Dagblaðið - 10.06.1981, Side 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1981.
3
l|
' ......................'
Tilgangurínn
helgar
medalið:
-
Jónas Jónsson, Brekknakoti, skrifar:
Tilgangurinn helgar meðalið, segir
gamalt máltæki er Iengi hefur verið'
umdeilt, jafnvel á okkar litla íslandi.
Það er þvi full ástæða til að gera sér
grein fyrir giidi þessarar fuliyrðingar.
Tökum dæmi: Stór hópur islenzkra
lækna riftar samningum og fer í eins
konar verkfall. Til þess að forða frá
neyð á sjúkrahúsunum stofna þeir
sitt eigið fyrirtæki og með aðstoð
þess gefa þeir kost á þjónustu sinni
gegn óheyrilega háu gjaldi.
Neyðin kennir naktri konu að
spinna. Læknarnir reyna að benda á
að þeir séu órétti beittir samanborið
við einhverja aðra hópa (ganga-
stúlkur á sjúkrahúsum?) og verði þvi
að fá grunnkaupshækkun. En þeir
reyna víst ekki að benda á það að
læknar fá oft fría aðstöðu til starfa,
nauðsynleg tæki, vinnuföt og bíla-
styrk, allt eftir margra ára fríðindi
við nám sitt. Nafn fyrirtækis þeirra
er Læknaþjónustan sf. og hæfir það
nafn þeim vel, því að þeirra skoðun
er að það eigi að þjóna læknunum á
undan hinum sjúku.
Fjórir skæruliðar eru nýlátnir á N-
frlandi en allir lifðu þeir samkvæmt
kenningunni tilgangurinn helgar
meðalið. Hryðjuverk, þ.e. eyðing
verðmæta, árásir, mannrán og morð
eru ávextir stefnunnar og ég hygg að
við séum flest á sama máli og „járn-
frúin” brezka, að sifkum beri engin
forréttindi i fangelsinu. Með slíku
væri ofbeldinu ívilnað og dregið úr
öryggi fólksins.
Bæði læknunum og skæruliðunum
LÆKN AÞJÓNUSTAN
ÞJÓNAR LÆKNUNUM
Svavar á þakkir skildar fyrir ákveðin vinnubrögð, segir bréfritari. Það skai tekið fram að myndin er ckki tckin á fundi með
læknum.
mun hollara að mæta ákveðnum
hindrunum á leið sinni og samlönd-
um þeirra mun það sérstök nauðsyn.
Ég vil þakka Svavari ráðherra og
Þresti fulltrúa fyrir ákveðin vinnu-
brögð og sköruleg orð í þessu
sambandi, svo og „járnfrúnni” í
trausti þess að réttlætis sé gætt í
dómsorði skæruliðanna.
En ber ekki læknum skylda til að
viðhalda lífi sjúklings svo lengi sem
mögulegt er? Hví má þá ekki
viðhalda lifi i þeim sem neita að
borða? Ef ég man rétt, þá voru fyrir
nokkrum árum tvær sveltandi konur
neyddar til að borða á N-írlandi, en
gaman væri að heyra viðhorf þeirra
til þessara mála nú. Gæti ekki
Morgunpósturinn dregið einn morg-
un úr flýtistafi sínu, hósta og „ofani
áti” og sagt: Okkar maður á N-
írlandi segir frá. Þess vildi ég óska og
svo er um fleiri.
Umferðin í Reykjavík:
Utanbæjarmenn eru verri ökumenn
Reykviskur bilstjóri hringdi:
Mér fmnst hún skjóta dálitið yfir
markið þessi Erla Ingvarsdóttir sem
ræðir um reykviska ökumenn í DB sl.
fimmtudag. Hún segir að það sé eins
og að sá svarti sjálfur hlaupi í Reyk-
vikinga þegar þeir sjá bíla með utan-
bæjarnúmerum. Þetta held ég að sé
ekki alls kostar rétt, miðað við þá
löngu reynslu sem ég hef sem at-
vinnubilstjóri í Reykjavík.
Sjálfum finnst mér að utanbæjar-
bílstjórar aki flestir mjög óvarkárlega
hér í bænum og gæti ég nefnt fjöl-
mörg dæmi því til stuðnings. Erla
nefnir að þvi sé slegið upp þegar þrjár
utanbæjarkonur lenda í einum og
sama árekstrinum, en ekki sé á það
minnzt ef þrír reykviskir karlmenn
lendi í svipuðum árekstri. Þessu
dærhi hefði Erla átt að sleppa, þvf að
allir hljóta að sjá að samanburðurinn
er fráleitur. Likurnar á að þrjár utan-
bæjarkonur á þrem bílum lendi i
einum og sama árekstrinum i Reykja-
vik eru hverfandi litlar en samt sem
áður hefur þetta skeð. Að mínum
dómi bendir þetta til að utanbæjar-
fólk sé verri ökumenn í umferðinni i
Reykjavík en reykviskir ökumenn.
Mér finnst rétt að benda utan-
bæjarfólki á að aka varlega i Reykja-
vik þvi reynslan sýnir að jafnvel þeir
sem eru vanir umferðinni og fæddir
og uppaldir I Reykjavik eiga fullt i
fangi með aksturinn.
Það er heldur ekki min skoöun að
utanbæjarökumenn séu einhver ann-
ar þjóðflokkur, en svo virðist sem
tryggingafélögin standi í þeirri mein-
ingu. T.a.m. þarf Erla ekki að borga
jafnhá tryggingaiðgjöld af sínum bíl
og Reykvíkingar og oft getur munað
helmingi á iðgjaldinu.
-yx1 ' «v«^
mk
tuttogskýrbréf
Enn cinu sinni minna icsenJailáikar DB alla f>á. cr
hyggjast scnda þœttinum línu. aó láta fylgja fullt nafn.
hcimilisfang. símanúmer (ef um þad cr a<) rœda) og *
nafnnúmer. Þetta er lítil fyrirhöfn fyrir hréfritara okkar
og til mikilla þœginda fyrir DB.
Lcsendur eru jafnframt minntir á aó hréfeiga að
veru stutt og skýr. Áskilinn erfullur réttur til að
stytta hréfog umorða til að spara rúm og koma
efni betur til skila. Bréf cettu helzt ekki að vera
lengri en 200—300 orð.
Símafími lesendadálka DB er milli kl.
k 13 og 15 frá mánudögum til föstudaga.
-* *i -* -i
Einsogsásvarti I
sjálfur hlaupi \
íökumenn
Erta Iagrmndittlr krtagdl:
— Bl ö utanbæjarkoni ion
dundum þarf að fara um Stór-
leykjavtkunvæðið. Ég er anzi
ihrto yfir þvi að vera talin af ein-
iverjum Oðrum þjóðflokki, bara af
>vl að það er utanbæjaraúmer i bUn
im mlnum. Þvi er slegið upp I frétt i
ioriíðu þegar þrjír utanbæjarkonur
lenda I irekJtri, en það er ekkert »ér-
itaklega tekið fram þegar þrir karl-
menn i bllum mcð R-núroeri lenda I
»ömu aðitöðu. Ég hef reynatu af þvl
að aka bU með G-númeri og það voru
mikil viðbrigði að fi F-númer i bfl-
inn. Það er einj og ti rvarti ijilfur
hlaupi I bifreiðaitjóra i bilum með
R-númer þegar þdr iji bfla með ui
„VIÐ ÞEGJUM 0G
ÞORUM EKKIANNAД
Raddir
lesenda
«C
Reykviskur bilstjórl er ekki sammála
Erlu um að hann og aðrlr reykvisldr
bflstjórar sjái rautt er þeir sjá utan-
bæjarfólk f umferðinni.
3239-8510 skrifar:
Þakið er þakið þökum
og þykir það mikið flott.
Það réttlætist víst með þeim rökum
að voru rfki sé ekkert of gott.
Á meðan mannfjöldinn stritar
og matarbitana þrá
glerið i höllinni glitrar,
það gott gerir svöngum að sjá.
Við þegjum og þorum ei annað
— þótt raunar ótækt sé —
að svonalagað sé hannað
og steypt — fyrir almannafé.
Ég fyllist réttlátri reiði
og rausa enn um stund.
En — kannske — seinna á æviskeiði
sæki ég hjá þeim fund!
Ort eftir að hafa horft með sfvax-
andi undrun á „framkvæmdir”
Framkvæmdastofnunar ríkisins við
Rauðarárstfg.
Varnarmáladeild
var saklaus
Guðbjörg Þórhallsdóttir hringdi og
vildi koma á framfæri eftirfarandi
upplýsingum:
— Ég vil bara taka það fram,
vegna innleggs frá okkur á skrifstofu
Frihafnarinnar á lesendasíðu DB, að
Varnarmáladeild hafði ekkert með
skipulagningu móttökuathafnarinnar
fyrir kanadfska landstjórann að
gera. Einhverjir gætu skilið að
ábending okkar í DB sé sneið til
Varnarmáladeildar.en svo er ekki.
Það var sérstök nefnd sem sá um at-
höfnina og Varnarmáladeild kom
þar hvergi nærri.
Hvað gerir þú
íhádeginu?
Þór Saari sjómaður: Ef ég er vaknaður,
þá fer ég i laugarnar.
Spurning
dagsins
Sigurður Karlsson hijómiistarmaður:
Ég sieiki sólskinið þegar sólin skín og
stundum fæ ég mér að borða.
Rúnar Sigþórsson lögregluþjónn: Það
er svo misjafnt, en helzt vildi ég geta
iegið í sundlaugunum eins oa í daa.
Kotbrun Engllbertsdóttir snyrti-
fræðingur: Ef veðrið er gott reyni ég að
komast i sólbað. Annars er ég við hús-
störfin.
Kristfn Ólafsdóttir, vinnur f unglinga-
vinnunni: Þar sem ég hef aðeins 20
mínútna matartíma verð ég að nota
hann eins vel og ég get og þá oftast til
að borða.
Gerður ísberg, vinnur i ungilngavinn-
unni: Borða og hviii mig.