Dagblaðið - 12.01.1981, Page 32
Islenzk vetrarveður gera bandaríska herliðinu lífið leitt:
Stórskemmdir á n
virkjum á Vellinum
—tjónið nemur rúmlega 4,7 millj.—eða nær hátfum milljarði gamalla krðna
Vetur konungur gerir bandaríska
herliðinu á Keflavíkurflugvelli lífið
heldur leitt þessa dagana. Snjór og
vetrarstormar hafa valdið stórfelld-
um vandræðum og stórskemmdum á
á mannvirkjum innan vallar-
girðingarinnar. Vikublað bandarísku
hermannanna, White Falcon, greinir
frá því nú um helgina, að áætlað sé
að tjónið nemi 755.000 dollurum eða
rúmlega 4.7 milljónum nýkróna. Svo
tölunni sé snúið í gamalkrónur, þá
nemur tjónið nær hálfum milljarði.
Mest varð tjónið í ofsaveðri 27.
desember sl. Vindhraði þá var 67
hnútar. Þakið rifnaði alveg af húsi
utan um sundlaugina á vellinum.
Talsverðar skemmdir urðu á tveimur
byggingum til viðbótar. Næstu þrjá
daga var vindhraði á Keflavíkurflug-
velli u.þ.b. 55 hnútar með mikilli
snjókomu. Á gamlárskvöld féll
mikill snjór eða 22,5 cm. Umferðar-
truflanir voru miklar og takmarkanir
settar á akstur.
Annað áhlaup gerði á völlinn 5.
janúar með roki og hríð. Mælingar
vallarmanna sýna að desember var
snjóþungur og óttast þeir enn meiri
snjó nú í janúar. Þeir hugga sig þó
við það, að sól hækkar nú með hverj-
um degi, þannig að allt tekur þetta
enda.
Auk skemmdanna á sundlaugar-
byggingunni, urðu skemmdir á verzl-
lunar- og skrifstofubyggingu, flug-
skýli, leikfimisal og girðingu
umhverfis Rockvillestöðina. Þá urðu
rafmagnstruflanir vegna skemmda á
rafmagnslínum innan girðingar. -JH.
.V
Sundlaugarbyggingin á Keflavikurflugvelli fór verst af byggingum á staðnum en
þakið fór nxr alveg af. Myndin er úr WhiteFalcon.blaði bandariska herliðsins á
Keflavikurflugvelli.
Mesta athygli í I. umferð skákþingsins vakti sigur Karls Þorsteins yflr Ásgciri Þ. Árnasyni. Það er Karl sem er til vinstri á myndinni.
DB-m.vnd: S.
Karl Þorsteins vann Ásgeir Þ.
— margir beztu skákmenn landsins meðal keppenda á Skákþingi Reykjavíkur
Á Skákþingi Reykjavíkur sem hófst i
gær vakti það mesta athygli að hinn
sextán ára gamli Karl Þorsteins lagði
Ásgeir Þ. Árnason að velli. önnur úr-
slit í A-flokki urðu þau, að Jón L.
Árnason vann Björgvin Víglundsson,
Helgi Ólafsson vann Sævar Bjarnason,
Bragi Halldórsson vann Benedikt
Jónasson. Jafntefli gerðu Dari Hans-
son og Þórir Ólafsson og Hilmar Karls-
son og Elvar Guðmundsson. Mótið er
óvenjulega vel skipað enda er til mikils
að vinna. Fyrstu verðlaun eru 4500
nýkr. og önnur verðlaun 2500 nýkr.
Keppendur á mótinu eru tæplega 80
talsins. Áo sSgr. Þorsteins Þorsteins-
sonar, varaforseta SkáksamDí.líií
íslands, er fyrirhuguð keppni í skák
milli landsbyggðarinnar og Reykja-
víkur og er búizt við að hún geti orðið
mjög jöfn þar sem rétt á sæti i liði
landsbyggðarinnar eiga kappar eins og
Helgi Ólafsson, Ingi R. Jóhannsson og
GuÖmúnd".r Sigurjónsson. -GAJ
frjálst, áháð dagblað
MÁNUDAGUR 12. JAN. 1981.
Kjaradómur:
Hætt við bráða-
birgðalögin
Andstaða framsóknarmanna hindrar
að Ragnari Arnalds verði að þeirri ósk
sinni að ógilda úrskurð Kjaradóms um
launahækkanir með bráðabirgðalög-
um. Og er augljóst að stjórnarliðar
muni ekki standa saman um slík bráða-
birgðalög. Má því gera ráð fyrir, að
hugmyndin sédauð.
- HH
Glæpirársins 1980:
Þjófnaðir
tveir þriðju
mála
Þjófnaðarmál voru nærri tveir
þriðju hlutar þeirra mála sem kærur
bárust um til Rannsóknarlögreglu
ríkisins á síðasta ári. Af 3633 málum
voru 2034 þjófnaðarmál. Næst á eftir
kom skyldur málaflokkur, fjársvika-
mál og skjalafals 785 mál.
Um þessar mundir er unnið að því að
skrá og flokka þau mál sem kærð voru
til Rannsóknarlögreglu rikisins á
síðasta ári. Nú lítur út fyrir að þeim
málum hafi fækkað um ein tvö hundr-
uð frá því árið 1979. Enn er eftir að
skrá nokkuð af málum og því getur sú
tala átt eftir að breyast. Búið er að
flokka þau mál sem þegar hafa verið
skráð. Kemur þá í ljós til viðbótar því
sem fyrr var sagt að brunamál voru
182, slys ýmiss konar 122, tollalagabrot
44, verðlagsbrot 13, spellvirki 77 og
dauðsföll ýmiss konar 150. Þar voru
tvö mál sem telja má til man'ndrápa,
hnífstungur á tveimur mönnum um
borð í Tý fyrst á árinu.
Ýmis mál sem ekki var búið að
flokka eru síðan 230 talsins. Að sögn
Hallvarðs Einvarðssonar rannsóknar-
lögreglustjóra eru tölur um hve mörg
þessara mála eru leyst ekki enn hand-
bærar.
-DS.
Stálu sjón-
varpstækifrá
Hjálpræðis-
hemum
Brotizt var inn í herbergi hjá Hjálp-
ræðishernum í gærkvöld og þaðan
stolið Grundig sjónvarpstæki. Ekki er
vitað hverjir voru að verki en talið er að
herbergið hafi verið ólæst og þvi gengið
greiðlega að komast þar inn.
Þá var einnig brotizt inn i Bílaborg
við Smiðshöfða en ekki vitað um
hversu miklu var stolið. 70 þúsund
gömlum krónum var stolið úr hótelher-
bergi i Reykjavik um helgina. Þjófur-
inn fannst ekki.
-ELA.
Deilan um stjómarkjörið íVerði:
GEIR A AÐ BERA KLÆÐIA V0PNIN
formaðurínn reynir sættir, annars kemur málið fyrír næsta miöstjómarfund í Sjálfstæðisflokknum
Geir Hallgrímsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, lagði til á mið-
stjórnarfundi flokksins á föstudaginn
að hann fengi umboð til að leita sátta
i deilu um stjórnarkjör i Landsmála-
félaginu Verði. Tillagan var sam-
þykkt og er boltinn því hjá Geir um
sinn. Takist formanninum ekki að
bera klæði á vopnin kemur deilan á
ný fyrir miðstjórnarfund að mánuði
liðnum — og þá væntanlega til úr-
skurðar.
Fyrir fundinum á föstudaginn lá
skýrsla frá Sveini Skúlasyni, fram-
kvæmdastjóra Varðar, um málið.
Þar kom meðal annars fram það álit
Kjartans Gunnarssonar, fram-
kvæmdastjóra Sjálfstæðis flokksins,
að ekkert standi i vegi fyrir því i lög-
um og reglum flokksins að ógilda
umdeilda kosningu Áslaugar Cassata
í stjórn Varðar. Áslaug var kosin
með hlutkesti á stjórnarfundi hverfa-
félags sjálfstæöismanna í mið- og
vesturbæ til setu i Varðarstjórn.
Síðar kom fram krafa í stjórn hverfa-
félagsins um að endurtaka kosning-
una þar sem Áslaug nyti ekki stuðn-
ings meirihluta stjórnarinnar. Fóru
þá leikar svo að Ingimundur Sveins-
son var kjörinn i hennar stað. Deilt er
um hvort fyrri kosningin gildi eða
ekki. Alberts/Gunnarsmenn vilja
skilja það svo að Áslaug sé réttkjör-
in, Geirsmenn vilja að kosning Ingi-
mundar gildi. Til mikils er að vinna
fyrir báðar fylkingarnar, þar sem
meirihluti þeirrar fyrrnefndu í stjórn
Varðar veltur á þessu stjórnarsæti.
Meirihluti þeirra sem tóku til máls
á miöstjórnarfundinum taldi að
kosning Áslaugar ætti að gilda. Þeir
sem fjölluðu um málið voru Björn
Þórhallsson, Davíð Sch. Thorsteins-
son, Jón Magnússon, Ellert Eiriks-
son, Ragnhildur Helgadóttir, Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson og Sigur-
laug Bjarnadóttir.
- ARH