Dagblaðið - 07.04.1981, Page 27
OPIÐ Á LAUGARDÖGUM
Söluskrá okkar veröur í
Dagblaðinu á laugardaginn,
KJÖREIGN SF.
ÁRMÚLA 21 - SÍMAR 85988 85009
DAN V.S. WIIUM LÖGFRÆÐINGUR
VIDEO
Video — Tæki — Fiimur
Leiga — Saia — Skipti
Kvikmyndamarkaðurinn — Simi 15480.
Skólavörfiustig 19 (Klapparstigsmegin).
KVIKMYNDIR
INNI- OG ÚT/LUKTIR
Hermenn hennar hátignar nefnist
sjötti þátturinn i myndaflokknum
Litið á gamlar Ijósmyndir sem er á
dagskrá sjónvarps í kvöld.
Að sögn þýðandans, Guðna Kol-
beinssonar, verður litið á ljósmyndir
sem teknar voru í herförum brezka
hersins til Indlands, Egyptalands,
Súdans og í Búastríðinu. Myndirnar
tóku foringjar í hernum, ýmist af
öðrum foringjum eða af „furðuleg-
um þjóðum’’ en foringjar í brezka
hernum á Indlandi höfðu fyrirmaeli
landstjórans um að mynda fólkið
sem bjó í landinu.
Hallmar Sigurðsson er þulur með
myndaflokknum.
-KMU
KRISTJÁN MÁR
UNNARSSON
Alvopnaðir Búar reiðubúnir að mæta
brezka hernum. Myndin er tekin í
Búastríðinu.
PÉTUR PÉTURSSON SUÐURGÖTU 14.
HEILDVERZLUN - SÍMAR S
NÚ ER HANN ENN Á NORÐAN - útvarp kl. 22,40:
Landsmót skáta haldið
í Kjarnaskógi í sumar
- sagt f rá undirbúningi þess og ýmsu f réttnæmu nyrðra
LITIÐ Á GAMLAR UÓSMYNDIR - sjónvarp kl. 20,45:
Myndir teknar af
brezkum hermönnum
f þættinum Nú er hann enn á
norðan sem Guðbrandur Magnússon
annast í útvarpinu í kvöld verða þrjú
mál. Rætt verður við Gunnar Jóns-
son um landsmót skáta sem haldið
verður í Kjarnaskógi, útivistarsvæði
.Akureyringa, í sumar. Gunnar segir
frá undirbúningi skátamótsins og
þeim dagskráratriðum sem þar verða.
Blásarasveit Tónlistarskóla Akur-
eyrar hyggur á tónleikaför til Hamar
í Noregi í sumar til þátttöku í keppni
blásarasveita víðs vegar að úr heimin-
um. Verður rætt við Árna V. Frið-
riksson um ferðina.
Þá mun formaður nýstofnaðrar
ALFA-nefndar á Akureyri, Þor-
valdur Jónsson spjalla um hlutverk
MINJAR 0G MERKIR STAÐIR í KÓPAV0GI
— sjónvarp kl. 21,50:
SAGT FRÁ JÁRNBRAUTAR-
LAGNINGU TIL SUÐURNESJA
og graf reit sakamanna sem er við
f jölfarnasta þjóðveg landsins
í sjónvarpinu í kvöld kl. 21.50
verður endursýndur þátturinn Minjar
og merkir staðir í Kópavogi. Hann
var áður sýndur 5. október í fyrra og
kom þá inn í dagskrána án fyrirvara í
stað myndar um Vestmannaeyja-
gosið.
Valgeir Sigurðsson fv. blaðamaður
ræðir við Adoll' J.E. Petersen, sem
lengi var vegavinnustjóri i Kópavogi,
um leið og þeir fara á milli merkra
staða i landi Kópavogs. Þeir staldra
meðal annars við á stað sem heitir
Borgir en það eru friðlýstir klettar við
Kópavogskirkju og þykir þar mjög
fagurt um að litast.
Hinn forni þingstaður Kópavogs
kemur eðlilega mikið við sögu í þætt-
inum. Flestir vita sjálfsagt að þar
gerðist einn af örlagarikari atburðum
íslandssögunnar er 109 Islendingar
sóru þar erfðahyllingareiða í umboði
lansdmanna. En á þingstaðnum voru
menn einnig dæmdir og teknir af lífi,
oft fyrir litlar sakir. Vita sjálfsagt fáir
að rétt við fjölfarnasta þjóðveg
landsins eru sakamenn grafnir.
Einnig verður litið á gamalt járn-
brautarstæði en árið 1918 voru
hafnar framkvæmdir við járnbraut
sem liggja átti til Suðurnesja. Þær
framkvæmdir lognuðust út af, lík-
lega vegna fjárskorts, en leifar þeirra
má enn sjá í holtinu á milli Garða-
bæjar og Hafnarfjarðar. - KMU
m----------------->■
Valgeir Sigurðsson.
DB-mynd Bjarnleifur.
Þessi 22ja feta bátur er tilsölu. Báturinn er nyr. Góður
færabátur á góOu verði. Uppl. hjá augl.þjónustu DB í
síma27022. H-547
nefndarinnar og um ALFA-nefndir í
landinu en það eru nefndir sem settar
voru á stofn til að annast verkefni í
sambandi við alþjóðaár fatlaðra.
Hann mun einnig ræða málefni
fatlaðra á Akureyri og lýsa starfsemi
þeirra samtaka sem starfa að málefn-
um fatlaðra í bænum.
- KMU
Guðbrandur Magnússon, umsjónarmaður þáttarins Nú er hann enn á norðan.
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1981.