Dagblaðið - 01.07.1981, Blaðsíða 28
Samningur um aðlögunargjald við EFTA afar ólíklegur:
Niðurfelling aðstöðugjalds
og launaskatts meira virði
—fyrir iðnaðinn, segir Tómas Arnason iðnaðarráðherra
„Það er nú stundum ekki rétt eftir
haft sem maður segir. Það er til
dæmis alveg rangt, sem fram hefur
komið í einhverju blaði, að ég vilji
alls ekki leggja á þetta aðlögunar-
gjald. Ég hefi ekki sjálfdæmi í mál-
inu,” sagði Tómas Árnason
viðskiptaráðherra i viðtali við DB í
morgun.
,,Ég hefi þvert á móti talað við
æðstu menn, sem fjalla um þessi mál,
Og rætt ýmsa möguleika. Vitanlega
hefur aðlögunargjald komið til
umræðu,” sagði Tómas.
Hann kvað EFTA hafa samþykkt
þetta gjald árið 1979, enda var
aðlögunartiminn þá ekki liðinn. Af
þeirri ástæðu lét EBE þetta þá
afskiptalaust.
„Enda var þá bent á að þegar
aðlögunargjaldið var sett á hafi
íslendingar lofað að fella það niður
um sfðustu áramót. Við það var
staðið,” sagði ráðherra.
,,Ég hefi látið í ljós að ég teldi rétt
og skyldast að halda gerða samninga
yfirleitt, og þá ekki síður þá, sem
skipta okkur mjög verulegu máli,”
sagði Tómas Árnason.
Hann kvaðst draga i efa að EFTA
myndi samþykkja sllkt gjald núna.
Tómas kvaðst aftur á móti hafa lagt
áherzlu á að fella niður ákveðin gjöld
af iðnaðinum, svo sem aðstöðugjald
og launaskatt.
„Slíkar ráðstafanir tel ég að skipti
verulegu máli fyrir iðnaðinn og mun
meira en algerlega óviss eitt prósent
hér og annað þar,” sagði Tómas
Árnason viðskiptaráðherra. -BS.
Farbann „sölumannanna” framlengt til 1. október:
SÖUJMANNAMÁUD SfT-
UR FAST í HÆSTARÉTTl
— dómari fæst ekki—ákæra enn óbirt og málið ekki þingfest fyrir réttarhlé
„Sölumannamálið”, sem svo
hefur verið nefnt, situr fast í dóms-
kerfinu. Réttarfarslegt atriði varð-
andi þetta mál hefur með óvæntum
og ófyrirsjáanlegum hætti borizt
Hæstarétti til úrlausnar.
Þannig hvilir málið hjá Hæstarétti
enda þótt ekki sé búið að birta ákæru
eða þingfesta það í Sakadómi.
Hvað mesta athygli í „sölumanna-
málinu” hefur það vakið, að áhugi
þeirra og viðskiptavinar þeirra beind-
ist um skeið að hitaveituframkvæmd-
um i Borgarfirði. Að minnsta kosti
var í það látið skína.
Hitt vakti ekki síður athygli þegar
„sölumennirnir” seldu sildarverk-
smiöjuna á Djúpuvik eða það, sem
eftir var af henni.
„Sölumennirnir voru kvaddir fyrir
sakadómara í gær og var þeim til-
kynnt að farbann þeirra væri fram-
lengt til 1. október fyrst um sinn.
Aðstoðarríkissaksóknari, Bragi
Steinarsson, hefur unnið að því að
semja ákæru á hendur „sölu-
mönnunum” i fjölmörgum liðum.
Var nú komið að því að dómari birti
hanafyrir þeim.
Yfirsaksóknari, Halldór Þor-
björnsson, fékk Gunnlaugi Briem
það verk, sem og dómsmeðferð
málsins.
Með skirskotun til 30. gr. laga um
meðferð einkamála i héraði í kaflan-
um um dómara, úrskurðaði Gunn-
laugur Briem sig frá málinu. í ofan-
greindri grein segir meðal annars: Ef
mál er sérstaklega umfangsmikið eða
vandasamt að öðru leyti, svo að ætla
má, að hinn reglulega dómara skorti
tíma frá öðrum embættisstörfum eða
sé af öðrum ástæðum ofvaxiö að fara
með það, getur dómsmálaráðherra
skipað sérstakan dómara til að gegna
því, enda hafi hinn reglulegi dómarí
færzt undan að sinna máli af
nefndum ástæðum.
Samkvæmt 171. gr. laga um með-
ferð opinberra mála getur saksókn-
ari einn kært til æðra dóms úrkurði
dómara, að hann skuli ekki fara með
mál.
Ríkissaksóknari kærði þvi úrskurð
sakadómarans til Hæstaréttar. Mun
Hæstiréttur eiga að dæma málið
innan 10 daga. Sýnist þá tvennt koma
til greina. Annars vegar að úrskurði
dómarans verði hnekkt eða hins
vegar að hann verði staðfestur. Fari
svo, er komið að því að finna annan
dómara til þess að fara með málið og
dæmaþað.
Tilvik eins og það sem hér var
greint frá munu mjög fátið en þó
ekki með öllu fordæmislaus, eftir þvi
sem lögfróðir telja.
-BS.
KOMU ÍTALIR MED SÓLINA?
Það sem haft hefur verið á orði um rigninguna og skemmtiferða- I skýjað en síðan létti til og undir hádegið var komið finasta veður..
skipin í höfn rœttist ekki í morgun er ítalska skemmtiferðaskipið Kannski ítalirnir hafi haft með sér örlítið af suðrœnni sól.
Federico C lagðist við akkeri á ytri höfninni í Reykjavík. A ð vísu var | DS/DB-mynd S.
fiýálst, úhád dagblað
MIÐVIKUDAGUR1. JÚLÍ1981.
Utan-
garðs-
menn
hættir?
Allt er nú óráðið um framtið hljóm-
sveitarinnar Utangarðsmanna eftir að
meðlimir hennar ákváðu skyndilega að
hætta hljómleikaferðinni um Norður-
lönd, þar sem þeir hafa leikið við góð-
an orðstír að undanfömu. Síðustu
hljómleikar hljómsveitarinnar vom á
Hard Rock Café i Osló í gærkvöld og
tókust þeir, að sögn, frábærlega vel.
Guðmundur Sveinsson í Osló, sem
verið hefur Utangarðsmönnum innan-
handar á hljómleikaferðalaginu og séð
um flestar bókanir, sagði í samtali við
DB í morgun að margar ástæður lægju
að baki þvi að hljómsveitin hætti
hljómleikaferðinni nú. Strákarnir-
hefðu leikið á um 40 hljómleikum í
Noregi, Svíþjóð og Danmörku á und-
anförnum 60 dögum og álagið þvi
mikið. Þá hefðu þeir einnig flestir
veikzt af inflúensu i Kaupmannahöfn
fyrir skömmu og Bubbi hefði þar að
auki fengið hálsbólgu. Ekki sagði
Guðmundur að neitt væri ákveðið um
framtíð hljómsveitarinnar nú, en Utan-
garðsmenn kæmu heim til íslands á
mánudag. Það væri hins vegar synd ef
hljómsveitin hætti þvi að hljómleikarn-
ir á Hard Rock Café i gærkvöldi hefðu
verið þeir beztu sem hljómsveitin hefði
haldið fram að þessu.
-ESE.
IVIKU HVERRI
Vinningur
vikunnar:
Crown-sett
frá Radíó-
búðinni
Vinningur í þessari viku cr
Crown-sett frá Radióbúðinni.
Skiphoiti 19. Reykjavik. I vikunni
verður birt, á þessum stað i blað-
inu, spurning tengd smáauglýsing-
um Dagblaðsins. Nafn heppins
áskrifanda verður siðan birt
daginn eftir i smáaugiýsingum og
gefst honum tœkifœri á að svara
spurningunni. Fylgizt vel með,
áskrifendur. Fyrir nœstu helgi
verður einn ykkar giæsiiegu
Crown-setti, rikari.
c ískalt
beven up.
p
hressir betur.