Dagblaðið - 01.11.1980, Page 4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR ! . NÓVEMBER 1980.
4
r
Kabarett Leikf élags Akureyrar:
Öskukarlinn og leik-
arar slógu í gegn
Á föstudaginn, síðasta sumardag,
frumsýndi Leikfélag Akureyrar
kabarett og er óhætt að segja að hann
hafi slegið í gegn. Sjallinn var troð-
fullur og stemmningin frábær. Sam-
tals komu fram um 20 manns, að
meðtalinni hljómsveitinni, og voru
það bæði leikarar sem kunnir eru af
verkum LA og einnig áður óþekktir
leikarar. Höfundur kabareítsins er
Guðmundur Sæmundsson, en hann
starfar annars sem öskukarl hjá
Akureyrarbæ. Er óhætt að fullyrða
að Guðmundur hafi verið stjarna
kvöldsins og var hann hylltur í leiks-
lok.
Kabarettinn sem tók um klukku-
tíma í flutningi samanstóð af tíu þátt-
um og voru þættirnir tengdir saman
með gamanmálum og tilkynningum.
Sýning kabarettsins er fyrst og
fremst hugsuð til styrktar Leikfélagi
Akureyrar, sem berst nú í bökkum
fjárhagslega, en allir þátttakendur
gefa vinnu sína. Lengi hefur verið i
bígerð hjá LA að setja á svið kabar-
ett en loks varð af því þegar fjár-
htigui félagsinsvaríkaldakoli.
Sunna Borg leikari stjórnaði
kabarettnum og tókst henni sérstak-
lega vel að tengja saman atriðin með
skemnuilegri framkomu og gríni.
í kabarettnum var vikið að fjöl-
mörgum þáttum í bæjarlífinu á
Akureyri og eins þjóðlífinu, var t.d.
vikið að samkeppni Hagkaups og
KEA, skólameistara MA, Flugleiða-
málinu, möppudýrum og pólitík.
Að öllu samantöldu má fullyrða að
öskukarlinn og leikarar LA hafi gert
mikla lukku og veitti svo sannarlega
ekki af að lífga upp á drungann.
-GM, Akureyri.
Eins og vera ber á alvöru kabarett voru dansmeyjar, sem dönsuðu með miklum til-
burðum og rassaköstum.
V
Dansmeyjarnar stráðu blómum um salinn og lenti ein rósin á borði bæjarstjórans,
Helga M. Bergs. Hér nælir kona hans, Dórótea Kyland, hlóminu i barm hæjar
stjórans.
Að tjaldabaki að lokinni sýningu bauð Sjallinn leikurunum upp á kampavín. Hér skálar leikstjórinn, Sunna Borg, i hópi sam-
starfsmanna.
Skólameistari MA veitir bróður sinum,
menntamálaráöherranum, æðsta heiðurs
merki skólans.
Sjónvarpsmenn m.vnda í gríð og erg.
Guðntundur Magnússon, formaður
Leikfélags Akureyrar, virðist skemmta
sér ágætlega.
Sjallinn var sneisafullur á frumsýningunni og skemmtu áhorfendur sér konunglega. Má fullvist telja að kabarettinn gangi
áfram.
I lok kabarettsins var Guðmundur Sæmundsson öskukarl og höfundur leiksins
klappaður upp og hylltur. DB-myndir: Guðbrandur Magnússon.
/