Dagblaðið - 13.01.1981, Blaðsíða 20

Dagblaðið - 13.01.1981, Blaðsíða 20
20 1 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR |3. JANÚAR 1981. Mertning Menning Menning Menning D OLDRUÐ FRÆNKA A FERÐ Hundrað fimmtugasti og fjórði Skímir kominn út Ólafur Jónsson, stýrir Skirni. Bók menntir AÐALSTEINN INGÓLFSSON Mitt i síöasta bókaflóði birtist Skírnir, tímarit hins virðulega is- lenska bókmenntafélags, og reyndist þá erfitt að sinna honum sem skyldi. Skal það nú reynt eftir megni. Timaritið er nú orðið 154 ára og ber aldurinn nokkuð vel undir stjórn Ólafs Jónssonar. Stundum minnir það á aldraða og lftt tilhaldssama frænku sem þó er bæði fróð og úr- ræöagóð þegar á reynir. Hún hugsar litt um útlitiö, iklæðist að staöaldri hversdagslegum einlitum drögtum (með siðum pilsfaldi að sjálfsögðu) — en þeim mun betur ræktar hún sálartetrið. Hún virðist heldur ekki þurfa að halda sér ýkja mikið til þvi fastir stuðningsmenn maddömunnar, sem nú eru komnir yfir 2000, gera henni kleift að halda ótrufluð áfram róli sínu um bókmenntavegina, enda hefur slík nægjusemi tiltölulega lítil útgjöld í för með sér. Þörf fyrir andlitslyftingar Nú má kannski segja að bók- menntarit hafl takmarkaöa þörf fyrir nútímalegar andlitslyftingar — notk- un á myndefni, útlitshönnun, nýtt ,,leiát” og annað i þá veru. Er ekki ástkæra ylhýra málið, eitt og sér, alveg nóg? Erlend bókmenntasamtök láta sig þó hafa það að birta myndir, línurit og teikningar i árbókum sín- um, lesendum til frekari fróöleiks og augnayndis. Eiga þau rit sér þó engu ómerkari uppruna og markmiö en Skírnir. Hvað Skírni snertir er þetta ekki bara spuming um að fylgjast með tim- anum, laða aö fleiri félaga, metnaö. I seinni tið hafa forsvarsmenn tímarits- ins og bókmenntafélagsins sýnt áhuga á að gera Skírni að menningar- riti á breiðari grundvelli en áður. T.d. hafa a.m.k. tveir vísindamenn tekið virkan þátt í stjórn félagsins, einn heimspekingur sömuleiðis. Vöngum velt um framtíðina Og nú er nýr Skírnir eingöngu helg- aður leiklist i samræmi við bók- menntalegan skilning ritstjórans á þeirri listgrein. Kalla ekki þessar greinar, visindi, heimspeki og leiklist á myndefni, einkum og sérilagi sú siðastnefnda? Oftsinnis hefur Ólafi Jónssyni verið álasað fyrir sinn bókmennta- skilning á leikhúsverkum af ýmsum þeim sem benda vilja á sjónræna skirskotun þeirra — nú siðast Messi- ana Tómasdóttir leikmyndahönn- uður í kjallara hér i DB. Nú hefði verið upplagt að fá þau sjónarmið inn í sérrit Skírnis um leikhús en af því hefur ekki orðið að sinni. Áfram mætti svo velta vöngum: Ef Skírnir getur orðið tengiliður milli bókar og sviðs, hví ekki milli bókmennta og kvikmynda? Hér er að verða til álit- legt safn íslenskra kvikmynda og er- lendra eftir íslenskum skáldverkum — sú hefð er reyndar orðin gömul, sjá kvikmyndir eftir skáldverkum Gunnars Gunnarssonar, Kambans, Jóhanns Sigurjónssonar — og því fyllilega tímabært að ræða trúnað kvikmyndaleikstjóra við þessi verk. Af tur í gráa forneskju Og áfram mætti láta sig dreyma: tengsl myndlistar og bókmennta, á árunum milli stríða eða í seinni tíð, gætu þau ekki fengið inni á síðum Skírnis? Hvað um tónlistina og bókmennta- leg viðfangsefni hennar, eða líbrettó úr skáldverkum? Síðan liggja saman leiðir margra vísinda og bókmennta- gyðjunnar svo af nógu er að taka. Mundi ekki Skírnir geta orðið áhrifameira rit með þessum bræð- ingi? Sjálfur efast ég ekki um það. En margir talsmenn hreinnar bók- menntastefnu eru eflaust á öðru máli og geta m.a. bent á þann auka- kostnað sem sambræðingur hefði í för með sér. Svo eru til félagsmenn eins og Selfyssingur sá sem ritar nýj- um Skírni bréf og vill helst fá efni frá forn- og miðöldum, ekki úr skríl- mennsku nútímans — „jazz, popp, rokk og s.k. nýlist, svo fátt eitt sé talið”. Brautryöjendastörf Annað finnst mér Skírnir rækja fremur slælega og það eru bókaum- sagnir. Á vettvangi Skírnis nær ein- um geta fróðir menn þanið sig yfir margar síður, gert bókum verðug skil, og því finnst mér bagalegt hve tilviljun ræður miklu um umsagnir. Væri ekki hægt að velja 10—15 merkustu bækur hverrar bókaver- tíðar til rækilegrar umfjöllunar í Skírni haustsins á eftir? Hér lýkur svo almennum athugasemdum um Skírni. Margt fróðlegt er að finna í 154ða árganginum, hafi menn á annað borð áhuga á leikritum. Sveinn Einarsson rabbar um leik- stjórn og gerir það skilmerkilega þótt pistill hans sé háður annmörkum erindisins, enda var hann fluttur á aðalfundi Hins íslenska bókmennta- félags árið 1979. Okkar helsti leik- hústeoretiker í dag er án efa Jón Viðar Jónsson og hann á hér prófrit- gerð um túlkun á Galdra Lofti frá upphafi, sem er merkilegt brautryðj- endastarf i islenskum leikhúsfræð- um. Prófritgeröir eru ekki alltaf skemmtilegar aflestrar — þær halda til haga ýmiss konar upplýsingum sem lesandi hefur lítinn áhuga á. Skarplega ályktað Ég gæti trúað að ritgerð Jóns Viðars hefði grætt á styttingu og um- skrifum, auk þess sem sjónarmið höfundar hafa e.t.v. breyst frá því 1977 er ritgerðin var skrifuð. Mér finnst t.d. marxísk túlkun hans á stéttaskiptingunni í leikritinu einum of einstrengingsleg og ekki auka við skilning okkar á Lofti. Aðra ann- marka mætti og benda á. Þar sem Gísli Halldórsson reyndist ófáanlegur til aö segja höfundi frá meðferö sinni á Lofti og sleppa varð sýningu Sjón- varpsins vegna kostnaöar hlýtur stakkur Jóns Viðars í rannsókn sinni að vera þrengri en ella. Annað kemur mér svolítið á óvart. Höfundur segir um Gunnar Eyjólfsson (bls. 32) að hann hafi „trúlega” ekki séð Loft leikinn áður en hann lék hlutverkið sjálfur. Var ekki Gunnar sjálfur spurður um þetta atriði? En margt er í ritgerð Jóns Viðars svo skarplega ályktað að sérhver lesandi hlýtur að hafa af henni gagn, líka slakt leikhús- fólk eins og undirritaður. Hlœðu Magdalena ... Síðan er birt leikrit Jökuls Jakobs- sonar, Hlæðu Magdalena, hlæðu, eitt naprasta leikverk hans, en ef ein- hver höfundur verður að teljast „lykilpersóna” í íslenskri leikritun hin síöari ár þá er það Jökull eins og Ólafur Jónsson lýsir í grein sinni á eftir. Að öðru leyti er ég ekki alveg viss um hvað þetta leikrit er að gera þarna. Ágrip Páls Baldvins Baldvinssonar af sögu reviunnar á íslandi, Og þú skalt sofa f hundrað ár, er líkt og grein Jóns Viðars samið upp úr próf- ritgerð en virðist prýðilega aðgengi- legt venjulegum lesanda. Ekki er ég rétti maðurinn til að fjalla um skil- greiningar hans og niðurstöður, þó fara þær velímig. Aðaltromp Skírnis í þetta sinn er ritgerð Ólafs Jónssonar, Leikrit og leikhús, Um íslenska leikritagerð eftir 1950, en þar er í fyrsta sinn mér vitanlega reynt að lýsa þróun og eðli nútímaleikhúss á islandi og veit ég ekki hver er betur til þess fallinn en einmitt höfundur. Fyrir leikmann er grein Ólafs mikill fróðleiksbrunnur og erfitt að hnekkja þeim niður- stöðum sem hann kemst að um hina ýmsu leikritahöfunda — nema þeir vilji sjálfir reyna það. Grein Ólafs fylgir svo listi yfir prentuð og fiutt leikrit þeirra 13 höfunda sem hann fjallar um. I Skírnislok eru svo bókadómarnir, fáir og tilviljunarkenndir að því er virðist, og helsta púðrið er að finna í umsögn Helgu Kress um bók Gerðar Steinþórsdóttur sem áður hefur verið getið héríblaðinu. D-19.00 Fundurumii taiuuuæfliUBu Leiðir tölvuvæðingin til atvinnuleysis - styttri vinnutíma - bœttra lífskjara. Leysir tölvuvæðingin starfsgreinar af hólmi? FRAMSÖGUERINDI: Magnús L. Sveinsson Pótur H. Blöndal Sigfinnur Sigurösson Reynir Hugason formadur VR. framkv.stj. Lifeyrissj. VR. hagfræðingur VR. verkfræðingur Hótel Saga, Súlnasalur fimmtudaginn 15. janúar 1981, kl. 20.30 Fundurinn er öllum opinn Ycrlmarmannufchm Reykjavikur

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.