Dagblaðið - 29.07.1981, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 29.07.1981, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1981. FAUM VID BRAÐUM FERSKA KJÚKLINGA? ísfugl: „Við hér sjáum enga ástæðu til annars en að setja kjúklinga ferska á markað. En yfirdýralæknir er hræddur við þaö vegna hættu á salmonnellu-sýkingu. En meö góðu samkomulagi við ákveðnar verzlanir um alla meöferð og sölu ætti ekki að vera hætta á henni. Kannski ekki verði svo langt í það að kjúklingar fáist ferskir,” sagði Alfreð Jóhanns- son, framkvæmdastjóri kjúklinga- sláturhússins lsfugls. Forráðamenn hússins boðuðu blaðamenn á fund á dögunum i tilefni tveggja ára afmælis fyrirtækisins. Jafnframt var verið að kynna starfsemi fyrir- tækisins og ýmislegt sem er í bfgerö. Það sem neytendum kemur liklega hel/t til góða af nýjungum er aö núna í haust verður byrjað að selja kjúklinga I sérstökum stjörnuflokki. Verða þeir kallaöir Eöal-kjúklingar og eiga að bera af bræðrum sínum og systrum hvað öll gæði varðar. Þeir verða nokkuð dýrari en aðrir kjúklingar en það hlýtur að vera fagnaðarefni að geta fengið fyrsta flokks vörur með þvf að borga örlítið meira fyrir hana. Tækjakostur hjá ísfugli er allur af nýjustu og beztu gerð. Búið er að eyða f hann milljónum króna og Eðal- kjúklingar næsta nýjungin milljón f húsið undir hann. í næstu framtíð á enn að auka við. Blaðamenn vildu vita hvort þetta gæti borgað sig. „Ja, eftirspurnin eftir kjúklingum er það mikil núna að við höfum ekki undan. Það liggur meira að segja við skorti,” sagði Alfreð. Hann sagöi aö eftir að lagt var gjald á fóðurbæti hefðu margir hænsna- bændur gefizt upp á framleiðslunni og aðrir minnkað við sig. En I kjölfar gjaldsins juku þeir sem eftir voru hagræðingu hjá sér og framleiða nú i stærri einingum. Við það lækkaði framleiðslukostnaður og verðið hækkaði ekki eins voðalega og menn bjuggust við. -DS. J6n M. Guðmundsson bóndi i Reykjum og stjórnarmaður i tsfugli sýnir blaðamönnum þama nýjustu vél ísfugls. Hún snöggkælir kjúklingana niður eftir slátrun. ORlinDIG nr.eitt í könnun v-þýska neytendabladsins Test Úr kjúklingahakki, sem er nýjasta framleiðsla ísfugls, er meðal annars hægt að búa til þessa girnilegu rétti. DB-myndir Bj. Bj. Upplýsingaseðill til samanburtVar á heimiliskostnaði Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- andi I upplýsingamjðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki cigið þér von um að fá nytsamt heimilis- tæki. Nafn áskrifanda Heimili Sími Fjöldi heimilisfólks Rostnaður í júnímánuði 1981 Matur og hreinlætisvörur kr. Annað kr. Alls kr. m iiKSV ui iN»tí«leim.4.um P (t.ci', jrp'i.vk|.i íi þíurjmalj M.’m tcMljm I yfirgrip.miliMi lnnnun - li,—i frjmk>.em.li nvlepj Jn hcþiu jter.'ir Im.ikj.i j vceiiir-þ\ekum nurkj.'i h Neytendasamtökin unnu Nesco: Sehrg.M SA.MAM.AGDÚR STIGAFJÖI.DI IIVERS 'lillji-nir nunnj ircv.lj þev-o HINNA 20 T-CKJA unwlcn^pX'.'iiriJm m‘ (l’l.l SAR AD FRADRF.GNLM MlNLSUM). sstxsr*’’ 'c-l.ir hv.L.iljnJ.ercinm.11 (irundig ......... 50 Philips............ 38 t.KI M>Ui l.l.l. Schaub-lavrem 45 Saba ............. ,V7 Blaupunkl ......... 42 Ullraschall ........ 37 Koning ............ 42 G.F-C............... 36 «cga ............. J.K.G.................... 36 ............ 40 lcirfunkcn ........ 36 Sicmcns .......... ......................... 34 l icscnköllcr ..... 39 Melz ............... 33 MJJ' Nordmendc .......... 39 Otto llanst-alic .... 32 l ni.crsum ........ 39 Impcrial ........... 29 Leiðandi fyrirtæki I á sviði sjónvarps útvarps og hljómtækja I „FORUM MEIRA UTIRANN- SÓKNIR Á AUGLÝSINGUM” „Með þessa dómsniðurstöðu á bak við okkur munum við örugglega fara meira út í það að vara við órétt- mætum auglýsingum,” sagði Jón Magnússon lögfræðingur Neytenda- samtakanna. Nýlega var úrskurðað í Hæstarétti i máli Nesco h.f. gegn Neytenda- samtökunum. Samtökin höfðu í október 1977 sent frá sér frétta- tilkynningu þar sem varað er við auglýsingu frá Nesco. í auglýsingunni er vitnað í könnun þýzka neytendablaðsins Test. Test hafði gert könnun á litsjónvarps- tækjum i Þýzkalandi og gefið plúsa og mínusa fyrir hvert atriði sem athugaðvar. Nescohaföi lagt plúsana saman og dregið mfnusana frá og fengið með þvf út að tækið Grundig Super Color 8250 væri bezí. Neyt- endasamtökin sögðu hins vegar í fréttatilkynningunni áöurnefndu að þarna væri verið aö draga rangar ályktanir af gefnum forsendum. Væri þetta villandi þvi tæki gæti fengið plús fyrir lítilvægt atriði en mínus fyrir mikiivægt. Því væri einfaldlega ekki hægt að lcggja saman og draga frá. Var þetta kölluð lævis auglýsingabrella. Nesco krafðist þess aö frétta- tilkynningin yrði afturkölluð en til vara að tvær setningar í henni væru felldar niður. Á það gat undirréttur ekki fallizt en dæmdi þau orð að auglýsingin væri lævís auglýsinga- brella helzt til sterk og þvi ómerk. Að öðru leyti var dómurinn á þá leið að Neytendasamtökin hefðu til þess- arar fréttatilkynningar fullt leyfi. Dómur Hæstaréttar nú á dögunum staðfesti siðan þennan dóm „Með þessu teljum við að verið sé að leyfa Neytendasamtökunum að gefa út fréttatilkynningar í svona málum en jafnframt að orða verði þær af fyllstu varúð,” sagði Jón Magnússon. Við hér á Neytendasíðunni vonum innilega að þessu verði sinnt af mikilli hörku. Satt bezt að segja er það til skammar hvað auglýsendur komast upp með að segja okkur í auglýsingum. Eins og við höfum þrá- faldlega minnzt á, en án minnsta árangurs aö því erséð verður. -DS.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.