Dagblaðið - 22.09.1980, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 22.09.1980, Blaðsíða 8
8 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1980. Styrjöld írans og íraks: Bardagar fjarlægj- ast olíusvæöin Bardagar héldu áfram i grerkvöldi og nótt á milli herja írans og íraks á landamærum rikjanna. Svo virtist sem einkum væri barizt um mikil- vægan skipaskurð. Samkvæmt fregn- um af vígstöðvunum þá virðast herir beggja landanna hafa hætt sókn sinni að olíusvæðum beggja megin víglin- unnar. Samkvæmt fregnum frá írak segja yfirvöld þar að herir þeirra hafi sökkl átta irönskum fallbyssu- bátum og skotið niður eina Phantom þotu á síðasta sólarhring. Hafi þetta gerzt í hörðum bardögum umhverfis Shatt AI-Arab skipaskurðinn. Þar var barizt af mikilli hörku um helgina. Herir beggja rikja virðast hafa gætt þess að ráðast ekki á mikilvægar olíustöðvar. Engar fregnir hafa borizt af því að árásir hafi verið gerðar á olíuhreinsunarstöðvar af neinu tagi. Deiluefnið er skipaskurðurinn, að þvi er bezt verður séð. Skærur hófust á milli herja irans og iraks snemma i þessum mánuði. Sakaði stjórnin í írak byltingar- stjórnina i Teheran um að neita að afhenda landsvæði sem samið hefði verið um að ætti að tilheyra írak. Er þá vísað til samninga stjórna ríkj- anna frá árinu 1975. íran hefur á móti sakað stjórnina í Bagdad um að leggja fram rangar kröfur á grund- velli samninganna. Sé tilgangurinn sá að eyðileggja þann árangur sem orðið hafi af byltingunni í íran. Sérstök tilkynning var gefin út i Íran i gær þar sem nokkrum hluta varðliðs hersins þar var skipað að koma til stöðva sinna. Stór hluti hins þrjú hundruð þúsund manna herliðs írans er bundinn viðs vegar um landið við að berja á ýmsum kyn- flokkum, eins og Kúrdum sem eru andstæðir ráðamönnum i Teheran. Erlendar fréttir Tyrkland: Áfram sama utanríkisstefna Bulent Ulusu fyrrum herforingi og nýskipaður forsætisráðherra Tyrklands hefur valið tuttugu og sex ráðherra í nýja ríkisstjórn landsins. Ulusu ríkir i skjóli hers landsins sem gerði byltingu hinn 12. þessa mánaðar og rak þáver- andi rikisstjórn frá völdum og þing landsins heim. Herforingjamir í Tyrklandi hafa lýst því yfir að utanríkisstefna landsins verði óbreytt frá stefnu fyrri ríkis- stjórnar. Tyrkland verði áfram í Atl- antshafsbandalaginu og efnahagstengsl við vestræn ríki haldist áfram. Þessi tvö alriði eru raunar mjög tengd. Tyrk- landW mjög hernaðarlega mikilvægt fyrir Atlantshafsbandalagið og efna- hagsástandið á þeim bæ er þannig að aðstoð frá vestrænum ríkjum er grund- vallaratriði til að skrimta. Anna prínsessa sú verst klædda ÞEIR KUSU FRELSIÐ. Þcssi áhöfn einnar flugvélar afganska ríkisflugfélagsins tilkynnti nýlcg að hún mundi ekki snúa aftur til s'ns heima. Gcrðist þetta I Frankfurt í Vestur-Þýzkalandi. Mvndin sýnir cr fiugstjórinn gefur opinbera yfirlýsingu um ákvörðun fólksins. Um tvö hundruð og fimmtiu starfsmenn afganska ríkisflugfélagsins hafa flúið frá Afganistan síðan sovézki herinn réðst inn i landið til stuðnings leppstjórninni í Kabul sem var við það að falla. prinsessunnar lýst þannig að hann væri „alenskur”. „Kona sem hefur 204 þúsund doll- ara í laun á ári (102 milljónir Is- lenzkra króna) á auðveldlega að geta komizt hjá að feta i fótspor Margrét- ar frænku sinnar,” segir í blaðinu um Önnu. Sú Margrét sem einnig er vilnað til er systir Elísabetar Brela- drottningar, móðursystur Önnu. Hefur Margrél oftlega hlotið ámæli tizkusérfræðigna fyrir lélegan búnað. Fatasérfræðingum timaritsins People finnst Anna prinesessa alltof venjuleg í klæðaburði þegar hún kemur opinberlega fram. — Heima við klæðist hún eins og hestastrákur. Anna er mikill áhugamaður um hesta. Listinn yfir verst klædda fólk heims birtist árlega í People og raunar fleiri blöðum vestra. Annar á listanum að þessu sinni var söngvar- inn og skemmtikrafturinn Samrny Davis junior. Fatasérfræðingarnir fundu honum það helzt til foráttu að hann bæri of mikið af skartgripum. Anna Bretaprinsessa var i morgun sérfræðingum bandariska timaritsins kjörin verst klædda kona heims af People. I dómi síntim var klæðaburði Vestur-Berlín: FARÞEGALEST- IR AFTUR Á FERDINNI Vestur-Berlinarbúarnir sem slarfa hjá austur-þýzka ríkisjárnbrautunum og eru i verkfalli afléttu í morgun banni við ferðum farþegalesta á milli Vestur- Berlínar og Vestur-Þýzkalands. Verkfallsmennirnir hættu einnig i morgun varðstöðu sinni við helztu stöðvar járnbraulanna i Vestur-Berlín. Sagði talsmaður þeirra að það hefði verið gert i ljósi þess að slíkt væri al- menningi fyrir beztu. Járnbrautarmennirnir, sem eins og áður sagði eru Vestur-Berlínarbúar en starfa hjá austur-þýzku járnbrautun- um, krefjast hærri launa og réttinda til að stofna sjálfstæð verkalýðsfélög. Talsmaður þeirra sagði á laugar- daginn var að jafnskjótl og fulltrúar austur-þýzku ríkisjárnbrautanna fengjust til að ræða við þá yrði verk- fallinu aflétt. Um helgina var reynt að komast hjá erfiðleikum vegna verkfallsins með þvi að yfirvöld í Vestur-Berlin og Vestur- Þýzkalandi kontu á sérstökum ferðum á milli með bifreiðum, Austur-þýzk yfirvöld reyndu einnig að beina nokkrum lestum til Vestur-Berlínar en það tókst laklega. John Lennon: „Það væri hundlciöinlegt ef eg »g Paul McC'artney færum aflur að leika saman," segir John Lennon. Bítlamir munu aldrei leika aftur „The Beatles munu aldrei leika aftur saman.” Þetta segir einn hinna fyrri félaga, John Lennon í viðtali við bandaríska timaritið Newsweek i morgun. Bíllarir, frægasta og vinsæl- asta „pop” hljómsveit sögunnar, hætti leik fyrir niu árum. Félagar hennar þeir Lenno.'i,M?.Cartney,Harrison og Starr voru allir frá Liverpool í Englandi. „Þeir fjórir sem i hljómsveitinni voru geta aldrei sameinazt á ný undir nafninu The Beatles jafnvel þó þeir vildu,” sagði John Lennon i viðtalinu við Newsweek. „Hugsaðu þér ef ég og Paul McCartney færum að leika saman altur — það yrði hundleiðinlegl.” „Að byrja aftur i Bitlunum yrði eins og að byrja aftur í skóla,” sagði Lennon ennfremur. „Ég var aldrei fylgjandi þvi að byrja aftur og þessu er að fullu og öllu lokið.” Lennon hætti að mestu að konia fram fyrir almenningssjónir árið 1975. Hann býr núna i Bandaríkjunum og vinnur að plötu — sinni fyrstu í nokkur ár. Hún á að heita Double Fantasy.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.