Dagblaðið - 01.11.1980, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 01.11.1980, Blaðsíða 2
2 /• DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1980. HVAÐ A ÞORGEIR ÁSTVALDSSON VIÐ? — Segir að hallað haf i undan fæti hjá Genesis Gcnesis aðdáandi (1485-5602) Kringdi: Ég furða mig á fullyrðingu Þor- geirs Ástvaldssonar í Skonrokki föstudaginn 24. október sl. þar sem hann segir að heldur hafi hallað und- an fæti hjá hljómsveitinni Genesis síðustu 1—-2árin. Ég hygg að hljómsveitin Genesis og hljómsveitarmeðlimir hafi ekki fyrr unnið slíkan stórglæsilegan sigur í vinsældakosningu Melody Maker. Hljómsveitin hefur margoft verið kosin bezta hljómsveitin eins og í ár en ég man ekki eftir því að allir hljómsveitarmeðlimirnir hafi einnig hafnað i fyrsta sæti, hver um sig. Þetta vil ég tæpast kalla , ,að hallað hafi undan fæti”. En hvaða upplýsingar hefur Þor- geir Ástvaldsson fyrir umræddri full- yrðingu sinni sem hann telur svo merkilegar að virisældakosningar Melody Maker eru allt í einu orðnar ómerkar? Þrátt fyrir þetta hefur hann oft vitnað til þeirra. Að mínu áliti hefur hljómsveitin Genesis aldrei verið betri en einmitt nú. 4 Hljómsveitin Genesis. Frá vinstri Mike Rutherford, Toni Banks og Phil Collins. Allir hættir kl. hálffimm? Öryrki hringdi: Hvenær lokar Tryggingastofnun- in? Ég hef verið að reyna að hringja í hana kl. hálffimm en enginn hefur svarað. Þó segir í símaskránni að samband sé frá skiptiborði til kl. 5. Ég lét símann hringja þó nokkuð lengi og reyndi þrisvar í röð að ná í Tryggingastofnunina en enginn svaraði. Svona er þetta viða hjá opinberum stofnunum. Það er ekki nema von að allt sé að fara í kaldakol hjá ríkinu. Símaskráin segir að samband sé frá skiptiborði Tryggingaslofnunarinnar til kl. 17. Bréfritari bendir á að sjómenn hafi nú þegar ýmis forréttindi, s.s. 10% frádrátt frá skattskyldum tekjum. iafnrétti sjómanna: Aðeins þegar þeir hagnast? Lesandi á Austurlandi hringdi: Af hverju greiða sjómenn ekki jafnhátt hlutfall tekna sinna í skatt og aðrir landsmenn? Á meðan þeir eru að heimta það að allir landsmenn greiði olíugjald fá þeir 10% frádrátt af tekjum sínum umfram aðra skattgreiðendur. Þeir eru einnig að kvarta undan því að tekjur þeirra hafi ekki fylgt afla- aukningu síðustu ára. En um leið minnast þeir ekki á þann tækjabúnað sem útgerðin er sífellt að fjárfesta í, til að auka hagkvæmni. Það má ekki bara heimta jafnrétti þegar um olíugjald er að ræða, heldur verða þeir líka að heimta jafn- rétti þegar kemur að frádráttarliðun- um. Til íhugunar: Þorskastríðið og Flugleiðir Ferðamaður skrifar: A þorskastríðsárunum töluðu Bretar um tvennt sem íslendingar hefðu tekjur af, sjávarútveginn og Loftleiðir hf. i kjölfar heimsóknar Nbtons og Kissingers hingað til lands jókst þrýstingur á Breta um að gefa eftir og semja við Islendinga. Þeir neyddust að lokum til þess að láta i minni pok- ann en þeir voru ekki of hrifnir því fljótlega á eftir fara þeir fram á Sir Freddy Laker fyrir framan eina af DC 10 þotum sinum. m endurskoðun á loftferðasamningi þjóðanna aðallega til þess að skerða flug Flugleiða milli Glasgow og Kaupmannahafnar. Um svipað leyti óskuðu þeir einnig eftir endurskoðun á loftferðasamn- ingi sínum við Bandaríkin en þá þegar voru Bandaríkjamenn farnir að hugsa sér til hreifings í þeim efnum. Flugleyfið til Laker var þar erfiðasti hjallinn en Bretar ætluðu honum þá flutninga sem Flugleiðir höfðu yfir Atlantshafið. Bretar óttuðust ekki samkeppni Lakers við British Airways því Laker myndi fara um London á leið til Evrópu og því afla Bretum tekna af auknum ferðamannafjölda. En í öllu þessu sáu Bretar ekki fram á það sem Carter gerði. Carter veitti öllum flugfélögum sem óskuðu þess leyfi i staðinn fyrir að gefa Laker þann einkarétt sem Loftleiðir höfðu áður og Bjarni heitinn Benediktsson sagði á sínum tíma að væru laun Islendinga fyrir aðstöðu Bandaríkja- hers á Keflavíkurflugvelli. VIL GETA VALIÐ MILLISTOFNANA — ekki til betra andrúmsloft en á Fæðingarheimilinu Steinunn Þorsteinsdóttir skrifar: Ég tek eindregið undir orð Elínar Pálmadóttur í Morgunblaðinu 30. október um Fæðingarheimilið. Fæðingarheimilið á að starfa á ná- kvæmlega sama hátt og áður, þar er engra breytinga þörf. Ég vil eiga þess kost að geta valið á milli stofnana ef allt er eðlilegt. Sjálf hef ég legið tvisvar á Fæðingarheimilinu og gæti ekki hugsað mér betra andrúmsloft en ríkir þar. , Ég vil senda beztu þakkir til starfs- fólks heimilisins, sérstaklega til Huldu Jensdóttur. Konur! Látum ekki kyrrt liggja! Látum frá okkur heyrast!

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.