Dagblaðið - 29.07.1981, Blaðsíða 18

Dagblaðið - 29.07.1981, Blaðsíða 18
18 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ1981. Veðrið Gert er ráð fyrir suðvestlœgri áttj víða, gola eða kaldi, súld eða rigning á Vesturlandi, en lóttir til í kvöld og nótt. Skýjað og lítils háttar úrkoma annars staðar á landinu. Klukkan 6 var sunnan 3, súld og 10 stig í Reykjavík, suðvestan 4, súld og 10 stig á Gufuskálum, norðaustan 2, alskýjað og 10 stig á Galtarvita, austan 1, úrkoma og 11 stig á Akureyri, austan 3, skýjað og 7 stig á Raufarhöfn, sunnan 1, alskýjað og 7 stig á Dalatanga, suðvestan 4, alskýj- að og 10 stig á Höfn og sunnan 4, súld og 10 stig á Stórhöfða. í Þórshöfn var hálfskýjað og 9 stig, skýjað og 15 stig í Kaupmannahöfn, alskýjað og 17 stig í Osló, lóttskýjað og 18 stig í Stokkhólmi, láttskýjað og 16 stig í London, súld og 15 stig í Hamborg, heiðrikt og 15 stig í Parfs, lóttskýjað og 18 stig i Madrid, heiðrikt og 19 stig { Lissabon og skúrir og 23 stig I New York. Andlát Gbli Magnússon, sem lézt 17. júlí sl., fæddist 25. marz 1893 að Frosta- stöðum í Akrahreppi. Foreldrar hans voru Magnús H. Gíslason og Kristín Guðmundsdóttir. Gísli tók gagnfræða- próf frá MR árið 1910, næsta ár lauk hann svo búfræðiprófi frá Bænda- skólanum á Hólum. Síðan dvaldist hann í Noregi og Skotlandi 1912—14 við búfræðinám. Eftir heimkomuna vann hann við bú föður síns en árið 1923 keypti hann Eyhildarholt i Rípur- hreppi og hóf búskap þar og bjó þar síðan. Gíslis sat á Búnaðarþingi frá 1948—78, þar átti hann sæti i búfjár- nefnd. Gísli átti sæti í hreppsnefnd Ripurhrepps 1925—62 og var oddviti frá 1935—58. Einnig átti hann sæti i sýslunefnd Skagafjarðar 1942—74. Gisli var kjörinn í stjórn Kaupfélags Skagfirðinga árið 1919—1922 og svo aftur árið 1939 og átti hann sæti í stjórninni til 1978 og var um tíma vara- formaður. Gisli var prófdómari við Bændaskólann á Hólum í 20 ár. Árið 1928 var Framsóknarfélag Skaga- fjarðar stofnað og var Gísli kosinn for- maður þess og gegndi hann þeirri stöðu til 1962. Einnig átti hann sæti í mið- stjórn Framsóknarflokksins 1934—63. Gísli var kjörinn heiðursfélagi í Búnaðarfélagi Íslands og Kaupfélags Skagafjarðar. Árið 1917 kvæntist Gísli Guðrúnu Stefaníu Sveinsdóttur og áttu þau 11 börn. Gísli var jarðsunginn sl. laugardag, 25. júlí. Magnús Kjartansson fv. ritstjóri er lát- inn. Jakobína Thorarensen verður jarð- sungin frá Dómkirkjunni fimmtu-1 daginn 30. júli kl. 15. Bóthildur Helgadóttir, Njálsgötu 33 B, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 30. júlí kl. 10.30. Sigurbjörg Unnur Árnadóttir, Kirkju- teigi 9, verður jarðsungin frá Laugar- neskirkju fimmtudaginn 30. júlí kl. 13.30. Sigurður Eyjólfsson, Fálkagötu 34, verður jarðsunginn frá Neskirkju fimmtudaginn 30. júli kl. 13.30. Ingþór Guðlaugsson lögregluþjónn verður jarðsunginn frá Selfosskirkju fimmtudaginn 30. júlí kl. 14. Helgi Salómonsson frá Ólafsvík, Álfta- mýri 2 Reykjavík, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstudaginn 31. júlí kl. 10.30. Ferflamálaráflstefna f september Ákveðið hefur verið að halda ..Ferðamálaráðstefnu 1981”, 11. og 12. september nk. Að þessu sinni verður ráðstefnan haldin í Stykkishólmi. Ráðstefnan er opin öllum þeim er að ferðamálum starfa og einnig áhugamönnum um eflingu og upp- byggingu ferðamannaþjónustu i landinu. Um fyrirkomulag ráðstefnunnar, afhendingu ráð- stefnugagna o.fl. verður nánar auglýst síöar. Fr«ttabr«f LAndfrasfllféÍððsins *!«»« J4sl .>« «:»r«.».»n»»».>: < »»»♦»« .<«>*•»», «-4t>v«‘.» *. >M. 1. <«j. jW.lttl Fréttabréf Landfrœflingafálagsins komiflút 2. tbl. Landabréf fréttabréfs Landfræðingafélagsins kom út nýlega. Ritstjóri og ábyrgðarmaður ritsins er Sigfús Jónsson. í bréfínu eru m.a. kynntar kennslu- bækur i Landafræöi. Sigfús Jónsson skrifar hugleið- ingu um hagræna landafræði sjávarútvegs, einnig er sagt frá aðalfundi Landfræðingafélagsins. sem haldin var 29. april sl. Norrænir sparisjóðir halda upp ó 50 ára afmæli samtaka sinna á íslandi 26/7-30/7 Nú i vikunni halda samtök norrænna sparisjóða NCSD fund á Hótel Loftleiðum í Reykjavik og er þetta 50 ára afmælisfundur samtakanna, en Sam- band islenzkra sparisjóða sér um framkvæmd fundarins. í tilefni afmælisins hefur bæklingur verið gefinn út en þar er rakiö á glöggan hátt hið nána samstarf sparisjóðanna á Norðurlöndum að því er varðar tæknileg málefni, menntun starfsfólks, auglýsingar gagnkvæma afgreiöslu og margt fleira. Sparisjóðastarfsemi á Norðurlöndum er mjög sterk eins og marka má af því að hlutdeild sparisjóð- anna í innlánum var árið 1980 39,5% í Noregi, 32% i Svíþjóð, 28,9% i Danmörku, 28,3% i Finnlandi og 16% á íslandi. Þátttakendur i fundinum í Reykjavik eru sparisjóðsstjórar i stjórnum Norrænu spari- sjóðasambandanna, framkvæmdastjórar samband- anna svo og bankastjórar sparisjóöabankanna á Noröurlöndum. Aðalmál fundarins i Reykjavík verða skipulags- mál sparisjóðanna og samnorræn þjónustá viö viðskiptamenn sparisjóðanna. Formaöur Sambands islenzkra sparisjóða er Baldvin Tryggvason, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Reykjavikur og nágrennis en framkvæmdastjóri er Sigurður Hafstein. Vertu klár í kollinum.. Einhverastaftar . • *höfj^»tóikaftverai*i **SSLl «lurinn t >rbrot“ „SkiUverdir minnast jafnmikillar drykkK Veggspjöld sam minna á skaflsami áfengis Samtökin Átak gegn áfengi hafa gefið út veggspjöld i samvinnu við ÍSÍ og UMFÍ sem minna á skaðsemi áfengis. Á spjöldunum eru þessar áletranir, „Hress i dag-hress á morgun”,, „Vertu klár i kollinum”, og „Áfengi og iþróttir fara ekki saman”. Veggspjöldin prýða myndir af hjólreiðamönnum, knattspymu- mönnum og á því þriðja eru fyrirsagnir úr dagblöð- um þar sem rætt er um ölvun á almannafæri. Tímarit Málarameistarafálags Reykjavlkur komið út Fyrir nokkru kom út blað er nefnist Málarinn. Er það Málarameistarafélag Reykjavíkur sem gefur blaðið út, og er þetta l. tbl. en 24 árgangur blaðsins sem er fjölbreytt aö efni. Má bar nefna crein Kristjáns Guðlaugssonar um heimaunna málningu. Jóhann Þorsteinsson ritar grein er hann nefnir Lita- Tt — Dóra Stefánsdóttir £ í-W 11 Kæri Jón Örn Marinósson Ég ávarpa þig svo, þó við þekkj- umst kannski ekki beinlínis. En við höfum oft talað saman í síma, ég fyrir Dagblaðið og þú fyrir útvarpið. Mér var sagt um daginn að ég hefði verið fullfljót á mér að þakka þér ágæta tónlist f útvarpi. Þú værir ekki tekinn við heldúr færi Þorsteinn Hannesson ennþá tónlistarstjóri. Ekki er mér kunnugt um hvenær þú tekur við þessu mikilvæga starfi eða hvað það er akkúrat sem þú færð að ráða. En í þessum dálki langar mig að koma til þin nokkrum ábendingum um það sem mér finnst betur mega fara i tónlist útvarpsins og vona að við séum að minnsta kosti sammála um sumt. Gærdagurinn og gærkveldið var ágætt dæmi um það hvernig tónlist í útvarpi á ekki að vera að mínu mati. í síðdegistónleikum, sem ég heyrði reyndar lítið af vegna vinnu, og í tónleikum frá Bústaðakirkju seinna um kvöldið, var það gert sem ekki á að gera. Plata sett á fóninn eða spóla á segulbandið og svo fékk einhver flytjandi að spreyta sig á verkum ein- hvers höfundar. Hvorki höfundur né flytjandi voru kynntir hið allra minnsta fyrir hlustendum. Ekki var sagt eitt einasta orð um baksvið þeirrar tónlistar sem var verið að flytja. í hvernig umhverfi hún varð til, hvort hún naut mikilla vinsælda á sinni tið eða um hvað verið var að syngja. Þeir sem skilja erlendar tungur fara að sönnu nær um það en hinir missa í rauninni helminginn af söngverkunum með því að skilja ekkk-extann. Þú, Guðmundur Jónsson og Atli Heimir Sveinsson, þið hafið ásamt fleiri verið með ljómandi góða þætti f gegnum árin þar sem ýmiss konar tónlist hefur verið flutt eins og mér finnst eigi að flytja hana. Með góðum kynningum á þvi sem verið er að flytja og þeim sem tónlistina flytja. Svona þætti hefur alveg vantað í sumar. Ég hef heyrt jafnvel hörðustu and- stæðinga sígildrar tónlsitar játa að vera farnir að leggja við hana eyru eftir að útvarpið varð víðóma. En þetta fólk fmnur enn meira að því en ég að tónlist þessi er samhengislaus við nánasta umhverFi þess nú á dög- um. Ég stend mig oft að þvi, ef ég heyri tónlist sem mér fellur vel við f út- varpi, að setja síðar plötur á með svipuðu efni. Þetta held ég að fleiri hljóti að gera og það er þetta sem út- varpið á að nota sér að minu mati. Með góðum kynningum á skemmti- legum tónverkum og góðum flytj- endum að fá fólk til að vilja meira. Útvarpið er fyrst og fremst miðill til að kenna fólki að meta tónlist, ekki til að flytja alla tónlist heimsins. Kær kveðja og til hamingju með starfið. Dóra Stefánsdóttir. P.S. Mikið er :gaman að Flóamanna- rollunni þinni. Sama. spjall. Hersteinn Pálsson þýðir grein eftir Arne Báck sem nefnist Litið um öxl til gamalla vinnubragða i málaraiðninni. Einnig eru birtar myndir frá N.M.O. sem haldiö var i Osló sl. sumar. Ýmislegt fleira efni er i blaðinu en við látum þetta nægja að sinni. Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: ROTTERDAM: Arnarfell .....29/7 Arnarfell ....... 12/8 Amarfell ......26/8 ANTWERPEN: Arnarfell .....30/7 Amarfell .... 13/8 Amarfell .... 27/8 GOOLE: KAUPMANNAHÖFN: Helgafell _____28/7 Helgafell .....12/8 Helgafell .....26/8 $VENDBORG: Arnarfell . 27/7 Arnarfell ...... . 10/« Arnarfell ...... .. .24/8 LARVÍK: Helgafell ...... . 30/7 Helgafell ...... . 10/8 Helgafell . 24/8 GAUTABORG: Hdgafdl . 29/7 Helgafell ...... Helgafell . 25/8 . 27/7 . 29/7 . 13/8 . 27/8 Helgafell . Dísarfell .. Helgafell . Helgafell . HELSINKI: Dísarfell........,24/7 Dísarfell ........ 19/8 GLOUCESTER, MASS: Jökulfell.........31/7 HALIFAX, KANAÐA: Jökulfell ...... 3/8 Mmnmgarspýöid Minningarkort Foraldra- og styrktarfélags Tjaldaness- heimilisins, Hjáiparhöndin fást á eftirtöldum stöðum: Blómaverzluninni Ftórii,' Unni, sími 32716, Guðrúnu, síma 51204, Ásu sima : 15990. Minningarkort Styrktar- og minningarsjóðs Samtaka gegn astma og ofnœmi fásl á eftirtðldum stððum: Á skrifstöfu samtakjnna að Suðurgötu 10. slmi 22153, á skrifstofu SlBS, simi 22J50, hjá Magnúsi, simi 75606, hjá Mariasi, simi 32354, hjá Páli, slmi 18537 og í sölubúðinni á Vífiis- stöðum, simi 42800. Minningarkort Styrktarfélags vangefinna ifást á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu félagsins, Háteigsvegi 6. Bókabúð Braga Brynjólfssonar, Lækjargötu 2, Bókaverzlun Snæbjamar, Hafnar- stræti 4 og 9, Bókaverzlun Olivers Steins, Strand- götu 31 Hafnarfirði. Vakin er athygli á þeirri þjónustu félagsins að tekið er á móti minningargjöfum í síma skrifstof- unnar, 15941, og minningarkortin síðan innheimt hjá sendanda með giróseðli. Þá eru einnig til sölu á skrifstofu félagsins minn- ingarkort Bamaheimilissjóðs Skálatúnsheimilisins. Mánuðina apríl—ágúst verður skrifstofan opin kl. '9—16, opið í hádeginu. Fwndir AA-samtökin í dag miðvikudag verða fundir á vegum AA-samtak- anna sem hér segir: Tjarnargata 5 (s. 91-12010) kl. 12 (opinn), 14, 18 og 21. Grensás, safnaðarheimili kl. 21. Hallgrímskirkja kl. 21. Akranes (93-2540) Suðurgata 102 kl. 21. Borgames, Skúlagata 13, kl. 21. Fáskrúðsfjörður, Félagsheimilið Skrúður, kl. 20.30. Höfn, Hornafirði, Miðtún 21, kl. 21. Kefla- vík (s. 92-1800), Klapparst. 7 enska, kl. 21. Á morgun, fimmtudag, verða fundir i hádeginu sem hér segir: Tjamargata 5, græna húsið, kl. 14. liHIÍi íslandsmótið f knattspyrnu 1981 Miövikudagur 29. júll AKRANESVÖLLUR ÍA-UBK l.deild kl. 20. AKUREYRARVÖLLUR Þór—Fram 1. deild kl. 20 LAUGARDALSVÖLLUR KR—ÍBV I. deild kl. 20 ÁRMANNSVÖLLUR Dökkbrúnum jeppa af Wagoneer- gerð var stolið frá Öldugötu í Reykja- vik aðfaranótt miðvikndagsins 22. júlí sl. Bifreiðin ber einkennisstafina R- 5003 og er af árgerð 1974. Hún er méð Ijósri innri klæðningu, á breiðum dekkjum en ekki upphækkuð. Bæðí lakk og innri klæðning eru farin að láta ásjá. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bifreiðina sé að finna eru vinsamlegast beðnir um að hafa samand við lögregluna. Ármann—Afturclding 3. dciid A kl. 20 GRÓTTUVÖLLUR .Grótta—Grindavik 3. deiid Á kl. 20 KÓPAVOGSVÖLLUR ÍK—Hverageröi 3. ddld A kl. 20 GARÐSVÖLLUR Viðir—Þór Þ 3. ddld B kl. 20 MELAVÖLLUR Léttir—Njarövík 3. ddld B kl. 20 BOLUNGARVÍKURVÖLLUR Bolungarvík—Reynir He. 3. ddld C kl. 20 ISAFJARÐARVÖLLUR Reynir Hn—Snæfell 3. deild C kl. 20 ÓLAFSVÍKURVÖLLUR Vikingur—Grundarfj. 3. deild kl. 20 BORGARFJARÐARVÖLLUR UMFB—Einherji 3. deild F kl. 19 EGILSSTAÐAVÖLLUR Höttur—Huginn 3. deild F kl. 19 FÁSKRÚÐSFJARÐARVÖLLUR Leiknir—Hrafnell 3. deild G kl. 19 STJÖRNUVÖLLUR Stjarnan—Fylkir 2. fl. B kl. 20 FELLAVÖLLUR Leiknir—Þróttur N 2. fl. C kl. 20 KAPLAKRIKAVÖLLUR Haukar—ÍBÍ2. fl.Bkl. 20 KR—VÖLLUR KR—ÍBK 3. fí. A kl. 20 VALSVÖLLUR Valur—Fram 3. fl. A kl. 20 VlKlNGSVÖLLUR Víkingur—ÍA 3. fl. A kl. 20 ÞRÓTTARVÖLLUR Þróttur—Stjarnan 3. fl. A kl. 20 ÁRBÆJARVÖLLUR Fylkir—Haukar 3. fl.B kl. 20 GRINDAVÍXURVÖLLUR Grindavik—Sclfoss 3. fl. B kh 20 VESTMANNAEYJAVÖLLUR Tjr—UBK 3. fl. B kl. 20 VALLARGERÐISVÖLLUR UBK—Fylkir 4. fl. A kl. 20. Útivistarferflir Verzlunarmannahelgin: Þórsmörk, ferðir fram og til baka alla daga, gist i góðu húsi i Básum. Gönguferðir við allra hæfi ma. á Fimmvörðuháls og Eyjafjallajökul. Snæfellsnes, gist á Lýsuhóli, sundlaug. Gæsavötn—Trölla- dyngja—Vatnajökull. Homstrandir—Homvik. Ágústferðir Hálendishringur Borgarfjörður (eystri) Grænland Sviss. Upplýsingar og farseðlar á skrifstofunni Lækjar- götu 6a. s. 14606. GENGIÐ GENGISSKRÁNING Feröamanna- NR. 140 - 28. JÚLÍ1981 . gjaldeyrir Eining kl. 12.00 Kaup Sala Sala 1 Bandarfkjadollar >,‘465 7,485 8,234 1 Sterlingspund 13,870 13,907 15,298 1 Kanadadollar 6,079 6,096 6,706 1 Dönsk króna 0,9743 0,9769 1,0746 1 Norsk króna U198 1,2230 1,3453 1 Sœnsk króna 1,4347 1,4385 1,5824 1 Rnnsktmark 1,6374 1,6418 1,8060 1 Franskur franki U833 1,2867 1,4154 1 Belg.franki 0,1868 0,1873 0,2060 1 Svissn. franki 3,5163 3,5257 3,8783 1 Hoilenzk florina 2,7462 2,7536 3,0290 1 V.-þýzktmark 3,0554 3,0638 3,3700 1 ftöisk l(ra 0,00614 0,00615 0,00677 1 Austurr. Sch. 0,4344 0,4356 0,4792 1 Portug. Escudo 0,1145 0,1149 0,1264 1 Spánskur peseti 0,0760 0,0762 0,0838 1 Japansktyen 0,03154 0,03162 0,03478 1 IrsktDund 11,123 11,153 12,268 SDR (sórstök dróttarróttindi) 8/1 8,4416 8,4643 Simsvari vegna gengisskráningar 22190.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.