Dagblaðið - 07.04.1981, Page 13

Dagblaðið - 07.04.1981, Page 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1981. 13 Kjallarinn Tryggvi L Skjaldarson að boða stefnu niður á fjóra faetur aftur. Það er óhugsandi að ætla nokkrum manni að draga fram lífið með sölu á handuppteknum kartöflum á síðasta hluta tuttugustu aldar. Boðskapur sama manns um heppilegt landrými fyrir hvern bónda í Þykkvabæ, þ.e. 5—6 ha., er varla svara virði. Hann er ekki dómbær. Enda hlýtur það að vera matsatriði hvers og eins með hvaða hætti helst er hægt að ná endum saman. Það er fleira kostnaður en áburður. Yfirmatsmaðurinn gerir svo samanburð á hve mörg kg af kartöflum danskir og íslenskir verka- menn geta fengið fyrir klukkustund- arvinnu, en hann bætir við i dæminu að niðurgreiðslum sé sleppt. Þar með skekkir hann dæmið um 2 nýkrónur á kg. Yfirmatsmaðurinn hlýtur að vita að niðurgreiðslupólitík er aðferð til að halda almennum kauþtöxtum niðri. Þar fyrir utan er svo gott sem sama hvaða vörutegund er nefnd, oftast er samanburðurinn þeim íslensku í óhag. Það skýtur skökku við þegar hvatt er til stóraukinnar ræktunar á Bintje kartöflum, þegar allir sem vilja þekkja, vita að geymsla á Bintje hefur reynst erfið og að í meðalári er stór hluti uppskerunnar undir þeim stærðarmörkum sem Grænmetis- verslunin vill taka til sölu. Að lokum þetta: Ég vona að Edvald B. Malmquist yfirmatsmaður taki nú kipp og dragi sverð úr slíðri til að höggva okkur Þykkbæingum betri braut að diskum neytenda, ef hann þarf að opna munninn á annað borð. Með vinsemd og virðingu, Tryggvi L. Skjaldarson, Þykkvabæ. OPH) BREFTIL IÓNASAR KRISTJÁNS- SONAR R1TSTJÓRA Kæri Jónas, Það er leitt til þess að vita að Dag- blaðið hefur tekið opinbera afstöðu gegn starfsemi Flugleiða, sbr. leiðara ritaðan af þér í blaðinu 23. marz sl. Ég hefði komið linum þessum til þin fyrr ef ég hefði ekki verið fjarverandi af landinu vegna starfa í þágu félagsins. Vissulega harma ég þessa afstöðu þína því mér finnst að þeir sem staðið hafa að uppbyggingu flugstarfsemi á íslandi frá byrjun eigi skilið meiri skilning og meiri stuðning þeirra sem um þessi mál fjalla opinberlega. Ég vil benda á að það er einsdæmi að svo öflug flugstarfsemi hafi verið byggð upp án ihlutunar ríkisvaldsins eða teljandi aðstoðar þess. Á ég hér við samanburð t.d. við granna okkar hin Norðurlöndin. Þar sem ég veit að þú ert fylgjandi stefnu frjálsræðis í viðskiptum og hérlends einkafram- taks hefði ég búist við því að þú hefðir sýnt þessu máli meiri skilning og meiri stuðning. Vissulega er það svo að Flugleiðir hafa lent í miklum erfiðleikum á undangengnum tveimur árum, og mikið hefur verið um þá erfiðleika fjallað í fjölmiðlum — kannski of mikið. En allar atvinnugreinar lenda stundum í erfiðleikum, og fyrirtæki að sjálfsögðu líka. Flugrekstur á alls staðar við erftðleika að etja eins og stendur. Önnur nærtæk dæmi héðan er sú bylting sem varð er síldin hvarf skyndilega og lagði heilan atvinnuveg í rúst. Nærtækari dæmi eru núver- andi erfiðleikar vissra hérlendra iðn- greina og verðfall sjávarafurða, sem hafði víðtækar afleiðingar hér á landi árin 1967 og 1968. Fjölmörg dæmi mætti nefna til erlendis frá um hlið- stæða erfiðleika en ég læt þetta nægja. Leitum nýrra leiða Nú er það hins vegar svo að venju- lega eru þessir erfiðleikar tímabundn- ir, og það verður ekki of sterklega að orði kveðið að erfiðleikarnir eru til að yfirstiga þá. Það er gamalt mál- tæki sem segir að enginn verður óbarinn biskup. Hinu má heldur ekki gleyma að oft felast tækifæri í erfið- leikum, þ.e.a.s. erfiðleikar knýja menn til athafna, til að leita nýrra sviða og nýrra tækifæra, og það tel ég að við hjá Flugleiðum höfum gert nú þegar. Sem dæmi um það má nefna að vegna mikils samdráttar í Norður-Atlantshafsfluginu höfum við leitað verkefna víða erlendis. Árangurinn hefur orðið mjög góður, því félaginu hafa verið falin hvorki meira né minna en fjögur ný verk- efni. Ástæðan til þess að okkur hefur tekist að afla þessara verkefna er sú að við búum yfir mikilli reynslu, þekkingu og kunnáttu á sviði flug- rekstrar almennt. Við höfum yfir að ráða vel þjálfuðu og færu starfsfólki á þessum sviðum, og það er ástæðan fyrir því að okkur hefur tekist að viðhalda starFi allra þeirra tæknilega þjálfuðu manna sem hjá okkur starfa. Á ég hér sérstaklega við flug- áhafnir okkar og flugvirkja. Kjallarinn SigurðurHelgason Ósanngjörn skattlagning Ég er sammála flestum þeim atriðum leiðarans sem fjalla um upp- byggingu ferðamála, m.a. með auknu ráðstefnuhaldi hérlendis og áherslu á þá ferðamenn sem eyða hér mestu fé á sem stystum tíma. Vand- inn verður hins vegar ekki leystur ,,Það er skoðun mín, að starfsfólk ^ okkar komi til með að sýna það svart á hvítu,að Flugleiðir séu verðugar þess trausts, sem hið opinbera og meirihluti allra lands- manna hefur sýn't félaginu.” með því að leggja niður flugfélag með langa og ómetanlega reynslu í öllu sem snýr að flugrekstri og öflun erlendra farþega í þvi augnmiði að stórauka þá atvinnugrein sem lýtur að móttöku ferðamanna hér á landi. Nýlokið er ráðstefnu um ferða- mannaþjónustu og þar kom í ljós að ein aðalástæðan fyrir því hversu erfiðlega gengur að efla þessa at- vinnugrein eru hinar miklu álögur og skattar sem hið opinbera leggur á þessa þjónustu. Má ég því ekki í allri vinsemd benda þér á að kunngera al- menningi hvernig þessar álögur eru og jafnframt að beita þér fyrir afnámi þeirra. Traustir starfsmenn Leiðast er þó að heyra tóninn í leiðaranum, sem hlýtur að beinast gagnvart starfsfólki félagsins. Eg er þeirrar skoðunar að fólkið, sem vinnur fyrir Flugleiðir, bæði hér- lendis og erlendis, sé óvenjulega traustur hópur sérþjálfaðs fólks, sem vinnur störf sín af ósérhlífni og samviskusemi, og það þrátt fyrir ósanngjarna gagnrýni og á ýmsan hátt erfiðar aðstæður. Ef eitthvað eitt er hægt að telja Flugleiðum til góða er það án vafa traust og gott starfsfólk. Það er skoðun mín að starfsfólk okkar komi til með að sýna það svart á hvítu að Flugleiðir séu verðugar þess trausts sem hið opinbera og meirihluti allra landsmanna hefur sýnt félaginu. Fækkar þá væntanlega þeim sem skrifa opinberlega um Flugleiðir i niðurrifstón, sem engum er til gagns. Með bestu kveðjum og fyrirfram þökk fyrir birtinguna. Sigurður Helgason forstjóri. d) Noti læknirinn skurðstofu sjúkra- hússins til aðgerða fyrir sjúklinga sem ekki vistast á sjúkrahúsinu greiðir hann sjúkrahúsinu 25% af aðgerðargjaldi en 75% renna til hans sem aukatekjur. e) Læknirinn hefir einn frídag í viku hverri, þ.e. fjögurra daga vinnu- viku. f) Læknirinn fær 10 virka daga ár- lega frí vegna félagsstarfa. g) Læknirinn skal eiga rétt á náms- ferð til útlanda einn mánuð annað hvert ár. Hér að ofan hafa verið rakin grunnlaun læknisins ásamt með hlunnindum. Um orlof fer eins og venja er í samningum opinberra starfsmanna. Bein launagreiðsla fyrir marz 1981 verður því. ................ 3.062.006,00gkr. Þar sem hér er ekki nema um 80% vinnu að ræða vegna eins frídags í viku bætast við þetta. .................... 306.200.00 gkr. Samtals má því meta föstlauntil 3.368.206,00 gkr. Hlunnindi mætti vægt áætla ................... 500.000.00 gkr. eða laun og hlunnindi á mánuði .................. 3.868.206.00 gkr. Það sem er athyglisvert við þennan samning er auk þess frídagar og er sérstök ástæða til þess að reikna fjölda þeirra þar sem læknirinn er ekki búsettur á Selfossi en nærvera hans á staðnum hefir verið talin ein aðalforsenda ráðningar handlæknis við sjúkrahúsið. Frídagar verða: a) einn virkur dagur ivikuhverri............. 52dagar b) orlof................. 24 dagar c) ferð til útlanda annað hvert ár 24/2 ..... 12 dqgar d) frídagar v/félstarfa ... 10 dagar Samtals verða þetta virkir 98 dagar Við þetta bætast að sjálfsögðu helgir almanaksdagar og fríir laugar- dagar sem eru með tvískiptri vakt 52 dagar. Samtals hefir læknirinn því frí frá störfum samkvæmt gildandi samningi 150 daga. Það eru 5 mánuðir á ári hverju. sjúkrahúsinu endurgjaldslaust, hann greiðir því aðeins til sjúkrahússins að hann noti skurðstofuna og starfsfólk hennar. Hann gerir sjúkrasamlagi reikning fyrir alla móttöku og vinnu sína samkvæmt taxta sem miðaður er við það að læknirinn standi sjálfur undir rekstri læknisstofunnar svo sem er í Domus Medica svo að dæmi séu nefnd. Ef tekið er sem dæmi úr taxta sér- fræðinga sem reka eigin stofur fram- handleggsbrot og sérfræðingstaxtinn borinn saman við gildandi taxta heilsugæzlulækna liti dæmið svona út: Sérfræðingstaxti 1. viðtal með skoðun 2. aðgerð á broti 3. gips lagt á lim Taxti heilsugæzlulækna fyrir sömu meðhöndlun 1. viðtal og skoðun 2. aðgerð og gips 3 deyfing 1—3(8 einingar) 11-64(40 einingar) 11-62(16 einingar) 9624,00 gkr. 48120.00 gkr. 19248.00 gkr. Samtals 76992.00 gkr. 103 211 301 2291.00 6244.00 1168.00 gkr. gkr. gkr. samtals 9703,00 gkr. Það er því augljóst af þessum samningi, sem skyldar lækninn ekki að búa á Selfossi, að hann getur verið annars staðar en á Selfossi fimm mánuði ársins t.d. í Reykjavík, en ekki í námunda við sjúkrahúsið. Gerðu þeir sem þennan samning undirrituðu sér þessa staðreynd tjósa? Aukatekjur Samkvæmt samningnum hefir læknirinn .rétt til að reka móttöku I Til þess að sérfræðingur geti beitt sérfræðingstaxta við verðlagningu þarf hann að hafa tilvísun frá öðrum lækni, þessu ákvæði beitir þó Trygg- ingarstofnunin ekki út í æsar. Samkvæmt gildandi samningi ber sérfræðingi sem vinnur störf heilsu- gæzlulækna að taka sama taxta og heilsugæzlulæknir nema tilvísun komi til. Mismunurinn á verðlagn- ingu samkvæmt sérfræðingstaxta og heilsugæzlutaxta er (I dæminu) gkr. 67.289.00 og þess viröi er því tilvísunin fyrir sérfræðinginn, þ.e. yfirlækni Sjúkrahúss Selfoss í þessu tilfelli, þar sem hann hefir sjálfur engan kostnað af móttökunni ef hún er á stofu sjúkrahússins. Hér er um hreinan ávinning að ræða. Að endingu Það ætti engan að furða sem skoðar þennan samning þó að ábyrgir menn í rekstarstjórn hins nýja Sjúkrahúss Suðurlands vilji ekki taka við slíkum samningi óendur- skoðuðum enda sögðu þeir honum upp. Um hann stendur I rauninni hin mikla læknadeila. Læknirinn fær samkvæmt samningnum hátt í fjórar milljónir gkr. fyrir fjögurra daga vinnuviku og 15 gæzluvaktir i mánuði. Helmingur þessara launa er greiðsla fyrir gæzlu- vakt og yfirvinnu og er sú greiðsla ,,Læknirinn fær samkvæmt samningn- um hátt í fjórar milljónir gkr. fyrir fjögurra daga vinnuviku, og 15 gæzluvaktir í mánuði. . . . Við þessi laun bætast svo hlunnindi og aukatekjur. ...” óháð því hvort um nokkra yfirvinnu er að ræða eða útköll á gæzluvakt. Verða þetta að teljast mjög góð kjör við lítinn spítala. Við þessi laun bætast svo hlunnindi og aukatekjur sem vel gætu numið meir en þriðj- ungi hins fasta kaups, þ.e. 1—2 milljónumgkr. Það gefur augaleið að sjúkrahús sem ekki er stærra en 30 rúm og meira en helmingur sjúklinganna langlegu- og hjúkrunarsjúklingar hefir ekki verkefni fyrir tvo lækna í fullu starfi og hafa þeir því góðan tíma til vinnu á stofu. Aukatekjur þessar eru fengnar með aðstöðu og hjálp sem sjúkrahúsið veitir endur- gjaldslaust og er auk þess aflað á sama tíma og læknirinn tekur há laun frá sjúkrahúsinu, þ.e. í vinnutima hans við sjúkrahúsið. Hér virðist því um hreina tvíborgun að ræða. Það eru margar spurningar sem vakna þegar samningur af þessu tagi er skoðaður. Hvað kom stjórn Sjúkrahúss Selfoss að gera slikan samning? Hvers vegna ver stjórn gamla sjúkrahússins slíkan samning og styður að því að hann verði látinn gilda við hið nýja sjúkrahús? Hvernig komast slíkir samningar í gegnum eðlilega endurskoðun ríkis- valdsins? Eru reikningar Sjúkrahúss Selfoss endurskoðaðir af löggiltum endur skoðanda? Margar fleiri spurningar vakna. Efnisleg umræða væri hér að miklu gagni og raunveruleg skoðun máls- atvika. Eggert Jóhannesson Selfossi

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.