Dagblaðið - 13.01.1981, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 13.01.1981, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1981. 5 BANNAÐ AÐ SEUA ÓFRYSTA KJÚKLINGA Heilbrigðisráð Reykjavíkur ítrekar reglugerðarákvæði landbúnaðarráðuneytisins — Matmönnum súmar íaugum Heilbrigðisráð Reykjavíkur auglýsti nú fyrir helgina og vakti athygli sölu- og dreifingaraðiia á sláturafurðum af alifuglum á reglugerð landbúnaðar- ráðuneytisins um útbúnað alifuglaslát- urhúsa, slátrun alifugla, verkun þeirra og heilbrigðisskoðun. Reglugerð þessi tók gildi 6. maí sl. Sérstaklega var vakin athygli á eftir- farandi ákvæðum reglugerðarinnar: „1. Alifuglum sem slátrað er til sölu skal einungis slátrað i viðurkennd- um sláturhúsum. 2. Óheimilt er að bjóða til sölu ófrystar siáturafurðir aii- fugla og 3. Óheimilt er að bjóða til sölu afurðir alifugla án umbúða eða í van- merktum umbúðum.” Það sem mesta athygli vekur af þess- um reglugerðarákvæðum er að nú má aðeins selja frystar sláturafurðir ali- fugla. Hér er aðallega um að ræða kjúklinga. Matmenn eru sammála um það að kjúklingar og raunar flest kjöt sé betra ófryst. Sigrún Davíðsdóttir Sigurður B. Þorsteinsson læknir: „Ábyrgðin er inni í eldhúsi” — þýðir ekki að hafa reglugerðir svo strangar að ekki sé hægt að borða venjulegan mat „Ég hef lagt á það áherzlu í sam- bandi við alifugla að neytendum á að vera kunnugt um að salmonella getur verið í öllum alifuglum og matreiðslan á að vera í samræmi við það, þannig að salmonellasýklar fjölgi sér ekki,” sagði Sigurður B. Þorsteinsson læknir. Dag- blaðið ieitaði til hans sem sérfræðings í smitsjúkdómum út af banni við sölu á ófrystum sláturafurðum alifugla, vegna smithættu af salmonellasýklum. ,,í sambandi við salmonellasýkla ræður fóður fugianna miklu og slátr- unin,” sagði Sigurður. „Það kann vel að vera að við séum eitthvað aftarlega á merinni hvað þetta snertir. En ég get ekki séð að það sé nein knýjandi nauðsyn að banna sölu á ófrystu alifuglakjöti. Ég hef alltaf verið á móti bönnum í þessu sambandi. Ábyrgðin er inni í eldhúsi og þar verða menn að hafa ákveðna þekkingu. Sigurður var að því spurður hvort ekki mætti með sama hætti segja að hættulegir gerlar gætu borizt með ferskum ávöxtum. Hann sagði það vera þótt vitað væri að mun meiri hætta væri á slíku í alifuglum. Vonandi væri þó að ekki yrði bannaður innflutningur á ferskum ávöxtum. ,,Það þýðir ekki að hafa reglugerðir svo strangar að ekki sé hægt að borða venjulegan mat. Vitað er að gerlar fylgja ákveðnum dýrum, sérstaklega hænsnfuglum og svínum. Útilokað er að koma algerlega í veg fyrir þessa hættu,” sagði Sigurður. - JH umsjónarmaður Pottaríms i Morgun- blaðinu segir t.d. ásunnudag: „Hið opinbera, furðuskepnan sú, hefur nú andað út úr sér bálki um kjúklingasölu. Til að vernda heilsu landsmanna hefur verið ákveðið að aðeins megi selja frysta kjúklinga. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að smitandi magakveisa berist nteð þeim. Við getum vissulega verið þakklát fyrir þessa föðurlegu umhyggju fyrir heilsu okkar. En fyrir þá sem eru 1 matar- þönkum eru þetta dapurleg tíðindi. Það jafnast nefnilega ekkert á við ófrosinn mat, hvað sem um er að ræða.” Sigrún segir ennfremur að ekki sé smithættan ótvíræð. Sýklafróðir menn séu alls ekki allir sammála um að fryst- ingin geri tilskilið gagn. - JH Nú er bannað að bjóða til sölu ófrystar sláturafurðir alifugla, eins og segir I reglugerðinai. Þessi föðurlega umhyggja er dapurleg tiðindi, segir Sigrún Davfðsdóttir. DB-mynd Hörður. ViÖ höfum rétta RÖRIÐ Adda Bára Sigfúsdóttir formaður Heilbrigðisráðs Reykjavíkur. Heilbrígðisráðið að- eins f ramkvæmdaaðili „Við setjum ekki reglugerðina, það gerir landbúnaðarráðuneytið,” sagði Adda Bára Sigfúsdóttir formaður Heil- brigðisráðs Reykjavikurborgar. „Heil- brigðisráðinu ber hins vegar að fram- fylgja þessari reglugerð og það gerum við sem framkvæmdaaðili. Landbúnaðarráðuneytið verður því að svara fyrir reglugerðina en ég geri ráð fyrir því að hún sé sett vegna hættu á salmonellasýkingu. Ef farið er að ákvæðum reglugerðarinnar á hún að Vera útilokuð.” - JH Hverjirganga þama eftir... Kirkjustrœti I áttina að Aiþingishúsinu? Við þekkjum framar á myndinni Halldór Blöndal alþingismann en samfylgdarmann hans kunnum við ekki að nafngreina. Það er þó Ijóst að þeir hafa um ýmislegt að tala. DB-mynd Sig. Þorri. fyrir þig HREHflU ALÞEKKT GÆÐAVARA Bf^injjavórumglun Trfffvu HAnncssonnr SlÐUMÚLA 37 -SlMÁR 83290-83360

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.