Dagblaðið - 22.09.1980, Blaðsíða 36
Svínamálið í Grindavík:
Vildi kenna honum að
snúa sér að rottunum
— segir Jón Óskar Ágústsson sem kastaði rottu framan í formann
heilbrigðisnefndar í Grindavík — Svínunum verður slátrað í dag
„Ég vildi með þessu kenna honum
sem formanni heilbrigðisnefndar að
snúa sér heldur að rottunum en að
vera sífellt að rífast í konu minni og
dóttur yfir svínum sem búið var að
ákveða að slátra,” sagði Jón Óskar
Ágústsson sjómaður og svínabóndi í
Grindavík í samtali við blaðamann
DB.
Eins og greint var frá í DB á
laugardaginn réðst Jón Óskar að for-
manni heilbrigðisnefndar í Grinda-
vík, Hjalta Magnússyni, síðastliðinn
fimmtudag og dengdi framan í hann
rottu þannig að sá á Hjalta. Kærði
Hjalti atburðinn til rannsóknar-
lögreglunnar i Keflavík, sem nú hefur
málið til meðferðar.
,,Ég gerði þetta lika í þeim tilgangi
að Hjalti yrði kallaður fyrir þar sem
hann var i vitorði með þeim sem
Svin Jóns Óskars sem siðustu daga hafa veríð geymd i kofa við Hólskot i Grinda-
vik. Svinunum verður slátrað f dag þar sem Jóni Óskari hefur ekki tekizt að fá
neinn samastað fyrir þau eftir að kofinn sem þau voru geymd i var brenndur fyrir
rúmri viku. DB-mynd: Sigurður Þorri.
brenndu svínakofann. Ég var búinn
að segja lögreglunni áður en kveikt
var í að hann hefði heyrzt hóta
íkveikju. Mér finnst furðulegt að
vitni sem heyrði hann hóta þessu
skuli ekki hafa verið kallað fyrir. Mér
finnst skritið að lögreglan skuli hafa
sleppt að rannsaka hvort formaður
heilbrigðisnefndar hafi lagt á ráðin
með að brenna svínakofann,” sagði
Jón Óskar Ágústsson.
- Jón Óskar bætti því við að svínun-
um yrði slátrað i dag. Eftir að svína-
kofinn var brenndur hefur Jón Óskar
fengið inni með svínin í fáeina daga i
kofa við Hólskot í Grindavik.
Rannsóknarlögreglan i Keflavík
staðfesti í samtali við blaðamann DB
í morgun, að hún hefði nú þetta mál
til meðferöar.
-GAJ.
TÆTT OG TRYLLT HJA STAKKI
Björgunarsveitin Stakkur i Grindavik hélt árlega torfæruaksturskeppni sina í gær I sigurvegarinn, Gunnlaugur Bjarnason, ösla upp úr drullupyttinum i enda síðustu
að viðstöddu miklu fjölmenni. Fór keppnin vel fram og var spennandi en hér sésl | þrautarinnar sem lögð var fyrir keppendur. JÁK / DB-mynd Jóhann Kristjánsson.
Fyrsta brúðkaupið á Hveravöllum:
Sungið og dansað
uppi / óbyggðum
— er Bergrún
og Gunnar
veðurathug-
unarmenn á
Hveravöllum
gengu
í það heilaga
„Það hefur aldrei áður farið fram
brúðkaup hér. Við höfum lengi ætlað
að gera þetta og iétum svo verða af
þvi,” sagði Bergrún Gunnarsdóttir í
samtali við DB I morgun. Á laugar-
dag var haldið sérstætt brúðkaup á
Hveravöllum er þau Bergrún Gunn-
arsdóttir og Gunnar Pálsson er starfa
við veðurathuganir fyrir Veðurstof-
una gengu i það heilaga.
„Það var sólarlaust hérna en ekk-
ert kalt, hefði þó mátt vera betra
veður. Séra Hjálmar Jónsson á Ból-
stað kom hingað og gaf okkur saman
og það tóks't mjög vel, var bæði lát-
laust og hátíðlegt,” sagði Bergrún
ennfremur.
„Hingað kom rúta úr bænum með
nánustu vinum og ættingjum, eitt-
hvað um 30 manns. Við vorum með
matarveizlu og siðan var dansað og
sungið fram eftir nóttu. Eg held að
allir hafi skemmt sér mjög vel enda
var þetta ákaflega gaman og sér-
stakt,” sagði Bergrún.
Ungu hjónin hafa verið á Hvera-
völlum i rúmt ár og ætla að verða eitj
ár í viðbót. - ELA
frjálst, úháð daghlað
MÁNUDAGUR 22. SEPT. 1980.
ASÍ-samningarnir:
Launaliðurinn
enn óræddur
„Næsta skrefið hlýtur að verða að
ræða launaliðinn. Hann er enn
óræddur eftir samningafundi um helg-
ina,” sögðu samningamenn í morgun
um viðræður Alþýðusambandsins og
vinnuveitenda.
Samningamenn sögðu að sérkröfur
hefðu verið ræddar um helgina. Vafa-
laust yrði þó lítið átt við þær að þessu
sinni. Svonefndur B-liður í kjarna-
samningum, liður sem fjallar um allt
annað en flokkaskipun og launaliðinn,
mun að mestu biða. Stefnt er að því að
samræming verði gerð í sérkröfu-
málum hinna ýmsu félaga, en það tekur
tíma.
ASÍ-menn ræddu i gær við ráðherra
um „félagsmálapakka” og möguleika
á skattalækkunum. Lítið bar til tíðinda
á þeim fundi og málin ekki útrædd.
Flokkaskipunin er enn ófrágengin.
— Samningafundir verða væntanlega í
allandag. -HH.
Kindakjöt
hækkar
— kartöflur lækka
í dag hækkar kindakjöt. Grunn-
hækkunin er 11% en hinar ýmsu
afurðir kindarinnar hækka mismikið.
Læri, hryggir og lærissneiðar hækka
t.d. um 20—26% en innmatur um
11%. Niðurgreiðslur á kindakjöti
verða óbreyttar.
örlitil lækkun verður á íslenzkum
kartöflum. Þærlækkaum 1 kr. kilóið.
Kindakjötshækkunin veldur um 1%
hækkun á verðbótavisitölunni. -KMU.
Eigendur lóða í
Grjótaþorpi:
Mæta ekki á
boðaðan fund
Eigendur og forsvarsmenn lóða i
Grjólaþorpi hafa sent borgarstjóranum
í Reykjavik, borgarráðsmönnum og
forstöðumanni borgarskipulags undir-
ritað bréf þar sem segir að undirritaðir
muni ekki mæta á boðaðan fund á
Kjarvalsstöðum vegna skipulagshug-
mynda í Grjótaþorpi.
Jafnframt lýsa þeir sig reiðubúna til
viðræðufundar við rétt borgaryfirvöld
um hagsmunamál þeirra og borgar-
innar á þessu svæði. Þó aðeins ef á
þeim fundi verði auk réttra fulltrúa
borgarinnar þeir aðilar sem teljast eig-
endur lóða í Grjótaþorpi. -ELA.
LEÍTHÁFÍKAÐ
SJÚKLINGI
— fannst innilokaiur á
rSntgenherbergi
Sjúklingur á Landspítalanum, á
sjötugsaldri, var í gærkvöldi talinn
týndur og óttaðist starfsfólk spítalans
að hann hefði jafnvel haldið á braut frá
sjúkrahúsinu á sokkaleistunum,
klæddur buxum, skyrtu og léttri peysu.
Lögreglumenn svipuðust um eftir
tnanninum á annan tíma án árangurs,
enda fannst sjúklingurinn þá inni á
einu röntgenherbergi spítalans og hafði
þar lokazt inni á einhvern hátt. Varð
honum ekki meint af þessu ævintýri.
21.SEPT.: 10587
Hljómplötur að eigin vali
frá Fálkanum.
22. SEPT.: 10857
Braun hárliðunarsett RS 67 K
Vinningshafar hríngi |
(sfma 33622.