Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 12.01.1981, Qupperneq 15

Dagblaðið - 12.01.1981, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. JANUAR 1981. d 15 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir 3 Ágást Hauksson og Ársæll Kristjáns- son (t.h.) hafa báðir gengið til lifls við Framara — Ársæll um helgina. Enn einn Þróttarinn í Fram —Ársæll Kristjánsson gengur til liðs við Framara og Sighvatur Bjamason næsta örugglega líka Framarar hafa nú fengifl til lifls vifl sig enn einn Þróttarann — afl þessu sinni Ársæl Kjartansson. Ársæll er mjög sterkur miðjumaður, en lék ekki með Þrótti i sumar. Brá hann undir sig betri fætinum og hélt austur á firði þar sem hann þjálfaði og lék mefl góflum árangri. Þá er næsta vist að Sighvatur Bjarna- son, Eyjamaðurinn sterki, gangi til liðs við Framara. Sighvatur var i haust orð- aður við Valsmenn en mun nú hafa meiri hug á að ganga til liðs við Fram. Ekki þarf að taka fram að það yrði Kogler heldur forystunni Austurríkismaflurinn Armin Kogler heldur enn forystunni i keppninni um heimsbikarinn i skíðastökki, en Norð- maflurinn Roger Ruud hefur nú saumað verulega að honum eftir tvo sigra um helgina. Fyrst í Harrachov í Tékkóslóvakiu siðan i Liberec i sama landi i gær. Kogler hefur nú 98 stig i keppninni um heimsbikarínn, Hubert Neuper 97 og Ruud 87. Landi hans Bergerud kemur næstur mefl 70 stig. /5 Frömurum verulega mikill styrkur — ekki hvað sízt vegna þess að Jón Pétursson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna og Kristinn Atlason heldur til Svíþjóðar. Sighvatur stundar nám við Verzlunarskólann og hann vakti mikla athygli með Eyjamönnum í sumar. Geysilega traustur varnar- maður. Áður höfðu Framarar fengið þá Ágúst Hauksson og Halldór Arason frá Þrótti. Ágúst er tengiliður eins og Ársæll og það eru einmitt mennirnir, sem Fram vantar. Halldór er fljótur framherji og geysilega fylginn sér. Með þessa miðjumenn í liðinu er ekki út í hött að ætla það að Framarar geti loks leyft sér að leika 4-3-3 í stað 4-4-2 og þannig uppskorið meira en áður. - SSv. Týrarar blanda sér í baráttuna á toppnum - sigldu heim með 4 stig úr höfuðborginni eftir vel heppnaða ferð Keppnin í 2. deild ætlar að verfla æsispennandi í vetur og öll lifl deildar- innar — utan Þór — eiga enn mögu- leika á að komast upp í 1. deild. Fimm leikir voru háðir um helgina og ekki er hægt að segja að staðan hafi skýrzt svo neinu nemi. Týrarar voru stjörnur helgarinnar. Grótta eygir möguleika á sæti í 2. deild að ári —eftir sanngjaman 25-23 sigur á Skagamönnum í gær Gróttumenn unnu afar þýðingarmik- inn sigur á Skagamönnum i 3. deildinni er liflin mættust i iþróttahúsinu á Sel- tjarnarnesi i gærkvöld. Lokatölur urðu 25-23 Gróttu i vil eftir afl staðan i hálf- leik haffli veríð 13-10 fyrir þá. Með tapinu má líkast til fullyrfla að vonir Skagamanna um sæti f 2. deild séu fyrir bi, en Grótta hefur mjög gófla mögu- leika á að komast upp eftir þennan sigur. Leikurinn í gær var lengst af mjög jafn, en Grótta hafði alltaf yfirhöndina þannig að um verulega spennu varð aldrei að ræöa. Skagamenn náðu aldrei að brúa bilið og Grótta leiddi með 2—4 mörkum út allan leikinn. Markvarzlan var tvímælalaust það sem gerði út um leikinn. í marki Gróttu stóð Ragnar Halldórsson allan tímann og varði mjög vel. Hinum megin varði kollegi hans varla skot, en undir lokin kom ungur og bráðefnilegur markvörður inn á hjá Skagamönnum, Halldór Stefánsson, og varði eins og berserkur. Ekki er að vita nema Skagamenn hefðu getað krækt í a.m.k. jafntefli með hann á milli stanganna allan timann. Hjá Gróttu var Sverrir Sverrisson mest áberandi, auk Ragnars í markinu. Gunnar Páll átti góðan fyrri hálfleik og Gauti Grétarsson fór í gang í þeim síð- ari með látum. Þá var Jóhann Péturs- son sleipur á línunni og fiskaði fjölda vítakasta. Af Skagamönnum var Krist- ján einna sterkastur. Skoraði 5 mörk — reyndar öll í fyrri hálfieik. Daði var góður í sókn en of linur í vörninni. Þórður Elíasson átti hins vegar stórleik i vörninni og bókstaflega gekk frá Jóhannesi Benjamínssyni, hinum hættulega hornamanni þeirra Gróttu- manna. Haukur sýndi fádæma öryggi í vítaköstunum. Mörkin: Grótta: Sverrir Sverrisson 11/7, Gauti Grétarsson 6, Gunnar Páll Þórisson 3, Jóhann Pétursson 2, Hjörtur Hjartar 2, Jóhannes Benja- minsson 1. ÍA: Haukur Sigurðsson 6/6, Kristján Hannibalsson 5, Daði Halldórsson 4, Pétur Ingólfsson 3, Sigurður Halldórsson 2, Þórður Elías- son 2 og Hallgrímur Rögnvaldsson 1. Á laugardag léku Reynir og Stjarnan og varð leikurinn geysilega ójafn, eins og reyndar mátti búast við. Grétar Mar skipstjóri og menn hans létu reka á reiðanum og útkoman varð 17-34 tap. Stjarnan komst strax yfir og gekk hvorki né rak hjá Reyni og staðan var orðin 12-3 áður en varði. Skipstjórinn kom þá inn á og tókst hans mönnum að halda í horfinu fram undir hálfleik. Þar með var draumurinn líka búinn. Stjarnan með þá Magnús Teitsson og Eyjólf Bragason sem beztu menn kaf- sigldi Reyni. Af öðrum leikmönnum Garðabæjarliðsins má nefna Eggert ísdal, sem sýndi góða takta. Hjá Reyni 16 mörk Margrétar voru Þór ofviða —Fram og FH berjast á toppi 1. deildar Fjórir leikir fóru fram i 1. deild kvenna um helgina og eftir þá er Ijóst að baráttan kemur til mefl að standa á milli FH og Fram i vetur þó svo bæði Valur og Vikingur fylgi þeim vel eftir núna. Bæfli Fram og FH rótburstuðu sina andstæðinga og þau bera tvimæla- laust höfufl og herflar yfir hin liðin. Framstúlkurnar tóku stöllur sínar af Akranesi heldur betur í karphúsið á laugardag er liðin mættust í Laugar- dalshöllinni. Lokatölur urðu 27-10 Fram í vil og heldur hefur sigið á ógæfuhliðina hjá Skagadömunum að undanförnu eftir frísklega byrjun. FH sigraði Þór frá Akureyri 30-15 í Hafnarfirði á laugardag. Það var Margrét Theodórsdóttir, sem reyndist alger ofjarl Þórsliðsins og hún skoraði hvorki fleiri né færri en 16 mörk í leiknum og skaut samt tvisvar í stöng úr vítaköstum. Haukar og Valur háðu grimmilega baráttu, sem lengst af var hnífjöfn. Þegar skammt var til leiksloka var t.d. jafnt, 6-6, en Hlíðarendastúlkurnar voru mun sterkari undir lokin og skor- uðu fjögur síðustu mörk leiksins og sigruðu 10-6. Þá léku Vikingur og Þór í gær í Laugardalshöllinni og lauk leiknum með 16-9 sigri Víkings. Staðan i 1. deild kvenna er þá þessi: Fram FH Víkingur Valur KR Akranes Þór Haukar 6 0 l 140-89 12 5 l l l38-93 11 4 2 l 100-87 10 4 2 l 94-84 10 3 0 3 78-84 6 l 2 4 81-114 4 l 0 7 107-158 2 0 l 6 78-107 1 - SSv. voru það einna helzt Daníel Einarsson, sterkur leikmaður, Einar Benediktsson og Kristján Guðbrandsson, auk skip- stjórans Grétars Mar, sem stóðu upp úr. Staðan í 3. deildinni er nú þannig: Stjarnan Grótta Þór, Vm. Akranes Keflavik Óðinn Reynir 6 0 0 1 68-118 12 5 1 1 170-146 11 5 0 2 169-150 1 0 3 1 3 144-126 7 2 0 3 109-102 4 1 0 6 121-121 2 0 0 7 116-234 0 - SSv. Eftir afleita byrjun hafa þeir nú unnið 5 leiki í röð og eru í 3. sætinu. Þeir gerðu sér lítið fyrir og unnu HK á laugardag 18-14 og siðan Ármann 21- 17 í gærdag. Afturelding hélt til Akureyrar og lék þar tvo leiki. Sá fyrri var gegn Þór og þar sigruðu gestirnir 24-21. Fátt getur nú bjargað Þórsurum frá falli í 3. deild- ina en þeir sluppu naumlega í fyrra. Þór tókst að halda í við Aftureldingu framan af leiknum en síðan ekki sög- una meir. Emil Karlsson varði eins og berserkur í marki Aftureldingar og var sá maður er reyndist Þórsurum erfið- astur. í hálfleik var staðan 12-9 og fljótlega komst Afturelding í 19-13 en Þór tókst aðeins að laga stöðuna fyrir leikslok. Mörkin: Þór: Sigurður 6, Sig- tryggur 6/3, Benedikt 3, Guðmundur 2, Árni 2, Einar 1, Gunnar 1. Aftureld- ing: Sigurjón 11, Steinar 6, Lárus 2, Alfreð 1, Þorvaldur 1, Björn 1, Brynjar 1 og Ingvar 1. KA var hins vegar ekki í nokkrum vandræðum með Aftureldingu og sigraði 30-20 eftir að hafa leitt 14-9 í hálfleik. KA-menn voru einfaldlega mun sterkari aöilinn allan tímann og juku muninn jafnt og þétt út leikinn. KA komst strax I 6-1 og þar með var tónninn gefinn. Aftureldingu tókst þó að halda í við þá þar til 8 mínútur voru eftir. Þá var staðan 24-18 KA í vil en breyttist i 30-18 á nokkrum mínútum. Gestirnir áttu svo lokaorðið og skoruðu tvö síðustu mörkin. Mörkin í leiknum: KA: Gunnar 8/4, Friðjón 5, Þorleifur 5, Erlingur 5, Guðmundur 3, Magnús B, Magnús G. og Jakob I hver. Afturelding: Sigurjón 8/4, Einar 4, Lárus 3, Þorvaldur 2, Ingvar, Björn og Brynjar 1 hver. Þá gerðu Breiðabliksmenn sér lííið fyrir og sigruðu ÍR 23-22. Eru Blikarnir þar með efstir i deildinni en þeir komu, sem kunnugt er, upp úr 3. deildinni í fyrra. Staðan í 2. deildinni er nú þessi: Breiðablik 8 5 12 169-175 11 KA 6 5 0 1 141-109 10 Týr, Vm. 8 5 0 3 150-143 10 HK 7 3 2 2 140-122 8 ÍR 8 2 4 2 163-155 8 Afturelding 9 4 0 5 184-190 8 Ármann 8 2 2 4 151-158 6 Þór, Ak. 8 0 17 156-202 1 • SSv. / GSv. Hörðuráfram á Siglufirði Siglfirðingar munu endurheimla Hörð Júlíusson frá Valsmönnum eftir eins árs veru hans hjá Hliðarendalið- inu. Hörflur vakti mikla athygli hjá Val fyrst f vor en komst síðan ekki i liðifl og hefur nú ákveðifl að snúa heim á ný. Þórsarar höfðu mikinn áhuga á að fá hann til sin en Hörflur kaus að vera á Siglufirði. - SSv. BYLTING í Ú R A-FR AM LEIÐSLU SAMA ÚRIÐ MEÐ TVÖ ANDLIT AA81 býður upp á: Klukkutíma, mín., sek., mánaðardag, vikudag. Sjálfvirka dagatalsleiðréttingu um mánaðamót. Að hœgt só að hafa tvo tíma samtímis. Niðurteljara frá 1. mín. tilklst Vekjara. Hljóðmerkiá hálfum og heilum tíma. Rafhlöðu sem endist í ca. 18 mánuði. Árs ábyrgð og viðgerðarþjónustu. Er högghett og vatnshelt Gkr. 96.700,- Nýkr. 967,00.- CASIO varð á úrum er frá gkr. 39.950 til 96.700. CASIO vasatölvur frá gkr. 18.900 CASIO-UMBOÐIÐ BANKASTRÆTI 8 SÍMI27510 M—1200 býður upp á: < Klukkutíma, min., sek. < Mánuð, mánaðardag, vikudag. < Vekjara með nýju lagi alla daga vikunnar. < Sjálfvirka dagatalsleiðróttingu um mánaðamót. < Bæði 12 og 24 tíma kerfið. • Hljóðmerki á klukkutíma fresti með „Big Ben " tón. ' Dagatalsminni með afmælislagi. • Dagatalsminni með jólalagi. Niðurteljara frá 1 min. tíl klst. og hringir þegar hún endar á núlli. Skeiðklukku með millitíma. Rafhlöðu sem endist i ca. 2 ór. Árs ábyrgð og viðgerðarþjón- ustu. Br högghett og vatnshelt. G.kr. 96.700.- Nýkr. 967,00.-

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.