Dagblaðið - 26.06.1981, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Lokabaráttan fyrir þingkosningamar í ísrael hafin:
SHIMON PERES HEFUR
SPILAÐ ÚT TROMPINU
—Kosningabaráttan snýst nú mjög um persónu Menachems
Beginforsætisrádherra—Erhannþorpaneðahetja?
Shimon Peres, leiðtogi Verka-
mannaflokks ísraels, hefur lagt lang-
vinnar deilur sínar við Jitzaak Rabin,
fyrrverandi forsætisráðherra, á
hilluna og i þess stað sett hann f
fremstu viglinu flokksins í hinni
hörðu kosningabaráttu vegna þing-
kosninganna sem fram fara í ísrael
næstkomandi þriðjudag. Þar meö
hefur Peres spilað út sinu aðal trompi
i kosningabaráttunni.
Rabin sem er talinn vinsælasti
stjómmálamaður Verkamanna-
flokksins, kom fram á blaðamanna-
fundi með Peres í gærkvöldi og
kvaðst verða forsætisráðherra i
stjórn Peresar ef Verkamanna-
flokkurinn færi með sigur af hólmi i
þingkosningunum.
Þessi póhtiska endurkoma Rabins
er mikið áfall fyrir Likud-bandalag
Menachems Begin forsætisráðherra.
Vonir bandalagsins um sigur i
kosningunum höfðu skömmu áður
orðið fyrir áfalli er Peres þótti hafa
betur (sjónvarpseinvigi við Begin.
Siöustu skoðanakannanir sýna að
Likud-bandalagið hefur enn fimm
prósent forystu yfir Verkamanna-
flokkinn en um þrjátiu prósent
kjósenda hafa enn ekki gert upp hug
sinn.
Begin hefur haldið Peres i vörn
lengst af kosningabaráttunnar meö Peres sá harðskeyttari. Hann sakaði
kraftmikilli og harðvitugri kosninga- Begin um að æsa kjósendur til of-
baráttu sinni. Gn í sjónvarpseinviginu beldis. Begin segist hafa oríið svo um
I gær, sem talið er að tvær milljónir þessar árásir frá þessum höfuðand-
fsraelsmanna hafi fylgzt með, var stæðingi sinum i kosningunum að
Jitzhak Rabin (til vinstri) og Shimon Peres hafa nú lagt ágreininginn til hliðar í
von um að Verkamannaflokknum takist á sfðustu stundu að tryggja sér sigur i
þingkosningunum næstkomandi þriðjudag.
,,ég var næstum dottinn af stóln-
um.”
Þeir Peres og Rabin hafa háð
harða baráttu um forystuna i Verka-
mannaflokknum allt frá þvi er Golda
Meir dró sig 1 hlé sem forsætisráð-
herra árið 1974. Rabin, sem var for-
sætisráðherra frá 1974 til 1977,
sigraöi Peres tvívegis 1 baráttu um
forystuhlutverkið í flokknum en í
janúar var það Peres sem hafði betur
á flokksþinginu.
Báðir sögðust þeir i gærkvöldi hafa
strikað yfir ágreining sinn á undan-
förnum átta árum. Hann heyröi nú
sögunni til.
í sjálfsævisögu sinni, sem út kom á
slöasta ári, sakaði Rabin Peres um aö
hafa setið á svikráðum við sig allan
tímann sem hann var forsætisráö-
herra. Hann sagði að Peres væri
spilltur og óábyrgur.
Likud-bandalagið hefur notfært
sér þessa bók mjög i kosningabarátt-
unni til að sýna fram á sundrung í
Verkamannaflok knum.
Skoðanakannanir hafa sýnt að
Rabin nýtur mun meiri vinsælda
meðal kjósenda heldur en Peres.
Undanfarna viku hefur kosninga-
baráttan snúizt mjög um persónu
Menachems Begin forsætisráðherra
þar sem skiptar skoðanir eru um
hvort hann sé hetja eða þorpari.
Verkamannaflokkurinn hefur kallað
hann öllum illum nöfnum meðan
stuðningsmenn hans innan Likud-
bandalagsins hafa hafið hann til skýj-
anna sem manninn sem kom á friði
við Egypta og treysti varnir ísraels
gagnvartumheiminum.
Kosningabaráttan, sem nú er háð i
ísrael, er sú harðasta i manna minn-
um. Til átaka hefur komið á fram-
boðsfundum og hefur ofbeldinu
einkum verið beint gegn Verka-
mannaflokknum. Begin hefur verið
sakaður um að bera ábyrgð á því og
um að leiö að flokkur hans beiti
aðferðum fasista.
Lokaðá
laugardögum
Að gefnu tilefni vill Verzlunarfélag Reykjavíkur vekja at-
hygli félagsmanna á því að samkvæmt reglugerð Reykja-
víkurborgar og samningum VR er óheimilt að hafa verzl-
anir opnar á laugardögum til 1. september nk.
Vinna við afgreiðslustörf á laugardögum til 1. september
brýtur því í bága við landslög og samninga VR.
VR treystir félagsmönnum til að virða landslög og
samninga félagsins.
Verz/unarmannafé/ag Reykjavíkur
Siglingamála-
stofnun ríkisins
Tilboð óskast í innanhússfrágang á ca 650 ferm
húsnæði á 4. hæð á Hringbraut 121 í Reykjavík.
í verkinu er m.a. fólgin uppsetning innveggja úr
timbri, smíði og uppsetning hurða og borða,
endurnýjun á rafkerfi, uppsetning hreinlætis-
tækja, málning og dúkalögn.
Verkinu skal að fullu lokið 1. október 1981.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri gegn
1.000,- kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð
sama stað miðvikudaginn 8. júlí 1981, kl. 11.30.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
FRIÐARGANGA
Þrjú til fimm þúsund manns hófu
síöastliðinn mánudag friðargöngu frá
Kaupmannahöfn til Parísar. Stemning-
in var mikil meðal göngumanna, sem
fæstir munu þó ganga alla leið. Á
borðum sem göngumenn báru mátti
meðal annars lesa áletranir eins og
þessar: „Engin kjarnorkuvopn”,
„Ekkert stríð”.
Slagorð þeirra, sem hófu gönguna á
mánudagsmorgun var: „Gangið með
— einn kilómetra eða þúsund.” Búizt
er við að göngumönnum fjölgi mjög er
gangan fer um V-Þýzkaland og
Holland en þar hefur friðarhreyfmg-
unni vaxið mjög fiskur um hrygg að
undanförnu. Um 500 Englendingar
hafa tilkynnt þátttöku sina i síðasta
áfanga göngunnar til Parisar. Þátttak-
endur eru annars víðs vegar að, frá
Spáni, Bretlandi, frlandi, Hollandi, V-
Þýzkalandi, Rómönsku Ameriku,
Japan og Bandaríkjunum.
Göngumenn leggja upp frá Kaupmannahöfn. Göngunni á að Ijúka 9. ágúst I París og
þá munu þeir, sem gengið hafa alla leiðina, hafa að baki 45 daga göngu.
Sadat er
bjartsýnn
á samkomulag
Anwar Sadat forseti Egyptalands
sagði 1 samtali við hið hálfopinbera
málgagn egypzku stjórnarinnar i gær
að hann ætti von á aö samkomulag
tækist fyrir lok þessa árs um sjálfstjórn
til handa Palestinumönnum á vestur-
bakkanum og á Gaza-svæðinu.
Huang í
sáttajbr
til Indlands
Huang Hua utanríkisráðherra Klna
er kominn ( fimm daga opinbera heim-
sókn til Indlands þar sem hann mun
leitast við að jafna ágreining þessara
tveggja fjölmennustu rikja heims.
Við komuna til Nýju-Delhi lét
Huang í ljós þá von að viðræður hans
viö ráðamenn I Indlandi yrðu „hrein-
skilnislegar, opinskáar og vingjarn-
legar,” og að þær yrðu til þess að
styrkja bðndin sem tengja þessar tvær
þjóðir.
FrúPeron
sýknuð
öðru sinni
Frú Maria Estela Peron, fyrrum for-
seti Argentinu, var i gær sýknuð öðru
sinni á fimm mánuðum af ákærum um
að hafa misnotað sjóði forsetaembætt-
isins meðan hún sat á forsetastóli árin
1974—1976. Dómarinn, Pedro Carlos
Narvaiz, sagði að ekki væru fyrir hendi
nægar sannanir fyrir þessum ásökun-
um.
Frú Peron situr i stofufangelsi vegna
tveggja annarra ákæra um fjárdrátt úr
opinberum sjóðum og um ólöglegan
flutning opinberra eigna. Dómstólar
hafa enn ekki fjallað um þær ákærur
gegn henni.
Frú Peron var steypt af stóli sem for-
seta Argentínu í stjórnarbyltingu hers-
ins árið 1976.
Carlzon
verður
forstjóri
SÁS
„SAS verður haröskeyttara og betra
fyrirtæki og flugið mun skila hagnaði
innan þriggja ára,” segir Jan Carlzon,
sem 1. ágúst næstkomandi mun taka
við æðsta forstjórastarfi hjá SAS-flug-
félaginu.
Carlzon tekur við af Carl-Olov
Munkberg, sem hverfur nú til annarra
starfa eftir að hafa verið forstjóri SAS
síðastliðin þrjúár.
Carlzon segir að þar sem SAS eigi við
sömu vandamál að striða og önnur
flugfélög þá verði það einfaldlega aö
verða betra en önnur flugfélög til að
halda velli. Hann hefur boðað mikla
endurskipulagningu á fyrirtækinu til að
rétta við fjárhag þess. Sú endurskipu-
lagning mun þó ekki felast í því að
boðið verði upp á lægri fargjöld en
áður, segir hann.