Dagblaðið - 01.07.1981, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 01.07.1981, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. MIÐVDCUDAGUR 1. jULl 1981. 17 GRÆNLENDINGAR LEITA EFTIR AUKNUM SAMSKIPTUM \ — þjóðhátíðíGræn- landi á næsta árí til minningarum 1000 ára landnám norrænna manna Grænlendingar halda þjóðhátið á næsta ári I tilefni þúsund ára landnáms norrænna manna sem miðað er við landnám Eiriks rauða þar. Þjóðernis- vitund Grænlendinga er vakin til at- hafna eftir nýfengna heimastjórn, sem þeir heimtu íir höndum Dana. Hikandi þrá þeirra eftir samkennd með næstu nágrönnum sinum á tslandi er greini- leg. Þrjátiu og fimm grænlenzkir sveitar- stjómarmenn hafa verið hér f heimsókn í boði og leiðsðgn Sambands islenzkra sveitarstjóma undanfarna viku. Þeir Magnús Guðjónsson og Unnar Stefánsson gáfu fréttamönnum tæki- færi til að hitta nokkra fulltrúa þessara velkomnu gesta i Norræna húsinu á föstudaginn var. Grænlenzku sveitarstjórnarmennirn- ir áttu raunar fmmkvæði að þessari heimsókn. Ferðuðust þeir víða um ís- land. Höfðu þeir sérstakan áhuga á þvi að kynnast þvi, meðal annars, hvernig aðild sveitarfélaga að atvinnulifi og fyrirtækjum væri hérlendis í byggðar- lögum, sem vegna stærðar og atvinnu- hátta svipaði tíl heimabyggða þeirra. Fullyrða má að þessi heimsókn markar timamót í samskiptum íslendinga og Grænlendinga. Gestírnir lýstu miklum áhuga á því að kynnast samvinnuhreyfingunni hér. Töldu þeir áhrif hennar á þróun at- vinnulifs og verzlunar geta orðið tíl mikUs lærdóms fyrir sig. Meðal þess sem vakti hvað mestan áhuga þeirra var skinnaverkun sú sem lengst er komin hér. Þá þóttí þeim áhugavert aö sjá hér frystihús og fiskiðnað og starfiö við hann. ,,Við höftun mörg álíka fiskiðju- ver og þau sem við höfum séð hér. Aðalmunurinn er sá að vinnuaflið hér er stöðugra. Hér starfa menn yfirleitt annaðhvort á sjó eða landi. Þetta er sfður en svo algilt á Grænlandi,” sögðu fuUtrúar grænlenzkra sveitarstjómar- manna. Þeir kváðu skorta á skipulag. Veiðihvötín væri rik og þörfin á afla ætið mikil. Þegar toppar kæmu i veiðina færu stundum fleiri á sjó en heppUegt væri. Fyrir kæmi að þetta Grænlenzkir sveitarstjórnarmenn á fundi meö fréttamönnum. Frá vinstri: Magnús Guðjónsson og Unnar Stefánsson frá Sambandi fsl. sveitarfélaga, Uvdlo Kristiansen frá Nuuk, Karl Möller frá Umanak, Christian Ryberth frá Kasiangianguit og Lars Nielsen frá Kákortæk. DB-mynd Sig. Þorri. Brösótt hjá siimiim myndlistarmönnum —en margir þó með dr júgan eignarskatt íslenzkum myndUstarmönnum gengur misjafnlega, mörgum brösug- lega, að afla sér Ufsviðurværis ef gengið er út frá þvi að þeir gefi aUir upp réttar tekjur sinar. í úrtaki dagsins eru 16 myndlistarmenn sem alUr hafa skapað sér nafn og geta þvi verölagt sig eftir þvi. Aðeins helmingur þeirra greiðir yfir hálfa mUljón i útsvar en út frá þeim skatti er bezt að átta sig á upp- gefnum tekjum þeirra. Enginn þeirra stendur verulega iqjp úr en hæstur er Kári Eiriksson með 3,6 miUjónir gkr. i heildarskattagreiðslur. Næstur honum er Sveinn Björnsson með rúmar þrjár mUljónir en rétt er að taka fram að hann er i fidlu starfi sem rannsóknarlögreglumaður. Athyglisvert er að meirihlutí mynd- Ustarmannanna greiðir yfir eitt hundrað þúsund kr. i eignarskatt sem bendir til þess að þrátt fyrir Utlar tekjur sumra hafi þeim þó tekizt að aura saman tU fjárfestinga i eignum. - KMU Nðfn tekjusk. eignarsk. útsvar skattarals Baltasar 1.189.503 136.386 864.000 2283.326 Björg Þorsteinsdóttir 0 139.573 84.000 178.807 Enar Hákonarson 870.524 0 1.062.000 1.920.350 Eríkur Smith 1.174.351 0 750.000 2.057.001 Hringur Jóhannesson 193.621 0 326.000 519.518 Jakob Hafstein 90.950 0 405.000 573.307 Jóhannes Jóhannesson 1.331.767 0 811.000 2.215.020 Jónas Guðmundsson 524219 6.160 767.000 1.095.868 Kári Eriksson 2.315.425 122.533 1.050.000 3.605.908 Kristján Daviðsson 140.282 103.359 304.000 605.456 Pétur Friðrik 645.364 287.231 596.000 1.689.130 Ragnheiður Jónsdóttir 121.200 272.700 236.000 603.940 Steinunn Marteinsdóttir 0 155.426 197.000 445.071 Sveinn Bjömsson 1.813.889 15.974 1.000.000 3.014.763 Sverrir Haraldsson 0 155.426 159.000 313.050 úriygur Sigurðsson 385.469 262.349 413.000 1.273.589 yrði tíl þess að afli hlæðist upp, jafnvel svo aö hann lægi undir skemmdum. í rækjuvinnslu væru einungis konur. Þar væri vinnuálag þá stundum svo mikið og skipulagslitið að hið sama gerðistþar. „ Við teljum að það yrði okkur mikill styrkur aö fá ráðgjöf kunnáttumanna frá islandi á ýmsum sviðum,” sögðu þeir. „Það eru talsverð átök um það hvort við eigum aö halda áfram aðild að Efnahagsbandalaginu. Þegar um aðiid var kosiö tóku milli 50 og 60% manna þátt í atkvæðagreiðslu. Um 75% Grænlendinga voru andvigir aðild þá,” sagði einn talsmaður Grænlendinga. Þeir sem eru fylgjandi aðild nú benda á þann stuöning sem Grænlend- ingum hefur verið veittur af banda- laginu, meðal annars til þess að auka afla og fiskvinnsiu. Þeir vildu leiða hjá sér að svara þvi beint hvað þeir hefðu látið af handi i staöinn. Hins vegar kváðu þeir dönsk stjómvöld tala ótæpQega um það aö ef stuðningi bandalagsins yrði hætt skyidu Grænlend- ingar vita að þeir fengju hann ekki hjá Dönum. Það eru augsýniiega mikil átök um málið og úrslit i kosningunum i febrúar næsta árafaróviss. Meðal þess sem gert er til að efla samskiptí fslendinga og Grænlendinga má nefna að vinabæjasambönd eru nú stofnuð milli margra bæja hér og þar. Samband ísl. sveitarstjórna býður tveim fötíuðum börnum hingað vegna árs fatlaðra. fþróttasamband Grænlands býður íslenzku æskufólki til hátiðahaldanna I tilefni af landnámi norrænna manna á Grænlandi næsta sumar. Æskulýðsráð rikisins hefur tekið opnum örmum hugmyndum Græn- lendinga um samstarf. Fulltrúar grænlenzku sveitarstjórn- anna voru afar ánægðir með dvölina hér og allan viðurgerning. Létu þeir i ljós vonir um aukið samband og nánari samvinnu við fslendinga, þar sem þeir töldu sig I flestu tílliti þiggjendur. -BS. Fleirí góðir gestir í Arneshreppi: SÖNGSKEMMTUN UNDIR SÓLSETUR Hjónin Sigríður EUa Magnúsdóttír mezzosópran og Simon Vaughan barýton héldu söngskemmtun í Árneshreppi á fimmtudaginn. Undir- leikari á píanó var Jónas Ingi- mundarson. Um 100 áheyrendur kunnu vel að meta hæfni þessara frábæru Usta- manna. fbúar Árneshrepps eru um 170 og var nær 80 ára aldursmunur á elztu og yngstu áheyrendunum. Móðir Sigriðar Ellu, Leopoldína Bjamadóttír, er fædd á Bæ i Tré- kyUisvík og var hún meðal áheyr- enda. Það var klappað hressilega og að síðustu sungu þau hjónin sólsebtrs- ljóð Bjama Þorsteinssonar og féU það vel viö sólsetrið á þes.'u fallega kvöldi í Ámeshreppi. Undruðust áheyrendur að heyra Símon syngja a góðri islenzku. Þessarar síðusm viku verður lengi minnzt í Árneshreppi fyrir komu góðra gesta, því fyrr I vikunni heim- sótti forseti Islands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, og föruneytí Árneshrepp. Hafi allir þessir ágætu gestir kærar þakkir fyrir komuna. Þeirra er minnzt með hlýhug og ánægjubrosi út aðeyrum. • Regina, Gjögri. Kylfingar RLR hirtu tvo farandbikara á Hellu —þarf ekki f rekari rannsóknar við Níu manna flokkur kylfinga frá Rannsóknarlögrelgu rlkisins fór með sigur af hólmi i viðureign við Golf- klúbbinn á HeUu um helgina. Fóru RLR-kylfingar i bæinn með tvo farandbikara sem um var keppt. Helgi Danielsson vann annan bikar- inn án forgjafar en um hinn bikarinn var keppt meö forgjöf. Þann bikar vann Amar Guðmundsson. HeUu-kylfingar eru engin lömb að leika sér við en ofangreind tvö nöfn vekja grunsemdir um aö þeir hafi átt við ofurefii að etja. Benda úrslitin raunar tíl þess að ekki þurfi þær grunsemdir frekari rannsóknar við og málið að fuUu upplýst. Hyggja HeUu-kylfingar á grimmi- legar hefndir i næstu viðureign við Rannsóknarlögreglu rUrisins. - BS Lokaö vegna SUMARLEYFA TIL10. ÁGÚST Sœlgœtisgerðin Víkingur hf. r NÁMSGAGNASTOFNUN A thugiö! Frá l.júlí er símanúmer stofnunarinnar 28088

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.