Dagblaðið - 13.01.1981, Page 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
(ÍÉTRmdsll
Skákmótið í Hastings:
Anderson
er efstur
Svíinn Ulf Anderson er nú efstur á
skákmótinu 1 Hastings með 9 vinninga
að loknum 12 umferðum. Góðkunn-
ingi íslendinga frá því á síðasta Reykja-
víkurskákmóti, Torre frá Filipps-
eyjum, er 1 2. sæti með 8 vinninga.
Einnní helzti keppinautur Andersons á
mótinu, sovézki útlaginn Lev Alburt,
lék illa af sér 1 jafnteflislegri stöðu í 12.
umferð og varð að gefast upp.
Bjartsýni ríkjandi varðandi lausn gísladeilunnar:
Samkomulag er tafíð
f burðarfíðnum láta í UóTbjarteýnfsína
Samkvæmt heimildum frá Teheran Reagan, sem tekur við embætti hans 1
í íran eru nú taldar góðar horfur áað næstu viku, létu 1 gær í ljós þá
lausn finnist á hinni fjórtán mánaða skoðun sína að viðræðunum hefði
löngu gísladeilu Bandaríkjanna og miðað í rétta átt. Þeir þorðu þó ekki
frans áður en Carter lætur af em- að fullyrða að samningar tækjust
bætti forseta Bandaríkjanna 20. áður en forsetaskiptin verða 1 Banda-
janúar næstkomandi. Samkvæmt ríkjunum. Carter og Reagan munu.
þessum heimildum hafa samninga- ekki hafa látið i ljós jafnmikla bjart-
viðræður þjóðanna gengið vel að sýni varðandi lausn deilunnar áður
undanförnu fyrir milligöngu Alsír- og hefur það að sjálfsögðu orðið til
manna og munu báðir aðilar málsins þess að auka vonir Bandaríkjamanna
hafa slegið af kröfumlsínum. um as lausn deilunnar sé nú loks í
Bæði Carter forseti og Ronald sjónmáli.
Bandarísku gislarnlr hafa nú verið i haldl 1 tran 1 um fjórtáa aaáaaðl.
Bandaríkin:
Mafíuforingi
dæmdur í
5 ára fangelsi
Mafíuforinginn Joseph Bonanno
(Joe Bananas) hefur verið dæmdur í
fimm ára fangelsi í Bandaríkjunum en
veikindi hans kunna að koma í veg fyrir
að hann sitji allan þann tíma inni.
Bonanno, sem er 76 ára gamall, var
ákærður um að hafa reynt að hafa
áhrif á rannsóknir ákærukviðdóriistsem
beindust að ýmsum vafasömum þáttum
í fjármálalífihans.
Dómsuppkvaðningu var margsinnis
frestað vegna hjartasjúkdóms
Bonanno, sem aldrei áður hefur setið í
fangelsi.
Bomanno, sem einnig var sektaður
um 10 þúsund dollara.er talinnaðalfor-
ingi hinnar öflugu New York—New
Jersey mafiu eftir mikla bardaga innan
mafíunnar árið 1964 en bardagar þessir
voru kenndir við hann og kallaðir Bon-
anno stríðin.
Pakistan:
Böm notuð
sem þrælar
Fjölmiðlar í Pakistan hafa afhjúpað
óhugnanlegt mál er þeir upplýstu að
börn þar i landi hafi verið notuð sem
þrælar í vegavinnu og öðrum fram-
kvæmdum á vegum hins opinbera.
Eitt barnanna, Ali sem nú er fjórtán
ára gamall, reyndi að flýja frá þrælk-
unarbúðum í Peshawar í norðvestur
Pakistan. Hann náðist og var helming-
ur tungunnar skorinn úr honum og
handleggir og fætur brennimerktir í
refsingarskyni.
Ali flúði þó aftur ásamt fimm Öðrum
bömum og í viðtali við dagblaðið Mus-
lim í Islamabad segir hann frá raunum
sínum og annarra barna í vinnubúðun-
um. i
Honum var rænt fyrir sex árum og
var hann fluttur til vinnubúðanna. Þar
hefur hann síðan verið látinn vinna
erfiðisvinnu ásamt öðrum börnum, án
þess að hljóta nokkur laun fyrir.
ísrael:
Þingmaður
bedúína
myrtur
Einn þingmanna ísraelska þingsins,
Knesset, var skotinn til bana þar sem
hann var á ferð í bifreið sinni í útjaðri
Jerúsalem í gær.
Þingmaðurinn, Hamad Abu Rabiya
fursti, var fulltrúi bedúina í þinginu.
Lögreglan hefur sett upp vegatálma og
hafið mikla leit að morðingjanum. Að
sögn lögreglunnar mun Abu-Rabiya
hafa sagt nokkrum vinum sínum fyrir
fáeinum vikum að hann óttaðist um líf
sitt og mun hann hafa haft í hyggju að
ráða tvo lífverði í þjónustu sína.
mmmmmm
WM-.
Fáum minútum cftir að þessi mynd var tekin féll sá hettuklæddi fyrir kúlum lögreglunnar. Gfslinn slapp hins vegar ómeidd-
ur. Atvikið átti sér stað i Marseilles I Frakklandi fyrir skömmu þar sem sá hettuklæddi hafði brotizt inn I skartgripaverzlun
en lögreglan var fljót á vettvang og umkringdi búðina. Ræninginn reyndi að komast brott með aðstöð þessa glsls, sem
myndin sýnir, en lögreglunni tókst að koma 1 veg fyrir þau áform.
Styrjöldin
vift Persaflóa:
segjast vera
ístórsókn
Talsmaður íranshers sagði i gær að
hersveitir þjóðar hans hefðu unnið
mikla sigra í styrjöldinni við írak að
undanförnu, gersigrað tvær hersveitir
fraka, hrakið innrásarherinn af stórum
landsvæðum og tekið mikinn fjölda
fanga. Þá sagði talsmaðurinn að íranir
hefðu í gær skotið niður MIG-herþotu
íraka.
Eins og oftast áður höfðu írakar
'aðra sögu að segja af gangi styrjaldar-
'innar og sögðust þeir hafa unnið mikla
sigra í styrjöldinni að undanförnu.
Máli sínu til stuðnings sýndu þeir
blaðamönnum þrjátíu skriðdreka sem
þeir sögðust hafa tekið herfangi af
frönum að undanförnu.
Erlendar
fréttir
Dóttir d’Urso
flutti áróður
mannræningjanna
Dóttir dómarans Giovanni d’Urso eiginkona dómarans skoraði á blöðin
sem er í haldi Rauðu herdeildanna á að verða við kröfum mannræningj-
Ítalíu, flutti í gærkvöldi áróður anna og sagði, að mannslíf hlyti að
Rauðu herdeildanna í lítilli útvarps- vera meira virði en tvær síður í dag-
stöð á ítaliu, sem rekin er af rót- blaði.
tækum stjórnmálaflokki. Rauðu her- ítölsk stjórnvöld hafa ekki viljað
deildirnar hafa .hótað að myrða verða við kröfum ræningjanna og er
d’Urso ef helztu fjölmiðlar landsins nú liðinn 48 klukkustunda fresturinn
neita að flytja áróður hersveitanna. sem Rauðu herdeildirnar gáfu stjórn-
Dóttir dómarans vildi með þessu völdum til að ganga að kröfum
gera sitt til að bjarga llfi föður síns og þeirra.
Hljómlistarmaðurinn kunni Björn Ulvæus I hljómsveitinni Abba gekk um daginn I
hjónaband öðru sinni og fór það fram meö mikilli leynd. Björn, sem er 35 ára,
kvæntist hinni 30 ára gömlu Lenu Kállersjö. Björn var sem kunnugt er áður kvæntur
Agnethu, söngkonu i Abba.
•*
Mótmælendur hafa slegið upp tjöldum á virkjunarstaðnum.
r
OTTAST HORD
ÁTÖKÍALTA
Rúmlega 500 lögreglumenn eru
komnir til Alta-fjarðar í Norður-Nor-
egi til að tryggja að virkjunarfram-
kvæmdir geti hafizt þar á morgun.
Mikill fjöldi mótmælenda úr röðum
umhverfisverndarmanna og Lappa eru
einnig á staðnum og eru þeir staðráðnir
í að koma í veg fyrir framkvæmdirnar.
Hyggjast þeir hlekkja sig saman á þann
hátt að lögreglan geti ekki fjarlægt þá
öðruvísi en að skaða þá.
Almenningur I Noregi óttast mjög að
afleiðingar átakanna geti orðið alvar-
legar. Þetta munu vera mestu lögreglu-
aðgerðir í Noregi síðan á stríðsárunum.
Oddvar Nordli forsætisráðherra
hefur lýst þvi yfir, að mótmælendum
verði ekki undir neinum kringum-
stæðum liðið að hindra framkvæmd-
irnar.