Dagblaðið - 10.06.1981, Page 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 10. JpNÍ 1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Menachem Begin.
Begin sagði að írakar hefðu verið
fasrir um að smiða þrjár til fimm
sprengjur i likingu við kjarnorku-
sprengjuna sem eyddi Hirósíma árið
1945.
„Með þremur slikum sprengjum
hefðu þeir eytt algjörlega Dan (Tel
Aviv) svæðinu, miðstöð iðnaðar
okkar, verzlunar og menningarlífs.
Hvaða þjóð gæti þolað að hafa slika
hættu við dyrnar hjá sér?” sagði
Begin.
Begin hafnaði alþjóðlegri gagnrýni
sem komið hefur fram vegna árásar
ísraelsmanna á kjarnorkustöðina i
írak.
David Ivry, yfirmaður israelska
flughersins, viðurkenndi að ísraels-
menn hefðu notað þandariskar her-
þotur af gerðunum F-15 og F-16 við
árásina. Begin andmælti því að
ísraelsmenn hefðu misnotað banda-
risk vopn. Um það hefði ekki verið
að ræöa þar sem árásin hefði verið
gerð í varnarskyni.
Aðspuröur sagði Begin að ísraels-
menn myndu ekki láta írak komast
upp með það að reisa kjamorkustöð-
ina að nýju. ,,Ef þeir reyna að smíða
nýjan kjarnakljúf mun ísrael beita
öUum tÚtækum ráðum tU að eyði-
leggjahann.”
Hann hvatti Frakka og ítali, sem
aðstoöað hafa íraka við smíði
kjamakljúfsins, tU að hætta við verk-
Engin ástæða til afsökunarbeiðni, segja ísraelsmenn:
Munum eyða kjamorku-
stöðinni á nýjan ieik
ef írakar reyna
að endurreisa
hana, segir
Menachem
Begin
efnið. Hann sagði að Saddam Huss-
ein, forseti íraks, sem hann kaUaði
„blóðþyrstan harðstjóra” vildi
„eyða tUvem okkar, þjóð okkar og
landi.”
Leiðtogar stjómarandstöðuflokks-
ins, Verkamannaflokksins, sökuðu
Begin um að hafa fyrirskipað árásina
með þingkosningamar i ísrael, 30.
júní næstkomandi, í huga.
Flest dagblöð í ísrael fögnuðu þó
árásinni. Þykir fuUvist að hún verði
til að auka á vinsældir Begins og
þannig styrkja stöðu hans í þing-
kosningnum sem verða innan þriggja
vikna.
Síðustu skoðanakannanir sýna að
Likud-samsteypa Begins hefur nú
tekið forystuna af Verkamanna-
flokknum í kosningabaráttunni.
Mestan þátt í þvi er taUn eiga hin ein-
arða afstaða Begins i eldflaugadeU-
unni, þeirri deilu sem nú hefur algjör-
lega horflð i skuggann af árás ísraels-
manna á kjarnorkustöðina í írak.
ísraclskir hermcnn skipa á land bandarískum eldflaugum. Bcgin hcl'ur mólmælt ásökunum Bandarikjamanna um aó ísracls-
mcnn hafl misnotað bandarisk vopn.
Sovétmenn vara Pólverja við:
SJÁLFSTÆÐIYKK-
ARERÍHÆTTU
— Harðlínumenn í Póllandi færast
alliríaukana
ÁGREININGUR MAGN-
ASTMEDALÍRANA
Tveggja daga götubardagar mUli mjög fyrir klerkaveldinu í lran og
andstæðra pólitískra hópa i Teheran sjálfur segir hann að klerkarnir vUji
hafa skerpt hinar opinberu deUur um hann feigan. TU skotbardaga kom i
framtíð Abolhassan Bani-Sadr, for- Teheran í gærkvðldi mUU stuðnings-
seta landsins. Bani-Sadr, sem þótt manna og andstæðinga Bani-Sadr og
hefur of frjálslyndur, hefur orðið sjúkrahús fylltust fljótlega.
Olíusölubann
á Bandaríkin
Þing Kuwait hefur skorað á ríkis-
stjórnir Arabaríkja og annarra isl-
amskra ríkja að grípa tU harðra og
áhrifaríkra aðgerða vegna árásar ísra-
elsmanna á kjarnorkustööinai írak.
Hin opinbera fréttastofa i Kuwait
sagöi að sumir stjórnmálamenn í land-
inu hefði hvatt til þess að olíusölubann
yrði sett á Bandaríkin fyrir stuðning
þeirra við ísrael.
Ráðamenn í Kreml hafa varað Pól-
verja við að sjálfstæöi landsins sé í
hættu. Aðvaranir Sovétmanna síðustu
daga hafa ieitt til þess að harðlinumenn
í Póliandi hafa færzt alUr I aukana og
framtið umbótahreyfmgarinnar í land-
inu eru nú óráðnari en áður.
Pólverjar fengu að heyra viðvaranir
Sovétmanna bæði I útvarpi og sjón-
varpi í gær er Kania, formaður pólska
Kommúnistaflokksins, vitnaði I bréf
ráðamanna I Kreml er fundur mið-
stjórnar pólska Kommúnistaflokksins
hófst I Varsjá I gær. Ræða Kania var
fyrsta opinbera viðurkenningin á bréfi
Sovétmanna, sem fréttir höfðu borizt
um eftir öðrum leiöum. Bréf þetta er
sagt mjög áþekkt og það bréf sem
Tékkar fengu I hendur skömmu áður
en herir Varsjárbandalagsins réðust inn
ilandiðárið 1968.
Kania viðurkenndi flest gagnrýnis-
atriði Sovétmanna varðandi þróun um-
bótahreyfingarinnar í landinu. Nær
allir þeir 18 ræðumenn sem töluðu á
eftir Kania voru gagnrýnir á hvernig
tekið hefði verið á ólgunni í landinu
undanfarna 11 mánuði og sumir kröfð-
ust breytinga á forystunni i landinu.
Einn ræðumanna gagnrýndi hinar frið-
samlegu samningaviðræður við Ein-
ingu og annar sagði að Kania hefði
ekki verið nógu harður.
Kania sagði að gera þyrfti breytingar
á hinum opinberu fjölmiðlum Póllands
sem að undanförnu hafa sætt harðri
gagnrýni Sovétmanna.
Leiðtogar Einingar ákváðu i gær að
fresta boðuðum verkföllum í fjórum
borgum landsins þar til eftir fund mið-
stjómar Kommúnistaflokksins en
niðurstaöna hans hefur verið beðiö
með mikilli eftirvæntingu. Fyrsti dagur
fundarins þyícir benda til þess að harð-
lfnumenn á Moskvu-línunni ætli að
verða ofan á.
Kania var I gær gagnrýndur fyrir að hafa ekki verið nógu harður gagnvart umbóta-
hreyflngu verkamanna í landinu. Einn ræðumanna gagnrýndi hinar friðsamlcgu
samningaviðræður við Einingu.
Teg.3207
HvíttJgylft leður
Hvítt/Hvítt leður
Marínblátt/Hvítt leður
Rautt/Hvítt leður
Kaki/Hvitt leður
Stærðir: 36—41
Verð kr. 277,80
Skoverzlun
r
ÞORÐAR PETURSSONAR
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll
Sími14181
Laugavegi 95. Sími 13570