Dagblaðið - 13.01.1981, Qupperneq 4
4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1981.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 - Sími 15105
Höfum fyrirliggjandi
startara, alternatora, regulatora o.fl. varahluti
fyrir rafkerfi í eftirtaldar bifreiðar:
Startarar:
Toyota
Mazda
Galant/Lancer
Datsun
Cortina
Mini
o.fl.
enska bila
Dínamóar:
Fyrir enska
bila og
vinnuvélar
Regulatorar
fyrir flestar
gerflir
- bifreiða
Alternatorar:
Toyota
Mazda
Galant/Lancer
Datsun
Vauxhall
Bedford
L-Rover
Cortina
Mini o.fl.
enska bila
Ath.: Tökum gamlan alternator eða startara upp í nýjan.
(AC Delco)
ÞYRILL sf.
Hverfisgötu 84,
105 Reykjavík,
sími 29080.
NýirbflarfráAgli:
Ábyrgð á fyrstu 20 þúsund km
í grein á neytendasíðu DB í gær, þar ,Agli Vilhjálrnssyni væru bílar seldir mundssonar hjá Agli, ársábyrgð og 20
sem fjallað var um ábyrgð á nýjum bíl- með ársábyrgð eða 10 þús. km akstri. þús. km akstur. Þetta leiðréttist hér
um, var missögn. Þar sagði m.a. að hjá Hið rétta er, að sögn Matthíasar Guð- með.
Ný sýruverksmiðja
i Gufunesi 1983
LAXVEIÐIÁ
TIL LEIGU
Vatnasvœði Lýsu (Vatnsholtsá) Snœfells-
nesi er til leigu veiðitímabiiið 1981. Áin er 90
km frá Borgarnesi. Tilboðum sé skilað fyrir
20. feb. nk. til Símonar Sigurmonssonar,
Görðum, Staðarsveit, Snœf.
öll réttíndi áskilin
Akureyri:
Slæmt ástand ídagvistunarmálum
Mjög slæmt ástand ríkir í dagvistar-
málum á Akureyri eins og á öðrum
stöðum á landinu. Hafa myndazt þar
langir biðlistar og bíða núna 244 börn
eftir plássi. í október var öll innritun
sameinuð til að fá betri yfirsýn yfir þau
börn sem á biðlistum eru. Láta mun
nærri að helmingur þessara barna séu
forgangsbörn. Þá fjölgar mjög um-
sóknum fyrir börn sem standa höllum
fæti hvað þroska snertir.
Akureyrarbær hefur nú hafið mark-
vissa uppbyggingu dagvistarheimila. Er
stefnt að því að Öll börn sem þess þurfa
geti dvalið á dagvistarheimili. Þá er
einnig stefnt að því að leysa vanda
þeirra foreldra sem byrja vinnu áður en
dagvistarheimilin opna eða hætta ekki
fyrr en eftir að þau loka.
- ELA
febrúar 1983. Það er franska fyrir-
tækið Grande Paroisse sem mun
hanna verksmiðjuna og selja allar
þær vélar og tæki sem nauðsynleg
eru. Var gengið frá samningum þess
efnis 19. desember sl. Gunnar Guð-
bjartsson stjórnarformaður Áburð-
arverksmiðjunnar undirritaði samn-
inginn ásamt Hjálmari Finnssyni
framkvæmdastjóra og Mr. Bonnet
fyrir hönd franska fyrirtækisins.
Árið 1979 gaf þáverandi landbún-
aðarráðherra, Steingrímur Her-
mannsson, Áburðarverksmiðjunni
leyfi til að leita tilboða í nýja sýru-
verksmiðju. Fimm tilboð bárust en
franska tilboðið þótti hagstæðast.
Með hinni nýju verksmiðju verður
unnt að framleiða í landinu mestallan
þann áburð sem þörf er fyrir. Hingað
til hefur þriðjungur notaðs áburðar
verið innfluttur. Þá mun hinn guli
reykur sem lagt hefur frá Gufunesi
einnig hverfa. -ELA
KARLMANNASKOM
Sparískór — götuskór — kuldaskór og
ýmislegt fíeira.
SKÓBÚÐIN LAUGAVEG1100
—framkvæmdir hefjast næsta sumar
Næsta sumar verða hafnar fram- smiðju í Gufunesi og er áætlað að
kvæmdir við nýja saitpéturssýruverk- hún verði tilbúin til framleiðslu i
DB-mynd Sig. Þorri.
Gunnar Guöbjartsson stjórnarformaður Áburðarverksmiðjunnar (t.v.) undirritar
samninginn ásamt Hjálmari Finnssyni framkvæmdastjóra verksmiðjunnar og
Mr. Bonnet (I miðju) fyrir hönd Grande Paroisse.
Mælt með Helgu,
Helgj skipaður
—veitingá prófessorsembætti í Háskólanum vekur athygli
Forseti íslands hefur að tillögu
menntamálaráðherra skipað Helga
Valdimarsson til að gegna nýstofn-
uðu embætti prófessors í ónæmis-
fræði í læknadeild Háskólans. Dr.
Helga ögmundsdóttir lektor í Edin-
borg sótti um embættiö á móti
Helga. Þriggja manna nefnd, skipuð
þeim Sigurði Samúelssyni, Margréti
Guðnadóttur og Guðmundi Péturs-
syni, fjallaði um umsóknir Helga og
Helgu og úrskurðaði bæði hæf til að
gegna embættinu. Á deildarfundi 24.
nóvember hlaut Helga einu atkvæði
fleira en Helgi þegar mælt var með
umsækjendum. 22 greiddu Helgu at-
kvæði en Helgi fékk 21 atkvæði.
Hins vegar tók Ingvar Gíslason
menntamálaráðherra ákvörðun um
að mæla með því við forseta að Helgi
fengi embættið. Skrifaði forseti
undir embættisbréfið á Þorláks-
messu.
Embættisveitingin hefur vakið at-
hygli innan Háskólans, og þá sérstak-
lega í læknadeild. Ákvörðun ráð-
herra um að fara ekki að vilja
deildarfundar þykir mörgum vafa-
söm.
Helgi Valdimarsson hefur dvalið í
London við störf í um 11 ár. Honum
var veitt dósentsstaða í læknadeild
veturinn 1974—75 og var raunar eini
umsækjandinn um stöðuna. Hann
fékk frest í 3 ár til að taka við þessari
stöðu en kom ekki heim að frestinum
útrunnum.
Helgi er 44 ára að aldri en Helga
ögmundsdóttir 31 árs. - ARH
U0SIÐ
HRUNDI
NIÐUR
ÁB0RD
Eriku Friðriksdóttur i Þjóðhagsstofn-
un bri illilega i gærmorgun þegar eitt
loftljósið i skrifstofu hennar hrundi
skyndilega niður i skrifborðið þar sem
hún sat og velti vöngum yfir þjóðar-
hag. Er með ólikindum hvernig Ijósið
gat losnað af eigin völdum þvf það var
skrúfað f loftið með fjórum skrúfum.
Taldi Erika augljóst að ekki nema lak-
asta framleiðsla gæti hrunið svona
ofan úr lofti.
HEWLETT Jip, PACKARD HEWLETT M PACKARD HEWLETT M PACKARD HE\AÍLETT M PACKARD HEWLETT Jip. PACKARD
Einkaumboð á Islandi fyrir vasa- og borðtölvur — Upplýsingar, sala, þjónusta STALTÆKI, B,nkn.tr«ti s ami 27510