Dagblaðið - 01.07.1981, Page 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ1981.
3
„Hundaæði” á Patreksfírði
—Lögreglumenn tukthúsa hunda sem ganga lausir
Krislján Pétursson, Patreksflrði,
hringdl:
Ég vU vekja athygli á undarlegu at-
ferli lögreglu og sveitarstjóra hér í
plássinu að undanförnu. Fyrir hvíta-
sunnu skrifaöi sveitarstjóri hundaeig-
endum bréf þar sem hann varaði
menn við að eftir 5. mai væru allir
hundar sem lausir gengju réttdræpir.
Sfðan hafa lögreglumenn verið að
eltast við hundagreyin og stundum
hafa þeir jafnvel verið lokaðir inni í
fangaklefum.
Um daginn var ég staddur úti á sjó
og var kallaður upp i talstöðinni af
Iögreglunni með miklum látum. Ég
hélt sem vonlegt er að eitthvað óhapp
hefði orðið en þá voru þeir bar að
spyrja mig hvað gera ætti við
hundinn minn sem sat vist þá
stundina I fangaklefa lögreglunnar.
Ég baö þá um að keyra hann heim
sem síðan var gert.
Nú þykist ég vita að þaö sé ekki
Iögum samkvæmt að hundar séu
látnir ganga lausir, þó flestir hafi haft
þann háttinn á hér á Patreksfirði sem
víðar. Það sem mér finnst skrýtið er
að eitt er ekki látið yfir alla hunda og
hundaeigendur ganga. Sumir veröa
að standa I stöðugu sambandi við
lögregluna á meðan ekki er hróflaf
við öðrum.
Það er svo annað mál sem lög-
gæzlumenn mættu veita meiri
athygli, en það er féð, hestarnir og
flækingskettirnir sem ganga lausir
hér i piássinu.Oftlega hefur veriðyfir
þessu kvartað en ekkert gert. Annað
dæmi um það sem sveitarstjóm og
önnur yfírvöld hér mættu taka til at-
hugunar, eru hafnarmálin. öll
hafnar- og löndunaraðstaða er til
háborinnar skammar og nú siöast
tókst þeim að eyðileggja málninguna
á smábátunum hérna með þvi að
dæla hrá- og svartoliu I sjóinn. Við
erum auðvitað rukkaðir um aðstöðu-
og hafnargjöld en okkur finnst það
nú frekar ósanngjarnt á meðan
hafnaraöstaðan er ekki betri.
Að síöustu gæti ég nefnt að lög-
reglumenn mættu opna augun fyrir
því að hér keyra menn um plássið á
númerslausum og óskoðuðum bllum
en einblina ekki bara á hundagreyin,
sem engum eru til tjóns.
„Lngt fólk getur vafalaust sagt okkur eitthvað um þennan eða hinn jazzleikarann
en hver er forsætisráðherra íslands veit það kannski ekki.”
UNGT FÓLK MÆTTI
VERA FORVITNARA
Hundum og löggæzlumönnum semur ekki alltaf, en jafnan hafa löggæzlu-
mennirnir betur. \ Patreksíirði hafa þeir þann háttinn á að stinga hundunum í
steininn hafi þeir gerzt brotlegir við mannanna lög.
Raddir
lesenda
FLÍKUR TÝNDUST
í HÖLUNNI
Siggi flug (7877-8083) sltrifar:
Mér finnst oft leiðinlegt hve ungt
fólk er lítið forvitið. Ungt fólk spyr
afar lítið um ýmsa hluti og lætur sig
lítið varða hitt og þetta ef frá er talin
liðandi stund. Ungt fólk, með örfá-
um undantekningum lætur sig lltið
varða ættir og uppruna og veit oft
ekki deili á nema I mesta lagi nöfnum
nánustu vandamanna, afa og ömmu.
Sá sem aldrei spyr verður litils vis.
Það er lika oft gaman að þvi að
lesa þýöingar I fjölmiðlum, bæði I
rituðu máli og svo á öldum ljósvak-
ans, þar sem úr ýmsum þýðingum
verða skemmtilegir hlutir. Ég ætla að
taka hér nokkur dæmi af handahófi
en af nógu er aö taka.
I ,,westra” (i sjónvarpi) er talaö
um, ,A quick drawer comes to town”
(gæti verið: byssuglaður maður
kemur I bæinn”). Þetta var þýtt:
, .Hraðteiknari kemur i bæinn. ”
Annað: ,,He had earth in his
shoes”. Þýtt: „Hann var með
jörðina i skónum.” Ennfremur: Það
er talað um Mounted Police sem er
kanadiska riddaralögreglan. Þýtt:
Fjalla-Iögregla. To mount a horse er
að fara á bak hesti. Af mörgu er að
taka og alþekktur er gamli brandar-
inn þar sem sagt er að einhver hafí
þýtt spurninguna „Hver á þessa
bók?” svo á ensku: „Hot spring river
this book?”
Það er leiðinlegt hve ungt fólk er
lítið spurult og þess vegna veit það
líka einkennilega litið og lætur sig
ekki varða um neitt sem það hefur
ekki áhuga á. Hvernig var það meö
Jón Sigurðsson (forseta Hins íslenzka
bókmenntafélags)? Hann var talinn
fyrsti forseti tslands af einhverjum
sem var spurður. Að visu er þetta
nokkuö ruglandi, Jón Sigurösson er
ávallt nefndur forseti (Hins isl.
bókmfél.). En forseti Alþlngis var
hann nokkrum sinnum.
Ungt fólk getur vafalaust sagt
okkur eitthvað um þennan eða hinn
jazzleikarann en hver er forsætisráð-
herra íslands veit það kannski ekki.
Þetta er ekki nógu gott.
Fólk er oft býsna fáfrótt, veit
aðeins takmarkað um fáa hluti, en
svo eru aðrir sem vita heilmikiö um
ýmsa hluti.
Mér þetta þetta (svona) 1 hug.
Blá kvenmannskápa og tvær kari-
mannayfirhafnir úr leðri töpuðust á
miðnæturskralli Bandalags isl. lista-
manna i Laugardalshöll sl. laugar-
dagskvöld. Þeir sem kunna að hafa
tekið flikurnar I misgripum eða vita
eitthvað um hvað af þeim varð eru
vinsamlega beönir að hafa samband
við húsvörð Laugardalshallar strax.
NOTAÐIR
BÍLAR
Seljum
jr
/
dag
SAAG 99 GL 74, 4ra dyra, beinskiptur, ekinn 87 þús. km.
SAAB 99 GL 76, 4ra dyra, beinskiptur, ekinn 83 þús. km.
SAAB 99 GL 77, 2ja dyra, beinskiptur, ekinn 68 þús. km.
SAAB 99 GL 78, 2ja dyra, beinskiptur, ekinn 68 þús. km.
SAAB 900 GLS 79, 3ja dyra, beinskiptur, ekinn 25 þús. km.
Lancia A112 77, 2ja dyra, beinskiptur, ekinn 58 þús. km.
Lancia A112 '80, 2ja dyra, nýr bíll, beinskiptur.
TOCCUR HF.
SAAB UMBODfD
BÍLDSHÖFÐA 16.
SÍMI 81530
Ferflu f ferðalag í
sumar?
Hafllðl Jónsson, 10 ára: Ætli það, en
ég fer á reiðnámskeið i sumar.
Aldb Björg Sigurðardóttir, 7 ára: Það
veit ég ekki.
Magnús Tómauon, 8 ára: Nei, ég býst
ekki við þvi að ég fari neitt.
Erna Maria Elnandóttlr, 7 ára: Já, en
ég veit ekki hvert.
Sævar Daviðuon, 8 ára: Já, ég fer I
ferðalag, en ég man ekki hvert.