Dagblaðið - 01.07.1981, Qupperneq 9
.9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 1981.
Ct
Erlent
Erlent
" Erlent
Erlent
I
Mundir þú vilja giftast Karli Bretaprinsi?
„Já, því þá mundi ég aldrei framar
þurf 'a að skára gólf, ”
sagði kona ein í vinsœldavali bandaríska vikuritsins People
FOLK
í Bandarikjunum er svohljóðandi
gáta mjög vinsæl: Hvað fer 10, 9, 8, 7,
6 . . . ? Og svarið er Bo Derek þegar
aldurinn færist yfir hana, en Bo lék
sem kunnugt er i myndinni 10. Les-
endur bandaríska vikublaðsins People
virðast þó ekki hafa haft gátuna í huga
þegar þeir kusu laglegustu konu Banda-
rikjanna árið 1981. Bo Derek hafnaði i
fyrsta sæti hjá þeim en hún skipaði
einnig þann heiðurssess'i fyrra. í öðru
sæti varð Jacklyn Smith, sem sigraði
1979, og góðkunningi okkar úr Dailas,
Victoria Principal, varð i þriðja sætí.
í kosningunni um títíUnn laglegasti
karlmaður Bandarikjanna sigraði
Robert Redford, þriðja árið í röð.
Redford, sem nú er 43 ára, sigraði með
enn meiri yfirburðum en í fyrra. í öðru
sætí varð Burt Reynolds en hann hefur
haldið þvi sæti i þrjú ár. Reynolds átti
þó meira fylgi að fagna en Redford
meðai stúlkna á aldrinum 12—17 ára.
Jafnir i 3.-4. sætí eru Clint Eastwood
og Tom Selleck, en Paul Newman
hrapaði úr þriðja sætinu i fimmta.
Ártrrmy Kmrmlt, hún Svínka, er
vinsæl meðal bandariskre sjón-
varpsóhorfenda.
Bo Derek, laglegasta kona Banda-
ríkjanna.
„íslandsvinir"
í efstu sœtunum
Victoria Principal er vinsælust
bandariskra sjónvarpsleikkvenna en
Linda Gray, sem einnig leikur i DaUas,
er rétt á eftír henni. Munaði aðeins 0,4
prósentum á fylgi þeirra. Linda Gray
áttí meira fylgi meðal kvenþjóðarinnar.
Ein önnur vinkona okkar úr fsienzka
sjónvarpinu varð í þriðja sætí. Það er
engin önnur en Svinka, en i fyrra varð
hún i öðru sæti.
Alan Alda, sem leikur Haukfrán í
Mash, er vinsælastur af karlpeningn-
um. Ed Asner kom hins vegar mest á
persónuleiki hans er á við skál af köldu
haframéU.” Verðandi erfðafræðingur
sagði: „Börn okkar mundu lita út eins
og rugguhestar.”
Sumar vildu hins vegar fyrir hvern
mun giftast prinsinum, þótt ástæður
þess væru fjölbreytilegar. „Ég mundi
giftast Karli því þá fengi ég mynd af
mér á fjöldaframleidda boli,” svaraði
ein. Og önnur hafði göfugri hugsun að
leiðarljósi. „Aldrei, aldrei aftur mundi
ég þurfa að skúra gólf.” Var þá engin
sem hafði neitt gott um prinsinn að
segja. Jú, ein. „Karl er skemmtíiegur,
víðsýnn, ævintýramaður og opinn fyrir
nýjum hugmyndum.”
óvart i þessari kosningu, en hann nældi
í annað sæti. Michael Landon úr
Húsinu á sléttunni varð númer þrjú. Þá
vakti einnig athygli að „skúrkurinn”
Larry Hagman varð i sjötta sætí, en i
fyrra varð hann í því tiunda.
Enn um sinn skulum við halda okkur
við leikarastéttina. Vinsælasta kvik-
myndaleikkonan í ár er Sally Field.
Flestir aðdáenda hennar eru á aldrinum
18—24, en sjálf er Sally 34 ára. í fyrra
varð Sally einnig efst. Mary Tyler
Moore náði öðru sætinu en jafnar í
þriðja sæti eru Goldie Hawn og Barbra
Streisand.
Robert Redford er greinilega geysi-
lega vinsæll leikari. Hann varð í efsta
sætí af körlunum en Dustin Hoffmann,
sem trónaði þar í fyrra,datt niður i ann-
að sætí. Clint Eastwood varð þriðji.
Robert Redford var kjörinn log-
legasti karlmaðurinn og vinsælasti
kvikmyndaleikarinn.
Kenny Rogers,
Streisand og Eagles
Konur dást að honum og unglingar
dýrka hann. Sú varð niðurstaðan er les-
endur People kusu Kenny Rogers
uppáhalds söngvara sinn. Luciano
Pavarotti varð nokkuð óvænt i öðru
sætí og Neil Diamond kom þar á eftir.
Barbra Streisand er vinsælust söng-
kvenna, alveg eins og i fyrra. Barbra og
Barry Gibb slógu i gegn með plötunni
Guiity sem seldist i 8 milljónum eintaka
og hlaut Grammy verðlaunin fyrir bezta
dúett ársins. Diana Ross kom næst og
númer þrjú varð Linda Ronstadt en
hún sigraði 1979.
Af hljómsveitunum er það að segja
að Eagles sigruðu annað árið í röð. Þeir
eiga mestu fylgi að fagna meðai ungs
fólks á aldrinum 18—34. Doobie
Brothers klifruðu upp I annað sætið og
gömiu rokkararnir í Fleetwood Mac
voru á sama stað og i fyrra, þriðja sætí.
Ekki giftast
prinsinum, Dianal
Brúðkaup Karls Bretaprins og lafði
Díönu er mikið i sviðsljósinu og
iesendur People voru spurðir að þvi
hvort þeim fyndist að Diana ættí að
giftast Karli. Nei, sögðu 88% og stóðu
fastír á því að þeir myndu aldrei gera
slíkt. „Þessir köldu kastalar eru ónota-
legir,” notaði einn sem afsökun. Annar
sagðist ekki geta hugsað sér að kalla
eiginmann sinn „yðar hátígn”. „Ég
kýs frekar eiginmann frá sama landi og
ég sjálf er,” sagði ein kona. Sumir les-
endanna voru mjög dónalegir i garð
prinsins. „Dekraður, hallærislegur,
Traustverðugasti stjórnmélamaðurinn var Reagan en mestu„skurkarnir" töldust Nixon og Haig.
Sally Fieid hóit titiinum vinsæiasta
kvikmyndaleikkonan annað árið i
röð.
Karimenn voru hrifnastir af Victoriu Principal og fyrirþeirra atbeina varð hún
útnefnd vinsæiasta sjónvarpsieikkona érsins 1981.
Mundir þú vilja
vera Karl prins?
Rúmlega þrir af hverjum fjórum
tóku ekki i mál að fara i skó Karls
Bretaprins. Og það þótt í boði væru
völd, auðæfi og lagleg kærasta með
blátt blóð í æðum og konunglegan
svip. „Ég er betri hestamaður,”
montar einn lesandi sig af. Annar sjálf-
umglaður svarar: „Ég er draumaprins
mínsheimilis.”
Glöggt kom i ljós að ekki eru allir
sáttir við hin daglegu störf prinsins.
„Hann hefur ekkert hlutverk i tilver-
unni,” sagði einn og annar tók enn
sterkara til orða: „Hann er hroka-
fullur, felur sig á bak við titíl sinn og er
aldrei áminntur fyrir mistök.” Einum
lesanda fannst þó mikið til stöðu prins-
ins koma. „Prinsinn getur valið úr
kvenmönnum,” sagði sá.
Stjórnmálamenn
Til hvaða stjórnmálamanns i Banda-
rikjunum berðu mest traust? spurði
People. Reagans, svöruðu 36%, en i
þriðja til fjórða sæti voru fráfarandi
forseti Jimmy Carter og George Bush
varaforsetí. Carter var efstur á blaði í
fyrra og þvi virðist sem lesendur People
beri ætið mest traust til forsetans
hverju sinni. Athygli vakti að í öðru
sæti varð stjórnmálamaðurinn „Eng-
inn”, þ.e. 18% töldu sig ekki treysta
neinum.
Kosningar þessar voru tvöfaldur
sigur fyrir bandarisku forsetahjónin
því Nancy Reagan var uppáhaldsfrú
lesendanna. í öðru sætí varð Jackie
Kennedy Onassis og Rosalynn Carter
varð númer þrjú, en hún var efst í
fyrra.
Loks spurði vikublaðið lesendur sfna
tíl hvaða stjórnmálamanns þeir bæru
minnst traust. Og ekki stóð á svarinu.
Richards Nixons. Alexander Haig varð
jafn Nixon í efsta sætinu og i þvi þriðja
varð sjálfur forsetinn, Ronald Reagan.
Jafnir i fjórða til fimmta sæti voru Ted
Kennedy og Jimmy Carter.