Dagblaðið - 26.06.1981, Blaðsíða 4
Svipuð eyðsla í mat þrátt fyrir kjötskrokk
„Eyðsla í mat og hreinlætisvörur
er mjög svipuð og í siðasta mánuði
hjá mér. Þó eru þarna innifalin kaup
á einum kjötskrokki,”segir m.a. í
bréfi fráhúsmóður fimm manna fjöl-1
skyldu í Reykjavík. Hún er með
rúmlega 580 kr. á mann í maimánuði.
„Liðurinn „annað” er bæði
langur og fjölskrúðugur. Hæst ber
þar útborgun í tjaldvagni og auðvitað
fylgir alls konar viðleguútbúnaður
fast á eftir'. Þessi varningur finnst
mér vera mjög dýr. Svo eru
fermingargjafir og fatnaður. Ekki
má gleyma bílnum, sem skrapp í sína
árlegu ferð upp á Ártúnshöfða og
þurfti á smáviðhaldskostnaði að
halda.
Það er ekki svo erfitt að gera grein
fyrir krónunum sem fara í gegnum
hendurnar á manni. Með kveðju”.
Liðurinn „annað” hjá þessari
Reykjavíkurfjölskyldu var upp á
rúmlega 16 þúsund kr. Benda má á,
að innkaup á borð við tjaldvagn og
viðleguútbúnað verður að skoðast
sem fjárfesting, en ekki eyðsla.
Fjölskyldan á áreiðanlega eftir að
hafa mikla ánægju af þessari fjárfest-
ingu um ókomin ár. — í verðbólgu-
þjóðfélagi er einnig alltaf hægt að
hugga sig við að ef við fjárfestum í
einhverjum nytsömum hlutum erum
við alltaf, ,að græða’ ’.
-A.Bj.
—
vona flatkökupakki kostar 4 krónur og 10 aura. í honum cru 2 kökur. Séu þ*r
.murðar með einu 15 gramma smjörstykki hvor (80 aurar) og á hvora þeirra lagt
i ilt bréf af hangikjöti (5 sneiðar á 6 krónur og 50 aura) fer verðið á hvorri köku-
.ipp i 9 krónur og 80 aura. Það er því að minnsta kosti helmingur af verðinu sem
gt er ofan á.
DB-mynd Gunnar Örn.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ1981.
Mjólkurnýjung:
Þeytiiiómi sem
geymist mán-
uðum saman
Nýi rjóminn er eingöngu í pelaumhúðum eins og þeim sem G-mjólkin er seld I.
DB-mynd Gunnar Örn.
Hver hefur ekki staðið sárreiður og
sótbölvandi með súran rjóma í hend-
inni, einmitt þegar átti að þeyta hann
handa gestum? Þeir sem ekki hafa
gert það hafa að minnsta kosti heyrt
um fólk sem lent hefur í þessari
a^stöðu. En nú ætti enginn framar
að þurfa að lenda í vandræðum með
að geyma rjómann bæði vel og lengi
og eiga hann samt í nothæfu ástandi.
Á markað er nefnilega kominn
geymsluþolinn þeytirjómi. Hann er
36% feitur eins og sá venjulegi en
aðeins dýrari 1 verði. Þannig kostar
peli af þessum nýja þeytirjóma 10
krónur og 40 aura eða 65 aurum
meira en venjulegur rjómi.
Rjóminn er gerður geymsluþolinn
með þvi að hita hann upp fyrir það
mark sem gerlarnir þola. Honum er
sfðan pakkað i loftþéttar umbúðir.
Hann þolir í þeim 2 mánaða geymslu
við venjulegan íbúðarhita. Rétt áður
en hann er þeyttur er hins vegar gott
aö stinga honum í kælinn. Það vita
allir sem reynt hafa að það er nær
ógjörningur að þeyta volgan rjóma.
Neytendasíðan reyndi þennan nýja
rjóma í tilraunaeldhúsinu. Fyrst stóð
rjóminn á sólbökuðu skrifborði
blaðamanns í nokkrar klukku-
stundir. Síðan var hann settur í kæli í
nokkra tíma og loks þeyttur. Ég er
ekki frá því að það taki ögn lengri
tíma að þeyta hann en venjulegan
rjóma og að ekki verði alveg eins
mikið úr honum. En mér var lífsins
ómögulegt að finna nokkurn mun á
bragðinu. Oddur Helgason sölustjóri
hjá Mjólkursamsölunni hafði þó sagt
mér að örlitið hitabragð kynni að
vera að rjómanum. En ég fann það
sem sagt ekki.
-DS.
DýrtáFlúðum:
Hatkakan á
20 nýkrónur
„Er virkilega leyfilegt að selja veit-
ingar á hvaða verði sem er f skemmti-
húsum úti á landi? ” spurði kona sem
hringdi til okkar úr Árnessýslu.
Hún hafði brugðið sér á dansleik á
Flúðum. Þar kostaði 100 krónur inn
og þótti víst flestum nóg. En þegar
gesti tók að svengja síðar um kvöldið
komust þeir að því að enn átti
buddan eftir að léttast verulega. Hálf
smurð flatbrauðskaka með þunnri
hangikjötssneið kostaði 10 krónur
eða þúsund gamlar krónur. Eftir því
kostaði ein flatbrauðskaka sem sagt
20 krónur. Samloka úr hveitibrauði
með þunnri áleggssneið kostaði 15
krónur og innihaldið í gosflösku 5
krónur.
„Já, þetta er frelsið” sagði
Jóhannes Gunnarsson fulltrúi verð-
lagsstjóra þegar hann var spurður að
því hvort þessi verðlagning væri
leyfileg. „Á öllum veitingum á svona
stöðum er frjáls álagning”. Eina
undantekningin, að sögn Jóhannes-
ar, er verð á tóbaki og sælgæti en á
því er hámarksverölagning.
Uti á landi geta þeir líka réttlætt
gjörðir sfnar með því að mikill
flutningskostnaður leggist á vöruna.
Það geta þeir ekki í Reykjavfk og er
þó algengt verð á innihaldi gosflðsku
12—17 krónur á veitingastöðum.
-DS.
/ . V e r ðfcönnun
Gerð 16. júní 1981
S J O P P U R
Höfn Árnesti Fossnesti Arnberg
ís í brauðformi . . .. 7.50 8.50 8.50 8.50
ís í boxi með sósu . . 10.50 10.50
Pylsa 8.00 10.00 10.00 10.00
Kók, lítil 2.30 3.50 3.00 3.50
Fanta, 1 Iítir .. 10.85 13.00
Prins Polo (stórt) 3.70 4.00 4.00 4.00
Thule 4.40 6.50
Síríus súkkulaði, 100 gr. . . . 10.00 10.00 10.00 9.90
Brjóstsykur, 1 poki 4.00 4.10 3.70 4.10
Eldspýtnastokkur 1.05 1.05 1.00
Ritz kex (lítill pakki) . . . .. 10.50 10.50
Bugles . . ... . . 13.00 13.75 15.00
B A K A R f
Brauðgerð K. Á. Guðnabakarí
Vínarbrauð . . 2.10 2.30
Rúnstykki . . 1.25 1.40
Jólakaka .... . . 12.80 13.00
Djöflaterta . . .. 21.20
Sandkaka .. . . . 15.20 15.20
Marmarakaka . . . 15.70 15.20
Snúður .... .. 2.75 2.80
Kúmenhorn . . 1.60 1.70
Sérbakað vínarbrauð . . .. 2.75 2.55
Tebolla .... .. 2.75 3.00
Möndlukaka . . .. 12.80 13.00
Vínarbrauðslengja . . 10.90 10.75
Selfoss:
Vörufistfno — júr
Er Magasín
ódýrast?
— svo segja
forráðamenn þess
Okkur hefur borizt fréttatil-
kynning frá Magasfn-póstverzluninni
íslenzku. í henni kemur fram að
vörur frá Magasini séu á hagstæðara
verði en í erlendum verðlistum og f
verzlunum, samkvæmt könnun verð-
lagsstjóra. Frá þeirri könnun var
greint hér á sfðunni á mánudag og
þriðjudag. Sem dæmi er tekið verð á
þrem hlutum, gallabuxum, Polaroid
myndavélum og Kodak instant fílm-
um. Gallabuxurnar sem Magasfn
gefur upp verð á eru ekki frá sama
framleiðanda og f erlendu verðlistun-
um og í búðum. En að sögn Ástþórs
Magnússonar hjá Magasin er frá-
gangur mjög svipaður svo og efni.
Myndavélin og filmurnar eru hins
vegar nákvæmlega eins. Verðsaman-
burðurinn kemur svona út:
Erlendir listar
Gallabuxur 389,40
Polaroid myndavél 499,00
Kodak instant filma 210,00
Smásöluverzlanlr
(meðaltal könnunar
verðlagsstjóra) Magasln
276,75 189,00
387,00 359,00
85,00 79,00
Varan er pöntuð í gegn um sfma og
send gegn póstkröfu. Full ársábyrgð
er tekin af vörunum.
-DS.
Raddir
heytenda
Höf n hagstæðust f sælgætinu
Blaðið Dagskrá sem gefið er út á
Selfossi gerði nýlega verðkönnun á
ýmsu sælgæti, svo og kaffibrauði.
Neytendasíðan hefur fengið leyfi til
að birta könnunina sem fer hér á
eftir. Eftir henni að dæma virðist
einna hagstæðast af sjoppunum að
verzla í Höfn. Þar er bæði mest úr-
valið og oftast ódýrasta varan.
Bakaríin tvö sem verðið var kannað
hjá eru með næsta svipað verðlag.
-DS.