Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 10.06.1981, Qupperneq 17

Dagblaðið - 10.06.1981, Qupperneq 17
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ1981. 17 \ Aöalnúmer Hvítasunnurokksins var að sjálfsögöu Any Troublc. Hún kom sinu til skila án sýnilegrar árcynslu. Hvítasunnurokk í Laugardalshöllinni: Dágóðir hljómleikar i heildina séð — en f átt var af áheyrendum Það var fámennt á Hvítasunnu- rokkinu á laugardag. Hræðilega fá- mennt þar sem samkoman var haldin í Laugardalshöllinni. Þó tókst skemmtunin að flestu leyti vel. Þarna tróðu upp fjórar hljómsveitir og Laddi grinaði og deióaði nokkra stund við góðar undirtektir. Það var Taugadeildin sem hóf skemmtunina eftir að leikin höfðu verið lög af segulbandi góða stund. Prógramm deildarinnar var talsvert langdregið. Hljómsveitin hefði orðið áheyrendum enn minnisstæðari en ella ef hún hefði komið meö skothelt fimmtán minútna prógramm í stað þess að teygja lopann með frumsömdum lögum og kópíeruðum i bland. Bara flokkurinn frá Akureyri kom hins vegar á óvart með tónlist sinni. Þarna var allt önnur og mun mark- vissari framleiðsla á ferðinni en hjá Taugadeildinni. Leikur Bara flokks- ins var mjög þéttur, lögin flest skemmtileg á að hlýða og samæfing liðsmanna flokksins mjög góð. Sér- staklega ef haft er í huga að Bara flokkurinn er ung hljómsveit. Eini \ erulegi ókosturinn við dagskrá hennar var hversu söngurinn komst illa til skila. Sömu erfiðleikar hrjáðu söngvara hljómsveitarinnar Start. Á köflum var varla hægt að greina hvað þeir voru að syngja. Annars var frammi- staða Start varla til þess að hrópa húrra fyrir að þessu sinni. Menn voru DB-myndir: Siguróur Þorri Sigurðsson. ósköp dauflr í dálkinn, sennilega þreyttir eftir hljómleikana á Hótel Borg kvöldið áður. Áður en kom að aðalnúmeri dags- ins, Any Trouble, kom Laddi fram og söng tvö lög af plötu sinni Deió. Nú brá svo við að allir textar komust til skila eins og vera bar, enda Laddi með rómsterkari mönnum. Start lék undir hjá Ladda. 1 uppklappi tók hann lagið Stórpönkarinn af tveggja laga plötu sinni sem kom út 1 vor. — Laddi og Bara flokkurinn voru einu atriði Hvitasunnurokksins sem fengu svo góðar viðtökur að þeir þyrftu að takaaukalag. Loks var svo komið að Any Trouble. Meginuppistaða pró- gramms hljómsveitarinnar voru lðg af plötunni Where Are All The Nice Girls. Hljómsveitin var mjög örugg I flutningi sinum og skilaði öllum lög- unum með prýði. Söngur Clive Greg- son var prýðilegur og hljóðfæra- leikur allur smekklegur og hnökra- laus. Einhverra hluta vegna komst nú trommuleikur allur betur til skila en áður og mun betri ballans var milli hljóðfæranna hjá Any Trouble en hjá íslenzku hljómsveitunum. Það sem háði Any Trouble mest var að áheyrendur þekkja ekki lög þeirra. Af þeim sökum voru viðtök- urnar fulldræmar. Það var synd þvi að hljómsveitin flytur ágætis stuð- músik. t heildina séð var Hvítasunnurokk- ið þokkalegasta skemmtun. Vonandi dregur áhugaleysi fólks þó ekki kjarkinn úr forráðamönnum skemmtunarinnar við að flytja inn erlendar hljómsveitir. - ÁT Nokkur ölvun var á Hvitasunnurokkinu. Ekki vantaði gólfpláss fyrir þá scm urðu þreyttir og vildu hvila lúin bcin. Taugadeildin hóf hijómleikana með fulllöngu prógrammi. Clivc Grcgson aðalsöngvari og laga- smiður Any Troublc lét sér ckki brcgða þó að fámcnni væri í Höllinni. Hann og félagar hans rcnndu i gcgnum prógrammið cins og þeir væru að lcika fyrir fullu húsi. Söngvari Bara flokksins frá Akurcyri rcigir sig. Stærsti gallinn v ið þctta númcr var hversu lítið heyrðist til söngvarans. Rokkhljómsvcitin Start var nokkuð frá sinu bc/.ta á Kvítasunnurokkinu. Laddi söng tvö lög af plötunni De’ci, var klappaður upp og tók þá Stórpönkarann.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.