Dagblaðið - 01.07.1981, Blaðsíða 20

Dagblaðið - 01.07.1981, Blaðsíða 20
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 1981. 20 JÓNAS HARALDSSON Staldrað við í sól og sumaryl hjá Grundf irðingum: „Svona hefur kaup- mannshyskið það - lokar búllunni” fslendingar eru sólarþyrstir og nýta vel þá fáu daga, sem gefast. Enda er engin ástæða til annars og rétt að meðtaka vitamin sólarljóss- ins þegar kostur er. Dagblaðið var á ferð i Grundarfirði á fimmtudaginn og hitti á óvenju sólrlkan og hlýjan dag. Það var eins og við manninn mælt, allir, sem vettlingi gátu valdið drifu sig út i sólina. Það var að visu bundið við þá, sem ekki þurftu að sinna skyldu- störfum innandyra. En rólegt var í fiskvinnslunni, þannig að menn gátu skotizt út undir bert loft annað veifið. Konur og karlar unnu i görðum sínum, máluðu húsþök, dittuðu að girðingum og þvoðu farartæki sín. Sumir leyfðu sér það, að liggja heiðarlega i sólbaði. Það er mun ódýrara en aö sækja sólina suður að Miðjarðarhafi. Kaupmaðurínn á staðnum, Emil Magnússon, sá sér ekki annað fært en að loka verzlun sinni vegna veðurs. Sundlaug Grundfirðinga var mikið notuð, sérstaklega af yngra fólkinu. Myndirnar tala sínu máli af skrifstofufárviðrinu á Grundar- firði. -JH. „Svona hefur kaupmannshyskið það, lokar búllunni," sagði Emil Magnusson kaupmaður i Verzlunarfélagmu Grund. Þrír ættliðir, sem allir vinna i verzluninni, fengu þar með frí. Næst Árna er kona hans, Ágústa Árnadóttir, þá dóttirin Ágústa og dótturdóttirin Grima Guðmundsdóttir. Ekki má gleyma tikinni Sponnu, sem Emil heldur á. Hún er sjö ára og mesta merkisskepna. Þær spásseruðu með barnavagninn, stöllurnar þrjár, íris Anna Hreins- dóttir, 8 ára, Linda Björk Árnadóttir 13 ára og Brynja Guðnadóttir 16 ára. — Tilvalið var að nota þurrkinn og allar brækur i húsinu drifnar út á snúru. Sólin sleikt í orðsins fyllstu merkingu. Undir húsveggnum liggja Hjördís Bjarnadóttir með dóttur sina Ingibjörgu Ingadóttur og Kristborg Hákon- ardóttir með dætur sinar tvær, Evu Björk og Hildi Srf Lárusdætur. Sundlaugin er vinsæl, ekki hvað sizt hjá smáfólkinu. Pelinn er góður i hitanum, jafnvel þótt aðeins sé vatn á honum. Sólbruninn á herðunum var farinn að leika þessa galvösku málara heldur grátt, eða rautt öllu heldur. Þeir unnu við að mála hús Pósts og síma og heita Óskar Jónsson, Árni Ingólfsson og Már Guðmundsson. Þeir eru ekki heimamenn, heldur úr Kópavogi, en komnir til að flikka upp á húsið. „Það er engin vinna i dag," sagði Aðalheiður Birgis, 18 ára heima- sæta. „Vinnan liggur að mestu niðri, nema hjá þeim sem eru að mála." DB-myndir Jónas Haraldsson.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.