Dagblaðið - 29.07.1981, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 29.07.1981, Blaðsíða 1
7. ÁRG. - MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1981 -168. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMI 27022. V Ákvörðun Friðjóns tilkynnt á ríkisstjórnarfundi í morgun: Gunnar Bergsteinsson verður GæzTuforstjóri Friðjón Þórðarson dómsmálaráð- herra hefur ákveðið að veita Gunnari Bergsteinssyni, forstöðumanni Sjó- mælinga rikisins, forstjórastöðu Landhelgisgæzlunnar. Hann tekur við starfi í haust af Pétri Sigurðssyni. Ákvörðun Friðjóns var tilkynnt á ríkisstjórnarfundi fyrir hádegi í dag. Stöðuveiting ráðherrans mælist vel fyrir meðal starfsmanna Gæzlunnar, eftir því sem DB hefur fregnað. Enda er Gunnar fyrrum innanhússmaður þar, á þeim tíma er Sjómælingar heyrðu undir Landhelgisgæzluna. Gunnar er menntaður sem sjóliðsfor- ingi og var í norska sjóhernum á ár- unum 1945—1950. Hann var stýri- maður á varðskipum og strandferða- skipum hérlendis, síðar mælinga- maður hjá íslenzkum sjómælingum og fulltrúi hjá Landhelgisgæzlunni. Hópur úrvalsmanna sótti um for- stjórastól Gæzlunnar á móti Gunnari Bergsteinssyni: Guðjón Ármann Eyj- ólfsson, kennari í Stýrimannaskólan- um, Hannes Þ. Hafstein, fram- kvæmdastjóri Slysavarnafélagsins, Guðjón Petersen, forstjóri Almanna- varna, Haraldur Henrysson saka- dómari, Jón Magnússon, lögmaður Gæzlunnar, Þorsteinn Þorsteinsson flugvélaverkfræðingur og Sigurður Gizurarson sýslumaður á Húsavík. - ARH Brúðkaup aldarinnar: Gífurleg stemmning íLondon í morgun Karl prins, erfingi brezku krún- unnar, gekk í morgun að eiga lafði Diönu Spencer. Blíðskapar- veður var í London í morgun og voru íbúar höfuðborgarinnar svo og hinir fjölmörgu útlendingar sem komnir eru tii London í miklu hátíðarskapi. Öryggis- ráðstafanir brezku lögreglunnar voru meiri en dæmi eru um og áttu um sjö þúsund hermenn og lögregluþjónar að halda uppi gæzlu á leið brúðhjónanna frá Buckingham-höli til- Sankti Páls dómkirkjunnar. Auk þess voru skyttur lögreglunnar á verði uppi á húsþökum og leynilögreglu- menn dreifðu sér innan um mann- fjöldann. „Borgin er pökkuð af fólki og stemmningin er alveg gífurleg,” sagði formaður ferðamálaráðs London í morgun. -GAJ — sjá erl. fréttir á bls. 6 og 7 - Ekkert unglingavanda- mál í Kjarnaskógi Þegar skátar á Landsmótinu í Kjarnaskógi vöknuðu i morgun sáu þeir að kominn var örlítill rigningar- úði. Var það nýtt tilbrigði veðurs sem hefur verið með bezta móti síðan mótið hófst um helgina. Hefur sólin skinið nær linnulaust á skátana alla dagana. Um þúsund skátar voru í morgun á mótinu auk 300—400 manna sem voru í fjölskyldubúðum. Ýmislegt er gert til að hafa ofan af fyrir þessu fólki, farið í leiki og hvers kyns skemmtan. Dróttskátar safna sér einnig stigum til stöðuhækkunar með lausn á ýmsum þrautum. Á mótinu eru unglingar i miklum meiri- hluta. Þó verður ekkert vart við margnefnd unglingavandamál og allt gengur mjög vel. - DS / DB-myndir Guðmundur Svansson. Þjóðeminýju Bflavíxlamir: hluthafanna Máliöhefurvelt íCargolux mikiðuppásig feimnismal? — sjá baksíðu — sjá bls. 10 ForgangsverkefniKarls ogDiönuað eigh rastftönv -sjábis.6 ÓSKA EFMR NIÐURRIFI HÚSA VIÐ AÐALSTRÆTl Aðalstræti 10, gamla Silla & Valda Aðalstræti 16, þar sem m.a. er verzl- búðin, er eitt fjögurra húsa við Aðal- unin Númer 1. Ástæður þessa segja stræti sem sótt hefur verið um leyfi til eigendur þeirra vera svimandi há bygginganefndar til að fá að rífa. Hin gjöld og skatta sem greiða verður af húsin eru Geysir, Herrahúsið og fasteignunum ár hvert. — sjá bls. 11 Á 1 1

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.