Dagblaðið - 12.01.1981, Síða 18
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 1981.
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
Meisturum Liverpool ýtt
af toppnum f Birmingham
—Aston Villa vann öruggan sigur á Liverpool á laugardag og á eftir að leika við flest efstu liðin á heimavelli.
Ipswich komst í annað sætið í 1. deild og West Ham er að stinga önnur liðafíZ deild
Dcnnis Mortimer, fyrirliði Aston Villa, átti stórleik gegn Liverpool á laugardag.
Skoraði siðara mark Villa. Var áður leikmaður hjá Coventry.
„Möguleikar okkar á meistaratitlin-
um enska hljóta nú að vera mjög góðir.
Við eigum eftir að leika við næstum öll
efstu liðin á heimavelli — á Villa
Park,” sagði Ron Saunders, stjóri
Aston Villa, eftir að lið hans hafði
unnið sanngjarnan sigur á Englands-
meisturum Liverpool, 2-0, i Birming-
ham á laugardag. Gifurlegur fögnuður
var á Villa Park meðal 47.966 áhorf-
enda meðan á leiknum stóð og eftir
hann. Minnti á gamla frægðardaga,
þegar Aston Villa var frægasta knatt-
spyrnufélag Englands. Mesti áhorf-
endafjöldinn á Villa Park á leiktimabil-
inu. Meðal áhorfenda var Jock Stein,
landsliðseinvaldur Skotlands, sem
fylgdist með þeim mörgu, skozku leik-
mönnum, sem tóku þátt i leiknum.
einkum þó miðvörðum Villa, Kenneth
McNaught og Allan Evans.
Lið Villa hafði nokkra yfirburði í
fyrri hálfleiknum. Vörn Liverpool allt
annað en sannfærandi án miðvarðanna
sterku, Hansen og Thompson. Á 20.
mín. náði Villa forustu. Tony Morley
tvílék þá á Liverpool-bakvörðinn
Mooney, siðan upp að endamörkum og
gaf fyrir. Gary Shaw spyrnti á markið.
Ray Clemence hélt ekki knettinum, sem
hrökk til Peter Withe og miðherjinn
átti ekki í erfiðleikum með aö skora.
Undir lok háifleiksins hresstist lið
Liverpool nokkuð. Jimmy Rimmer,
mjög vafinn á öðru lærinu vegna
meiðsla, varði þá vel frá Ray Kennedy
og Terry McDermott. Snilldarmark-
vörður Rimmer og hann hefur aðeins
misst þrjá leiki síðustu átta árin sem
markvörður Man. Utd., Arsenal og
Aston Villa.
Framan af síðari hálfleiknum sótti
Liverpool miklú meira og lengi vel lá
jöfnunarmarkið i loftinu. Það varð þó
ekki — og Villa skoraði. Áður hafði
Graeme Souness orðið á mikil mistök,
þegar hann ætlaði að gefa knöttinn
aftur á Clemence markvörð. Mistókst
og Clemence varð að tvíverja áður en
hættunni var bægt frá — en á 83. mín.
átti hann enga möguleika, þegar
Dennis Mortimer, fyrirliði Villa, komst
frír í gegn eftir snilldarsendingu Shaw,
sem splundraði rangstöðutaktík Liver-
pool. Lokaminúturnar var Villa nær
því að skora þriöja markið en Liver-
pool að komast á blað. Leikurinn var
tekinn upp hjá BBC og við fáum því að
sjá hann í sjónvarpinu nk. laugardag ef
póstsamgöngur verða í lagi.
Liðin voru þannig skipuð: Aston
Villa: Rimmer, Swain, Gibson, Evans
McNaught, Bremner, Mortimer,
Cowans, Shaw, Withe og Morley. —
Gary Williams, sem leikið hefur sem
bakvörður í liði Villa að undanförnu
var varamaður en Colin Gibson bak-
vörður á ný. Liverpool: Clemence,
Mooney, Neal, Irvine, Allan Kennedy,
Souness, Ray Kennedy, Lee, McDer-
mott, Johnson og Dalglish. Jimmy
Case var varamaður.
Ipswich í öðru sœti
Á meðan Villa vann Liverpool gerði
Ipswich sér litið fyrir og sigraði
Evrópumeistara Nottingham Forest
með sömu markatölu i Ipswich. Larry
Lloyd, miðvörður Forest, meiddist á
æfingu á föstudagsmorgun. Gat ekki
leikið og David Needham kom í hans
stað. Ian Wallace komst ekki í lið
Forest frekar en gegn Bolton. Hjá Iþs-
wich vantaði Eric Gates — Kevin
O’Callaghan lék í hans stað. Ipswich
var allan tímann betra liðið. í fyrri
hálfleiknum var Paul Mariner byrjaður
að fagna marki — hafði sent knöttinn
örugglega framhjá Peter Shilton —
þegar knötturinn hrökk innan á stöng-
ina og út aftur. En á 52. min. gat
Mariner fagnað. Skoraði með fallegu
skoti og rétt á eftir skoraði Arnold
MUhren annað mark Ipswich eftir
snjallan undirbúning Allan Brazil.
öruggur sigur í höfn en fulUitill eftir
gangi leiksins. Ipswich er aðeins einu
stigi á eftir Villa. Hefur leikið tveimur
leikjum minna.
Lítum þá á úrslitin á laugardag.
1. deiid
Aston Villa — Liverpool 2-0
Coventry — Man. City 1-1
C. Palace — Stoke 1-1
Everton — Arsenal 1-2
Ipswich — Nottm. For. 2-0
Leeds — Southampton 0-3
Leicester — WBA 0-2
Man. Utd. — Brighton 2-1
Sunderland — Norwich 3-0
Tottenham — Birmingham 1-0
Wolves — Middlesbrough 3-0
2. deild
Blackburn — Watford 0-0
Bristol City — Cambridge o-r
Derby — Bristol Rovers 2-1
Grimsby — Bolton 4-0
Luton — Cardiff 2-2
Notts Co. — Shrewsbury 0-0
Orient — Oldham 2-3
QPR — Preston 1-1
Sheff. Wed. — Chelsea 0-0
Swansea — West Ham 1-3
Wrexham — Newcastle 0-0
3. deild
Barnsley — Plymouth 2-1
Charlton — Hull City 3-2
Chester — Brentford 04)
Colchester — Blackpool 3-2
Exeter — Walsall 0-3
Gillingham — Burnley frestað
Huddersfield — Newport 4-1
Millwall — Fulham 3-1
Portsmouth — Sheff. Utd. 1-0
Reading — Carlisle 3-1
Rotherham — Oxford 0-0
Swindon — Chesterfield 0-1
4. deild
Crewe — Bournemouth 0-2
Doncaster — Aldershot 3-1
Halifax — Tranmere 1-1
Hartlepool — Port Vale 3-0
Hereford — Bury 0-1
Lincoln — Bradford 1-1
Northampton — Mansfield 0-1
Scunthorpe — Peterbro 1-1
Southend — Darlington 1-0
Stockport — Torquay frestað
Wimbledon — Rochdale frestað
York City — Wigan 2-1
Arsenal, án Brian Talbot, sem missti
sinn fyrsta leik frá þvi hann var keyptur
frá Ipswich, Alan Sunderland, David
O’Leary og Graham Rbt vann mikinn
heppnissigur á Goodison Park í Liver-
pool að viðstöddum 29.360 áhorfend-
um. Everton hafði yfirburði og það
mikla nær allan leikinn en framherjar
liðsins fóru hroðalega með góð tæki-
færi. Auk þess bjargaði John Devine á
marklínu Arsenal og knötturinn small
þar í þverslá eftir skot Peter Eastoe.
Þetta var ekki dagur Everton. Arsenal
tókst að hefna fyrir tapið í bikarleikn-
um á sama velli vikunni áður. Arsenal
átti aðeins eitt færi í f.h. McDonagh
bjargaði vel frá Steve Gatting. Everton
náði þó forustu í leiknum á 54. mín.
með þrumufleyg Eamon O’Keefe utan
vítateigs. Gatting jafnaði á 76. mín. og
á lokamlnútu leiksins skoraði Frank
Stapleton sigurmark Lundúnaliösins.
Dýrlingarnir snjallir
Leikmenn Southampton hafa náð
frábærum árangri að undanförnu.
Ekki tapaö i síðustu níu leikjunum og
skorað 18 mörk í siðustu fímm leikjun-
um. Stórsigur Dýrlinganna 0-3 á Elland
Road á laugardag. Mike Channon
skoraði fyrir Southampton í fyrri hálf-
leik. Holmes tvívegis í þeim síðari.
WBA ann auðveldan sigur á neðsta
liðinu Leicester á Filbert Street og
hefur ekki tapað nema þremur stigum
meira en efsta liðið, nágrannarnir hjá
Aston Villa. WBA skoraði tvívegis í
f.h. Martyn Bennett og John Deehan
en fleiri urðu ekki mðrkin. Óhætt að
afskrifa Leicester nú í 1. deild.
Man. Utd. og Brighton mættust í
þriðja sinn á viku. Sama liðsskipan hjá
báðum liðum og í bikarleiknum í
Brighton sl. miðvikudag. United
byrjaði með miklum krafti en Graham
Moseley var frábær í marki Brighton
fyrstu 30 mfnúturnar. Varði tvívegis
glæsilega frá Steve Coppell, síðan frá
Birtles og Thomas. En svo voru það
mistök hans, sem gáfu United fyrsta
markið á 34. mín. Hann missti knött-
inn eftir aukaspyrnu. Joe Jordan náði
knettinum og renndi inn á miðju til
McQueen, sem skoraði. Rétt á eftir lék
Ray Wilkins miðherjann Birtles snilld-
arlega frían. Moseley bjargaöi með til-
þrifum. í s.h. kom Brighton meira inn í
myndina. Smith átti stangarskot á 57.
mín. og sjö mín. siðar tókst Andy
Ritchie að jafna i 1-1. Það stóð ekki
lengi. Lou Macari skoraði strax mlnútu
síðar eftir undirbúning Jordan. í lokin
sótti Brighton talsvert en vörn United
var þétt fyrir með Martin Buchan sem
bezta mann á vellinum. Ray Wilkins
var hvíldur 13 mín. fyrir leikslok.
Stórsigur Úifanna
Úlfarnir unnu sinn fyrsta sigur í
deildinni síðan í nóvember og þá var
það stórsigur á Middlesbrough. Kenny
Hibbitt skorað í f.h. — Mel Eves tví-
vegis í þeim síðari.
Mikill baráttuleikur var í Coventry.
Heimaliðið byrjaði betur en svo náði
Man. City sér á strik og fékk 10 horn-
spyrnur í fyrri hálfleiknum án þess þó
að skora. Á 52. mín. náði Steve Hunt
forustu fyrir Coventry eftir að hafa
leikið skemmtilega á tvo varnarmenn.
Steve McKenzie jafnaði á 67. mín. og
eftir markið kom Man. City knettinum
tvívegis í mark Coventry. Dæmd af
vegna rangstöðu.
Tottenham hafði mikla yfirburði
gegn Birmingham. Tókst þó aðeins að
skora eitt mark — Garth Crooks á 60.
mín. Archibald hafði lagt knöttinn
fyrir hann eftir hornspyrnu. Crooks
klaufi aö skora ekki nokkur mörk í
leiknum. Áhorfendur 24.909.
Leikmenn Crystal Palace fóru
hroðalega að ráði sinu gegn Stoke á
laugardag og það verður greinilega
hlutskipti þeirra að fylgja Leicester
niður í 2. deild. Terry Boyle skoraði
snemma leiks fyrir CP og liðið fékk
góð tækifæri til að auka við markatöl-
una. Tókst ekki en sigurmöguleikar
liðsins virtust enn aukast, þegar Paul
Richardson, Stoke, var rekinn af velli á
44. mín. Þrátt fyrir að Stoke hefði
aðeins 10 menn í s.h. lék liðið þá betur.
Terence Gennoe, lánsmaðurinn frá
Southampton, varði þá oft vel í marki
Palace. En það átti ekki fyrir Palace að
liggja að hljóta bæði stigin. Billy Gil-
bert urðu á hroðaleg mistök á lokamín-
útunni og baráttujaxlinn Mike Doyle
jafnaði fyrir Stoke. Sunderland hafði
mikla yfirburði gegn Norwich á Roker
Park. Roweil og Cummins skoruðu í
fyrri hálfleik. Rowell aftur í þeim
siðari.
West Ham í 1. deild
Greinilegt að leikmenn West Ham
ætla sér sæti i 1. deild næsta keppnis-
timabil. Sigruðu I Swansea á laugardag
og hafa nú sex stiga forustu í 2. deild.
Trevor Brooking skoraði fyrir West
Ham á 34. mín. og síðan bætti Jeff
Pike öðru marki við. 0-2 í hálfleik.
Allan Curtis minnkaði muninn fyrir
Swansea. Það var skammgóður vermir.
David Cross svaraði strax fyrir
Lundúnaliðið — 23ja marka hans á
leiktímabilinu. Swansea heldur öðru
sæti þrátt fyrir tapið en fjölmörg lið
hafa enn möguleika á þvf að fylgja
West Ham upp í 1. deild. Þrjú lið
komastupp.
í 3. deild er Charlton efst með 40
stig. Barnsley hefur 39 stig og Rother-
ham 37. Leik Burnley í Gillingham var
frestað. Flestir leikmenn Burnley liggja
í flensu. í 4. deild er Southend langefst
með 44 stig. Lincoln hefur 39 stig og
Mansfield í þriðja sæti með 34 stig.
Staðan í efstu deildunum er nú þann-
ig:
1. deild
A. Villa 26 15 6 5 44-23 36
Ipswich 24 13 9 2 41-21 35
Liverpool 26 11 12 3 46-29 34
Arsenal 26 11 10 5 39-29 32
WBA 25 11 9 5 33-24 31
Southampton 26 11 7 8 51-39 29
Nottm. For. 26 11 7 8 40-29 29
Man. Utd. 26 7 15 4 35-24 29
Tottenham 26 10 8 8 50-47 28
Everton 25 10 6 9 39-33 26
Stoke 26 7 12 7 30-35 26
Man. City 26 9 7 10 37-37 25
Middlesbro 25 10 4 11 35-35 24
Birmingham 25 8 8 9 31-33 24
Coventry 26 9 6 11 30-38 24
Sunderland 26 8 6 12 35-35 22
Wolves 26 8 6 12 26-37 22
Leéds 26 >8 6 12 21-37 22
Brighton 26 8 4 14 32-45 20
Norwich 26 7 6 13 31-50 20
C. Palace 26 5 4 17 34-54 14
Leicester 26 6 2 18 18-44 14
2. deild
West Ham 26 16 6 4 44-22 38
Swansea 26 11 10 5 40-27 32
Chelsea 26 11 9 6 38-24 31
Derby 26 11 9 6 40-33 31
NottsCo. 25 10 11 4 28-24 31
Luton 26 11 7 8 39-32 29
Blackburn 25 10 9 6 27-20 29
Sheff. Wed. 24 11 6 7 32-27 28
Orient 25 10 7 8 36-31 27
Grimsby 26 8 11 7 26-24 27
Cambridge 24 12 3 9 29-30 27
QPR 25 8 8 9 34-25 24
Wrexham 26 8 8 10 22-26 24
Watford 26 8 7 11 30-32 23
Newcastle 25 7 9 9 17-33 23
Bolton 26 8 6 12 39-41 22
Cardiff 24 8 6 10 28-34 22
Preston 26 5 12 9 25-38 22
Shrewsbury 26 5 11 10 24-27 21
Oldham 26 6 9 11 22-30 21
Bristol City 26 4 10 12 18-34 18
Bristol Rov. 26 1 10 15 22-46 12
- hsim.