Dagblaðið - 01.07.1981, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ1981.
Menachem Begin, forsætisráð-
herra ísraels, lýsti þvi yfír snemma i
morgun að hann yrði í forsæti fyrir
næstu rikisstjóm ísraels eftir að
tölvuspár spáðu að Likud-bandalag
Begins forsætisráðherra og Verka-
mannaflokkurinn, stærsti stjórnar-
andstöðuflokkurinn, fengju því sem
næst jafnmikið fylgi i hinum æsi-
spennandi þingkosningum sem fram
fóruílsraelígær.
Begin lýsti þvi yfir í hópi sigri hrós-
andi flokksbræðra sinna rétt fyrir
dögun i morgun að Likud-bandalagið
væri fært um að tryggja sér meiri-
hluta meðal hinna 120 þingmanna
israeiska þingsins (Knesset).
Tölvuspár bentu til að Likud-
bandalagið og Verkamannaflokkur-
inn fengju 49 þingsæti hvor flokkur
þó ljóst væri að úrslitin kynnu að
breytast um eitt til tvö þingsæti á
annan hvom veginn þegar öll at-
kvæði hefðu verið talin.
Þessi úrslit bentu til að Begin gæti
myndað meirihlutastjórn með aðstoð
Trúarlega þjóðarflokksins, NRP, og
Aguda-bandalagsins, sem er flokkur
heittrúarmanna. Báðir þessir flokkar
höfðu fyrir kosningarnar lofað að
styðja við bakið á Begin. Þeim var
spáð samtals ellefu þingsætum.
Fyrstu tölvuspár spáðu Verka-
mannaflokknum einum til tveimur
þingsætum fram yfir Likud-banda-
lagið og í ljósi þeirrar kosningaspár
lýsti Shimon Peres, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, yfir sigri sínum.
Æsispennandi þingkosningar físrael:
Við höhm meirihluta,
ég mynda næstu stjóm”
—sagði Menachem Begin, forsætisráðherra ísraels, f morgun er tölvuspár spáðu
Likud-bandalaginu og Verkamannaf lokknum jöf nu fylgi
—Shimon Peres reyndist hafa fagnað sigri of f Ijótt
,,Það kemur i hlut Verkamanna-
flekksins að mynda næstu rikisstjórn
ísraels og Verkamannaflokkurinn er
reiðubúinn að gera það,” sagði Per-
es.
En þegar talningu atkvæða var
haldið áfram breyttust tölvuspár og
sýndu nú fram á því sem næst jafnt
fylgi Likud-bandalagsins og Verka-
mannaflokksins. Leiðtogar Verka-
mannaflokksins kváðust þá myndu
bíða með frekari yfirlýsingar þar til
endanleg úrslit lægju fyrir.
Eftir spám tölvunnar að dæma var
ákaflega erfitt að sjá hvernig Shimon
Peres ætti að fara að því að mynda
meirihlutastjórn þar sem hann átti
ekki neina trygga bandamenn meðal
hinna flokkanna ef undanskildir voru
tveir óháðir á vinstri vængnum og
hugsanlega Moshe Dayan, fyrrum
utanríkisráðherra.
Zevulum Hammer, leiðtogi NRP,
sagðist helzt kjósa að mynduð yrði
Peres, leiðtogi Verkamannaflokksins, sem hér sést ásamt Rabin, fyrrum formanni
flokksins, i lok kosningabaráttunnar, var of fljótur að fagna sigri i hinum æsi-
spennandi þingkosningum í ísraei i gær.
r r i
S0SI0LSKU FLOKK-
ARNIR í STÓRSÓKN
þjóðstjórn með þátttöku bæði
Likud-bandalagsins og Verkamanna-
flokksins. ,,Ef það reynist hins vegar
ómögulegt þá er næsti valkostur
minn bandalag við Likud-banda-
lagið,” sagði hann.
Bæði Begin og Peres höfðu í nótt
hafnað hugmyndinni um þjóðstjórn.
Israelskir kjósendur gengu f gær að
kjörborðinu eftir stormasömustu
kosningabaráttu í sögu Israelsríkis þó
Begin hafi mótmælt þeim fullyrðing-
um að þær hafi einkennzt af ofbeldi.
„Lýðræði Israels er eitt bezta lýð-
ræði í öllum heiminum,” sagði
Begin. „Fólk hefur haldið því fram
að kosningabaráttan nú hafi ein-
kennzt af ofbeldi. Það er alls ekki
satt þó vissulega hafi verið örfá dæmi
um ofbeldi hér og þar.”
AIls bauð 31 flokkur fram til þings
en nýir flokkar og smáflokkar fengu
lítið fylgi í þessum kosningum.
Þannig var Moshe Dayan einn kosinn
á þing úr hinum nýja Telem-flokk
hans, sem í upphafi kosningabarátt-
unnar hafði verið spáð 10—15 þing-
sætum. Úrslitin nú voru sigur fyrir
stóru og rótgrónu flokkana. Þannig
virtist Verkamannaflokkurinn hafa
bætt við sig 17 þingsætum frá siðustu
kosningum 1977 og Likud-banda-
lagið hafði bætt við sig fimm þing-
sætum.
KAPPREIÐA veÖmái
Landssamband hestamannafélaga
Fjórðungsmót á Suðurlandi
VERÐ MIÐA
AÐEINS KR.20.-
250 metra skeið, úrslit
Röð Nafn hests.
1 Fannar
2 Skjóni
3 Villingur
350 metra stökk, úrslit
Jóhann Friðriksson
Reykjavik
Þannigveðja ég.
Þetta er auðvelt. Geymið spána
og berið saman við aðrar spár.
Allirgeta verið með.
Miðar seldir hjá umboðsmönn-
um, og hestamannafélögum.
Röð Nafn hests.
1 Kóngur
2 Haukur
3 Óli
Getraun fyrirkappreiðaráfjórðungsmóti áSuðurlandi á
Hellu dagana 2.-5. júlí 1981. Geta á um nöfn þriggja fyrstu
hesta. A. í 250 m skeiði. B. í 350 m stökki.
Móttökustöðvar: Hlíðartún 22, Höfn, Hornafirði, Skaftárskáli, Kirkjubæjarklaustri, Vlkurskáli, Vik. Kf. Skaftf., Vlk. Utibú
Kf. Þórs, Skarðshlíð, Söluskálinn, Steinum, Söluskáli K. R., Hvolsvelli, Verslunin Björk, Hvolsvelli, Bensínafgreiðsla Kf.
Þórs, Hellu, Verslunin Grund, Flúðum, Félagsheimilið Árnes, Sundlaugin Brautarholti, Skeiðum, Fossnesti, Selfossi,
Þrastarlundur, Grímsnesi, Útibú Kaupfélags Árnesinga, Laugarvatni, Tjaldmiðstöðin, Laugarvatni, Eden, Hveragerði,
Allabúð, Hveragerði, Skálinn, Þorlákshöfn, Þverholt, Mosfellssveit, Húsgagnaverslun Á. Guðmundssonar, Skemmu-
vegi 4, Kópavogi, Rakarastofan Fígaró, Hamraborg, Verslunin ösp, Hafnarfirði, Biðskýlið, Hvaleyrarholti.
Sölustaðir í Reykjavík: Ástund, Penninn, Vfðir Starmýri, Austurstræti, Flugleiðir innanlandsflug, Útillf, Hólasport,
Ljúfmetisbúðin Hlemmi og flestir söluturnar. Seltjarnarnesi: Nesval.____________________________________________________
HRAUN
KERAMIK
FRÁ
Erlent
Erlent
‘Erlent
Erlent
—ef marka má niðurstöður skoðana-
könnunaríSvíþjóð
Skoöanakönnun, sem framkvæmd
var i júnímánuði siöastliönum, sýnir aö
sósíölsku flokkarnir í Sviþjóð hafa
aukið mjög fylgi sitt á kostnað borg-
Olof Palme.
aralegu flokkanna. Samkvæmt könn-
uninni fengu sósíölsku flokkarnir 52,5
prósent atkvæöa en borgaralegu flokk-
arnir aðeins 44 prósent.
Jafnaðarmannaflokkur Olofs Palme
fékk 48,5 prósent atkvæða samkvæmt
könnuninni og er þvi á mörkum þess að
ná einn hreinum meirihluta.
Af borgaralegu flokkunum fékk
Hægri flokkur Gösta Bohmans,
fyrrum fjármálaráðherra, mest fylgi
eða 23 prósent og bætti við sig einu
prósenti. Úrslit könnunarinnar eru
mikið áfall fyrir Hægri flokkinn þvi
forystumenn hans höfðu gert sér vonir
um mikla fylgisaukningu í kjölfar þess
að flokkurinn sagði sig úr rikisstjórn
landsins fyrir skömmu.
Miðflokkur Fálldins forsætisráð-
herra, stendur í stað samkvæmt könn-
uninni og fær 14 prósent. Þjóðarflokk-
ur Ullstens utanrikisráðherra tapar hins
vegar fylgi og fær aðeins fylgi 7 pró-
senta kjósenda.
F
HAFNARSTRÆT119. - SIMAR 17910 OG 12001