Dagblaðið - 13.01.1981, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 13.01.1981, Blaðsíða 1
1fiðræöur sjómanna og út- vegsmanna „sprungu” aftur —„sjómenn munu ræða verkfallsmálin af meiri alvöru en áður” Samningaviðræður um nýja báta- kjarasamninga „sprungu” í gær- kvöldi eftir að fundir höfðu staðið um helgina og í gær. Hafði þá lítið þokazt í samkomulagsátt en þó dregið saman með sjónarmiðum út- vegsmanna og sjómanna um frídaga þeirra síðarnefndu, aðallega frí um jól. Ríkissáttasemjari taldi gagnslaust að reyna frekari fundarhöld en talið er að hann muni leita fyrir sér um sættir síðar í vikunni. Eins og menn rekur minni til „sprungu” viðræður um bátakjarasamningana síðast 19. desember. Kristján Ragnarsson fram- kvæmdastjóri Landssambands isl. útvegsmanna sagði í Morgunpósti út- varpsins árdegis að sjómenn vildu ekki semja fyrr en fiskverð lægi fyrir. Útgerðin hefði „verulega þörf fyr- ir fiskverðshækkun um þessar mundir”. Kristján sagði útgerðar- menn ekki hafa fengið viðbrögð sjó- mannasamtakanna um lifeyrismídin á fundum, en þau myndu valda út- gerðinni mestri útgjaldaaukningu. Þá lét framkvæmdastjóri útgerðar- manna það álit í Ijós að verkfallshót- anir sjómanna væru „ekki eins þung- bærar og áður”, Þorskurinn fengi frið ef til verkfalls kæmi. Guðmundur Hallvarðsson for- maður Sjómannafélags Reykjavíkur sagði i morgun að samningamenn sjómanna hefðu boðið útgerðar- mönnum upp á að setja undir- nefnd í að ræða lífeyrismálin en jafn- framt yrðu teknar upp viðræður um beinar kaupkröfur. „Okkur þótti ekki raunhæft að binda allar viðræður þannig að kaup- kröfur bæri ekki á góma. En þetta vildu útgerðarmenn ekki og slitu viðræðum í gær. Það éru furðuleg vinnubrögð af þeirra hálfu. ” Guðmundur sagði að sjómenn myndu á næstunni „ræða verkfalls- málin af meiri alvöru en fyrr”. Flest sjómannafélögin hafa aflað sér heimildar til verkfallsboðunar og um næstu helgi er talið að öll félögin hafi fengið verkfallsheimild. Yfirnefnd verðlagsráðs sjávarút- vegsins kemur enn saman til að fjalla um nýtt fiskverð í dag, en það átti að taka gildi um áramótin. í dag verða lögð fram ný gögn Þjóðhagsstofn- unar sem að sögn Kristjáns Ragnars- sonar sýna „verulega breytingu til hins verra” í afkomu útgerðarinnar. -ARH. Kraftaverkað Kampútseuhjálpin heppnaöist? Það eru fáar ef nokkur hjálparað- gerð sem hefur verið gagnrýnd meir en aðstoðin við flóttafólk frá Kampútseu. í nýlegri sjónvarpsmynd kom brezki blaðamaðurínn John Pil- 'ger fram meö alvarlegar ásakanir í garð hjálparstofnana varðandi aðstoðina á iandamærum Thailands og Kampútseu. Um þessar ásakanir og hjálparstarfið er fjallað í erlendri grein i dag. — sjá erl. grein ábls.8-9 Baiiettinner erfiðurlíkamlega ogandlega — sjá FÓLK bls. 16 Bannaðaðselja ófrysta kjúklinga — sjá bls. 5 og leiðara bls. 12 Yorkshire-Ripper- innhefurþegar játað — sjá erl. fréttir bls.6-7 HVAÐ STODAR VOL OG VÆL? Það er ekki að sjá á andliti þessa manns að hat\n setji umhleyping-1 ástandið ekkert þótt menn séu með vol og væl. Þessi heiðursmaður ana á höfuðborgarsvæðinu fyrir sig. Hann tekur þessu létt, eins og heitir Sigurjón og er ættaður sunnan úr Garði en hefur í jjölda- hann hefur trúlega alltaf gert þótt hann sé rúnum ristur. Enda lagast | mörg ár unnið fyrir rafveitu höfuðborgarinnar. Greinilegur áhugi fyrir Stjömumessu og Vinsældavali ’81: STJÖUNUHUÓMSVEnW VAUN — sjá baksíðu

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.