Dagblaðið - 13.01.1981, Side 28
Klemenzlónsson
leiklistarstjóri útvarps:
Góðar horf -
uríleikara-
deilunni
„Þetta er að lagast, menn ræddu
saman i gær og ég er vongóður, ég á
von á að deilan leysist á næstunni,”
sagði Klemenz Jónsson leiklistar-
stjóri útvarpsins i morgun. Svo sem
DB greindi frá í gær slitnaði upp úr
viðræðum leikara og ríkisútvarpsins
um helgina vegna fréttar i sjónvarp-
inu á föstudagskvöld. Ranghermt var
i DB að sú frétt hefði verið í útvarp-
inu.
Gisli Alfreðsson formaður Félags
íslenzkra leikara vildi afsökunar-
beiðni vegna fréttarinnar sem hann
taldi árás á leikara og kom Gísli fram
i sjónvarpsfréttum í gærkvöldi til
svara.
„Málin eru að þróast í rétta átt,”
sagði Klemenz. ,,Það er báðum deilu-
aðilum fyrir beztu að verkfallið
leysist. Málið var orðið nokkuð við-'
kvæmt eins og gjarnan vill verða I
kjaradeilum, en það horfir betur
nú.” - JH
Seattle í Bandaríkjunum:
Islendingur myrti
hátfsystur sína
—greip til byssu íf jölskyldudeilu
„Lögreglan kannaðist við málið en
vildi lítið segja i nótt. Hún visaði á
Tannsóknardeild lögreglunnar en
hún er nú lokuð og verður ekki
opnuð fyrr en t' fyrramálið,” sagði
Sigurður Jensson fréttaritari Dag-
blaðsins í Seattle í Bandaríkjunum í
morgun.
íslenzkur maður, Baldur Svavars-
son, 32 ára gamall, varð hálfsystur
sinni að bana í fjölskyldudeilum i út-
borg Seattle. Baldur skaut hálfsystur
sína, Mary Valdimars, 29 ára að
aldri, hinn 3. janúar sl. og lézt konan
í sjúkrahúsi 'sex dögum siðar eða á
föstudaginn.
Skotið hæfði Mary í hálsinn og var
hún þegar flutt á sjúkrahús. Læknar
töldu að hún væri á batavegi er henni
hrakaði skyndilega. Baldur hefur nú
verið ákærður fyrir morð á hálfsystur
sinni.
Baldur flutti með móður sinni til
Bandaríkjanna barn að aldri. Hún
gekk að eiga þarlendan mann og átti
með honum tvær dætur. Mary var sú
eldri.
Berglind Ásgeirsdóttir í utanríkis-
ráðuneytinu sagði í morgun að ráðu-
neytinu hefðu engar upplýsingar bor-
izt um atburðinn. Ekki væri vitað
hvort fólkið væri islenzkir eða
bandariskir ríkisborgarar, þannig að
alveg væri óvíst hvort málið kæmi til
kasta utanríkisráðuneytisins eða
sendiráðs f slands I Bandaríkjunum.
- JH
Hann fer að kólna aftur ú SV-horninu þegar Itður að kvöldi og Veðurstofan spáði i snjókoma, einkum á Vestfförðuni. Þegar kólnar aftur erfljótt að héla innan á bílráð-
morgun að kuldabelti muni fara yfir landið I nótt. Hiti var rétt ofan við frostmark I umog þá verður hált á götum.
Reykjavlk í morgun og súld en annars staðar á landinu 2—5 stigafrost og vlða dálitil DB-mynd: Einar Ólason.
Iðnaðarráðherra um ásakanir Gísla Jónssonar á hitaveituna:
„Reiðubúnir að athuga málið”
„Ráðuneytið er reiðubúið að at-
huga þetta, ef hér er um að ræða mál
sem snertir gjaldskrár,” sagði Hjör-
leifur Guttormsson iðnaðarráðherra i
viðtali við DB í morgun um ásakanir
Gisla Jónssonar prófessors á hendur
Hitaveitu Reykjavíkur. Gisli Jónsson
hélt því fram i kjallaragrein i DB í
fyrri viku, að hitaveitan kynni að
hafa um 360 milljónir gamalla króna
af notendum á ársgrundvelli með of
háum gjöldum.
„Gísli Jónsson prófessor hefur
venjulega ratað til okkar,” sagði iðn-
aðarráðherra. „Það er sjálfsagt að
við skoðum málið, ef Gisli eða Neyt-
endasamtökin telja að það sé þess
eðlis.”
- HH
irfálst, áháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 13. JAN. 1981.
InnbrotíNesti:
Satíkartöflu-
geymslunni
með allt
góðgætið
Brotizt var inn f Nesti á Ártúnshöfða
í nótt og stolið þaðan ýmsum munaði.
Lögreglan hóf leit að gjörningsmanni
og fannst maður í felum i kartöflu-
geymslum i Ártúnshöfðanum. Líkur
þóttu á því að þar færi hinn svangi, því
slatti af þýft var i kringum hann á gólfi
kartöflugeymslunnar.
Þá var einnig brotizt inn í Austur-
stræti 10 í nótt en rannsóknarlögregl-
unni var ekki kunnugt um það í morg-
unhverjuhafðiveriðstolið. -JH
Dagblöðin
ráðaekki
eigin verði
Dagblöðin verða nú að sækja um
hækkanir til Verðlagsráðs, samkvæmt
túlkun forystumanna þess á verðstöðv-
un bráðabirgðalaganna um áramótin.
Verðlagning dagblaðanna hafði áður
verið gefin frjáls.
„Við eigum eftir að sjá hvernig þetta
verður í praxis. Þessi hækkun okkar á
lausasöluverðinu um áramótin hefur
eitthvað farið fyrir brjóstið á þeim.
Þeir virðast vera að hóta okkur að við
verðum verr settir en fyrr við næstu
verðhækkunartímamót,” sagði Har-
aldur Sveinsson, formaður Félags
íslenzka prentiðnaðarins, í morgun.
„Þeir ætla að herða tökin á okkur. En
ég sé ekki hvernig það má vera þar sem
við þurfum nú til dæmis að taka á
okkur stórhækkanir á pappír erlendis.
Hér hefur átt að heita verðstöðvun í
áratug og ég sé ekki hvað hefur
breytzt.”
Samkvæmt efnahagsáætlun ríkis-
stjórnarinnar á verðstöðvun að gilda
með núverandi reglum til 1. maí. - HH
Flugfreyjursömdu:
Verkfall
22. janúar
— í ríkisverksmiðjunum
Flugfreyjur luku í gær gerð nýs
kjarasamnings við viðsemjendur sína
með því að undirrita um 10,2% kaup-
hækkun sem er afturvirk til 27. októ-
ber. Samningurinn gildir til 1. nóvem-
ber.
Áfram var unnið við samningagerð
starfsmanna í ríkisverksmiðjunum i
gær og er nýr fundur boðaður í dag.
Verkfalli sem verkamenn höfðu boðað
frá og með 12. janúar er frestað til 22.
janúar.
Þá eru hlaðmenn á Keflavíkurflug-
velli boðaðir á fund sáttasemjara í dag
en kollegar þeirra á Reykjavikurflug-
velli sömdu skömmu fyrir jól.
-ARH
Mánuður til Stjömumessu ’81:
Stjömuhljómsveitin '81
Undirbúningur Stjörnumessu ’81,
sem haldin verður eftir réttan mánuð,
12. febrúar, er nú að komast á fullan
skrið. Stjörnuhljómsveitin hefur
verið valin og skipa hana að mestu
hljóðfæraleikararnir sem mynda
hljómsveitina Galdrakarlar, að við-
,bættumblásurum.
Eins og á síðustu Stjörnumessu
verður það Hendrik Berndsen blóma-
skreytingameistari í Blómum og
ávöxtum sem sjá mun um skreytingar
í Súlnasal en í fyrra var það mál
manna að salurinn hefði aldrei verið
fallegri eða betur skreyttur. Stjórn
Ijósa verður í æfðum höndum Gfsla
Sveins Loftssonar, sem tvívegis áður
hefur annazt ljósastjórn á Stjörnu-
messu og hljóðstjórn og tækjaumsjá
verður í höndum Bjarna Harðar-
sonar hjá Tónkvísl sf. Bjami og Tón-
kvisl hafa einnig tvívegis áður séð um
hljóðstjórn á Stjörnumessu og hafa
áður Ianga reynslu í slíkri vinnu með
ýmsum af landsins fæmstu hljómlist-
armönnum.
Greinilegur áhugi er fyrir vin-
sældavalinu, sem DB og Vikan gang-
ast fyrir. Þegar eru farnir að berast
inn tugir þátttökuseðla og í blaðinu í
dag er seðillinn enn birtur. Skila-
fresturertilmánaðamóta. •
Aðgöngumiðasala á Stjörnumessu
DB og Vikunnar 1981 hefst strax upp
úr næstu mánaðamótum en tilhögun
sölunnar verður nándV auglýst síðar.
valin
Er rétt að benda væntanlegum
Stjörnumessugestum á að fylgjast vel
með þeim auglýsingum, því þegar
hafa borizt fjölmargar fyrirspurnir
um borð og miða og óskir um að
teknar verði niður pantanir.
Aðgöngumiðaverð hefur ékki verið
endanlega ákveðið, en búast má við
að það verði á bilinu 250—300 kr.
- ÓV / ÁT