Dagblaðið - 13.01.1981, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 13.01.1981, Blaðsíða 15
14 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1981. DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1981. 15 d íþrótfir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir BaltkMnip íhandknattleik Sovétríkin unnu stórsigurá heimsmeisturum Þjóðverja Heimsmeistarar Vestur-Þýzkalands I handknatt- leiknum fengu heldur betur skell I Baltic-keppnlnni sem háð var I Sovétrfkunum f sfðustu viku. Sovétrfk- in sigruðu Þjóðerjana með 22-13 f B-riðlinum. Þá sigraði sovézka liðið það norska f keppninni með 28 mörkum gegn 13 og virtist mjög sterkt f Baltic- keppnlnni, 15-5 i hálfleik. Vestur-Þjóðverjar sigruðu Norðmenn 21-18. Leikið var i tveimur riðlum; Island og Svíþjóð ekki með að þessu sinni. Úrslitaleikurinn var milli, Sovétrikjanna og Austur-Þýzkalands. I A-riðllnum sigraði Austur-Þýzkaland Pólland 24-20 og unglingalandslið Sovétrikjanna 24-13. Danir unnu unglingalandsliðið með 24-21 og lentu þar i erfiðri raun. Pólland sigraði Danmörku 24-22. Einliðaleikur íbadminton Meistaramót TBR i einliðaleik var haldlð nó um helgina. Alllr beztu badmintonmenn landsins mœttu þar til leiks og var keppnin hörð og jöfn að vanda. í B-flokki kepptu 27 frá 6 félögum. í einliðaleik karla sigraði Þórhallur Ingason ÍA Svavar Jóhann- esson Gerplu, 15/11 og 15/7. Þórhallur keppti hér i fyrsta sinn i flokki fullorðinna og sigraði samt sem áður. í B-flokki kvenna sigraði Elin Helena Bjarna- dóttir TBR Drffu Danielsdóttur TBR, 11/5 og 11/7. í A-flokki kepptu margir ungir og efnllegir ieik- menn. Margir þeirra eiga rétt á að keppa i B-flokki en kjósa samt sem áður að „keppa upp fyrir sig”. Einn þeirra, Pétur Hjálmtýsson TBR, gerði sér Iftlð . fyrir og sigraði i flokknum en hann tók nú i fyrsta sinn þátt i fullorðinsmóti. Hann sigraði Gunnar Björnsson TBR 15/10 og 18/16. Elfsabet Þórðar- dóttlr TBR sigraði i A-flokki kvenna. Hún sigraði Ingu Kjartansdóttur TBR11/3,6/11 og 11/3. Meistaraflokkakeppnin var hörð að vanda. Jóhann KJartansson TBR endurheimti nú TBR- meistaratltilinn frá félaga sfnum, íslandsmeistaran- um Brodda Krlstjánssyni. Jóhann sigraði f úrslitun- um eftir aukalotu, 15/11, 14/15 og 15/9. Kristfn Magnúsdóttir TBR var ósigrandi. Hún sigraði stöllu sina, Kristinu Berglind TBR, i úrslitum, 11/1 og 11/9. Þetta var i þriðja sinn í röð sem Kristfn Magnúsdóttir varð TBR-meistari og vann hún þvi bikar til eignar. Þórhallur Ingason — Sigurvegari I B-flokki. Þróttur-Víkingur íkvöld Stórleikur verður i handknattleikn- um i Laugardalshöllinni i kvöld. Þá hefst 13. umferð mótsins með leik Þróttar og Víkings. Það má búast við skemmtilegum leik þessara efstu liða i 1. deild þó svo úrslit séu ráðln: Vik- ingur Íslandsmelstari — Þróttur f öðru ssetl. HALLUR SÍMONARSON,. „Verðum að ná okkar bezta leik til að eiga Sff möguleika gegn Lugi —segir Páll Björgvinsson, fyrirliði íslandsmeistara Víkings. Fyrri leikur Víkings og Lugi í Evrópukeppni meistaraliða í handknattleik á sunnudag Frábær þjálfari bak- við árangur Víkings I Segja má að þáttaskil verði i hand- knattleiknum hjá Vikingi þegar Pól- verjinn Bogdan Kowalczyk ræðst til félagslns sem þjálfari haustið 1978. Bogdan hafði hin beztu meðmæli, m.a. frá Janusi Cerwinski, fyrrum landsliðs- þjálfara íslendinga. Er skemmst frá því að segja að árangur meistaraflokks Vikings undir stjórn Bogdans hefur farið fram úr björtustu vonum allra Vikinga enda er maðurinn frábær þjálfari. Tvisvar hafa Vfkingar orðið íslandsmeistarar undir hans stjórn, tvisvar Reykjavfkurmeistarar og einu sinni bikarmeistarar. Á meðfylgjándi töflu má sjá árangur Víkingsliðsins undir stjórn Bogdans, þ.e. frá haustinu 1978 til og með 11. janúar 1981. Þar má m.a. sjá að Vík- ingur hefur á þessu tímabili leikið 40 leiki í íslandsmótinu, hlotið 74 stig af 80mögulegum, sem er92,5% árangur: rií ’g £ g. S J D H -5 Timabilið 1978—’79 26 2l 14 82,7% Tímabilið 1979—’80 21 20 0 1 95,2% Tímabilið 1980—’81 18 16 1 1 91,7% Samtals: 65 57 2 6 89,2% I þessari töflu eru taldir upp leikir gegn íslenzkum liðum, þ.e.a.s. i íslandsmóti, Reykjavíkurmóti og bikarkeppni. Ef aðeins eru taldir með leikir íslandsmótanna 1978—1'81 hefur Vikingur leikið 40 leiki, unnið 36, gert 2 jafntefli og tapað 2 leikjum sem er 92,5% árangur. Vikingar hafa leikið 6 Evrópuleiki undir stjórn Bogdans, unnið sænska liðið Ystad tvívegis, tapað tvívegis fyrir sænska liðinu Heim og í leikjunum við Tatabanya á dögunum tapaðist leikur- inn í Ungverjalandi með einu marki en leikurinn hér heima vannst með einu marki. Þegar Bogdan tók við þjálfun meistaraflokks var Víkingsliðið ann- álaö sóknarliö en varnarleikurinn hafði lengi verið höfuðverkur liðsins. Bogdmn Kowakzyk, þjálfari Vikings. Bogdan hefur aukið fjölbreytni sóknar- leiksins og gjörbreytt vörninni til hins betra svo að í dag er Víkingsvörnin stundum kölluð „járntjaldið” hans Bogdans. Þá er aðeins ógetið starfs Bogdan fyrir aðra handknattleiksflokka en meistaraflokk. Hann hefur frá upphafi haft yfirumsjón með þjálfun allra flokka félagsins og unnið þar frábært starf eins og á öðrum sviðum. Víkingar standa þvi í mikilli þakkarskuld við Bogdan Kowalczyk. Jón Hjaltalfn Magnússon. Lugi eru i sænska landsiiðinu og Riben- dahl er styrkasta stoð þess. Það segir sína sögu um styrkleika Lugi og við höfum ails ekki efni á að vanmeta Sví- ana,” sagði Páll ennfremur. Lugi er sænskur meistari i hand- knattleik. Liðið byrjaði keppnistíma- bilið heldur illa en er nú heldur betur komið i gang, hefur unnið sjö síðustu leiki sína t Allsvenskan, síðast Hellas sl. sunnudag í Lundi með 24-20. í þeim leik skoraði Ribendahl 11 mörk og er hann langmarkahæstur í Allsvenskan. SPAR UM URSUT „Ég spái þvi að Vikingur sigri 23-20 í leiknum i Laugardalshöll en jafntefli vcrði hjá Lugi og Vikingi i Lundi, 20- 20,” sagði Jón Hjaltalin Magnússon, fyrrum landsliðsmaður með Víkingi og leikmaður með Lugi um árabil, á blaðamannafundi Vfkings f gær. Menn voru þar beðnir að spá um úr- slit. Árni Indriðason sagði: ,,Ég held að möguleikar Svíanna til sigurs séu sex á móti fjórum — en þó verður ekki nema eins til tveggja marka munur á iiöunum eftir báða leikina. ” ,,Ég vil ekki spá — ekki vera með neinar tölur — en við stefnum að því að gera okkar bezta. Ef við hljótum góöan stuðning áhorfenda — eins og verið hefur í vetur — einkum i leiknum gegn Tatabanya — þá er það stuðningur upp á 4—5 mörk,” sagði Páll Björgvinsson. ,,Ég tel að Víkingur sigri með eins til tveggja marka mun,” sagði Kristján Sigmundsson, landsliðsmarkvörður Víkings. „Vikingur sigrar 20-15 i fyrri leikn- um,” sagði Þorbergur Aðalsteinsson, aðalmarkaskorari Víkings. Þeir Bogdan Kowalczyk, þjálfari Víkings, og Eysteinn Helgason, for- maður handknattleiksdeildar Vikings, vildu engu spá og vöruðu við of mikilli bjartsýni. Hins vegar sagði Rósmundur Jónsson stjórnarmaður og fyrrum landsliðsmaður: „Vikingursigrar 18-16 í fyrri ieiknum á sunnudag.” sama félaginu eriendis j Knattspyrnubræðurnir þrir, Ársæll, Sveinn og Karl Sveinssynir, voru heima f Vestmannaeyjum um jólin og ára- mótin en hafa haldið á ný til Sviþjóðar. þeir munu leika þar allir með sama félaginu næsta keppnistimabil, Jön- köping, sem leikur i 2. deild. Arsæll og Karl léku með liðinu sl. keppnistimabil en Sveinn bætist nú við i hóp leik- manna Jönköping. Þeir bræður hafa allir getið sér gott orð á knattspyrnusviðinu og mikið er þvi tjón Vestmannaeyinga að hafa séð á bak þeim til Svíþjóðar. Þeir eru allir fjölskyldumenn og starfa að iðngreinum sínum ytra. Ársæll er trésmiður, Karl og Sveinn rafvirkjar. Ársæll er elztur, fæddur 1955 — Sveinn fæddur árið eftir og Karl 1957. Þeir hafa alltaf verið miklir félagar, bræðurnir, og aðeins rúmlega tveggja ára aldursmunur er á þeim elzta og yngsta. Myndina aö ofan tók Ragn- ar Sigurjónsson af bræðrunum í íþróttahúsinu í Vestmannaeyjum ný- lega. Frá vinstri Sveinn, Ársæll og Karl. Faðir þeirra, Sveinn Ársælsson, var kunnur íþróttamaður hér á árum áður, einkum í golfi, og er það reyndar enn. -FÓV/hsím. Enginn þekkir lið Víkings og Lugi betur en Jón Hjaltalín Magnússon sem var landsliðsmaður með Víkingi en hélt til verkfræðináms í Svíþjóð. Lék hann með Lugi um árabil og á blaðamanna- fundinum í gær sagði Jón Hjaltalín meðal annars: „Ég spilaði siðast með Lugi keppnis- tímabilið 1977—78 og þjálfaöi síðan Malmö FF í eitt ár. Talsverðar breyt- ingar hafa orðiö á Lugi-Iiðinu síðan ég lék með því, að loknu siðasta keppnis- tímabili hættu t.d. 4—5 ieikmenn hjá Lugi og sumir þeirra fóru til annarra félaga, t.d. Thomas Gustavson. Hann hefur um árabil verið einn bezti mark- vörður Svía en ákvað að leika sín siðustu ár með Warta, sem nú er efst í Allsvenskan, en með því félagi lék Gustavson upphaflega. Vegna þessara breytinga fékk Lugi til liðs við sig tvo markverði frá öðrum félögum en að öðru leyti hefur félagið notað mikið yngri menn sína í vetur. í liöinu eru margir bráðefnilegir leikmenn sem jafnvel hafa þegar leikið i landsliði en veturinn í vetur er að mörgu leyti tíma- mótavetur fyrir Lugi. Hjá féiaginu byggist þó allt í kringum einn mann, Claes Ribendahl. Það er of mikið að segja að hann sé frá- bæriega snjall handknattleiksmaður en sannarlega verður að hafa á honum góöar gætur. Hann er stór og sterkur, mjög kröftugur og skotfastur, en eng- inn afburðamaður með boltann. Hlut- verk annarra leikmanna i liðinu er meira og minna að spila hann uppi. Ég tel styrkleika Lugi fyrst og fremst liggja í sterkum varnarleik og einir sjö leik- menn liðsins eru yfir 1,90 m á hæð þannig að þeir leika yfirleitt flata vörn sem erfitt er að komast í gegnum. Þjálfari Lugi er Bertil Andersen sem hefur verið með liðið í 7 ár. Hann er mjög vel menntaður íþróttakennari og vel að sér í handknattleik. Hann gerði liðið í fyrsta skipti að meisturum í Sví- þjóð í fyrra en þegar ég lék með Lugi urðum við tvisvar sinnum meistarar i útihandknattleik og í Allsvenskan náðum við einu sinni 2. sætinu. d Lugi á sér á margan hátt svipaða sögu og Víkingur síðustu 10—15 árin. Félagið var í 2. deild lengi vel en 1971 tókst Lugi að komast upp í 1. deildina. Framan af barðist liðið í neðri helmingi deildarinnar en með því að kaupa nokkra leikmenn frá öðrum félögum tókst að byggja upp mjög sterka heild og síðustu árin hefur liðið alltaf komizt í 4-liða úrslitakeppnina i Sviþjóð.” — í hverju eru möguleikar Víkinga gegn Lugi fólgnir? ,,Það er ekki aðeins þróun undanfar- inna ára sem er svipuð hjá Víkingi og Lugi. Varnarleikur beggja liða er sterkur og bæði lið hafa lagt mikla áherzlu á að hafa toppþjálfara. Framan af vetri átti Lugi í erfiðleikum vegna mannabreytinga og einnig er Ribendahl í íþróttaháskóla í Stokk- hólmi í vetur þannig að hann æfir ekki sem skyldi með liðinu. Styrk Víkinga og möguleika þeirra tel ég því fyrst og fremst liggja í því hve vel samspilað Víkingsliðið er. í byrj- unarliði Víkings er enginn veikur hlekkur og liðið er að verða eins og lið frá A-Evrópu, það gerir lítið af mistök- um og til lengri tíma litið vinnur lið ein- mitt á stöðugleikanum eins og við getum séð á árangri liðsins í 1. deildinni hér heima í vetur og í fyrravetur. Ég sá Víkingana spila við Heim i lega sigur því þeir vilja heldur leika sínum raunverulega heimaveili, en sú höll tekur mest 1500 manns, í stað þess að leika í 4.000 manna höll i Malmö sem er rétt hjá,” sagði Jón Hjaltalin að lokum. Guðrún Karlsdóttir, UBK, sigraði í Stjörnuhlaupi KH i kvcnnaflokki á iaugardag. hljóp vegalengdina á 11:22.00 min. — tæpa þrjá kílómetra. Onnur varð Laufe.v Krist- jánsdóttir, HSÞ, á 11:31.00 og þriðja Hrönn Guömundsdóttir, UBK. á 11:57.00 min. Á myndinni að ofan er sigurvcgarinn að koma i mark. l)B-mynd S. FORSALA A EVRÓPULEIK VÍK- INGS OG LUGIHEFST í DAG Jón Gunnar Zoéga, formaður knattspymudeildar Vals: Vísa þessum órum heim til föðurhúsanna... Dagblaðinu barst um heigina eftir- farandi bréf frá Jóni Gunnari Zoéga lögfræðingi, formanni knattspyrnu- deildar Vals. „Á íþróttasíðu blaðs yðar sl. þriðjudag er fjallað um viðtal sem Gunnar Sigurðsson stjórnarmaður Knattspyrnusambands íslands átti við Bæjarblaðið á Akranesi, þar sem hann segir það sannfæringu sína að Valsmenn kaupi tii sín knattspyrnu- menn með einhverjum ráðum. Það er ekki nýtt að þessi maður, sem nú er í forystusveit íslenskrar knattspyrnu, öfundist út í Val, en það er hans vandamái, ekki Dagbiaðsins né okk- Knattspyrnufélagið Valur hefur át miklu brautargengi að fagna á undanförnum árum, sem þakka má þrotlausu starfi íþróttamanna þess og fjölmenns hóps stuðningsmanna sem er reiðubúinn til að leggja félagi sínu öflugt lið í starfi. Það er eitt sinn svo, að það virðist eðlilegt með íslendingum að öfunda þá sem vel gengur og brýst sú óáran út á ýiiisan hátt. Þetta hafa Valsmenn látið sem vind um eyru þjóta enda haft öðrum hnöppum að hneppa en eltast við mismunandi ómerkileg og léttvæg skrif. Þegar hins vegar slík ummæli og að framan getur eru höfð eftir stjórnarmanni KSÍ verður ekki hjá því komist að vísa þessum órum islenskrar knattspyrnuforystu heim til föðurhúsanna, þeir hafa við alls engin rök aðstyðjast. Á það skal að lokum lögð áhersla að Knattspyrnufélagið Valur tekur fagnandi hverjum þeim unga karli og konu, sem vill ganga til liðs við okkur, og við leggjum okkur fram um að veita okkar félögum þá aðstoð sem unnt er. Þetta gera að sjálfsögðu öll önnur íþróttafélög, enda í anda íþróttahreyfingarinnar að hlúa sem best að því unga afreksfólki sem fylk- ir sér undir merki hennar.” Jón Gunnar Zoéga Þrír bræður—allir í „Við verðum að ná okkar bezta bæði i vörn og sókn ef við eigum að eiga möguleika gegn Lugi. Leikirnir við Lugi verða ekki síður erfiðir en gegn ungversku meisturunum Tatabanya,” sagði P6I1 Björgvinsson, fyrirliði Vik- ings og margreyndur landsliðsmaður, á blaðamannafundi sem handknattleiks- deild Vikings efndi til i gær. „Ég vil eindregið vara við of mikilli bjartsýni en þess hefur mér fundizt gæta — bæði meðal sumra leikmanna okkar og eins stuðningsmanna. Það er alls ekki sjálfgefið að við komumst áfram þó við höfum borið sigurorð af Tatabanya — einu sterkasta félagsliði Evrópu. Raunar tel ég að Lugi eigi meiri möguleika en við að komast í undanúrsiit Evrópukeppninnar. Ástæður þess eru einfaldar — íslenzk lið hafa ávallt átt erfitt uppdráttar gegn sænskum liðum og Svíar hafa yfirleitt borið sigurorð af okkur. Fyrir skömmu unnu Svíar okkur i landsleik með átta marka mun — 22-14. Þá skoraði Claes Ribendahl tíu mörk. Fjórir leikmanna —Grfurlegur áhugi á leiknum. Jón H jaltalín Magnússon, sem leikið hef ur með báðum félögunum, verður heiðursgestur íslandsmeistarar Víkings og sænsku meistaramir Lugi frá Lundi mætast i 8- liða úrslitum Evrópukeppni meistara- liða i handknattleik i Laugardalshöll sunnudaginn 18. janúar og hefst leikur- inn klukkan 20. Seinni leikur liðanna verið ákveðið að forsala aðgöngumiða hefjist í dag, þriðjudaginn 13. janúar, og verða miðar seldir á þremur stöðum, Karnabæ, hljómtækjadeiid, Laugavegi 66, Fáikanum, Austurveri, og Sam- vinnuferðum—Landsýn, Austurstræti 12. Miðar verða seidir daglega klukkan 16—18 fram að leik. Með því að kaupa miða í forsölu losnar fóik við að standa í biðröðum daginn sem leikið er. fer fram f Lundi viku seinna eða sunnu- daginn 25. janúar. Víkingar sátu yfir í 1. umferð keppn- innar en slógu ungversku meistarana Tatábanya út í 2. umferð eins og frægt varð. í 2. umferð sló Lugi út færeysku meistarana. Dómarar leiksins eru danskir, Hjöler og Jörgensen, en sá fyrrnefndi dæmdi leik Víkings og Tatabanya í Laugar- dalshöll ásamt Ohlsen og þótti dóm- gæzla þeirra með því bezta sem hér hefur sézt. Jón Hjaltalín heiðursgestur Heiðursgestur leiksins verður Jón Hjaltalin. Hann hóf feril sinn með Vík- ingi og varð fljótt aðalskytta Víkings og landsliðsins. Þegar Jón var rúmlega tvítugur hélt hann tii Svíþjóðar til að nema rafmagnsverkfræði og gerðist jafnframt leikmaður Lugi og lék hann með félaginu um margra ára skeið. Jón er nú búsettur hér á landi. Forsala hefst í dag Forráðamenn Víkings hafa orðið þess áþreifanlega varir að gífurlegur áhugi er á leik Víkings og Lugi. Hefur VIÐ MUNUM SIGRA VÍKING ÖRUGGLEGA —segir sænskilandsHðsmaðurinn Claes Ribendahl h já Lugi „Víkingur var okkar óskalið og við munum sigra þá örugglega og þannig komast f undanúrslit Evrópukeppni meistaraliða,” sagði Claes Ribendahl, skærasta stjarna sænsks handknatt- leiks um þessar mundir, í viðtali f sænska sjónvarpinu fyrir skömmu.Ribendahl er nú markahæstur í Allsvenskan og hann er jafnan marka- hæstur þegar hann leikur með sænska landsliðinu. Þannig skoraði hann 10 af 22 mörkum Sviþjóðar þegar sænska landsliðið sigraði hið íslenska 22-14 á Norðurlandamótinu í Noregi fyrir skömmu. „Ég tel það tilviljun að Víkingar slógu ungverska liðið Tatabanya út úr Evrópukeppni meistaraliða. Víkingur er alls ekki eins sterkt iið og af er látið og við munum örugglega tryggja okkur sæti í undanúrslitum,” sagði Riben- dahl ennfremur í sænska sjónvarpinu. í sænsku blöðunum hefur mikið verið skrifað um viðureign Víkings og Lugi og blöðin eiga það sammerkt að telja sigur Lugi næsta vísan. Hið sama er uppi á teningnum í Lundi. Svo langt hefur jafnvel gengið að settur hefur verið á stofn veðbanki meðal áhangenda félagsins. Og þá er ekki veðjað um hvort Lugi beri sigur- orð af Víkingi og með hve miklum mun heidur hverjir verði mótherjar Lugi í undanúrslitum Evrópukeppni meist- araliða. Slík er bjartsýnin í Svíþjóð. Páll Björgvinsson. Evrópukeppni bikarhafa i fyrra og því miður var það heldur sorglegt. Víking- arnir ætluðu hreinlega að keyra yfir Svíana með hraða sínum strax frá fyrstu mínútu. Siðan kom í ljós að Vík- ingarnir réðu ekki við eigin hraða og í stað þess að hægja ferðina héldu þeir sama „tempói” allan leikinn. Nú sýnist mér meiri yfirvegun komin í Víkings- liðið, þetta er orðið hörkulið. Það skyldi þó enginn vanmeta Sví- ana og sízt af öllu Víkingar sem hefur bitra reynslu af leikjum sínum gegn þeim undanfarin ár. Ef áhorfendur standa með Víkingum hér heima og láta Sviana finna að þeir eru að leika á erfiðum útivelli, líka þó Víkingar verði kannski undir einhvern tima, þá hef ég trú á íslenzkum sigri. Útivöllurinn þarf ekki að verða nein ljónagryfja, íslen- dingar eru fjölmennir í Lundi og ná- grenni og þeir munu hvetja Víkings- liðið. Þar ætla Svíarnir sér þó greini-

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.