Dagblaðið - 13.01.1981, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 13.01.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1981. 3 Ftjálssamkeppni: Fleiri útvarpsstöðvar Viðar hringdi: Hinn 20. des. varð Ríkisútvarpið 50 ára. Á þessum tímamótum var mikið talað um hlutverk Ríkisút- varpsins. Mikið var rætt um aðbúnað útvarpsmanna, flestum þótti hann lé- legur enda húsnæði útvarpsins lítið. Útvarpsmenn bundu miklar vonir við skóflustungu sem þáverandi mennta- málaráðherra, Vilhjálmur Hjálmars- son, tók 1978 en þessi fyrsta skóflu- stunga að nýju útvarpshúsi er í dag eiginlega það eina sem búið er af því húsi. Ég tel að bezta gjöfin sem hægt væri að gefa afmælisbarninu væri að aflétta lögum um einkaleyfi ríkisút- varpsins á útvarpsrekstri og leyfa hljóðvarpsrekstri að blómstra hér á landi í skjóli frjálsrar samkeppni. Bréfritari vill aö útvarpsrekstur verði gefinn frjáls á íslandi og fvllir þá væntanlega hóp þeirra sem vilja hlusta á útvarp sem byggir að mestu á tónlist. Hér eru þeir félagar Þorgeir Ástvalds- son og Páll Þorsteinsson. Þeir sjá ásamt fleirum um hina vinsælu syrpu- þætti í ríkisútvarpinu. ''' . Spurning 9 LMJ Spilarðu í happdrœtti? Marinó Pétursson sjómaður, Bakka- firði: Já ég spila í happdrætti HÍ og DAS. Ég hef unniö af og til en ég býst samt ekki við að ég spili frítt. Ólafur Guðmundsson, á eftirlaunum: Nei, ég spila ekki í neinu happdrætti. Það borgar sig ekki til lengdar. SAGA ÚR GJALDMIÐILSBREYTINGUNNI —fékk gamlar krónur fyrír nýjar Peningapúki hringdi. Fyrir áramót var mikið talað um og auglýst að fólk ætti að skipta gömlu krónunum fyrir nýjar strax eftir áramótin. Föstudaginn 2. jan. fer ég í banka til að skipta mínum gömlu krónum. Það tók litla tvo klukkutíma. Ég þurfti að bíða í rúma tvo tima, og hefði ef til vill getað sætt mig við það ef ég hefði séð fram á að þar með væri mínum erfiðleikum í sambandi við gjaldmiðilsbreytinguna lokið. En því var ekki að heilsa. Þegar ég svo borgaði fyrir mig í búð þeirri sem ég skipti við eftir helgina var mér gefið til baka í gkr. Og þar með er ég kominn í biðröðina í bank- anum aftur. Er þetta hægt? Kaup- menn, gefið til baka í nýjum krón- um! GriP*6 Serid 9óð kaup Smáauglýsingar BIAÐSINS Þverholti11 sími 2 7022 Sigrún Hermannsdótllr hjúkrunar- kona: Já HÍ og DAS. Ég var núna áðan að fá afhentar 350 þús g.kr. sem ég vann í des. ’80. Ásrún Daviðsdóttir ritarl: Ég kaupi miða í þessum styrktarhappdrættum sem alltaf eru annað slagið. En ég spila ekki í stóru mánaðarlegu happdrættun- um. Áslaug Magnúsdóttir starfsstúlka á Elliheimilinu Grund: Já, ég spila í happdrætti HÍ, SÍBS og DAS. Ég hef unnið nokkrum sinnum. Baldur Guðmundsson lifeyrisþegi: Nei, það geri ég ekki. Það er einfaldlega vegna þess að ég kann ekki likinda- reikning, til þess að spila í happdrætti verður maður að kunna líkindareikn- ing.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.