Dagblaðið - 01.07.1981, Qupperneq 1
7. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR1. JÚLÍ1981 — 144. TBL,
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTII l.-AÐALSÍMl 27022.
Væringarhjá Olís:
ONUNDUR ÞVINGAÐUR
TIL AÐ SEGJA UPP
— íkjölfar breytinga á stjórn og tilfærslna á hlutabréfum ífyrirtækinu
önundBr Áagdnson, fráfarandi for-
stjóri OUa: ifram við afmörkuð
störf.
Miklar væringar eru nú innan
Olíuverzlunar Islands. önundur Ás-
geirsson forstjóri hættir nú í kjölfar
aðalfundar og samkvæmt heimildum
DB þvingaði ný stjórn önund til upp-
sagnar eftir breytingar á hlutafjár-
eign. Nýr stjórnarformaður i Olís er
Gunnar Guðjónsson skipamiðlari og
kemur hann í stað Jóns Ólafssonar
lögfræðings. ,
í morgun var nánast setuverkfall á
aðaidcrifstofum Olis i Hafnarstræti.
Starfsmenn réðu ráðum sínum en í
gær ákváðu þeir að ganga út úr fyrir-
tækinu með önundi. önundur mun
þó sjáifur hafa komið í veg fyrir það.
Samkvæmt heimildum DB mun
önundur kveðja sitt starfsfólk í dag
sem forstjóri, en hann hefur unnið
sajpfellt hjá fyrirtækinu í 34 ár.
Starfsmenn munu halda fund í dag
og talið er líklegt að hinn nýi stjórn-
arformaðúr komi til fundar við
fólkiðidag.
Eftirmaður önundar hefur ekki
verið ráðinn, en helzt er talað um
Svan Friðgeirsson stöðvarstjóra og
eða örn Guðmundsson skrifstofu-
stjóra. Svan sagði i morgun að staðið
hefði til allt frá áramótum að önund-
ur færi. „Það er allt í góðu og hann
verður áfram ráðgjafi, t.d. í samn-
ingum við BNOC og Rússa.”
Svan sagði að hann og Örn tækju
við ákveðnum málaflokkum en ekki
hefði verið nefnd við sig forstjóra-
staða.
Kom þetta flatt upp á starfsmenn?
„Þetta var á vitorði fárra nema þá
e.t.v. allra síðustu dagana.”-JH/A.St
hvor þcssara manna, séra Pétur Sigurgeirsson víttsluhiskup á Akureyri eda
séra Ólafur Skúlason dómprófastur I Reykjarík, er talinn llklepastur til aó reróa
næsti biskup íslands. Myndin af þeim rar tekin i afmœlisreizlu hiskups i pær. Me<)
þeim á myndinni eru konur þeirra, frú Sólreip Ásgeirsdóttir (kona sr. Péturs) og frú
hhba Sigurðardóttir. Á minni myndinni hlýóa hiskupshjónin, herra Sigurhjörn
Einarsson og frú Magnea Þorkelsdóttir, á siing Hamrahlióarkórsins i hiskupsgarói.
DR-myndin Gunnar tirn.
127 þúsund söfnuðust
i afmælissjóð biskups
í tiIefnisjötugsafmælisbiskupsMands.Jierra Sigurbjörns Einarssonar í gær. stofnuöu
vinir hans sjóö sem verja skai til kaupa á prédikunarstóli fyrir Hallgrimskirkju. Sér-
stök bók með nöfnum gefenda var afhem biskupi í gærkvöldi og höföu þá safnazt 127
þúsund kr. Vegna fjölda tilmæta. sérstaklega frá fólki utan al' landi, verður bókin enn
nokkra daga i Hallgrímskirkju og geta gelendur skráð nöfn sin i hana. eða hringt og
tilkynnt um framlag i sjóðinn i síma 10745. -SA.
— sjánánarábls. 10
ÓlafurHákansson
læknirum nýjan
kjarasamninglækna
á Akureyri:
„HagstæÖ-
ari samn-
ingur hér”
„Ég er á þvi að okkar samning-
ur sé heldur hagstæðari en samn-
ingurinn sem var gerður fyrir
sunnan. Það er óhætt að segja að
stjórn sjúkrahússins hafi sýnt
okkar óskum skilning,” sagöi
Ólafur Hákansson, einn úr samn-
inganefnd lækna á Akureyri, í
morgun.
Nýr kjarasamningur Akureyr-
arlækna var undirritaður í gær-
kvöldi og um leið dregnar til baka
uppsagnir 8 aðstoðarlækna og 3ja
sérfræðinga. Á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri starfa í allt 24
læknar.
Til grundvallar nýjum samn-
ingi var lagöur úrskurður kjara-
dóms frá 26. febrúar og sam-
komulag Læknafélags íslands við
fjármálaráðuneytið frá 24. júni
sl. Eitt atriði samningsins á Akur-
eyri er 6% grunnkaupshækkun
frá 1. desember að telja. Það er
hækkun sem læknar á Borgar-
spitala og Akureyri fengu ekki á
sinum tima en aðrir læknar
fengu.
Þá lögðu læknar á Akureyri
miikla áherzlu á aö ráðnir yrðu 2
aðstoðarlæknar i viðbót til
sjúkrahússins. Bent var á mikið
vinnuálag vegna læknaskorts til
rökstuðnings óskinni. Að sögn
Ólafs Hákanssonar var óskinni
vel tekiö og þess vænzt að sjúkra-
hússstjórnin komi henni á fram-
færi við fjármálaráðuneytið.
Þegar læknar eru kallaðir i
sjúkraflug eða sinna öðrum út-
köllum i slysa- og neyðartil-
vikum, tekur gildi dánar- og ör-
orkutrygging að upphæð 1,5
millj. krónur. Sama gildir ef
læknir sinnir slikum útköllum i
fritíma sinum. Ennfremur náðu
Akureyrarlæknar þvi að kostn-
aður vegna námsferða sérfræð-
inga 1 hiutastöðum er nú greiddur
að fullu en ekki i hlutfalli við
stöðugildi læknis, eins og hingað
til. Hins vegar fer tímalengd
greiðslna eftir framlagðri vinnu á
sjúkrahúsinu. -ARH.