Dagblaðið - 01.07.1981, Qupperneq 6
6
Rafmagnsveitur
auglýsa laust til umsóknar starf innheimtustjóra. Laun eru
samkvæmt kjarasamningi BSRB og ríkisins, launaflokkur
B-16.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun, aldur og fyrri
störf sendist starfsmannastjóra.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118, Rvk.
Bilasmiðja Sturlu Snorrasonar
Dugguvogi 23 — Sími 86150
Byggjum yfir allar gerðir
pick-up bíla, fallegar
og vandaðar inn-
réttingar
Getum enn tekið nokkra
bíla fyrir sumarfrí.
TILKYNNING
Það tilkynnist hér með að Ingi R. Helgason hrl. hefur
hætt lögfræðistörfum á skrifstofu þeirri, sem hann hefur
starfrækt í Reykjavík síðastliðin 28 ár.
Við rekstri skrifstofunnar að Laugaveg 31 hér í borg
tekur alfarið Guðjón Ármann Jónsson hdl. og rekur
hann skrifstofuna undir eigin nafni og á eigin ábyrgð frá
og með 1. júlí 1981.
Reykjavik, 30. júni 1981
Guðjón Ármann Jónsson hdl.
Ingi R. Helgason hrl.
AUSTURSTRÆTI 8 - SÍMI 13707
Dúkkukerrur og vagnar — 10 gerðir
Te'r'L PÖSTSENDUM
LEIKFANGAVERZLUNIN
JÓJÓ
Amerísk bif reiðalökk
Þrjár línur í öllum litum
DAGBLAÐID. MIÐVIKUDAOUR 1. JÚLl 1981.
(ig Erlent Erlent m
- --
Islamski byltingarf lokkurinn skipar nýja menn í stöður
hinnalátnu:
Friðsemdarklerk-
ur skipaður í stað
Ayatollah Beheshti
—talið að sklpan Mohammad Javad Bahonar sé
bráðabirgðaráðstöfun
Islamski lýðveldisflokkurinn í Íran
er þegar tekinn að reyna að fylla í þau
skörð sem mynduðust 1 röðum
flokksforystunnar er margir af leið-
togum flokksins fórust í sprenging-
unni 1 höfuðstöðvum flokksins
siðastliðinn sunnudag.
í gær valdi flokkurinn mennta-
málaráðherrann Mohammad Javad
Bahonar sem aðalritara flokksins i
stað Ayatollah Mohammad Beheshti,
sem var í hópi þeirra 73 flokksmanna
Islamska lýðveldisflokksins sem
fórust i sprengingunni.
Stjórnarerindrekar í Teheran segja
að Bahonar sem notar titilinn Hoja-
toleslam (sem merkir sönnun fyrir
islam) sé ekki umdeildur maður og sé
trúlegt að skipan hans sé aðeins
bráðabirgðaráðstöfun bókstafstrúar-
manna Islamska flokksins meðan
hann er að jafna sig eftir hið mikla
áfall sem dauði margra af forystu-
mönnum flokksins er.
„Hann er rólegur og greindur
maður,” sagði einn stjórnarerindrek-
anna um hinn 47 ára gamla nýja
flokksleiðtoga. „Hann er ekki líkur
foringja,” sagði annar og sá þriðji
taldi fullvíst að nýr leiðtogi Islamska
flokksins yrði skipaður innan
skamms.
ipps:
c:v ■
.
'%í*mwrn
„Beriín skal brenna”
„Berlin skal brenna” var meðal slag-
orða sem mótmælendur hrópuðu í
mótmælagöngu i Vestur-Berlín um
síðustu helgi. Um 500 manns úr hópi
um 10 þúsund göngumanna tóku sig út
úr göngunni og kom til mjög harðra
átaka á milli þeirra og lögreglunnar.
Þetta eru taldar alvarlegustu óeirðir
sem orðið hafa í Vestur-Berlln siðan á
sjöunda áratugnum. Um sextíu lög-
reglumenn meiddust í átökunum og
álíka stór hópur mótmælenda var
handtekinn. Mótmælin eru sprottin
upp vegna húsnæðisvanda I Vestur-
Berlin og koma í kjölfar margra svip-
aðra mótmæla þó ekki hafi þau áður
verið eins alvarleg og nú.
Synthetic Enamel
Acrylic Enamel
Acrylic Lacquer
Mobil OfL CORPORATION FORMULA
Einnig öll undirefni,
málningarsíur, vatnspappír
Marson-sprautukönnur
SATA-sprautukönnur
V.
H. JONSSON & CO
SÍMAR 2-22-55 & 2-22-57
BRAUTARHOLTI 22 - REYKJAVÍK
KREMLVERJAR VIUA
EKKERT GEFA EFTIR
— Ekki búizt við árangri af viðræðum Carringtons við
ráðamenn í Moskvu um Afganistan-málið
Hin opinbera sovézka fréttastofa
Tass gaf í gærkvöldi til kynna að af-
staða Sovétstjórnarinnar til Afganist-
an-málsins væri óbreytt. Fréttastofan
sagöi að „eina rétta leiðin” til lausn-
ar Afganistan-málsins væri fólgin í
þeim tillögum em stjórn Afganistan
(sem studd er af Sovétmönnum) setti
fram I maí 1980.
Rétt áður en Tass-fréttastofan
greindi frá þessari afstöðu skýrði hún
frá fyrirhugaðri heimsókn utanrikis-
ráðherra Bretlands, Carringtons lá-
varðar, til Moskvu þar sem hann
mun greina frá nýjum tillögum vest-
rænna ríkja sem miða að þvi að
tryggja brottflutning sovézkra her-
sveita frá Afganistan.
Orðalagið í frétt Tass-fréttastof-
unnar þótti ekki gefa ástæöu til bjart-
sýni um árangur af heimsókn Carr-
ingtons.
Vestrænir stjórnarerindrekar i
Moskvu segjast þeirrar skoðunar að
þar muni ráðamenn reyna að gera
litið úr þessum tilraunum Carring-
tons en í þess stað kynna heimsókn
hans sem tilraun til aö bæta heldur lé-
legt samband Bretlands og Sovétríkj-
anna.