Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 07.04.1981, Qupperneq 7

Dagblaðið - 07.04.1981, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1981. I Erlent Erlent Erlent Erlent I Bandaríkjamenn ekki trúaðir á innrás í Póíland á næstunni: „Kínverjar notfæra sér ástandið í Póllandi" —segir Izvestia, málgagn sovézku stjórnarinnar—Ræðu Brésnef s í Prag beðið með eftirvæntingu Izvestia, málgagn sovézka komm- únistaflokksins,sakaði í gær Kínverja um að notfæra sér erfiðleikana í Pól- landi til að hlaða vegg á milli Moskvu og bandamanna Sovétmanna i A- Evrópu. Sagði blaðið að fréttaflutn- ingur í Beijing af gangi mála í Pól- landi sýndi, að Kínverjar hefðu tekið svipaða afstöðu og óvinir sósíalism- ans. Afstaða Kínverja væri enn sem fyrr sú að egna eitt sósíalskt riki upp á móti öðru. Þannig sæju Kínverjar sér nú leik á borði að gr'afa undan vináttu Sovétríkjanna og Póllands. Bandarískir embættismenn sögðu í gær að ekkert lát væri á heræfingum Varsjárbandalagsherjanna í og umhverfis Pólland. Eftir að hafa alla síðustu viku látið í ljós ótta um að innrás kynni nú að vera á næsta leiti í Pólland sögðu bæði talsmenn Hvíta hússins og bandaríska utanríkisráðu- neytisins í gær, að þeir væru ekki trúaðir á að Sovétmenn réðust inn í Pólland á næstunni. „Það er hins vegar ljóst,” sagði Larry Speakes, talsmaður utanríkisráðuneytisins, ’ ’ að Sovétmönnum er nú ekkert að vanbúnaði að ráðast inn í Pólland ef þcir ákveða að gera það.” Hann íf-ekaði alvarlegar afleiðingar inn- rásar Sovétmanna og sagði að vart þyrfti þá að búast við afvopnunarvið- ræðum stórveldanna á næstunni. Hann sagði að hugsanlegt væri að með hernaðarumsvifum sínum upp á síðkastið hefði Sovétmenn brotið það ákvæði Helsinki-sáttmálans, sem kveður á um að stórveldin láti hvort annað vita ef þau hefja heræfingar sem fleiri en 25 þúsund hermenn taka þátt í. í dag mun Leoníd Brésnef ávarpa þing tékkneska kommúnistaflokks- ins og er ræðu hans beðið með eftir- væntingu. Þetta er i fyrsta sinn síðan 1975 sem Brésnef er viðstaddur þing útlends kommúnistaflokks. Laurie og Kevin Garnett með mynd af syninum Kevin, sem lézt fyrir þremur vikum. Það var dauði hans sem leiddi til handtöku hjúkrunarkonunnar. Hjúkrunarkonan myrti bömin „í liknarskyni" — H júkrunarkonan Susan Nelles ákærð fyrir að hafa myrt fjögur böm á hinu þekkta bamasjúkrahúsi íToronto íKanada Jozef Slipyi kardináli. Kaþólikkar strádrepnir í Úkraínu? Jozef Slipyi kardináli heldur því fram að um 1400 prestar, 800 nunnur og tugir þúsunda annarra kaþólikka hafi „dáið fyrir trú sína” siðan sovézk yfirvöld hófu ofsóknir á hendur kirkj- unni í Úkrainu árið 1945. Kardínálinn skýrði þetta ekki nánar en sagði að þessar upplýsingar hefði hann úr bréfum frá kirkjunnar mönnum í Úkraiinu. Jozef Slipyi er sjálfur frá Úkraínu og hefur árum saman búið í útlegð í Róm.. Fullyrðingar þessar setti hann fram í skýrslu samtaka sem nefna sig Aðstoð við þá kirkju sem þjáist. Líbanon: Reynt að stilla til f riðar Tilraunir ýmissa utanaðkomandi aðila til að binda enda á styrjöld Sýrlendinga og hægri manna í Líbanon hefjast fyrir alvöru í dag. Bardagar hafa nú staðið í eina viku. Meðal þeirra sem munu reyna að stilla til friðar er frönsk sendi- nefnd sem kemur til Beirút í dag ásamt utanríkisráðherra Sýrlands. Þá mun Haig, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, ræða þetta mál í Amman í dag. Pólverjar f lýja Meira en 500 pólskir flóttamenn komu til Austurríkis í siðasta mánuði. Á fyrsta fjórðungi síðasta árs komu alls 650 flóttamenn frá allri A-Evrópu, þar á meðal Sovétríkjunum, til Austurríkis. Nú munu um 1900 Pólverjar biða þess í Austurríki að fá endanlegan dvalar- stað. Los Angeles: Ræninginn kom of seint Vopnaður maður, sem réðst inn í banka í Los Angeles í gær, uppgötvaði sér til undrunar að hann var of seinn á ferð. Annar byssumaður hafði þegar rænt bankann. Lögreglunni tókst að hafa upp á bankaræningjanum og þýfinu svo og konu sem var ræningj- anum til aðstoðar. Seinni ræningjanum, sem raunar tókst ekki að ræna neinu, tókst að komast undan í allrf ringulreiðinni sem varð við bankann. Fjöldamorð hafa verið uppgötvuð á velþekktu sjúkrahúsi í Toronto, og hafa þau vakið mikinn óhug manna. Hin 24 ára gamla hjúkrunarkona Susan Nelles er grunuð um að hafa drepið fjögur börn á hjartadeildinni. 40 börn hafa látizt á deildinni síðustu 17 mánuði og ekki er ljóst hve mörg þeirra kunna að hafa orðið fórnarlömb líknardráps. Hjúkrunarkonan gaf fórnarlömbum sínum banvænan skammt af meðalinu digoxin. Hjúkrunarkonan kom fyrir rétt í síð- ustu viku og kvaðst vera saklaus. Hún hefur fengið taugaáfall út af þessum ásökunum, segir verjandi henn- H. Susan Nelles hjúkrunarkona sem ákærð hefur verið fyrir morð á fjórum bömum. ar, William Cooper, sem er mjög þekktur lögfræðingur í Kanada. Susan Nelles hefur unnið við hjarta- deild sjúkrahússins Torontos Hospital for Sick Children. Grunur vaknaði er 23 daga gamalt barn lézt skyndilega fyrir nokkrum vik- um. Læknir gerði lögreglunni viðvart og við krufningu kom í ljós að dánaror- sökin var of stór skammtur af lyfinu digoxin, lyf sem notað er til þess að setja hjartastarfsemina í lag. Samkvæmt reglum sjúkrahússins skulu tveir aðilar vera viðstaddir er lyf þetta er gefið. Við síðari rannsókn á máli þessu kom í ljós að þrjú önnur börn hafa einnig látizt af of stórum skammti af lyfi þessu nú nýlega. Böndin bárust fljótt að Susan Nelles sem alin er upp i læknafjölskyldu, faðir hennar og bróðireru læknar. Ákveðið hefur verið að rannsaka lát þeirra 40 barna sem látizt hafa sl. 17 mán. Lögreglan vill einnig rannsaka lát á fyrri vinnustað hennar í Vancouver sem kunna að þykja tortryggileg. Talið er að ástæða þessa verknaðar sé líknarhvöt. Þessi börn, sem rann- sóknin hefur leitt í ljós að hafi látizt af of stórum skammti af lyfi þessu, þjáð- ust öll af sama hjartagalla. Álítið er að þau hefðu ekki lifað nema fram að tíu ára aldri og hefðu auk þess þurft að þjást mjög mikið. Er mál þetta varð opinbert hefur fyrirspurnum frá áhyggjufullum for- eldrum rignt yfir sjúkrahúsið. Sjúkl- ingar koma víðs vegar að úr heiminum til þessa sjúkrahúss sem að sjálfsögðu hefur beðið mikinn álitshnekki vegna þessa máls.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.