Dagblaðið - 29.07.1981, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ1981.
5
Margir tóku for-
skot á „sæluna”
Heildarálagningu opinberra gjalda lokið alls staðar nema
áSuðurlandi
Fyrstu álagningarseðlarnir I Reykja-
vík verða sendir út f dag og er búizt við
því að flestir skattgreiðenda í borginni
verði búnir að fá þá i hendur á föstu-
dag. Margir tóku þó forskot á sæluna
og fengu álagninguna uppgefna þegar í
gærmorgun. Voru svo mikil brögð að
þessu að allar simalínur skattstofunnar
voru, „rauðglóandi”, mestan hluta
dagsins i gær.
Samkvæmt upplýsingum Kristjáns
Jónassonar, sem nú gegnir störfum
ríkisskattstjóra, var álagningu opin-
berra gjalda lokið alls staðar á landinu
nema í Suðurlandsumdæmi og lágu þvi
ekki tölur um heildarálagningu fyrir er
DB hafði samband við hann i gær.
Gestur Steinþórsson, skattstjóri i
Reykjavik, sagði að byrjað yrði að
senda út álagningarseöla í dag en
megnið af þessum seölum yrði sent út á
morgun, þannig að flestir skattborgara
ættu að vera búnir að fá álagningarseðl-
ana á föstudag. Gestur sagði að þá ætti
einnig heildarálagning að liggja fyrir.
Sigmundur Stefánsson, skrifstofu-
stjóri á Skattstofu Reykjanesumdæm-
is, sagði i samtali við DB að fyrstu
álagningarseðlarnir hefðu verið sendir i
póst sl. föstudag, þannig að skattgreið-
endur i Hafnarftrði, Kópavogi, Garða-
bæ og á Seltjarnarnesi ættu að vera
búnir að fá þá i hendur og væntanlega
hefðu seölarnir borizt öllum skattgreið-
endum umdæmisins fyrir lok vikunnar.
-ESE
Samstarfshópur um rannsókn
mjólkurástands hef ur lokið störfum:
SKÝRSLAN AFHENT
RÁÐHERRA f DAG
„Við héldum okkar siðasta fund í
gær og i dag verður skýrsla okkar lögð
fyrir heilbrigöisráðherra,” sagði
Hrafn V. Friðriksson, forstöðumaður
heilbrigðiseftirlits ríkisins, er hann var
spurður um niðurstöðu nefndar er
kannað hefur mjólkurgalla. Heil-
brigðis- og tryggingaráðuneytið
skipaði fyrir 10 dögum nefnd sem átti
að kanna orsakir fyrir gölluðu mjólk-
inni. I nefndinni áttu sæti fulltrúar frá
ráðuneytinu, heilbrigðiseftirlitinu,
landlækni, Matvælarannsóknum rikis-
ins og heilbrigðiseftirliti Reykjavlkur-
borgar. Formaður nefndarinnar var
Ingimar Sigurðsson skrifstofustjóri hjá
ráðuneytinu.
Ekki náðist í Ingimar í gær en Hrafn
sagði að það væri alveg á valdi ráð-
herra hvað gert væri við efni skýrsl-
unnar. „Hann mun kynna sér efni
hennar og siðan verður það hans
Húsmæðrafélagið átelur Mjólkursam-
söluna fyrir að bjóða óneyzluhæfa
mjólk.
DB-mynd Sigurður Þorri.
ákvörðun:. hvort niðurstöður birtast
almenningi,” sagði Hrafn.
-ELA.
Húsmæðraf élag Reykjavíkur sendir f rá sér yf iriýsingu:
HVETUR NEYTENDUR TIL AÐ
DRAGA ÚRINNKAUPUM
—á mjólk meðan mjólkurástandið ríkir
Húsmæðrafélag Reykjavíkur hefur
sent frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er
yfir stuðningi við Neytendasamtökin
varðandi það ófremdarástand sem ríkt
hefur í mjólkurmálum á höfuðborgar-
svæðinu.
Húsmæörafélagið átelur Mjólkur- .
samsöluna fyrir að bjóða óneyzluhæfa SKOLAVÖRÐUSTIG 41 — SIMI 20235.
STÓRMARKAÐSVERÐ
Leni eldhúsrúllur, 2 stk. 9,70
Leni wc pappír, 8 stk. 23,10
Sani wc pappír, 12 stk. 25,20
Vex uppþvottalögur, 21 13,55
Kakó, 1/2 kg 18,10
Hunang, 450 gr. 14,85
Perur, heildós 15,40
Jarðaberjasulta 1/2 kg 11,95
Kraft tómatsósa, 400 gr. 6,26
Franskar súpur, pk. 1,65
Kjötskrokkar 1. og 2. verdfl.
Pottasett, 5 stk. 273,00
Opið til kl. 20 fímmtudaginn 30/7
og alla föstudaga til kl. 22
STÓRMARKAÐURINN
Skemmuvegi 4 A, Kópavogi
mjólk og hvetur neytendur til þess að endur til að draga úr innkaupum á
vera vel á verði. Þá hvetur félagið neyt- mjólk meðan þetta ástand rikir. -ELA.
EIGNANAUST HF.
SKIPHOLTI5
Vetur, sumar, vor og haust,
vart þarf langt að hlaupa.
Aðeins spöl í Eignanaust,
íbúð til að kaupa.
Arnarhraun, Hafnarfirði
3ja herb. sérhæð, 95 ferm. Bílskúr 30 ferm. Verð 570
þúsund.
Gaukshólar
3ja herb. íbúð á 2. hæð, 87 ferm. Verð 440 þúsund.
Vesturberg
3ja herb. íbúð á jarðhæð, 85 ferm. Sér garður. Verð 450
þúsund.
Lækjarfit, Garðabæ
3ja herb. íbúð í tvíbýlishúsi. Verðtilboð.
Dvergabakki
2ja herb. ibúð á 1. hæð, 55 ferm.
Verð 360 þúsund.
Byggingarlóð í Garðabæ. Verð 150 þúsund.
Lóð á Arnarnesi
Rúmlega 1700 ferm byggingarlóð á fallegum stað. Gott út-
sýni. Nánari upplýsingar aðeins á skrifstofunni, ekki í síma.
Raðhús v/Vesturberg
Til sölu fallegt raðhús á einni hæð. 140 ferm. Mjög falleg
eign. Verð 900 þúsund.
Jöidugróf
3ja herb. einbýlishús, ein hæð og ris, 80—85 ferm. Stór
lóð. Verð 680 þúsund.
Lindargata
2ja herb. íbúð á jarðhæð í tvíbýlishúsi, sérinngangur. Verð
320 þúsund.
Óskum eftir 2ja-3ja her-
bergja íbúð í Árbæjarhverfi
fyrir fjársterkan kaupanda.
Skoðum og metum íbúðir
samdægurs, leitið upp-
lýsinga. Fljót og góð
þjónusta er kjörorð okkar.
Opiðfrákl.l-5
laugardag og sunnudag
EIGNANAUST HF.
SKIPHOLTI5
SÍMI29555
ÞorvaldurLúövíksson hri