Dagblaðið - 07.04.1981, Side 6
‘6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1981.
Sölu- og þjónustuskrá verður í
Dagblaðinu á fimmtudag
&
Eiqna
markaðurinn
NYJA HUSINU V/LÆKJARTOR(í.
SÍMI 26933.
Ath. Vegna nýrrar söluskrár
vantar allar gerðir fasteigna á skrá
Kreditkorthafar
velkomnir
Laugalæk 2, Reykjavík,
Sími 86511
Starfsmanna-
fétagiö Sókn
Aðalfundur Starfsmannafélagsins Sóknar
verður að Hótel Esju fimmtudaginn 9. apríl nk.
kl. 20,30. Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál, Sýnið skírteini.
Stjórnin
Orðsending frá
Hellusteypunni á Uda-Hrauni
Til þess að lengja dreifingartíma okkar á gangstéttar-
hellum höfum við ákveðið að selja þær með 10% stað-
greiðsluafslætti allan aprílmánuð. Einnig bjóðum við
greiðsluskilmála og akstur með vöruna á Stór-Reykja-
víkursvæðið.
Allar upplýsingar í síma 99-3104.
07800
Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum í lagningu 5.
áfanga dreifikerfis á Keflavíkurflugvelli. í 5. áfanga eru
o20—0250 mm víðar einangraðar stálpípur í plastkápu.
Allt kerfið er tvöfalt og er lengd skurða alls um 7,8 km.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Suðurnesja,
Brekkustíg 36 Njarðvík, og á Verkfræðistofunni Fjar-
hitun hf., Álftamýri 9 Reykjavík, gegn 1000 kr. skila-
tryggingu. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Hitaveitu
Suðurnesja miðvikudaginn 22. apríl 1981 kl. 14.
SKÍÐAKENNSLA
SKÍÐASKÓLI SIGURÐAR JÓNSSONAR
Kvöld- helgar- og dagkennsla.
Allt innifaliö.
INNRITUN í SÍMA
76740
EFTIR KL: 17.00
I
Erlent
Erlent
Erlent
Yfirvöld greina frá átökunum í Kossovo:
Mamrfaf/ / óeirö
um íJúgóslavíu
— ellef u sagöir hafa látizt og 57 særðir
EUefu menn hafa látið lífið og 57'
hafa særzt í mótmælum Albana í
héraðinu Kosovo í suðaustur Júgó-
slavíu, að því er einn af kiðtogum
Kommúnistaflokksins sagði í gær.
Þetta er í fyrsta sinn, sem yfirvöld
greina frá því að mannfall hafi orðið
í óeirðunum en neyðarástandi var lýst
yfir í Kosovo eftir að mótmæli
þjóðernissinna í Kosovo hófust.
Stane Dolp.nc, einn af stjórnar-
mönnum í 24 manna miðstjórn
Kommúnistaflokksins, sagði á blaða-
mannafundi í gær að ástandið í
Kosovo væri að færast í eðlilegt horf.
Hann neitaði óstaðfestum fréttum
um að sautján manns hefðu fallið í
átökum í einu þorpi héraðsins.
Meðal þeirra, sem létust voru tveir
lögregluþjónar. Annar þeirra lézt af
völdum skotárásar sém hann hafði
orðið fyrir.
Að sögn Dolanc hafa 22 menn
verið fangelsaðir fyrir þátt sinn í
óeirðunum. Einn af þeim ,,kom að
vestan”, að því er Dolanc sagði.
Hann sagði að þjóðernissinnar,
gagnbyltingaröfl og aðskilnaðar-
sinnar hefðu notfært sér bágborið
efnahagsástand í Kosovo til að ala á
vandræðum. Kosovo er eitt fátæk-
asta hérað Júgóslavíu.
Daglega hefur mikill fjöldi manna safnazt utan sjúkrahúss George Washington háskólans þarsem Ronald Reagan liggur
eftir skotárásina sem hann varð fyrir i sfðustu viku. Þar biður fólkið þess að heyra nýjustu tilkynningarnar um líðan
forsetans. Talsmaður Hvíta hússins sagði i gær, að forsetinn kynni að verða kominn til starfa I Hvíta húsinu siðar í
þessari viku.
Tók þátt i kynsvalli
og reykti marijuana
—lestarræninginn Ronald Biggs undi sér vel hjá
mannræningjunum—Réttað verður í máli hans í dag
Kynlíf, fyllerí og fíkniefnaneyzla
settu svip sinn á hið furðulega mann-
rán í Brasilíu þar sem lestarræninginn
Ronald Biggs var fórnarlambið.
í viðtali við brezka dagblaðið
Sunday Mirror segja tveir mann-
ræningjanna undan og ofan af rán-
inu á hinum heimsþekkta lestarræn-
ingja, frá því að hann var sleginn
niður á veitingahúsi í Rio de Janeiro
og þar til hann var handtekinn á Bar-
bados-eyjum.
Eftir að Biggs hafði verið keflaður
og bundinn og settur inn í bíl sem
beið hans var flogið með hann norður
í landið þar sem skútan Nowcani II
beið hans. Þangað var hann fluttur
með hinni mestu leynd.
Ferðin var ákaflega lífleg. Fjöldi
fagurra kvenna var fenginn um borð
og lestarræninginn var beðinn um að
neita sér ekki um neitt það sem boðið
var upp á, hvort sem það var áfengi,
fikniefni eða kvenfólk.
Mestum hluta ferðarinnar eyddi
kappinn raunar við bjórdrykkju og
marijuanareykingar.
Meðan hann var í vímunni voru
settar af stað hinar mestu kynlífs-
veizlur og gleðin var öll fest á filmur.
Það var maður að nafni, John Miller
sem skipulagði ránið.
Ástæðurnar til þess að Miller lagði
út í þetta ævintýri eru að hans sögn
þær einar að viðskiptavinur fyrirtæk-
is hans, ónafngreindur, óskaði eftir
því að sjá Biggs koma til Englands á
nýjan leik og afplána þar fangelsis-
dóm sinn sem upphaflega hljóðaði
upp á 30 ár. Biggs hafði aðeins setið
inni i tvö ár þegar honum tókst að
strjúka úr fangelsinu.
' Miller vill ekki láta neitt uppi um
hver það hafi verið sem réð hann til
að ræna Biggs. Þeirri spurningu
svarar hann með annarri spurningu:
„Hver græðir mest á því að Biggs
fari afturí fangelsi?”
Sennilega mun Biggs nú fá góðan
tíma til að íhuga þá spurningu í
brezku fangelsi, kannski 28 ár.
Dómstóll á Barbados mun i dag
ákveða hvort Biggs verður framseld-
ur til Bretlands.
Ronald Biggs ásamt Miller, sem skipulagði mannránið. Biggs á nú yfir höfði
sér 28 ára fangelsi i Bretlandi.