Dagblaðið - 26.06.1981, Síða 6

Dagblaðið - 26.06.1981, Síða 6
6 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. JÚNl 1981. Hvað eru „eðlilegar kröf ur um menntun og starfsreynslu” þeirra er vilja ráða sig ífréttamennsku og dagskrárgerð í Ríkisútvarpinu? ÞUUR HÆFNSPRÓFAD- IR, FRÉTTAMENN EKKI undimefnd útvarpsráðs safnar upplýsingum ísumar að tillögu Ólafs G. Qnarssonar „Útvarpsráð samþykkti að fela fjögurra manna undirnefnd að afla upplýsinga um eðlilegar menntunar-i kröfur sem gera þyrfti til umsækj- enda um fréttamennsku og dagskrár- gerðarstörf. Jafnframt skal leita til starfandi frétta- og dagskrárgerðar- manna og heyra álit þeirra á því hvort nauðsynlegt sé að hæfnisprófa um- sækjendur,” sagði Ólafur R. Einars- son útvarpsráðsmaður í samtali í gær. Hann flutti tillögu á siðasta fundi útvarpsráðs um' fyrrnefnda upplýsingaöflun. Auk hans sitja i undirnefndinni útvarpsráðsmennirnir Eiður Guðnason, Markús Á. Einars- son og Ellert B. Schram. „Til að útvarpsráð geti gegnt um- sagnarskyldu sinni sóma^amlega er nauðsynlegt að hafa einhverja mögu- leika til samanburðar á hæfni um- sækjenda. Miklu fleiri sækja um störf á ríkisfjölmiðlunum en áður og nauðsynlegt að átta sig á hvaða eðli- legar kröfur um menntun og starfs- reynslu skuli gera. Þulir sem ráðnir eru gangast undir hæfnispróf. Það gera fréttamenn hins vegar ekki.' Spurningin er sú hvort svo ætti ekki að vera.” Miðað er við að nefnd útvarpsráðs starfi í sumar og skili áliti að hausti. Misjafnt hvað fasteignasalar greida Skattar nokkurra fasteignasala eru kannaðir i dag. Mjög er misjafnt hvað sú stétt manna greiöir til hins opinbera eða allt frá rúmlega sex hundruð þús- undum gkr. upp i tæpiega sautján og hálfa milljón, sem Sverrir Kristinsson í Eignamiðluninni ber. Á eftir Sverri koma þeir Ragnar Tómasson, með 16,2 milljónir, og Kristján Knútsson, með 15,4 milljónir. Þessir þrir fasteignasalar bera af öðrum en fjórði í röðinni er Bergur Guðnasori með 7,5 milljónir. Stefán Hirst, sem ber lægstu skatta af þeim sem eru í úrtakinu, hefur 931 þúsund krónur i ónýttan persónuafslátt sem dregst frá útsvari. Talan í aftasta dáiknum er saman- lagðar skattgreiöslur þegar búið er að draga frá persónuafslátt og barna- bætur. Allar tölur eru í gömlum krónum enda er hér um að ræða skatt- skráársins 1980fyrirtekjuárið 1979. -KMU Sverrir Kristlnsson I Elgnamlðluninni er hæstur fastelgnasulanna I úrtaklnu með 17,4 mUIJónir. Bílaleiga Akureyrar Akureyri: Tryggvabr 14 - S. 21715, 23515 Reykjavík: Skeifan 9 - S. 31615, 86915 Mesta úrvalið, besta þjónustan Við útvegum yður afslátt á bílaleigubílum erlendis Nöfn Árni Stefánsson hrl. Goðheimum 21 tekjusk. 1.090.596 eignarsk. 170.641 útsvar 939.000 skattar ails 2.625.149 Bergur Guðnason hdl. (Húsafell) 4.666.264 117.176 2.382.000 7.452.026 Helgi Úlafsson (Húsaval) 975.380 152.663 671.000 1.918.876 Jóhann Þórðarson hdl. (Alm. fasteignasalan) 1.952.861 78.152 999.000 3.540.967 Jón Magnússon hdl. (Eignamarkaðurinn) 1.315.129 156.129 1.165.000 3.009.698 Kristján Knútsson (Eignamarkaðurinn) 10.502.212 272.700 3.747.000 15.376.593 Magnús Sigurðsson hdl. (Húsakostur) 1.157.115 25.520 742.000 2.325.311 Ragnar Tómasson hdl. (Fasteignabjónustan) 10.815.429 777.220 2.973.000 16.226.597 Stefán Hirst hdl. Fljótaseli 26 28.512 0 1.125.000 639.519 Sverrir Kristinsson (Eignamiðlunin) 8.413.080 1.519.089 3.468.000 17.418.962 Sverrir Kristjánsson (Fasteignamiðlun Hreyfilshúsinu). 4.482.596 120.000 1.336.000 6.595.236 Þorvaldur Lúðviksson hrl. (Húsamiðlun) 1.510.252 206.389 930.000 3.074.864 Þessi trilla er tiisöiu íbátnum er ný Petter dísiivéi. Báturinn er með eir- saumuðum byrðingi ogný standsettur. Uppl. í síma 92-2513. Veízlunin Sporið - Grímsbæ Hannyrðavörur í miklu úrvali, lopi og garn ú gamla verðinu, ódýrar, gjafavörur, sœngurfatn- aður, handklœði, sólfatnaður fyrir börn, sumar- bolir fyrir fullorðna, gallar úr bómull, síðar peysur, verð „ótrúlegt”. Sparaðu þér sporin og fleira. Barna-, gjafa-, og hannyrdaverztunin SPORIÐ Grímsbæ v/Bústadaveg. - Sími82360. Allar nýbygging- ar vega skornar niður um 1% —þannig bitnar samdráttur fjárlaga- f rumvarps jaf nt á öllum vegaf ram- kvæmdum ílandinu „Okkur er gert að fresta þriggja milljóna króna útgjöldum vegna vegaframkvæmda, vegna nýtekinnar ákvörðunar stjórnvalda um aö skera niður fjárveitingar til framkvæmda um 30 milljónir króna,” sagði Helgi Hallgrlmsson, settur vegamálastjóri um stundarsakir, er DB ræddi við hann i gær. „Fyrir þessa ákvörðun, höfðum við vegagerðarstarfsmenn alls úr 411 milljónum króna að spila. Þriggja milljón kr. samdráttur i fjárveiting- um til vegagerðar er þvi minna en eitt prósent,” sagði Helgi. „Við reiknum með, að ná einni milljón króna af samdrættinum af ýmsum reksturs- og fjárfestingar- liðum, sem snúa að Vegagerðinni inn á við. Sfðan verður að fresta fram- kvæmdum, við ráðgerðar nýbygg- ingar vega, svo nemi 2 milljónum króna. Þessi frestun framkvæmda mun ekki bitna á neinni einni fram- kvæmd eða nokkrum slíkum. 2 milljónir eru 1% af því fé sem renna átti til nýbygginga, og ákveðið er, að sérhver nýbygging verði skorin niður um 1%. Þannig bitnar þetta jafnt á öllum fyrirhuguðum framkvæmd- um,” sagði Helgi. - A.St. Bolll Héðlnsson. Sjónvarpið: Bolli ráðinn á fréttastofuna Bolli Héðinsson viðskiptafræði- nemi var f gær ráöinn til afleysinga á fréttastofu sjónvarps næstu fimm mánuði, eða til áramóta. Ákvörðun um aö ráða Bolla var tekin i andstöðu við meirihluta útvarpsráðs. Á fundi ráðsins hlaut annar umsækjandi, Arnþrúður Karlsdóttir lögreglu- maður, 4 atkvæöi en Bolli 3 atkvæöi. „Samvizka min sagði mér að fara svona að, annað hef ég ekki um þetta að segja,” sagði Hörður Vilhjálms- son settur útvarpsstjóri þegar DB spurði hann um ástæðuna fyrir þvi að hann tók ekki mið af umsögn meirihluta útvarpsráðs. Fyrir á fréttastofu sjónvarps er annar lausráðinn fréttamaður, Ólafur Sigurðsson. Sigrún Stefáns- dóttir verður 1 Bandaríkjunum ásamt fjölskyldu sinni næstu mánuði og Ómar Ragnarsson snýr sér að dag- skrárgerð fyrir sjónvarpið um sinn. Ólafi og Bolla er ætlað að fylla skörð Ómars og Sigrúnar. Bolli Héðinsson er langt kominn með nám f viðskiptafræöi i Háskól- anum. Hann var auk þess við nám í fjölmiðlafræðum i Þýzkalandi á árunum 1974 tU 1976. Hann vann á Dagblaöinu fyrstu vikurnar eftír stofnun þess og hefur siðan verið sumarafleysingamaður á blaðinu. ______________________- ARH Kæra vegna netsímynni Norðurár — veiðimenn við Straumana neituðu að hafa nokkuð með netiðaðgera Net sem fannst neðst í Norðurá í Borgarfirði, á móts við svokallaöa Nautshólma rétt ofan Ármóta viö Strauma, varð tUefni kæru, sem bíður afgreiðslu hjá sýslumannsemb- ættínu í Borgarfirði. Samkvæmt upplýsingum Ásgeirs Magnússonar, fulltrúa sýslumanns, voru menn úr Reykjavík með leyfi tU veiða í Straumum daginn sem kæran barst. Þegar að var komið voru þeir ekki að veiðum, en voru við árbakk- ann. Nokkru ofar eða neöst i Norðuránni var net i ánni, en enginn i því fiskurinn. Netið var fest við hólmann, en ekki við landbakkann. Ekki er talið að út í hólmann verði komizt nema synt sé eða farið á bátí. Mennirnir sem veiðileyfi höföu i Straumunum þennan dag, neituðu að hafa nokkuð með net þetta að gera. Lengra er þetta kærumál ekki komið. Taldi Ásgeir lfklegt að það yrði sent RLR tU rannsóknar, þvi eftir er að yfirheyra þá sem við veiðarnar voru í Straumum þennan dag. Ásgeir Magnússon sagði aö ekki lægju fyrir fleiri kærur af þessu tagi hjá embættinu. Á hverju ári berast nokkrar kærur um ólöglegar veiðar, m.a. of margar stengur i ám samtímis og/eðaólöglegveiðarfæri. -A.St. Grandos MOCCA Frostþurrkaö

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.