Dagblaðið - 29.07.1981, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 29.07.1981, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1981. MAUÐ HEFUR VELT um umfangsmikla r rannsókn á meintum MIKIÐ UPP A SIG” íbflaviðskiptum „Því er ekki að neita að ákveðinn maður hefur oftar verið inni i þessum bilasvikamálum en aðrir og er hann kannski að því leyti ákveðinn samnefnari í málunum,” sagði Þórir Oddsson, vararannsóknar- lögreglustjóri ríkisins, i samtali við DB um umfangsmikil svikamál sem eru í rannsókn hjá RLR. Dagblaöið hefur greint frá þessum málum fyrr í þessum mánuði og m.a. sagt frá að einkum séu það þrír menn sem hafa verið kærðir fyrir vanskil í sambandi við bílakaup. Hafa þeir keypt fjölmarga bíla með vixlum sem siðan hafa ekki verið greiddir og hafa grandalausir seljendut setið eftir með sárt ennið þvi af þremenningunum er ekkert að hafa. „Þetta mál hefur velt mikið upp á sig,” sagði Þórir Oddsson. „Vbd- arnir hafa fariö nokkuð viöa og ekki alltaf gott að sjá hvar þeir hafa hafnað. Okkur hefur þó tekizt að vinda ofan af sumu.” Þórir sagðist engar töiur vilja nefna i þessu sambandi. Enn væri óvist hversu miklar fjárhæðir hefðu tapazt i þessum svikum en ljóst væri að a.m.k. sumir seljenda heföu orðið fyrir verulegum óþægindum. Rann- sóknin veri nú á viðkvæmu stigi að mati RLR og ynnu tveir rannsóknar- lögreglumenn að henni eingöngu. DB spurði Þóri hvort um skipu- lagða svikastarfsemi virtist vera aö ræða. „Ja, manni sýnist altént að ekki hafi verið rennt alveg blint í sjó- inn með þetta,” sagði Þórir Odds- son. -ÓV. --------39400—-—: Höfum kaupendur að 3ja herb. íbúðum í vesturbæ, Norðurmýrí og Hfíðum. b% af söfu/aunum renna í styrktarsjóð Sjáffsbjargar. NYJA FASTEIGNASALAN ÁRMÚLA 40 - SÍMI39400 Fyrirhafnartaus viðgerð ásprungnu dekki VARADEKKí HAIUSKAHÓLFI puncture pllnt Faaat f bensfnafgreWshim OLÍS og h|A umboðsmttnnum um land aNt SMYRILL H.F. ÁRMÚLA 7 - SÍMI 84450 ÓMIS8ANDI IFERÐA- LAGIÐ Auðvítað! vilja allir... .... spara bensfn á hagkvœman hátt .... fylgjast stöðugt með ástandi vélar úr framsætinu .... gera aksturinn skemmtilegri ... .eignast göðan ferðafélaga sem er með allt á hreinul ZT—3 bUtöfvan er án efa hagkvæmasta leiðin tíi bensinsparnaðar í dag. Hún getur framkvæmt 14 mismunandi aðgerðir. Verð aðeins kr. 990,- Auðveid ísetning. Umboðsmenn úti é landi: Vófsmiðjan Þór hf., ísaf. Hljómver hf. Akureyri Hábær, Kefiavík, Hegrihf., Sauðórkróki. Fellsmúla 24, Hreyfilshúsinu v/Grensasveg. Sími82980. Guðjón Davfðsson stjórnar byggingarframkvæmdum við b-álmu Borgarspitalans. DB-mynd: Einar Ólason. Langlegudeild aldraðravið Borgarspítalann: I notkun fyrir lok næsta árs? Langlegudeild aldraðra við Borgar- spitalann, b-álman, þýtur nú upp úr jörðinni. Verktakarnir Sigurður og Július hf. eru langt komnir meö fjórðu hæðina en alls verða hæðirnar átta. Að sögn Guðjóns Daviðssonar, sem stjórnar framkvæmdum fyrir hönd verktakafyrirtækisins, er byggingar- hraðinn um ein hæð á mánuði. Áætlað er að gera fokhelt fyrir 1. febrúar nk. en þeir eiga að skila verkinu fyrir 1. september 1982. Á byggingin þá að vera tilbúin að utan, með gleri, en fok- heldað innan. Hvað þá tekur við er mjög á huldu. Engin áætlun er til um frekari fram- kvæmdir. Tæknilega séð væri hægt að taka alla bygginguna í notkun fyrir lok næsta árs en slikt mun kosta, sam- kvæmt nýjustu útreikningum, um 51 milljón króna umfram það sem þegar hefur verið veitt á fjárlögum. Ráðamenn hafa undanfarið verið að funda um frekari framkvæmdir. Virðist niðurstaðan ætla að verða sú að leggja til að fé verði veitt til að fullklára og taka i notkun tvær efstu hæðirnar fyrir árslok 1982. Yrði þá gengið inn f þær um eldri hluta Borgarspitalans. Þegar B-álman verður fullgerð verða í henni 174 rúm sem ætluð eru til lengri dvalar aldraðra sem eiga við sjúkleika að stríða. Mikil og vaxandi þörf er fyrir slikt og reyndar ríkir hið mesta ófremdarástand í þeim efnum, ef ekki neyðarástand. 174 rúma viðbót jafn- gildir 80% aukningu þeirra rúma sem ætluð er fyrir langlegu aldraðra i höfuöborginni. -KMU. Brezka tímaritið Metal Bulletin: Greinir ítarlega f rá súrálsmálinu Brezka tímaritið Metal Bulletin, sem út kemur þrisvar í viku og þykir áreiðanlegt, fjallar enn um súrálsmálið 21. júlí sl. Dagblaðiö skýrði frá því sl. mánudag að þetta tímarit hefði fjallað um súrálsmálið 17. júlisl. Greinin 21. júlí er mun lengri en sú fyrri og þekur hálfa síðu. Helztu atriði súrálsmálsins eru rakin á hlutlægan hátt. Þar er skýrt frá samþykkt rikis- Fjármálaráðuneytið, fjáríaga- og hagsýslustofnun, óskar að ráða fulltrúa eða skrifstofumann nú þegar. Góðrar íslensku- og vélritunarkunnáttu er krafist. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi vald á ensku og einu Norðurlandamáli og geti unnið sjálfstætt að verkefnum. Laun skv. launakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknir ásamt upplýsing- um um aldur, menntun og fyrri störf óskast sendar fjármálaráðuneytinu, fjárlaga- og hagsýslustofnun, Arnarhvoli. 24. júH 1981. Fjármáiaráðuneytið, fjáriaga- og hagsýslustofnun. stjórnar íslands sem gerð var í tiefni skýrslu Coopers & Lybrand og sagt að endurskoðendafyrirtækið hefði komizt að þeirri niðurstöðu að ÍSAL hefði greitt a.m.k. 16,2 milljónum dollara of mikið fyrir súrál frá árinu 1975 til miðs árs 1980. i Greitt er frá kröfu ríkisstjórnarinnar um viðræður um endurskoðun ál- samninganna, skýrt frá viðbrögðum Alusuisse og sagt að það hafi hingað til vfsað öllum ásökunum um yfirverð á súráli á bug. -KMU.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.