Dagblaðið - 01.07.1981, Side 27

Dagblaðið - 01.07.1981, Side 27
27 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLl 1981. (i Útvarp Sjónvarp i „Maður og kona” eftir Jón Thoroddsen—útvarp kl. 21,30: Jón Thoroddsen brautryðjandi í íslenzkrí skáldsagnagerð —sagahans, Maðurogkona, hefur göngu sína í útvarpi Ný útvarpssaga hefur göngu sfna 1 kvöld. Það er Maður og kona eftir Jón Thoroddsen, Brynjólfur Jóhannesson leikari les (áður útvarpað veturinn 1967-68). Jón Þórðarson Thoroddsen fæddist 5.10. 1818 á Reykhólum i Barða- strandarsýslu. Hann ólst upp að mestu leyti f Sælingsdalstungu i Dölum. Jón varð stúdent úr Bessastaðaskóla 1840 og hélt til Kaupmannahafnar. Þar lagði hann stund á laganám og var við það frá árunum 1841 til 50 en lauk samt ekki prófi í þeirri lotunni, enda snerist hann i ýmsu. Meðal annars var hann um fjögurra mánaða skeið (1848) her- maður i liði Dana i striði þeirra við Þjóöverja um hertogadæmin. 1850 sneri Jón heim, var settur sýslu- maður í Barðastrandarsýslu og hafði búsetu i Flatey. Ekki var hann vel sáttur við prófleysið og hélt til Dan- merkur á ný til þess að ljúka prófi. Það gerðist 1853 og prófinu lauk hann ári síðar og fékk þá veitingu fyrir sýslunni. Settist Jón þá að í Haga á Barðaströnd þar sem hann bjó þar til hann fékk veitingu fyrir Borgarfjarðarsýslu, 1861. 1863 settist hann síöan að á Leirá i Borgarfiröi og bjó þar til æviloka, 1868, eða eins og Jón Ólafsson segir um hann i minningargrein: „Sunnu- daginn 8. marz, nokkru eftir sólsetur, andaðist að heimili sfnu, Leirá, Jón Þórðarson Thoroddsen, skáld, sýslu- maður Borgfirðinga.” Eins og áður hefur verið sagt þá varð sitthvaö til þess að tefja Jón frá námi i fyrri lotunni I Höfn, árin 1841—50. Meðal annars gaf hann þá út, ásamt Gisla Brynjólfssyni, timaritið Norður- fara, tvo árganga (1848—49). Sú út- gáfa var síðan ljósprentuð löngu síðar, 1943. Hvað sem því líður þá birtist alla vega f Norðurfara fyrsta saga Jóns á prenti: Dálitil ferðasaga. Fyrsta kvæði hans birtist i Fjölni 1847. í félagi við Gísla Magnússon, síðar kennara, gaf hann út ljóðasafnið Snót, 1850, og var það sérprentað þrisvar sinnum meö breytingum. Fyrsta skáldsaga Jóns Thoroddsen, Piltur og stúlka, kom út 1850. Maður og kona kom út 1876, og hefur oft verið endurprentuð, m.a. með ævi- ágripi eða ævisögu höfundar eftir Jón heitinn Sigurðsson forseta. Skáldsögur Stefán íslandi syngur aríur úr ýmsum óperum—útvarp kl. 22: Stefán íslandi i hlutverid hertogans af Mantua i Rigoletto, fyrstu óper- unni sem sett var á svið i ÞJóðlelkhús- inu (vorið 1951). Mig minnir að éghafi alltaf verið galandi i vilden sky —segir Stefán íslandi er hann minnist bemsku sinnar Stefán Islandi fæddist 6. okt. 1907 að Krossanesi i Seyluhreppi, Skagafirði. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Stefánsdóttir og Guð- mundur Jónsson, vinnumaður i Krossanesi. Sagt er að Stefán hafi verið sísyngj- andi, fullum háisi, frá þvi að hann var lftill. Um þetta segir hann sjálfur: „Mér er sagt að þegar ég var strákur í sveitinni i Skagafirði hafi ég alltaf verið galandi.” I bókinni Áfram veginn segir m.a. frá því að maöur kemur ríðandi og spyr mann, sem hann mætir, hver sé að syngja. Syngja? Já, hvort hann heyrði ekki sönginn. „Jú, þetta er hann Stebbi. Hann er alltaf gargandi. ” Og þetta er vist rétt,” hlær Stefán. „Mig minnir að ég hafi alltaf verið galandi i vilden sky.” Stefán kvaðst ekki hafa fengið til- sögn i söng fyrr en um 1928-30. Þá hefði hann hlotið kennslu hjá Sigurði Birkis og jafnframt verið í Karlakór Reykjavíkur. Síðan fór Stefán til ítalíu og árin 1930—33 lærði hann söng hjá Ernesto Caronna i Milanó og söng sitt fyrsta hlutverk, Cavarad- ossi í Tosca, árið 1933. Þar með var hann sigalandi Stebbi iitli úr Skaga- firðinum kominn áleiðis á frama- brautina og átti eftir að verða „einn af mestu óperusöngvurum okkar ís- lendinga”, eins og komizt hefur verið að orði um hann. Stefán söng vfða um heim og hlaut frábærar undirtektir. Fyrsta sjálf- stæða konsert sinn hélt hann í Tívolí i Kaupmannahöfn 1935. Fyrsta hlut- verk hans við Konunglega leikhúsiö í Kaupmannahöfn var í óperunni Madam Butterfly, 1938, og var Stefán fastráöinn við leikhúsið 1940. í framhaldi af því var hann skipaður konunglegur hirðsöngvari 1949, söngkennari við Konunglegu óperuna i Kaupmannahöfn frá árinu 1959 og prófdómari við Kgl. Dansk Musik- konservatorium i Kaupmannahöfn frá 1961. Stefán fluttist heim til íslands 1966 og gerðist kennari við Tónlistarskólann í Reykjavik. Stefán íslandi söng hertogann af Mantua i Rigoletto við fyrstu óperu- uppfærslu i Þjóðleikhúsinu, árið 1951, og hefur sungið í ótal óperum og haldið fjölda konserta. Nokkur dæmi um óperuhlutverk Stefáns eru: Rudolfo 1 „La Bohéme”, Faust I „Faust”, Turrido í „Cavalleria Rusticana”, Lenski í „Eugen Onegin”, Cavaradossi f „Tosca”, Werther i „Werther”, Pinkerton í „Madam Butterfly”, Don Carlos i „Don Carlos”, Don José í „Car- men”, Alfredo í „La Traviata”, Nodui i „Perluveiðurunum”, Alma- viva í „Rakarinn i Sevilla”, Nemorino f „Don Pasquale”. -FG Jóns Thoroddsen, I-II, komu út 1942, i útgáfu er Steingrímur J. Þorsteinsson bjó til prentunar. 1 áðurnefndri minningargrein, 1868, segir Jón Ólafsson ennfremur: „Eftir hann liggur margt prentað en vér viljum aöeins nefna hina afbragðs fögru skáldsögu hans, „Pilt og stúlku”. Það er hið fyrsta rit í sinni tegund, er samið hefur verið á Islandi siðan i fornðld. Það er svo mikið af- bragð að eigi eru likindi til að ísland eignist að sinni annað slikt í þeirri grein. Heyrt höfum vér, að áður en Thoroddsen dó, hafi hann verið að láta rita upp og búa til prentunar aðra skáldsögu, er heitir „Maður og kona”.” -FG Jón Thoroddsen, skáld og sýslumaður. * >■. Smurbrauðstofan BJORNINN Njáisgötu 49 — Simi 15105 NJARÐVIK Óskum eftir umboðsmanni í Njarðvík strax. Uppl. ísíma 92-2249 eða 91-27022. IBIADIB Önnumst kaup og sölu allra almennra veöskuldabréfa og ennfremur vöruvíxla. Getum ávallt bœtt við kaupendum á við- skiptaskrá okkar. Góö þjónusta. — Reynið viðskiptin. Vi'nllnTía. My)íi husmu v Læk|i»rtorg 12222

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.