Dagblaðið - 13.01.1981, Side 6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
D
Hafði kvennamorðinginn fleiri morð á samvizkunni?
YORKSHIRE-RIPPERINN
HEFUR ÞEGAR JÁ TAÐ
eiginkonu hins grunaða hafa verið boðnir tugir mill jóna fyrir ævisögu sína
Vörubílstjórinn Peter Sutcliffe sem j
nú er í haldi brezku lögreglunnar
grunaður um aö vera kvennamorð-
inginn Yorkshire Ripper mun þegar
hafa játað á sig tólf af þeim þrettán
morðum sem kvennamorðinginn í
Yorkshire hefur verið talinn ábyrgur
fyrir á síðstliðnum fimm árum. Þetta
hefur ekki enn verið staðfest opinber-
lega en erlend blöð hafa þetta frá
'heimildum innan lögreglunnar.
Þessar sömu heimildir greina, að Sut-
cliffe hafi einnig játað að hafa framið
morð á erlendri grundu.
Þaö munu aðeins hafa liðið fáeinir
dagar frá þvi að Sutcliffe var hand-
tekinn þar til hann. féll saman og
játaði að hann væri morðinginn sem
gengið hefur undir nafninu „Ripper”
á Englandi og valdið meiri skelfingu
íbúanna þar undanfarin ár en nokkur
annar maður.
Hann mun hafa lýst morðunum á
þann hátt að það mun hafið yfir allan
efa að hann sé morðinginn. Enginn
annar en „Ripper” hefði getað lýst
þeim svo því lögreglan hefur aldrei
látið í ljós, hver einkenni kvenna-
morðanna eru sem sýna að sami
morðinginn sé á ferðinni i öllum til-
fellum.
Lögregluvðrður hefur stöðugt verið
við heimili Peter Sutcliffe síðan hann
var handtekinn.
Mynd sem brezka lögreglan lét gera
eftir lýsingum þeirra sem sluppu lifandi
úr klóm kvennamoróingjans. Hún
þykir koma heim og saman við útlit
Sutcliffe.
Mikill mannfjöldi safnaðist saman fyrir framan húsið þar sem Sutcliffe kom fyrir rétt i siðustu viku og hrópaði ókvæðisorð
að sakborningnum þegar lögrcglan leiddi hann inn I húsið.
Það er aðeins morðið á vændis-
konunni Joan Harrisoii sem Sut-
cliffe hefur ekki viðurkennt. Það var
framið 20. nóvember 1975 og var
annað í röðinni þeirra morða, sem
skrifuð hafa verið á reikning „Ripp-
ers”
Hins vegar mun Sutcliffe hafa
játað að hafa framið tvö morð á er-
lendri grund og var annað þeirra
framið í París, er hann var þar á
ferðalagi með konu sinni nokkrum
dögum áður en hann var handtekinn.
Fjölmiðlar hafa mjög verið á hött-
um eftir öllum upplýsingum um þetta
mál og hafa eiginkonu Sutcliffe verið
boönir tugir miiljóna króna, fáist
hún til að skrifa ævisögu sína og
faðir Sutcliffe hefur raunar þegar selt
fjölskyldumyndaalbúmið fyrir
drjúga peningaupphæð.
Hætta á átökum í Póllandi:
Kania aövarar
pólska bændur
— „ekkert rúm fyrir gagnbyltingasinna
ísveitumlandsins”
Vaxandi ólga er nú á nýjan leik i
Póllandi og hafa ákveðnar deildir í Ein-
ingu, sambandi hinna sjálfstæðu
verkalýðsfélaga í landinu, hótað verk-
föllum. í borginni Przemysl í suðvestur
Póllandi hafa félagar í Einingu hótað
klukkustundar aðvörunarverkfalli i
dag og fulltrúar bænda og verkamanna
í nágrannabænum Rzeszow hafa lýst
því yfir, að þeir kunni að grípa til svip-
aðra aðgerða á morgun.
Meginkrafa þeirra er sú, að stjórn-
völd taki upp viðræður við bændur um
kröfur þeirra um að sjálfstæð verka-
lýðsfélög bænda verði viðurkennd.
Leiðtogi Einingar, Lech Walesa, er
nú á ferð á Ítalíu í boði verkamanna-
sambandsins þar sem hann mun meðal
annarra hitta Jóhannes Pál annan páfa
aðmáli.
Kania flokksleiðtogi hefur aðvarað
pólska bændur og sagt, að ekkert rúm
sé fyrir gagnbyltingarsinna eða
andsósíalisk öfl I sveitum landsins.
Begin bodar
til kosninga
— Verkamannaflokkn-
umerspáð sigrí
Menachem Begin forsætisráö-
herra ísraels hyggst boða til nýrra
kosninga í sumar. Ákvörðun hans
kemur í framhaldi af afsögn fjár-
málaráðherrans Yigael Hurvitz, sem
sagði af sér vegna þeirrar ákvörðunar
ríkisstjórnarinnar að hækka laun
kennara.
Talið er að stjórnarflokkarnir njóti
nú ekki öruggs stuðnings nema 58 af
120 þingmönnum.
Vcrkamannaflokknum undir for-
ystu Simon Peres er spáð öruggum
sigri í kosningunum. Meginástæðan
fyrir óvinsældum ríkisstjórnar Begins
er talin óðaverðbólgan i landinu en
hraði hennar hefur aðundánförnu Menachem
veriö nærri 150 prósent. Begin.
iiffjiaig
Hópur mótmælenda fyrir utan þinghúsbygginguna i Washington.
; 3? ■ íspMí
Skipan Haigs mótmælt
Skipan Alexander Haig i embætti
utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefur
fengið misjafnar undirtektir og hefur
talsvert borið á mótmælum fyrir
framan þinghúsið í Washington þar
sem þingnefnd hefur kannað feril
Haigs og þá einkum þann tíma er hann
var starfsmannastjóri Hvíta hússins á
tímum Watergatehneykslisins.
Þingnefndin er kannar feril Haigs
hefur nú krafizt þess að fá aðgang að
upptökum af samtölum Haigs og
Nixons, sem eru í vörzlu þjóðskjala-
safnsins. Lögfræðingur safnsins hefur
hins vegar lýst því yfir að hann muni
ekki láta upptökurnar af hendi fyrr en
öllum formsatriðum er fullnægt.
Skæruliðar segjast
ráða fiórum borgum
Vinstri sinnaðir skæruliðar í E1
Salvador létu enn til skarar skríða í gær
og réðust þá á tvær borgir í landinu og
uppreisnarútvarp þeirra segir að þeir
hafi nú fjórar borgir landsins á valdi
sínu. Áður höfðu stjórnvöld lýst því
yfir að uppreisn þeirra hefði verið
brotin á bak aftur.
í útvarpi uppreisnarmanna sagði að
Santa Ana, önnur stærsta borg
landsins, væri á þeirra valdi. Þrír
blaðamenn særöust í sprengingu í bif-
reiö um fjórtán kílómetra fyrir utan
San Salvador igær.