Dagblaðið - 07.04.1981, Page 12

Dagblaðið - 07.04.1981, Page 12
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1981. WMBIAÐIB Útgefandi: DagbUOið M. Framkvœmdastjóri: Svelnn R. EylóHeaon. Ritatjóri: Jónaa Kristjónsson. Aðstoðarritstjóri: Haukur Helgaaon. Fréttastjóri: Ómer Valdlmarsson. Skrifstofustjóri ritstjómar: Jóhannes Reykdal. (þróttir: Hallur Slmonarson. Menning: Aðalstelnn IngóHsson. Aðstoðarfróttastjórl: Jónas Haraldsson. Handrit: Asgrfmur Pélsson. Hönnun: Hilmar Karisson. Blaðamenn: Anna Bjamason, Atti Rúnar HaUdórsson, Atll Steinarsson, Asgolr Tómasson, Bragl Sig- urðsson, Dóra Stafénsdóttlr, Elln Albertsdóttlr, GisU Svan Einarsson, Gunnlaugur A. Jónsson, Inga Huld Hékonardóttir, Kristjén Mér Unnarsson, Sigurður Sverrisson. Ljósmyndir: Bjamleifúr Bjamlelfsson, Elnar Ólason, Ragnar Th. Sigurðsson, Siguröur Porrl Sigurðsson og Sveinn Þormóflsson. Skrífstofustjóri: Ólafur EyJóWsson. GJaldkerí: Þrálnn ÞoríeHsson. Auglýsingastjóri: Mór E.M. Halldórs- son. Dreifingarstjóri: Valgerflur H. Sveinsdóttir. Ritstjóm: Siflumúla 12. Afgreiflsla, áskríftadeild, auglýsingar og skrifstofur: Þverhohi 11. Aflalskni blaflsins er 27022 (10 línur). Setning og umbrot: Dagblaflifl hf., Slflumúla 12. Mynda* og plötugerfl: Hilmir hf!, Siflumúla 12. Prentun: Arvakur hf., Skeifunnl 10. ^— Smjörfyrirslikk Efnahagsbandalag Evrópu ákvað á t fimmtudaginn að stuðla að aukinni of- i framleiðslu landbúnaðarafurða í þátt- i tökuríkjunum. Það ákvað að hækka verð til bænda um 12% og almennt , matvælaverð um 3%. Þetta er örlagaríkasta ákvörðun, sem Efnahagsbandalagið hefur tekið um langt skeið. Með henni stefnir bandalagið eindregnar en nokkru sinni fyrr í þá átt að verða hreint landbúnaðarbandalag. Landbúnaðurinn gleypir þegar 70% af þeim 17,5 milljörðum nýkróna, sem bandalagið hefur til ráðstöf- unar á ári hverju. Með ákvörðun fimmtudagsins mun þessi hlutur aukast enn um sinn. Ráðamönnum bandalagsins er vel kunnugt um af- leiðingar þessarar ákvörðunar á öðrum sviðum. Þeir vita, að þeir verða að leggja á hilluna ráðagerðir um annað samstarf og draga úr því, sem þegar er til. í vetur neyddist bandalagið til að skera niður fjárlög sín, þar sem efnahagsástand þátttökuríkjanna hefur aukið tregðu þeirra við að greiða af naumu fé sínu til sameiginlegra þarfa bandalagsins. Við slíkar aðstæður hefði mátt ætla, að þrýstihópar landbúnaðar í ríkjum Efnahagsbandalags Evrópu yrðu að sætta sig við samdrátt í styrkjum, uppbótum og niðurgreiðslum. En sú hefur ekki orðið raunin. í haust deildu talsmenn íslenzks landbúnaðar við Dagblaðið og héldu því fram, að ekki mætti taka mið af núverandi landbúnaðarstefnu bandalagsins. Það mundi innan tíðar stefna að minni offramleiðslu. Dagblaðið hélt því hins vegar fram, að bandalagið væri fangi landbúnaðarstefnunnar og mundi nauðugt viljugt halda áfram að stuðla að offramleiðslu um alla fyrirsjáanlega framtíð. Til þess að átta sig á þessu verða menn að skilja, að staða landbúnaðar sem þrýstihóps er svipuð í ríkjum Efnahagsbandalagsins og hún er hér á landi. Hann hefur bæði tögl og hagldir. í flestum ríkja bandalagsins kemur landbúnaðarráð- herrann fram sem umboðsmaður þrýstihóps en ekki kjósenda almennt, nákvæmlega eins og hér á landi. Hann telur sér skylt að standa vörð um landbúnað. Þegar allir þessir landbúnaðarráðherrar koma saman í Efnahagsbandalagi Evrópu, ráða þeir ferð- inni. Aðrir ráðherrar verða að beygja sig fyrir því, að hinir fyrrnefnu ráði landbúnaðarstefnunni. Þetta skiptir íslendinga miklu, því að stefna banda- lagsins hefur leitt til gífurlegra birgða af óseljanlegum landbúnaðarafurðum i iðnríkjum Vestur-Evrópu. Og þetta er reynt að selja fyrir slikk. Bandalaginu gengur illa að selja afurðirnar til ann- arra heimsálfa. Mikið af þeim eru sömu vörur og íslendingar framleiða, kjöt eða mjólkurafurðir, sem þriðji heimurinn hefur ekki efni á að kaupa. Til viðbótar kemur svo samkeppnin við gífurlega hagkvæman landbúnað Bandaríkjanna, þar sem hver starfsmaður í landbúnaði brauðfæðir 60 manns, á meðan starfsbróðirinn í Vestur-Evrópu brauðfæðir 20 og á íslandi 10. Dagblaðið hefur margoft bent á, að tilgangslaust sé að reka hér sömu stefnu og Efnahagsbandalagið og kasta offramleiðslu okkar á alþjóðamarkað, sem gefur ekki nokkuð í aðra hönd. Við ættum miklu fremur að hagnýta okkur hið mikla framboð alþjóðamarkaðarins af óseljanlegum og hræódýrum landbúnaðarafurðum. Við ættum að gefa innflutning þeirra frjálsan. Með því að draga sem mest úr eigin landbúnaði getum við beint kröftum okkar að arðbærari verk- efnum á sviðum, þar sem við erum samkeppnishæfir. Smjörið getum við um ókomin ár fengið fyrir slikk hjá Efnahagsbandalagi Evrópu. Arás á Þykk- bæinga svarað 1980. Og að ætla að bera það saman við þá tíma er bændur almennt sópuðu rykið úr geymslum sinum um mánaðamót febrúar-mars er engan veginn raunhæft. Nú þarf að geyma kartöflur mun lengur og því samhliða að glíma við áhrif veðurfars á útlit og þróun sjúkdóma. T.d. höfðu þurrkar í sumar þau áhrif á gullauga- kartöflur, að a.m.k. tvær gerðir kláða höfðu góð skilyrði til að herja á hýði þeirra. AUt hefur þessi ágæti maður á hornum sér varðandi sandblendinn jarðveg, þó það séu viðurkennd sannindi að þar eru bestu skilyrði fyrir rauðar kartöflur hvað varðar bragðgæði uppskeru. í stað þess að lofa framsýni vélvæddra framleiðenda, sem eru í örri þróun með góðri aðstoð ungra og vaxandi sérfræðinga, kýs yfirmatsmaðurinn Mánudaginn 30. mars flutti yfir- matsmaður garðávaxta erindi í út- varpi er bar yfirskriftina „Uppskera og markaðssveiflur”. Sem kartöfluframleiðandi settist ég við útvarpstækið til aS nema fróðleik hans. En því miður fór sem mig hafði grunað. Erindið var bein og óbein árás á okkur sem kartöflurækt stunda í Þykkvabæ. Yfirmatsmaðurinn bítur of nærrj mínu gren; til að hægt sé að láta orðum hans ósvarað. Það er út i hött að kenna kartöfluframleiðendum í Þykkvabæ um allt sem aflaga fer í meðhöndlun kartaflna á leiðinni frá görðum framleiðenda til diska neytenda, þótt Þykkbæingar framleiði helming markaðsframleiðslunnar. Geymsluvandamál stórræktenda er vissulega fyrir hendi svo sem hjá öðrum ræktendum, enda með eindæmum mikil uppskera sumarið „Yfirmatsmaðurinn kýs að boða stefnu niður á fjóra fætur aftur. ...” f V Læknamáliðá Selfossi: ■ UM HVAÐ ERBARIZT? Það er full ástæða til að skyggnast um í Flóanum um þessar mundir, reyna að rýna í landslag og leiti. Læknadeila er enn einu sinni upp komin á Selfossi, sem minnir óneitanlega á hina frægu Húsavíkur- deilu sem endaði ekki fyrr en með hæstaréttardómi. Læknir á Selfossi hefir verið úthrópaður sem orsök allra deilna lækna á milli síðastliðin 10 ár en þær væringar verða þó að teljast til smáskæruhernaðar miðað við núverandi deilu og deilu þá sem reis á Húsavik. Sú spurning hlýtur að vakna í þessu sambandi hvort hér sé á ferðinni deila sem eigi sér orsaka- samband en sé ekki af eins miklum persónutoga og ráðsmaður Sjúkra- húss Selfoss, Hafsteinn Þorvaldsson, vill vera láta. Er hér deilt um málefni, sem hægt væri að fá botn í? Af hverju neitar núverandi yfirlæknir Sjúkrahúss Selfoss svo staðfast að láta endurskoða gildandi samning sinn, þó að augljóst sé að hið nýja sjúkrahús sé önnur stofnun, sem lúti nýrri reglugerð og öðrum starfs- háttum? Það hlýtur að vera forsenda alls skilnings á þessu máli að skoða að nokkru starfssamning þann, sem yfirlæknirinn ver I líf og blóð og vill ekki með nokkru móti sleppa, en rekstrarstjórn hins nýja húss neitar með öllu að taka við eða endurnýja óbreyttan. Hér verða því kaup og kjör yfir- læknis Sjúkrahúss Selfoss gerð að umræðuefni. Kaup og kjör læknastéttarinnar Kjallarinn Eggert Jöhaimesson eru að visu meiri frumskógur en flestra, ef ekki allra annarra stétta .þessa lands, og er þá mikið sagt. Hér verður stuðzt við sérsamning læknisins og gildandi samning um greiðslur vegna sérfræðistarfa læknis. Núgildandi starfs- samningur Daníels Daníelssonar yfirlækn- is við Sjúkrahús Sel- foss I. Kaupgreiðsla miðað við 1. marz ............... 1.531.003,00 gkr.' Gæzluvaktir og yfirvinna fast. ............... 1.531.003,00 gkr.) Samtals 3.062,006,00 gkr. II. Hlunnindi a) Frítt húsnæði, hiti og rafmagn. b) Aðstaða til sérfræðingsmóttöku á sjúkrahúsinu endurgjaldslaust. c) í veikindum og öðrum forföllum greiðist yfirvinna og gæzluvaktir óskert, þ.e. læknirinn heldur óskertu tvöföldu yfirlæknis- kaupi.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.