja ekki slíka hluti, það vita þeir, sem kynnzt hafa lífinu, þótt Helgi Geirsson virðist ekki vita það. „Þegar enginn Guð er lengur til, þá verður Auschwitz möguleg.” Eitt- hvað á þessa leið fórust dr. Þóri Kr. Þórðarsyni orð i umræðuþætti eftir siðustu sýningu Helfarar — það er málið. Ekki kristindómur sem of- sækir, því hann þekkir ekki Guð. Umræðuþátturinn gaf tækifaéri, sem lítt voru nýtt. Við hefðum mátt fá meira af því, sem snerti ekki aðeins yfirborðið heldur dýptina. Helförin átti sannarlega erindi inn í ísl. fjöl- miðil. Hún sýndi okkur það ótrúlega, sem virðist geta gerzt í flestum ef ekki öllum mannssálum. Sýndi okkur eðli, sem getur orðið að ófreskju, fram- kvæmandi hrollvekjur ef listamenn hins illa ná tökum meö múgsefjun og andlegum valdbeitingum. Athugasemd f rá ísal — vegna skrifa Elíasar Davíðssonar því, að hann hafi ekki fengið inni i þessu starfsmannablaði fyrirtækisins til andsvara forystugreininni. í þessu sambandi viljum við einungis taka fram, að forystugreinin var endur- prentun á grein, sem birtist i Morgun- blaðinu 1. desember 1979. Sú grein var m.a. svar við ófrægingarskrifum Elíasar um ISAL i sama blaði þann 29. nóvember s.á., en efni þeirra virt- ist einnig vera tilefni óvenjulega hat- rammra árása Þjóðviljans á fyrir- tækið um sama leyti. Það er fremur óvenjulegt, að róg- berar krefjist þess, að þeir sem á er borið veiti liðsinni sitt til að dreifa rógnum enn frekar, og hefur ÍSAL ekki hugsað sér að taka að sér það hlutverk. Elías ætti heldur ekki að þurfa á því að halda, þar sem hann gefur út eigið tímarit og virðist auk þess eiga sízt ógreiðari aðgang að dagblöðunum en aðrir. Að gefinni þessari skýringu, mun íslenzka Álfélagið h.f. ekki eiga í frekari rit- deilum við greinarhöfund að óbreyttu. Við væntun þess, hr. ritstjóri, að þér sjáið yður fært að birta ofan- greinda athugasemd í blaði yðar á eigi minna áberandi stað en umrædda kjallaragrein. Virðingarfyllst, íslenzka Álfélagið h.f. RagnarS. Halldórsson Bjartmar lngimarsson. CJPTOFRA- DISKURINN Ryksugan sem svífur HOOVER Töfradiskurinn S 3005 er ryksuga sem vekur undrun, vegna þess hve fullkomlega einföld hún er. Sogstyrkurinn er ósvikinn frá 800 W mótor, og rykpokinn rúmar 12 litra, já 12 litra af ryki. HOOVER S 3005 er ennfremur léttasta ryksuga sem völ er á, hún líður um gólfið á loftpúða alveg fyrirhafnarlaust fyrir þig. svo létt er hún. KR' 133.370 Eg erléttust... búin 800Wmótor og12lítra rykpoka. (MadeinUSA) ^ HOOVER er heimilishjálp FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, Geirssonar um Helförina vekja furöu: Hr. Jónas Kristjánsson, ristjóri. í blaði yðar 16. september sl. birtist kjallaragrein eftir Elías Daviðsson með árásum og dylgjum um fslenzka Álfélagið, h.f, menn tengda því o. fl. f greinina eru teknar upp orðréttar klausur úr forystugrein ÍSAL- Tíðinda 4., tbl. 1979, með niður- fellingum þó. Kvartar Elías undan Radclir lesenda Eru unglingar dekr- aðir? Róbert Gústafsson bakari: Það hlýtur að vera misjafnt eftir einstaklingum, upp og niður. Olgeir Olgeirsson nemi: Já, alveg ábyggilega. Jónfna Björnsdótlir, vinnur við iðju- þjálfun: Nei, það held ég ekki. Helga Hauksdótlir kennaranemi: Já, að sumu leyti. Þeir bara læra ekki að hlýða. Angela Tómasdóttir nemi: Nei, ekki finnst mér það. Stefán Bjarnason flugvélsfjóri: Þeir eru ábyggilega dekraðir, þeir hafa það svo gott.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.