Dagblaðið - 22.09.1980, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 22.09.1980, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1980. DB á ne ytendamarkaði Er mjólkurskortur yfirvofandi? Framleidslan er nóg en ekki á réttum tíma — Undanfarna vetur hefur alltaf þurft að flytja mjólk í formi rjóma til höfuðborgarsvæðisins Þvi miður kemur það æði oft fyrir að fólk hringir og kvartar yfir einu og öðru varðandi mjólkurframleiðslu og sölumál. Á sýningunni í Laugardals- höll komu margir að máli við okkur og höfðu eitt og annað að athuga við þessi mál. — Til að fá úr öllum vafa- atriðum skorið og einnig til þess að koma ábendingum og kvörtunum á framfæri, fengum við viðtal við Guðlaug Björgvinsson forstjóra Mjólkursamsölunnar og Odd Helga- son sölustjóra. — Eins og nærri má geta bar ýmislegt á góma og urðu úr þessu nokkrar greinar. Er fyrsta greinin birt i dag en hinar fylgja á eftir næstu daga. Er mjólkurskortur yfirvofandi? Almenningur hefur miklar áhyggjur af hugsanlegum mjólkur- skorti næsta vetur. Verður um að ræða mjólkurskort? „Á þessu stigi málsins er ekki nokkur leið að segja fyrir um hvort hér verður mjólkurskortur eða ekki,” svaraði Guðlaugur Björg- vinsson. „í rauninni er næg mjólk á fram- leiðslusvæðinu en hún er bara ekki framleidd á réttum tíma árs. Það hefur jafnan verið svo undanfarin ár að mjólkurframleiðslan dregst saman y'fir vetrarmánuðina. Það hefur þurft að grípa til þess ráðs að flytja rjóma og stundum einnig mjólk til Reykja- víkur undanfarna vetur nú um árabil. í fyrravetur var fluttur hingað riómi sem svarar til 700 þúsund mjólkurlítra. Það var þó ekki nema 4—5% af mjólkurvöruneyzlunni hann tíma sem þessir flutningar stóðu Vfir. Ln ef til þess kemur að framleiðsla Suðveslurlands dregst svo saman að flytja þurfi rjóma í stórum stíl og jafnvel nýmjólk til Reykjavíkur frá Norðurlandi getur það orðið erfiðleikum bundið,” sagði Guðlaugur. — Hvers vegna hefur ekki fyrr verið gripið til þess ráðs að reyna að jafna mjólkurframleiðsluna yfir árið? ,,Það hefur verið gert, m.a. með því að bændur hafa fengið greitt hærra verð fyrir þá mjólk sem framleidd er á veturna heldur en á sumrin. Er þannig reynt að stjórna framleiðslunni og hefir framleiðslan þokast í þá stefnu. En þar sem inn- vegin mjólk á svæði Samsölunnar er nú allt að helmingi meiri hæsta sumarmánuð en lægsta vetrarmánuð, en salan um 25% meiri á vetrum en sumrum, þá tekur nokkur ár að ná nægilegum jöfnuði milli árstíða. M.a. vegna þess að bændur þurfa þá að breyta burðartíma kúa, breyta fóðrun, o. fl„” sagði Guðlaugur Björgvinsson. -A.Bj. Tóma- hljóðið að hverfa úr kistunni „Að þessu sinni er matar- reikningurinn all uggvænlegur, enda er hábjargræðistíminn í búskapnum og tómahljóðið óðum að hverfa úr kistunni,” segir m.a. í bréfi frá Jóhönnu í Kópavogi. ,,Ég leyfi mér að benda á, mér til afsökunar, að í ágúst voru fimm föstudagar og það er alltaf keypt mikið inn fyrir helgar hjá mér. Annars eru líka aðrir stórir liðir í þessu eins og 1/4 hluti úr nauti, sem kostaði 66.550 kr., tveir kinda- skrokkar á 26.200 og grænmeti í frystikistunaá 17.800.” J.H. er með 61.688 kr. á mann að meðaltali. Að frádregnum þessum stóru matarinnkaupum, sem hún telur upp, (sem í það minnsta er hægt að skipta niður á næsta hálfa árið a.m.k. að einhverju leyti) virðist hún alls ekki vera nema rétt í meðallagi. Liðurinn „annað” er ekki nema upp á 152 þús. kr. „Liðurinn „annað” er ósköp sakleysislegur þrátt fyrir Tívolíferð og okkar króniska ísát, — en það stendur allt til bóta í september,” segir ennfremur í bréfinu. „Ég vil líka lýsa ánægju minni yfir neytendablaðinu sem kom út í sambandi við sýninguna (sem var nú sjálf hrein hörmung!) Blaðið var stórgott og renndi stoðum undir þá kenningu mína, að helmingur áskrif- enda DB sé að kaupa neytenda- síðuna. Hún er bezt. Kær kveðja, Jóhanna, Kópavogi.” Vanfærar varaðar við kaffidrykkju Bandaríska matar- og lyfja- stofnunin hefur nú varað vanfærar konur við of mikilli kaffidrykkju. Þykir ástæða til slíkrar viðvörunar þar eð komið hefur í ljós að efnið "Ifetn, sem er i kaffi, tei og kóla- arykkjum, hafi haft skaðleg áhrif á rottufóstur og þykir ekki ólíklegt að hið sama gildi um mannsfóstur. Rottuungar sem fæddust eftir að mæðrum þeirra hafði verið gefið mikið iffeln vantaði oft hluta af tánum og höfuðkúpa þeirra varð ekki rétt sköpuð. Ungarnir uxu ekki eins hratt og aðrir ungar. Engin á- stæða er þó fyrir þungaðar konur til að láta hugfallast því til þess að ná fram verulegum skaðlegum áhrifum með kaffidrykkju þarf að drekka sem svarar 12—24 bollum ádag. Úr vexti fóstursins dregur hins vegar við tvo bollaádag. -DS. HÁRGREIÐSLUSTOFAN DESIRÉE Laugavegi 19 - Simi 12274 Tízkuklippingar Tizkupermanett Blástur Litanir • Næringarkúrar o.fl. Opið alla virka daga 9-6 • Laugardaga frá 9-2 Pantanir í síma 12274 Loksins fengu ísfirðingar ódýra grænmetið vestur — Knattspyrnuráð staðarins gekkst fyrir útimarkaði og seldi grimmt „Ég má til með að skrifa nokkrar ég miklu meira um innkaupin, þó ég línur með ágústseðlinum. Síðan ég geti ekki sagt að ég spari, er með fór að halda heimilisbókhald hugsa rúml. 57 þús. kr. á mann að Hver svíður lappir? Ung húsmóðir hringdi: Þegar ég var krakki fékk ég alltaf Raddir neytenda soðna sviðna lambafætur þegar sláturtíðin stóð sem hæst. Þetta þótti herramannsmatur. f nokkur ár hef ég hins vegar ekki orðið vör við að hægt væri að fá sviðafætur, þrátt fyrir ítrekaða leit. Ég vil þvi biðja Neytendasíðuna sem hefur hjálpað svo mörgum, að auglýsa eftir þeim sem svíða fætur hér á höfuðborgar- svæðinu svo eg og fleiri getum aftur smakkað þennan góða mat. meðaltali í mat. Ég er með fjögur böm, tvo stráka, 15 og 13 ára, sem þurfa sitt og tvær stelpur 7 og 4 ára,” segir í bréfi frá Guðrúnu Stefánsdóttur, ísafirði. „Þetta gæti litið betur út, en liðurinn „annað” (var upp á tæplega 680 þús. kr.) var bara þetta venjulega og auk þess tannlæknareikningur upp á 225 þús. kr. Hér hafa aliar húsmæður staðið sveittar við að sulta og safta. Enda nóg af berjum. Og loksins kom að því að við gátum fengið grænmeti á lága verðinu sem alltaf var verið að auglýsa í Reykjavík. Knatt- spyrnuráðið hér á staðnum var með útimarkað í síðustu viku og seldi grimmt. Svo nú er grænmetið komið í kistuna.”

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.